Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Síða 2
28
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991.
Bflar
DV
Reynsluakstur: Renault 19 Chamade sjálfskiptur
Framleiddur hjá ferða-
glaðri og sprettharðri þjóð
Renault 19 var ellefti mest seldi
bíll í heiminum á síðastliönu ári.
Hann var kallaður tímamótabíll þeg-
ar hann kom fram og það segir all-
nokkra sögu um hann að síðan árið
1989 hefur hann verið söluhæsti inn-
flutti bíllinn í Vestur-Þýskalandi.
Eins og margir aðrir bílaframleið-
endur, bæði evrópskir- og japanskir,
lentu Renault-verksmiðjurnar í því á
árunum í kringum 1960 og fram á
áttunda áratuginn að framleiða bíla
sem ryðguðu úr hófl fram og voru
um margt alls ekki nógu sterkir til
þess að standast þær endingarkröfur
sem neytendur vilja gera til bíla.
Bílarisinn Renault sneri við blaðinu
fyrir meira en áratug: smábíllinn
Renault 5 hefur staðiö sig vel og er
enn í framleiðslu þó að Clio sé kom-
NOTAÐIR
Toyota Corolla liftback, ’88,
sjálfsk., ek. 33.000, steingrár. V.
790.000.
Daihatsu Feroza EL II ’89, ek.
34.000, rauður/silfur, v. 1.030.000.
Dodge Shadow turbo ’89, ek. Jeep Cherokee Laredo ’87, dökk-
23.000, svartur. V. 1.290.000.
blár, ek. 45.000 m., m/öllu, v.
1.790.000.
TEGUND ÁRG. EKINN VERÐ
Chevrolet Corsica LC 1991 10.000 1.400.000
Suzuki Samurai 1989 25.000 950.000
Mazda 1500 st. LX 1989 45.000 780.000
Ch. Caprice Classic 1988 82.000 1.550.000
Mercury Topaz, sjálfsk. 1988 90.000 750.000
Jeep Cherokee Laredo 1988 25.000 2.100.000
Opel Corsa 5 d. swing 1988 39.000 450.000
Ford Sierra 5 d. 1600 1988 27.000 850.000
Opel Omega GL, sjálfsk. 1988 48.000 1.350.000
Ch. Caprice Classic 1987 57.000 1.400.000
MMC L-200 pickup 4x4 disil 1987 29.000 850.000
Mazda 626 GLX dísil 1986 186.000 590.000
Izusu Trooper DLX 5,0 bensin 1988 48.000 1.550.000
Isuzu Gemini 1300,3ja d. 1990 15.000 795.000
Volvo 740 GLE, sjálfskiptur 1988 38.000 1.500.000
Subaru 1800 st„ sjálfsk. 1987 49.000 850.000
Ford Bronco XLT, beinsk. 1986 65.000 m. 1.390.000
Isuzu Trooper DLX, stuttur, bensín 1990 35.000 1.890.000
Toyota Corolla, 5 d. XL, sjálfsk. 1988 31.000 750.000
Subaru Justy J12,3ja d. 1987 33.000 550.000
Isuzu crew cab, bensín 1990 16.000 1.350.000
Opiö laugardag frá kl. 13-17
Bein lína, símar 674300 og 687300
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 og 674300
Umhverfi ökumanns er þægilegt og auðvelt að átta sig
á þvi. Bíllinn er mjög rúmgóður, einkum frammi í.
Bíllinn er afhentur með þokuljósum að framan.
inn upp að hliðinni á honum og
meira en það hvað vinsældir snertir.
Renault 25 og 21 hafa ekki verið nein-
ir aumingjar og i Renault 19 virðast
hönnuðir Renault hafa gert ákaflega
gagnheilan bíl og líklegan til að
standa sig. Enda hefur reyndin orðið
sú að eftirþjónusta á bæði Renó 19
og Clio hefur almennt reynst mjög
lítil. Renault 19 til að mynda er seld-
ur hér með þriggja ára ábyrgð á bún-
aði en átta ára ryðvarnarábyrgð.
Renó 19 Sjamad
Fyrst í stað var Renault 19 aðeins
framleiddur sem hlaðbakur en í
fyrra kom hann fram sem stallbakur
undir nafninu Renault 19 Chamade
(ath. framb. „sjam-ad”, með áherslu
á seinna atkvæðinu, aö franskri
hefð). Annar munur er ekki á þess-
um bílum en sá að annar opnast að
aftan með hlera, sem afturrúðan er
innifalin í, en hinn með hefðbundnu
skottloki. Hvorar tveggju gerðirnar
eru með sams konar skotti að öðru
leyti og leggja má fram aftursætis-
bökin í þeim báðum, 40/60.
Renault 19,kom fyrst hingað til
lands um mitt ár 1989 og var þá tek-
inn til kostanna hjá DV bílum. Sá
sem þá var prófaður var handskiptur
og ekki með aflstýri. Núna voru
kynnin við Renault 19 endumýjuð
og þá við bíl af Chamade gerð með
aflstýri og sjálfskiptingu.
Góð á lægri
hraðasviðum
í sjálfu sér er yðar einlægur enginn
sérstakur aðdáandi sjálfskiptingar
þó mér séu ljósir kostir hennar í inn-
anbæjarakstri. Þó þykir mér sem
sjálfskipting njóti sín ekki til fulls
fyrr en hún er komin í bíla með mik-
illi vélarorku í hlutfalli við eigin
þyngd bílsins. Togafl upp á 7,15
Nm/kg er ekki nóg til að gera sjálf-
skiptan bíl jafnskemmtilegan og
handskiptan. Vélarorkan í Renault
19 með 1700 cc vélinni er einfaldlega
ekki nóg til þess að skiptingin svari
frísklega við „snögggjöf ‘ (kick-down)
á góðri ferð. Þó er hún með því besta
sem gerist í bílum af sambærilegri
stærðargráðu. Á lægri hraðasviðum
svarar hún ágætlega, svo lengi sem
hún er ekki stillt á sparnað.
Því það er nú einn af kostum þess-
arar skiptingar að hægt er að stilla
hana á „normal" eða „sparnað", eftir
því hvað við á. Ég gat sætt mig við
„normal" stillinguna en hugsa að ég
myndi ekki nota sparnaðarstilling-
una nema í snjó og hálku. En þá
gæti ég líka trúað að hún nyti sín
ákaflega vel með mjúku, seinu og
seigu átaki á hjólin.
Renó 19 er með minni bílum í milli-
stærðarflokki og lipur eftir þvi. Að
ytra útliti er bíllinn failegur að mín-
um dómi, mjúkar, ávalar línur en þó
ekki útvatnaður vindgangakarakter.
Mér finnst Sjamad-útfærslan sýnu
fallegri. Hlaðbakurinn verður óneit-
anlega skolli borubrattur og mér
þykir það heldur lýta hann. Auk þess
er ekki eins gott að sjá til að bakka
honum eins og Sjamad útfærslunni.
Fallegur að innan
Frágangur á Renó 19 að innan er
til fyrirmyndar. Þeir eru klæddir
með fallegu áklæði sem auðvelt er
að hreinsa og frágangur mjög góður,
til að mynda á hurðaspjöldum. Sætin
eru falleg og hægt að stilla framsætin
á flesta vegu; bílstjórasætið til að
mynda á hæð, fram og aftur, bak-
halla og mjóbaksstuðning en setum-
Þægilegt og notadrjúgt að geta lagt
niður aftursætisbakið, í hlutum eða
heild, jafnvel þótt bíllinn sé stallbak-
ur.
ar eru í stysta lagi. Það er meðal
annars til að fá út betra rúm aftur í
en það er fyrst og fremst frammi í
sem Renó 19 státar af góðu rými. Þar
kemur meðal annars til skjalanna
íhvolft formið á hurðaklæöningunni.
Mælaborðið er greinilegt og vel
búið ljósum og mælum. Þeir eru til
að mynda ekki margir, þó margfalt
dýrari séu, sem búnir eru olíuhæðar-
mæli í mælaborði. Þá er Sjamad-
bíllinn búinn klukku með vísum sem
er sjaldgæft nú á dögum tölritatækn-
innar.
Bandaríkin:
Minni hlutur japönsku
framleiðendanna?
v í _ ' 1 r * »x i /xi ._ •
Vegur japanskra bílaframleið-
enda á Bandaríkjamarkaöi gæti
fariö minnkandi á næstunni ef
marka má nýlega könnun á við-
horfi bilakaupenda. Af 5.300 að-
spurðum sem ætluðu að skipta um
bíl á næstunni i Pennsylvaniu hafði
einn þriðji þeirra sem í dag áttu
japanskan bíl hugsað sér að skipta
yfir i bandarískan bíl frá einhverj-
um hinna „þriggja stóru“. Meginá-
stæðumar fyrir sinnaskiptunum
var betra verð, meiri gæði og meira
úrval af hálfu bandarísku framleið-
endanna.
í annarri könnun, sem unnin var
af háskólanum i Michigan, kom í
ljós að búist var við að það yröi
General Motors sem myndi ganga
best í samkeppninni við japönsku
keppinautana. Þrátt fyrir þetta er
reiknað með því að GM, Ford og
Chrysler muni missa eitthvað af
sölu yfir til japönsku framleiðend-
anna á næstu tíu árum.
Veita atslætti
Til að bæta stöðu sína á Banda-
ríkjamarkaði hafa bandarísku
framleiöendurnir veitt allt að 2.500
dollara afslátt (um 155 þúsund
krónur) til að reyna að minnka það
sem þeir eiga eftir óselt af 1991 ár-
gerðunum. Cadfllac hefur boðið
stærsta afsláttinn, 2.500 dollara, á
ákveðnum gerðum. Ford og
Chrysler hafa skorið um 2.000 doll-
ara af stærstu lúxusbíiunum.