Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991. 3 Þorvaldur Gylfason prófessor um flárlagafrumvarpið: Steff nir í stórffelldar lán- tökur erlendis á næsta ári - ekki ráðist gegn sóun á almannafé 1 landbúnaði og sjávarútvegi Þorvaldur Gylfason prófessor var beðinn um álit á fjárlagafrum- varpi því sem ríkisstjórnin lagði fram á Alþingi við upphaf þings. Svör hans fara hér á eftir: ..Ríkisfjármálin hafa verið veikur hlekkur í efnahagsstefnu stjórn- valda mörg undanfarin ár. Það er að vísu rétt að í fjárlagafrumvarp- inu fyrir næsta ár er fyrirhugaður halli á ríkissjóði aðeins um 1% af landsframleiðslu eins og í fyrra en það er lítið gagn að því vegna þess að ríkissjóðshallinn nær aðeins yf- ir hluta ríkisfjármálanna. Hitt skiptir miklu máh að heildarláns- fjárþörf ríkisins umfram afborgan- ir af eldri lánum er sex sinnum meiri en ríkissjóðshallinn eins og i fyrra. Af þessu sést að ríkisstjórn- in ætlar að halda áfram að reka ríkisbúskapinn með miklum haha eins og endranær. Það er óhyggileg ákvörðun að mínum dómi vegna þess að ríkisstjórnin sjálf telur það réttilega mjög brýnt að halda verð- bólgunni í skefjum. Ríkisstjórnin stefnir hka að stór- felldum erlendum lántökum næsta ár. Það er óheppilegt vegna þess að skuldabyrði þjóðarinanr heldur áfram að þyngjast verulega. Strax á næsta ári þurfum við að greiða meira en fjórðu hverja krónu af útflutningstekjum okkar í vexti og afborganir af erlendum skuldum. Þetta hlutfall hefur aldrei verið hærra. Þess sjást engin glögg merki enn að stjórnvöld ætli að hverfa af þessari skuldasöfnunarbraut. Við afgreiðslu lánsfjárlaga fyrir þetta ár var áformað aö ríkissjóður tæki engin erlend lán en erlendar lántökur ríkissjóðs stefna nú í næstum 14 milljarða króna á árinu. Þessar erlendu lántökur ríkissjóðs umfram lánsfjárlög nema rösklega 200.000 krónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu i landinu. Alvarlegasti ljóðurinn á fjárlaga- frumvarpinu fmnst mér vera sá að ríkisstjórnin hefur bersýnilega ekki lagt í að ráðast gegn þeirri sóun almannafjár sem á sér stað í landbúnaði og sjávarútvegi. Það er engin leið að ná endum saman í fjármálum ríkisins í víðum skiln- ingi nema stjórnvöld manni sig upp í að taka myndarlega á skipulags- vandamálum atvinnuveganna. Nú- verandi stefna ríkisstjórnarinnar í landbúnaðarmálum og sjávarút- vegsmálum leggur þungar byrðar á fólkið í landinu. Þessum álögum verður að létta af herðum almenn- ings til að skapa svigrúm til þess Við afgreiðslu lánsfjárlaga fyrir þetta ár var áformað að ríkissjóður tæki engin erlend lán en erlendar lántökur ríkissjóös stefna nú í næstum 14 milljárða króna á árinu. Þessar erlendu lántökur ríkissjóðs umfram lánsfjárlög nema rösklega 200.000 krónum á hverja fjögurra manna fjöl- skyldu í landinu, segir Þorvaldur Gylfason prófessor. að ná betra jafnvægi í fjármálum ríkisins. Með þessu á ég ekki aðeins við það að útgjöld ríkisins til land- búnaðarmála eru óhóflega mikil enn sem komið fyrr. Hitt skiptir líka miklu máli að það verður að lækka matarverðið í landinu með því að gefa markaðsöflum lausari taum á matvælamarkaði. Þannig væri hægt að bæta fjárhag heimil- anna verulega og jafnframt að skapa skilyröi til þess að draga úr ríkisútgjöldum í víðum skilningi eða hækka skatta og þjónustugjöld til að draga úr lánsfjárþörf rikisins. Þar að auki er ekki mikil von til þess að minni hyggju að stjórnvöld geti fengið fólkið í landinu til að fella sig við aukna gjaldheimtu í skólum og á spítölum. svo lengi sem ríkisstjórnin heldur áfram að ausa fé í landbúnað og afhenda út- gerðarfyrirtækjum ókeypis veiði- heimildir auk annars. Að vísu er að finna í frumvarpinu fyrsta vísi að veiðigjaldi því að ríkisstjórnin ætlar að selja aflaheimildir fyrir rösklega 500 milljónir króna og láta féð renna til Hafrannsóknastofn- unar. Þaö er lofsvert skref í rétta átt. Mjór er mikils vísir,“ sagði Þorvaldur Gylfason. -S.dór SUZUKI VITARA JLXi Kraftmikill 5 dyra lúxusjeppi. Suzuki Vitara er alvöru jeppi í spari- fötum. Hann er lipur og þægilegur í innanbæjarakstri og kraftmikill og seigur í torfærum og vegleysum. Frábær fjöðrun, vökvastýri, vönduð innrétting, rafdrifnar rúður, samlæs- ing á hurðum, upphituð sæti auk fjölda annarra kosta. Suzuki Vitara er kjörinn fjölskyldubíll fyrir þá sem hafa gaman af að ferðast um landið og vilja ekki fórna þægindum fólks- bílsins. í ofanálag er Suzuki Vitara einstaklega sparneytinn. Komdu í Suzuki bíla hf. og reynsluaktu Suzuki Vitara. Það verður ást við fyrsta akstur. $ SUZUKI SUZUKIBILAR HF SKEIFUNNI 17 .SÍMI 685100 *Verð miðast við staðgreiðsiu 1.696.000 kr: 1.023.000 kr: BEINSKIPTUR SJÁLFSKIPTUR i i H t .ÚUf ííOc iíO.SJ .Eficv? tgnsi i)í)Í9 ist nfHÍiiS j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.