Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991. 29 Bílar Hraðskreiður og öruggur Það fer ekki milli mála að þessi bíll er framleiddur af þjóð sem er ferðaglöð og hefur gaman af snörp- um sprettum. Ég get vitnað um það af akstri Renaúlt Chamade í Frakk- landi (handskiptum) að það er auð- velt og gaman að aka þessum bílum hratt af verulegu öryggi. Þeir eru rásfastir með eindæmum og þola vel hraðan akstur. Fjöðrunin, MacPher- son að framan en snerilfjöðrun aftan, virðist einstaklega vel lukkuð þannig að bíllinn verður í senn prýðilega þýður og mjög stöðugur í akstri. Eg hygg okkur verði minnisstætt, tveimur félögum, er viö vorum að vUlast í fjollunum í Suður-Frakk- landi á jólafóstunni í fyrra í ansi fjöl- breyttri færð hve léttan einmitt þess- um Renó-bílum var ekið í kringum okkur og af miklu öryggi. Þetta er einmitt það atriði sem gef- ur Renó 19 mest gildi í mínum aug- um: það er hve hann ýtir undir öku- gleðina. Á tímum þegar ekki fer á milli mála að óhjákvæmilegt er að nota einkabílinn sem aðalsamgöngu- tæki dags daglega finnst mér það skipta afar miklu máli að hafa gaman af því ökutæki sem maður þarf að nota. Fyrir sinn pening gefur Re- nault 19 ágæta ökugleði og það er í mínum huga meira um vert en það sem hægt er að setja út á hann. Svíar settu Renó 19 í fjórða sæti í ágústhefti sænska blaðsins Motor er greínt frá niöurstöðum árlegrar könnunar blaösins sem nær til 15 þúsund kaupenda nýrra bíla í Svíþjóð. Ein spum- inganna var þessi: „Myndir þú mæla með bílnum þínum við ein- hvem annan?“ Og þar að auki áttu svarendur að gefa einkunn- ina 1 tii 10 fyrir tæknilega eigin- ieika bilsins síns svo og þjónustu og fyrirgreiðslu seijanda. Renauit 19 lenti í íjórða sæti í þessari könnun árið 1991 og er þess sérstaklega getiö að enginn franskur bíll hafi áður komist svo hátt. Enóa eru Svíar yflrleitt harla stoitir af þeim tveim bílteg- undum sem þeir framleiða sjálfir - þó svo að þýskir bílar væru söluhæstir í Svíþjóð árið 1990. Sænskir bílar lentu í öðra sæti í söluslagnum það árið. S.H.H. Renault 19 Chamade - fallega hannaður og smiðaður bill. Smávægilegar aðfinnslur Þau atriði, sem hér verða til að- finnslu, era öll heldur í smávægilegri kantinum. Sjálfskiptingin - sem raunar hefur fengiö sína afgreiðslu hér að framan - er ekki alveg laus við rykki í skiptingunum. Þá er bíll- inn í háværara lagi, ekki síst aftur í. Hann er með handvirku innsogi, ekki sjálfvirku. Útispeglarnir eru handstilltir en þó sem betur fer innan frá. Lesljósin aftur í, sitt hvorum megin, eru góð fyrir aftursætisfar- þega og trufla ekki ökumann. En þau er ekki hægt að slökkva úr framsæt- um. Ekki er hægt að slá á þurrkurof- ann til að láta vinnukonurnar renna sér eina bunu - það verður að smella á og af. Fjarlæsingin hreinn lúxus Á móti kemur sá búnaður sem bíll- inn hefur og hann er nokkurs verð- ur. Nokkuð af því hefur verið talið upp hér að framan en enn má bæta við. Þar skal fyrsta teljá samlæsta fjarlæsinguna sem er hreint ómetan- legt þing. Veltistýri er að verða sjálf- sagður hlutur í svona bíi, svo og raf- drifnar rúður, sem hér eru að vísu aðeins frammi í. Þá er Sjamadinn «* I „ »« « m *n I 4282 — Venjulegur Renó 19 og Renó 19 Sjamad eru næstum eins i málunum. Sjamadinn er um 12 sm lengri og hann er með skotti. með þokuljós að framan og aftan og ágætan kortaljósabúnað yfir fram- sætum. Ennfremur er vert að geta þess að hæð efstu festingar sætis- belta í framsætum er stillanleg eins og nú verður æ algengara. Uppgefin eyðslafrá 5,51 1700 cc vélin í sjálfskipta Renó Sjamad bílnum,. 92 hestöfl og 135 Nm v. 3000 sn/mín spann þýtt eins og köttur yfir rjómaskál. Hún hefur fengið orð fyrir spameytni og er upp- gefin eyðsla á henni frá seljanda frá 5,5 upp í 9,81 á 100 km. í reynsluakstr- inum varð hún sléttir 10 1 á 100 km, enda var ég sýknt og heilagt að vita hvað sjálfskiptingin gæti, bæði á „normal" og „sparnaðar" stiliingum. Þess háttar aksturslag er mjög hlið- hollt olíufélögunum en að sama skapi fjandsamlegt buddu bíleigandans. Þá er bara spurningin hvað þarf að tína upp úr buddunni til að eign- ast svona bíl. Sjálfskiptur Sjamad TXE, eins og hér var prófaður, kostar samkvæmt september-verðlista kr. 1.165.980 með ryðvörn og skráningu. Ódýrasti Renó 19 bíilinn, tveggja hurða GTS hlaðbakur með 1400 cc 80 ha vél, kostar kr. 896.980 með ryð- vörn og skráningu. S.H.H. not mitsui 'isr ; MMC COLT EXE 1200 ’88, 4ra g., 3ja d., rauö- ur, ek. 43.000. V. 490.000 stgr. MMC Lancer HB GLX 1500 '90, sjálfsk., 5 d., silfurl., ek. 31.000. V. 850.000 stgr. MMC GalantHB BLS 4x4 2000 ’91 (’90), 5 g., 5 d., Ijósgrænn, ek. 4.000. V. 1.500.000 stgr. MMC Lancer GLX 1500 ’88, 5 g., 4ra d., silfurl., ek. 32.000. V. 630.000 stgr. Þú finnur þá á Bílaþingi Stærsti sýningarsalur landsins. Greiðsluskilmálar við hæfi flestra kaupenda. Tölvuvædd afgreiðsla. Hér ganga kaupin fljótt og umfram allt örugglega fyrir sig. Opið virka daga kl. 9-18 laugardaga 10-14 mm B/iA/t Hekluhúsinu, Laugavegi 174 Símar 69-56-60 og 69-55-00 MMC Colt GLXi 1500 ’90, 5 g., 3ja d., rauður, ek. 22.000. V. 900.000. MMC Pajero Super V6 3000 ’90, sjálfsk., 5 d., blár, ek. 23.000. V. 2.400.000. mM MMC Galant GLSi 2000 '89, sjálfsk., 4ra d., vin- rauður, ek. 32.000. V. 1.200.000. MMC Pajero, stuttur, turbo/disil, ’87, 5 g., 3ja d., sllfurl., ek. 62.000. V. 1.250.000. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.