Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991. 23 íslandsmótinu í knattspymu lýkur á laugardaginn: Fram eða Víkingur íslandsmeistari? - Víkingar mæta Víði í Garði og Fram leikur gegn ÍBV í Laugardal íslandsmótinu í knattspyrnu lýkur á morgun en þá verður leikin 18. og síðasta umferð í 1. og 2. deild karla. Það er gífurleg barátta um íslandsmeistaratitilinn og knatt- spyrnuleikir helgarinnar eru há- punkturinn í íþróttum helgarinn- ar. Víkingar standa betur að vígi Það ræðst á morgun hvaða lið verð- ur íslandsmeistari í knattspyrnu 1991. Víkingur og Fram berjast um sigurlaunin og fyrir síðustu um- ferðina eru liðin með jafnmörg stig en Víkingar standa betur að vígi, eru með hagstæðari markatölu og munar tveimur mörkum á liðun- um. Víkingar leika gegn Víðis- mönnum, sem eru þegar fallnir í 2. deild, og fer leikurinn fram í Garðinum. Fram tekur á móti ÍBV á Laugardalsvelli. Sigri bæði Fram og Víkingur er það markatala sem ræður úrslitum. Þrír aðrir leikir eru á dagskrá og skipta þeir engu um hvaða lið verður meistari eða hvaða lið fellur. Víðir og Stjarnan eru þegar fallin og því er þaráttan um 4.-8.sætið. Valur og FH leika að Hlíðarenda, Stjarnan og Breiðablik í Garðabæ og á Akureyri leika KA og KR. Allir leikirnir hefjast klukk- an 14. Guðmundur Steinsson og félagar hans í Víkingi eiga góða möguleika á að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn á morgun. Guðmundur er markahæstur fyrir lokaumferðina með 13 mörk og hann er hér i baráttu við fyrrum félaga sína í Fram, þá Jón Sveinsson og Pétur Ormslev í leik liðanna í fyrri umferð íslandsmótsins. Hvaða lið fylgir Skagamönnum upp? í 2. deild er ljóst að ÍA hefur sigrað og lið Hauka og Tindastóls eru fall- in í 3. deild. Baráttan í 2. deild er um annað sætið sem gefur sæti í þeirri 1. á næsta ári. Þórsarar standa vel að vígi eru með þremur stigum meira en Grindvíkingar sem eru í 3. sæti og eru auk þess með hagstæðari markamun. Það er því ljóst að Grindvíkingar verða að sigra stórt og treysta á að Þór tapi sínum leik. Grindavík tekur á móti ÍR og Þór heimsækir Fylki í Árbæinn. ÍA og Selfoss leika á Skaganum, Haukar og Þróttur í Hafnarfirði og ÍBK og Tindastóll í leika í Keflavík. Leikirnir fara allir fram á morgun, laugardag, og hefj- ast klukkan 14. Reykjanesmót í körfuknattleik Fjórir leikir verða háðir um helg- ina í Reykjanesmótinu í körfu- knattleik. í kvöld er stórleikur í Njarðvík þegar heimamenn taka á móti Grindvíkingum. Leikurinn hefst klukkan 20 og á sama tíma leika í Kópavogi UBK og ÍBK. Á sunnudaginn eru síðan tveir leikir klukkan 20. ÍBK og Haukar leika í Keílavík og UBK og Grindavík leika í Kópavogi. -GH Sýningar Gallerí Borg Pósthússtræti 9 Sigrún Sverrisdóttir sýnir myndvefnað og einþrykk. Þetta er fyrsta sýning Sigr- únar hér á landi en hún hefur haldið tvær einkasýningar í Stokkhólmi og tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin stendur til 24. september og er opin alla daga kl. 14-18. Gallerí List Skipholti Þar stendur yfir sýning á verkum eftir nokkra listamenn. Þar gefur að líta graf- íkmálverk, keramik, postulín, glerverk og rakúkeramik. Sýningin stendur yfir í allt sumar og er opin virka daga kl. 10.30-18. Gallerí Einn einn Skólavörðustíg 4a Þar stendur yfir sýning á málverkum eftir Kristján Steingrim. Sýningin stend- ur yfir til 19. september og er opin dag- lega kl. 14-18. Gallerí Kot Borgarkringlunni Pétur Halldórsson opnar á morgun sýn- ingu á teikningum, unnum með bland- aðri tækni. Sýningin er opin á almennum afgreiðslutíma Borgarkringlunnar. Gallerí Sigurþórs Víðimel 61 er opið alla daga frá kl. 13-18. Myndverk eftir Sigurþór Jakobsson til sýnis og sölu. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9 Ósk Vilhjálmsdóttir sýnir í Gallerí Sæv- ars Karls. Sýningin stendur til 4. október og er opin á verslunartíma frá kl. 9-18 og kl. 10-16 á laugardögum. Hafnarborg Strandgötu 34 Gígja opnaði sýningu í Hafnarborg 31. ágúst sl. Síðastiiðin 4 ár hefur hún mest fengist við oliumálun á striga og eru myndimar á sýningunni ailar frá þeim tíma. Þetta er fyrsta einkasýning hennar. Sýningin er opin frá kl. 14-19 alla daga nema þriðjudaga. Sýningin stendur til 15. september. Alda Ármaima Sveinsdóttir opnar á morgun sýningu á málverkum og vatnslitamyndum í kaífistofu Hafnar- borgar. Opið er frá kl. 11-19 virka daga en 14-19 um helgar. Hlaðvarpinn Vesturgötu 3 Valdimar Bjarnfreösson sýnir 35 myndir unnar í olíu- og akrýl. J. Hinriksson Maritime Museum Súðarvogi 4 Sjóminja- og vélsmiðjumtmasafnið er opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku- daga, fimmtudaga, fostudaga og laugar- daga. Kaffi Splitt Klapparstíg Myndhstarmaðurinn G.R. Lúðvíksson hefur opnað sýningu á Kaífi Splitt. Verk- in eru teikningar er hann kallar „eleckt" Verkin eru öh til sölu og er sýningin opin á sama tíma og kaffihúsið. Keramikhúsið, gallerí v/Faxafen Sýning á leikaramyndum eftir Halldór Pétursson. Opið alla daga kl. 13-18 nema laugardaga kl. 13-17. Listasafn Einars Jónssonar Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-17. Listinn, gallerí - innrömmun Síðumúla 32 Uppsetningar eftir þekkta íslenska mál- ara: oha, vatnsUtir, pastel og grafik. Opiö virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Mokkakaffi v/Skólavörðustíg Helgi Jónsson sýnir Utlar vatnslitamynd- ir. Þetta eru landslagsmyndir frá ýmsum stööum, málaðar eftir skissum gerðum á staðnum. Helgi hefur lengi fengist við myndUst og síðasta áratuginn verið í MyndUstarskólanum i Reykjavtk í ýms- um greinum. Katel Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og er- lenda listamenn, málverk, grafik og leir- munir. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Þar stendur yfir sýning á verkum eftir franska Ustamanninn Philippe Cazal, sem ber yfirskriftina „Annars vegar - hins vegar“. Sýningin stendur til 6. okt- óber. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 10-18 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Listasafn Háskóla íslands í Odda Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Um þessar mundir er í safninu sýning á verkum eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg. Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18 og er aðgangur ókeypis. Veitingastofa safnsins er opin á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 í safninu er yfirlitssýning á andlitsmynd- um eftir listamanninn frá árunum 1927 til 1980. Opiö er um helgar kl. 14-17. Listhúsið Vesturgötu 17 „Án sýnilegs titils" er sýning sem verður opnuð í Listhúsinu sunnudaginn 15. sept- ember, kl. 16. Sýningin er haldin í boði Jacqueline og Jack Mer, sendiherra Frakklands á Islandi. Þátttakendur hafa alUr búið í Frakklandi, stundað þar nám eða búa þar enn. Þau eru: Erla Magnús- dóttir, Oddur Stefán Þórisson, Ragnheið- ur Ágústsdóttir, Yann Hervé og Þórdís Ágústsdóttir. Sýningin verður opin til 22. september kl. 12-18. Norræna húsið v/Hringbraut Þar stendur yfir sýning sem ber yfir- skriftina Norrænt graííkþríár. Er þetta öðru sinni sem Norræna húsið og félagið íslensk grafík hafa samvinnu um sýn- ingu á grafíkverkum eftir fimm af helstu samtíöarUstamönnum Norðurlanda. Auk þess er einum Ustamanni utan Norð- urlanda boðið að sýna verk sín og er það að þessu sinni Helen Frankenthaler frá Bandaríkjunum. Norrænu listamennim- ir fimm eru: Per Kirkeby frá Danmörku, Jukka Mákela frá Finnlandi, Olav Christ- opher Jensen frá Noregi, Max Book frá Svíþjóð og fuUtrúi íslands er Sigurður Guðmundsson. Sýningin stendur tfi 22. september og er opin daglega kl. 14-19. Nýhöfn Hafnarstræti 18 Kristin Guðrún Gunnlaugsdóttir opnar málverkasýningu á morgun kl. 14. Á sýn- ingunni verða tólf oUumálverk, máluð á árunum 1988-91. Sýningin er opin virka daga kl. 10-18, um helgar kl. 14-18, lokað á mánudögum. Sýningunni lýkúr 2. okt- óber. Nýlistasafnið Á morgun kl. 15 verður opnuð sýning á verkum eftir hoUenska myndUstarmann- inn Fons Brasser Sýningin stendur til 29. september. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8 Hafnarfírði, sími 52502 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Stofnun Árna Magnússonar Árnagarði, Suðurgötu Handritasýning í Stofnun Áma Magnús- sonar er opin í Arnagarði alla daga í sum- ar fram til 1. september kl. 14-16. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu Þar em til sýnis og sölu postuUnslág- myndir, málverk og ýmsir Utlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýningin „Stóra-Borg - fomleifarann- sókn 1978-1990“. Þar er sögð saga forn- leifarannsókna á Stóm-Borg undir Eyja- fjöllum, Rangárvallasýslu, og sýndir gripir sem þar fundust. Safnið er opið aUa daga nema mánudaga kl. 11-16. Haustsýning í Gunnarssal Þernunesi 4, Arnarnesi, Torfi Jónsson, myndlistarmaður, kenn- ari og hönnuður, opnar á morgun kl. 15 sýningu á 24 vatnsUtamyndum, m.a. myndum gerðum á Ítalíu og Vestfjörðum. Myndir Torfa prýða einnig veggi i útibúi SPRON, Álfabakka í Mjódd. Sýningin stendur þessa helgi og næstu og verður opin á tostud. kl. 17-21, laugardag og sunnudag kl. 14-18. Menningarstofnun Bandaríkjanna Laugavegi 26, Björn Þórðarson opnar á morgun mál- verkasýningu í sýningarsal Menningar- stofnunnar Bandaríkjanna. Björn er sjálfmenntaður að mestu en hefur notið tilsagnar hjá Einari G. Baldvinssyni list- málara sl. 10 ár. Sýningin stendur til 4. október og er hún opin um helgina kl. 14-17 og alla virka daga kl. 11.30-17.45. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, sími 24162 Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir sýning á mannamyndum HaUgríms Ein- arssonar ljósmyndara. Möppur með ljós- ' myndum liggja frammi og einnig eru til sýnis munir og áhöld af ljósmyndastofu , Hallgríms. Myndlistarsýning á Hótel Selfossi Lu Hong, kínverskur landslagsmálari, er með myndlistarsýningu á Hótel Selfossi dagana 6.-29. september. Þetta er önnur einkasýning kinverska landslagsmálar- ans Lu Hong á íslandi. Á sýningunni gefur að líta ýmsar perlur íslenskrar náttúru, túlkaðar með aðferöum hefð- bundinnar kínverskar landslagsmálun- ar. Myndimar eru málaðar með kín- I versku bleki og vatnslitum á þunnan f bambuspappír. Slunkaríki ísafirði Guðmtmdur Thoroddsen myndhstar- * maður sýnir í Siunkaríki. Á sýningunni 1 em lágmyndir, unnar í tré og ýmis önnur efni. Efniviður og innihald myndanna tengist sjónum á einn eða annan hátt. Slunkaríki er opið fimmtudaga tU sunnu- daga kl. 16-18 og sýning Guðmundar stendur tíl sunnudagsins 29, september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.