Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1991, Síða 4
30 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1991. Bílar Töluverður munur er á fimm hurða bílnum og þriggja hurða eins og sést hér að ofan. Með þessum þriggja hurða „stuttbak" er örugglega verið að höfða til yngri kynslóðarinnar. Umhverfsivernd er ofarlega í hönnun bíla þessa dagana og Astra hefur fengiö sinn skammt af því. Meðal annars eru nokkrir hlutir i Astra framleiddir úr endurunnum efnum. Ný hönnun framáss og þróaður afturás tryggja góða aksturseigin- leika Astra. Rafeindastýrð spymu- stýring (traction control) er staðal- búnaður á toppbílnum GSi 16V. Þessi búnaður kemur í veg fyrir óþarfa spól við inngjöf og tryggir einnig aukinn stöðugleika í kröppum beygj- um. Bætt innanrými Við hönnun Astra var þess vel gætt af hálfu Opel að bæta inanrým- ið. Miðað við Kadett hefur framrúð- an veriö flutt fram og þaki lyft til að gefa meira höfuðrými með framsæt- isbök í uppréttri stöðu. Þetta gefur aftursætisfarþegum einnig 50 mm meira rými en var í Kadett. Allar gerðir Astra bjóða upp á 60:40 skipt- ingu á aftursætisbaki, sem gefur betri nýtingu farangursrýmis. Með notkun mjórri gluggapósta og „sex- glugga-hönnun“ á hlaöbaknum hefur útsýni verið endurbætt vemlega frá því sem var á Kadettinum. Meðal sérstaks búnaðar í Astra er nýr loftsíubúnaður sem heldur því lofti sem inn í bílinn fer algerlega hreinu. Þessar síur eru svo góðar að þær útiloka til dæmis að mestu frjó- kom og aðrar slíkar smáagnir frá því að komast inn í bíhnn í akstri. Til viðbótar er loftræstikerfið með foll- komnum hringrásarbúnaði sem ger- ir kleift að nýta betur loftið inni í bílnum ef ekki er einhverra hluta vegna 'hægt að taka inn ferskt loft að utan. Annár sérbúnaður er „fjölupplýs- ingaskjár" (Multi Information Display) en á þeim skjá má lesa tiðni útvarps, digitalklukku, aksturstölvu og eftirlit með mælum og búnaði bíls- ins. Tekurmið af 1992 Það er greinilegt að GM eða öllu heldur Opel hefur tekið mikiö mið af sameiginlegum markaði Evrópu sem kemst á laggimar 1992. Bíllinn var hannaður í tæknihönnunarmið- stöð Opel í Russelsheim í Þýskalandi en framleiðsla á honum hófst sam- tímis á fimm stööum í Evrópu: í Antwerpen í Belgíu, Bochum í Þýskalandi, Azambuja í Portúgal, Saragossa á Spáni og Ellesmere Port á Englandi. I lok næsta árs verða framleiðslustaöirnir orðnir sjö, því þá hafa bæst við nýjar verksmiðjur í Eisenach í austurhluta Þýskalands og Szentgotthard í Ungverialandi. GM Opel keypti fyrrum Wartburg- verksmiðjur í Eisenach og breytti til Astra GL 1,4. 5 hurða hlað- bakur. Nokkrar tölur: Lengd: 4.051 mm. Breidd: 1.688 mm. Hæð: 1.410 mm. Hjólahaf: 2.517 mm. Sporvídd f/a: 1.424/1.423 mm. Þyngd: 950 kg. Vcl: 4 strokka, þverstæð, 1.388 cc, 60 hö/44 kW v. 5.200 sn. mín. Þjöppun: 9,4:1. Snúningsvægi: 103 Nm v/2.800 sn. Girkassi: 5 gíra handskiptur. (Hægt að fá4ra þrepa sjálfskipt- inu með sumum vélarstærð- um). Fjöðrun: McPherson að fram- an/gormar og sveifluarmar að aftan. Hemlar: Diskar framan/skálar aftan, Hjói: 175/70 R 13. Snúningshringur: 10,5 m. Frangursrými: 360 Utrar. Hleðsluhæð: 61,5 cm. Eyðsla (ECE-staðall): 90 km meðalhraði: 5.11/100 km. Innan- bæjar: 8,6 1/100 km. Blandaður akstur: 6,8 1/100 km. Hámarkshraði: 160 km/klst. Skutbíllinn er 4.278 mm á lengd, 3ja hurða er jafhlangur 5 hurða bílnum. Skutbíllinn var frumsýndur um leið og hinar gerðirnar, en fjögurra hurða fólksbill meö skotti kemur ekki fyrr en snemma á næsta ári. Econoline E 350 Super van ’87, Dodge Aries ’87, sjálfsk., V. V. 1.450.000. 650.000. Opið í dag frá kl. 10-14. Ford Escort 1,3 Savoy, ek. 40 þ. V. 650.000. Dodge Aries ’87, sjálfsk. V. 650.000. Mazda 323 ’87. Verð 425.000. CITROÉNI Opel Astra, hér í fimm hurða GLS-útgáfu, vakti einkum athygli í Frankfurt fyrir það hve vel tókst að fella saman þrjár mismunandi gerðir, 5 hurða, 3ja hurða og skutbilinn, í sama svipmót en þó að láta hverja gerð halda sínum sérkennum. ^lGLOBUSBÍLAR Lágmúla 5, sími 91-681555 Saab 900i, turbo '88, hvítur, ek. Citroén BX 19TRS, ek. 35.000. 55 þús. V. 1.375.000. V. 970.000. Kynning á arftaka Kadett: Nissan Pathfinder ’87, rauður, ek. 48.000, 3,0 I, V6, sjálfsk., m/öllu. V. 1.500.000. Opel Astra Með Opel Astra sendir General Motors í Evrópu frá sér arftaka Kad- ett en af honum hafa verið framleidd- ar meira en fjórar milljónir eintaka sem gerir hann þar með einn af mest seldu bílum í Evrópu á liðnum árum. Lítum nú nánar á þau atriði sem Opel lagði áherslu á við kynningu Astra í Frankfurt á dögunum. Astra er nýr bíll frá grunni og með fjölda nýjunga sem ekki hafa al- mennt verið til staðar á bíl í þessum stæröarflokki. Með hönnun Astra var ætlunin að auka enn öryggi, gæði, þægindi, sparneytni og „um- hverfisvænleika". Nýi Astra er bíll sem þjónar vel sífellt kröfuharðari kaupendahóp og breyttum umferð- araðstæðum í Evrópu. Viö hönnun Astra var þess gætt umfram allt að kaupendur fengju rúmgott innanrými í bílnum, mestu hugsanleg þægindi og mikið öryggi. Þetta síðasttalda einkennist einkum af því aö nú eru komnar sérstakar styrkingar gegn hliðarárekstri og eins eru öryggisbelti í framsætum komin meö sérstökum strekkjurum sem fara í gang við högg. Með þessu hefur Opel aukið mjög öryggi farþega og er nú í fremstu röð bílaframleið- enda aö þessu leyti. í mörgum gerðum Ólíkt helsta keppinautnum á heimamarkaði, VW Golf, var Astra kynntur strax í upphafi í mörgum gerðum. Nú strax er Astra kynntur sem þriggja og fimm hurða hlaðbak- ur og fimm hurða station. Fjögurra hurða fólksbíll með skotti, eða stall- bakur, kemur á markað strax snemma á næsta ári. Toppgerðin sem kynnt var í Frankfurt að þessu sinni er Astra GSi, þriggja hurða hlaðbak- ur, sem er búinn rafeindastýrðri spymustýringu (traction control), þeirri fyrstu sem sést á bíl í þessum stærðar- og verðflokki. Líkt og á öðrum nýrri bíla Opel gefur hönnun Astra litla loftmót- stöðu, sem aftur kemur fram í minni eyðslu og gerir bílinn hljóðlátari í akstri. Níu mis- munandi vélar Astra er í boði með níu mismun- andi vélum, öllum með hvarfakút. Þar á meðal má telja 1,7 lítra turbo dísil með millikæli sem gefur 82 hest- öfl (60 kW). Vélarorka þessara níu véla sveiflast annars frá 57hö/42kW upp í 150hö/110kW. Fyrir dísilvélarnar hefur Opel hannað sérstaka oxíðmyndandi hvarfakúta sem skera niður óæski- leg efni í útblæstri um 70% og hamla gegn smáeindum í útblæstri niður í 0,08 grömm á kílómetra og kemst þar langt framúr öðrum evrópskum framleiðendum hvað varðar óhrein- indi í útblæstri dísilvéla. Nýr RX-7 frá Mazda á bíla- sýningunni í Tokyo Það er stutt stórra högga á milli sportbílinn í heiminum sem er með Sigurður Hreiðar, annar umsjón- hjá Mazda. Þeir frurasýndu nýjan Wankel-vél. armanna DV Bíla, er þessa dagnna bíl, MX-6, sportbíl sem gefur fyrir- Bíllinn er enn með Wankel-vél- á bílasýninguna í Tokyo svo við heit um hinn nýja 626, á bílasýning- inni, þriggja hólfa snúningsstimpli, getum síöar sagt í máli og myndum unni í Frankfurt á dögunum. og gefur nú 280 hestöfl. frá því helsta sem þar kemur fram. Á bílasýningunni í Tokyo sem Þessi nýi sportbíU fer fyrst á -JR byrjarínæstuvikuþáætlarMazda heimamarkað í Japan en kemur að frumsýna nýjan RX-7, eina síðar til Ameriku og Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.