Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Page 6
FÖSTÚDÁ'ðÚR 13. ÖEPTÉMBjÉR 199Í.
Madonna hvílir sig innan um nokkra blásara i hljómsveit hennar.
Laugarásbíó:
Uppí hjá Madonnu
Af einhverjum ástæöum hefur
kvikmyndin um Madonnu hlotið
tvö nöfn. í Bandaríkjunum gekk
hún undir nafninu Truth or Dare
en í Evrópu hefur myndin hlotiö
nafnið In Bed with Madonna.
Madonna er ekki aðeins ein fræg-
asta poppstjarnan sem nú er uppi
heldur er hún einstaklega djörf í
öllu því sem hún gerir og hefur hún
hneykslað margan góðborgarann.
Og ekki verða þeir minna hneyksl-
aðir sem sjá myndina sem segir frá
heimsreisu hennar 1990, hljóm-
leikaferð sem kallaðist Blond Am-
bition.
Við fylgjumst ekki aðeins með
henni á hljómleikum heldur einka-
lífi hennar meðan á ferðinni stend-
ur og sem fyrr kemur hún mörgum
á óvart.
Myndin hefur alls staðar fengið
góða dóma gagnrýnenda fyrir
skemmtilega uppröðum á efni og
mikla fagmennsku í verki. Fram-
leiðendur myndarinnar eru
Propaganda Films, fyrirtæki Sigur-
jóns Sighvatssonar og Steve Gohn.
Leikstjóri myndarinnar, Alek
Keshishian, var aðeins tuttugu og
sex ára þegar hann fékk þetta verk-
efni í hendur. Keshishian er nokk-
urs konar séní þegar litið er yíir
hvaö hann hefur afkastað á stuttri
ævi. Hann hefur undanfarið verið
afkastamikill við gerð tónlistar-
myndbanda, auk þess sem hann
lauk meö glæsibrag háskólanámi
viö Harvard. Þá er hann mjög lið-
tækur fiðluleikari, hóf raunar nám
á fiðlu aðeins fimm ára gamall.
Þegár hann var barn að aldri ferð-
aðist hann með The American
Children Theater og söng með Bos-
ton Lyric Opera. Eitt ár var hann
í námi við Sorbonne háskólann í
París. Meðan á háskólanámi stóð
leikstýrði hann leikritum í Har-
vard og var eitt sumar við nám í
New York City Ballet School of
American Ballet. -j
Alek Keshishian var fyrsti nem-
andinn við Harvard sem fékk styrk-
til að leikstýra opinberlega. Verk-
efniö var poppópera sem byggð var
á hinni frægu skáldsögu Emily
Bronte, Wuthering Heights (Fýkur
yfir hæðir), og notaði hann tónlist
með Billy Idol, Sting, Kate Bush og
Madonnu í verkið. Þetta leiddi til
þess að hann fór að leikstýra tón-
listarmyndböndum.
Byrjunin á samstarfi hans og
Madonnu má rekja til þess að Ma-
donna bauð honum að gera mynd
af sér baksviðs sem nota ætti ein-
hvern tímann í myndbandsupp-
töku. Þegar þau fóru saman yflr
árangurinn varö Madonna svo
hrifin að hún vildi að hann gerði
kvikmynd í fullri lengd um hljóm-
leikaferðina. Nú er Keshishian
einn helsti leikstjóri hjá Propa-
ganda Films sem eru stærstir á
heimsmarkaðnum í gerð tónlistar-
myndbanda.
-HK
Regnboginn:
Þýsk kvikmyndavika
Á morgun hefst í Regnboganum
þýsk kvikmyndavika. Verða sýnd-
ar tuttugu og sex kvikmyndir eftir
unga þýska leikstjóra sem getið
hafa sér gott orð á undanfórnum
árum. Rúmlega helmingur mynd-
anna er stuttmyndir og verða þær
sýndar á undan lengri myndunum.
í tengslum við hátíðina koma þrír
þýskir leikstjórar til landsins og
verða viðstaddir sýningar á mynd-
um sínum, auk þess sem þeir munu
svara fyrirspurnum um þýska
kvikmyndagerð.
Kvikmyndirnar eru mjög fjöl-
breyttar að efni og gerð en þó má
segja að sameining Þýskalands sé
ofarlega í hugum margra enda
tengjast nokkrar myndanna þess-
ari sögulegu stund.
Á þessari þýsku kvikmyndaviku
gefst áhugamönnum um kvik-
myndagerð gott tækifæri til að
kynnast því frumlegasta og besta í
þýskri kvikmyndagerð nú. Sumar
myndirnar eru með enskum skýr-
ingartexta en fleiri þó á frummál-
inu, en til að áhorfendur, sem ekki
eru þýskumælandi, geti skilið hvað
um er að vera verður boðið upp á
íslenska þýðingu í gegnum heyrn-
artæki. Er þetta nýjung hér á landi.
Nánar var fjallað um þýsku kvik-
myndahátíðina á menningarsíðu
DV í blaðinu sl. miðvikudag.
-HK
Ein athyglisverðasta kvikmyndin er Hochzeitsgáste (Brúðkaupsgestir)
eftir Niko Brucher og hefur þessi mynd fengið fjölda verðlauna.
Hvað finnst gagnrýnendum DV um myndir í bíóhúsum?
BÍÓBORGIN
Að leiðarlokum ★* 'A
Átakanleg og fróöleg um samband
krabbameinssjúklings við hjukr-
unarkonu sína. Campell Scott sýnir
góöan leik.
ÍS.
Rússlandsdeildin
Vönduð njósnadrama úr kaida
stríðinu. Nokkuö róleg fyrir aðdá-
endur Rambomynda en engin sem-
ur betri njósnabókmenntir heldur
en John le Carré. Sean Connery
góður.
-HK
Á flótta ★★
Einfaldur, langur og þokkalega
spennandi eltingarleikur. Patric
Dempsey er kattliðugur. -GE
BÍÓHÖLLIN Rakettumaöurinn ★*'A
Ævintýri upp á gamla mátann með nýtískutæknibrellum, Hugmyndin frábær og sagan skemmtileg en
dáhtiö rýr þegar hður á. -GE
Mömmudrengur ★★'/,
Einfóld, lítil kómedía sem haldið er uppi af góðum leik Maureen
O’Hara og AJly Sheedy. -ís
Lífið er óþverri ★★
Fyrri hlutinn er nxjög góður en
seinni afleitur. Vel leikin og vel
kvikmynduð en of margir hand-
ritshöftmdar.
-GE.
New Jack City ★★'/
Gamalkunnur glæpónasöguþráður
fær skrykkjótta úrvinnslu. Persón-
ur, leikendur og umhverfi hafa
hins vegar sjaldan verið betri.
-GE
Skjaldbökumar 2 ★★
Ekki eins frumleg og fyrri myndin
en samt skemmtileg, jafnvel fyrir
fullorðna. Skjaldbökuaðdáendur
verða ekki fyrir vonbrigðum. Einn-
ig sýnd í Bíóborginni
*GE
Aleinn heima ★★'/s
Gamanmynd um ráðagóðan strák
sem kann svo sannarlega að taka
á móti innbrotsþjófum. Mjög tynd-
in í bestu atriðunum. MacCaulay
Culkin er stjarna framtíðarinnar.
-HK
HÁSKÓLABÍÓ
Hamlet ★★★
Unnendur klassískra verka mega
ekki láta þessa uppfærslu Franco
Zefferellis fram hjá sér fara. Mel
Gibson sýnir á sér nýja hlið.
-ÍS
Alice ★★★
Woody Allen hefur gert betri mynd
en hann hefur einnig gert verri.
Alice er bæði raunsæ og fyndin í
frásögu sinni af ríkri eiginkonu í
New York sem er í leit að sjálfn sér.
-HK
Beint á ská 2-V» ★+'/;
Beint framhald af fyrri myndinni,
nær sér stundum á strik en sumir
brandararnir eru orðnir þreyttir.
-ÍS
Lömbin þagna ★*★★
Stórgóð sakamálmynd þar sem fer
saman mikil spenna og góður leik-
ur. Anthony Hopkins er ógleyman-
legur.
-HK
Allt í besta lagi ★★★
Giuseppe Tornatore nær ekki alveg
aö fylgja hinu stórgóða Paradísar-
bíói eftir en gerir samt einkar eftir-
tektarverða mynd um sundraða
fjölskyldu.
-HK
Bittu mig, elskaðu mig ★★★
Afdráttarlaus, meinfyndin kóme-
día. Helst betur á húmornum en
alvörunni á bak við húmorinn.
-GE
LAUGARÁSBÍÓ
Eldhugar ★★
Tæknideildin nýtur sín best og
stendur fyrir stórfenglegustu
brunasenum sera sést hafa á hvíta
fjaldinu. Að öðru leyti er meðal-
mennskan allsráðandi.
-HK
Leikaraiöggan ★★★
Góð blanda af spennu og gamni.
Slyngir leikarar bregðast ekki.
Pottþétt afþreying.
-PÁ
REGNBOGINN
Hrói höttur, prins þjófanna ★★
Kevin Costner er daufur. Sagan er
ójöfn en bardagaatriðin eru af-
bragö.
-GE
Glæpakonungurinn *★'/>
Nöturieg mynd af undirheimum
New York. Walken í banastuði.
Ekki fyrir viðkvæma. -PÁ
Cyrano de Bergerac ★★★
Gerard Depardieu er eins og hvirf- ilbylur í aðalhlutverkinu. Magnað- ur leikur í glæsilegri stórmynd.
-PÁ
Dansar við úlfa ★★★
Löng og falleg kvikmynd um nátt-
úruvernd og útrýmingu indíána.
Glæsileg frumraun Kevins Costn-
er.
-PÁ
Látli þjófurinn ★★★
Grátbrosleg þroskasaga, arfur
meistara Truffauts í vandaðri út-
setningu Claude Miller. Kærkomin
tilbreyting.
-PÁ
STJÖRNUBÍÓ
Hudson Hawk ★★'/
Geggjaður húmor og stórmynda-
bragur blandast ekki alltaf vel sam-
an en mest er vel heppnað og Brúsi
er fyndinn.
GE
Börn náttúrunnar ★★★
Enginn ætti að verða fyrir von-
brigðum með nýjustu íslensku
kvikmyndina. Friðrik Þór hefur
gert góða kvikmynd þar sem mikil-
fenglegt landslag og góður leikur
blandast mannlegum söguþræðL
-HK
The Doors ★★★
Oliver Stone er snjall kvikmynda-
gerðarmaður. Honum tekst að gera
sannfærandi mynd um ævi popp-
goðsins Jims Morrison sem brann
út á örfáum árum. Val Kilmer
hjálpar til með góðum leik.