Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1991, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1991.
Fréttir______________________________________________________________________dv
Framkvæmdasjóður, Iðnlánasjóður og Byggðastofnun seldu húseign á 80 milljónir:
Annar kaupenda með
tvö fyrirtæki í gjaldþroti
Framkvæmdasjóður, Byggða-
stofnun og Iðnþróunarsjóður hafa
selt S.P. Fiskvinnslunni fasteign í
Þorlákshöfn á 80 milljónir króna.
Eigendur S.P. Fiskvinnslunnar eru
Páll Gústafsson og Snorri Ólafsson.
Snorri er einnig eigandi og hluthafi
í fiskeldisstöðvunum Fjörfiski hf. í
Þorlákshöfn og Bakkalaxi hf. í Ölf-
usi. Þær voru báðar lýstar gjaldþrota
- skuldar Framkvæmdasjóði að miimsta kosti 300 milljónir
fyrir um það bil þrem vikum. Aðal-
kröfuhaíi í þrotabúin er Fram-
kvæmdasjóður, sá hinn sami og seldi
fyrirtæki Snorra fasteignina í Þor-
lákshöfn. Kröfur Framkvæmdasjóðs
í Fjörfiski námu í fyrra rúmlega 140
milljónum króna. Skuld hinnar
stöðvarinnar við sjóðinn var svipuð
að vöxtum.
Fasteignin sem um ræðir í Þorláks-
höfn var áður í eigu fyrirtækisins
Hafnarbergs. Það framleiddi smá-
rétti en varð gjaldþrota. Sjóðirnir
keyptu húseignina af þrotabúinu á
nauðungaruppboði 28. september
1990. Þeir leigðu hana síðan fyrirtæk-
inu Sjávarréttum hf. Rekstur þess
var í fullum gangi þar til að sjóðimir
auglýstu húsið til sölu síðastliðið
vor. Tvö tilboð bárust, annars vegar
frá Sjávarréttum hf. og hins vegar frá
S.P. Fiskvinnslunni. Forráðamenn
sjóðanna tóku þá ákvörðun að selja
síðarnefnda fyrirtækinu fasteignina,
eftir að það hafði gengið að gagntil-
boði þeirra, og fór sú sala fram 12.
júlí síðastliðinn. Söluvarð nam 80
milljónum króna.
Sjávarréttum hf. var því sagt upp
húsnæðinu. Forráðamenn fyrirtæk-
isins ákváðu í framhaldi af því að
flytja starfsemina til Keflavíkur. Hef-
ur 30 starfsmönnum þess nú verið
sagt upp og eru flutningar hafnir.
S.P. Fiskvinnsla hefur skuidbundið
sig til þess að greiða 10 prósent af
kaupverði í vikunni. Afhending hús-
næðisins er síðan fyrirhuguð á föstu-
daginn kemur.
-JSS
Snorri Ólafsson heldur hér á korti sem á stendur: Ég vil hjálpa einhverjum að lifa eftir dauða minn. Með honum
á myndinni eru dætur hans, Nikólína og Anna Mary, en hún hefur nú beðið i sex mánuði eftir að fá hjarta- og
lungnaigræðslu. DV-mynd GVA
Snorri Ólafsson á Akranesi:
Verðum að gefa líf-
færi eins og aðrir
„Líffæragjafakortin eru bresk. Þau
eru gefin út af breska heilbrigðis-
ráðuneytinu. Nú þegar hafa þrír ís-
lendingar fengið hjarta og lungnaí-
græðslu í Englandi. íslendingar eru
stórir þiggjendur á þessu sviði. Mig
langar því til að vekja fólk til um-
hugsunar um að við verðum að gefa
líffæri eins og aðrar þjóðir,“ segir
Snorri Ólafsson á Akranesi.
Eiginkona Snorra, Svala Auð-
bjömsdóttir, lést eftir 16 mánaða bið
eftir hjarta- og lungnaígræöslu. Dótt-
ir þeirra Anna Mary hefur nú beðið
í London í hálft ár eftir sams konar
aðgerð.
Báðar fengu þær sama sjúkdóminn
sem lýsir sér í háþrýstingi í lungna-
rás sem veldur því aö lungun vinna
ekki rétt og vinna ekki nægilegt súr-
efni. Það orsakar svo stækkim á
hjartavöðvanum.
Eins og áður sagði era kortin sem
Snorri er að dreifa bresk en með
þeim fylgir íslensk þýðing þar sem
kemur fram hver sé tilgangur kort-
anna.
Með þvi að bera kortið samþykkir
viðkomandi einstaklingur að það
megi nota líffæri hans, að honum
látnum, til ígræðslu í aðra eða til
læknismeðferðar í þágu annarra að
ööru leyti. Unnt er aö takmarka
heimildir annarra til notkunar lík-
amans með því að viðkomandi strik-
ar út þau líffæri sem hann vill ekki
gefa, en lætur annað standa og ritar
svo undir.
Snorri segist hafa átt 1 viðræðum
við heilbrigðisráðuneytið hér í byrj-
un ágúst um íslenska útgáfu á gjafa-
kortunum.
„Þeir lofuðu mér því í heilbrigðis-
ráðuneytinu að þaö yrði hafm útgáfa
á íslenskum kortum. Starfsmenn í
ráðuneytinu ljósrituðu kortin og
sýndu málinu mikinn áhuga þó að
efndimar hafi engar orðið enn sem
komið er.“
Snorri segir jafnframt aö læknar á
Bromton sjúkrahúsinu í London séu
reiðubúnir að koma hvenær sem er
til íslands ef einhver líffæri séu í
boði sem geti bjargað lífl einhvers
annars.
„Ef íslendingar myndu gefa eitt eða
tvö líffæri á ári, þá værum við einna
stærstu líffæragefendumir í heimin-
um miðað við fólksfjölda," segir
SnojTi.
Hann segir að sér hafi dottið í hug
að dreifa kortunum í apótek en af
því hafi ekki enn orðið. Þeir sem vilji
nálgast gjafakrotin geti haft sam-
band við Snorra í síma 93-13025.
-J.Mar
Lögfræðingur Iðnþróunarsjóðs:
Glæst plön og
góðar áætlanir
„Þessir menn voru með glæst plön
og góðar áætlanir. Þeir voru einnig
komnir í bankaviðskipti," sagði Elv-
ar Rúnarsson, lögfræðingur Iðnþró-
unarsjóðs íslands, er DV spurði hann
hvers vegna heföi verið gengiö að
tilboði S.P. Fiskvinnslu í húseign
sjóðanna í Þorlákshöfn.
Elvar sagði að í upphafi hefðu bæði
tilboðin þótt óaðgengileg. Tilboðs-
gjöfum heföi því verið gerð grein fyr-
ir þeim lágmarkskröfum, sem sjóð-
irnir settu varðandi heildarkaup-
verð, útborgun, afborganir og vaxta-
kjör. Að þessum kröfum hefði S.P.
Fiskvinnsla talið sig geta gengið en
Sjávarréttir hf. ekki.
„Það hefur gerst í kerfmu að menn
hafi selt eignir og fengið tiltölulega
lítið fjármagn við útborgun og verið
síðan í hinu mesta basli við að inn-
heimta eftirstöðvar kaupverðs.
Þama eru sjóöirnir þó að bæta all-
verulega stööu sína með því að fá
einhvem hluta kaupverðsins greidd-
an út áður en þeir gefa út afsalið,"
sagði Elvar. „Menn éru þá búnir að
kynna sér greiðslugetu kaupandans
og hafa ennþá tangarhald á eigninni,
áður en afsahð er gefið út. Það sem
réð úrslitum í þessu máli var að þess-
ir aðilar treystu sér til þess að upp-
fylla sett skilyrði. Einnig munaði
mikluáheildarkaupverði." -JSS
Stj ómarformaður Framkvæmdasjóös:
Einfaldlega besta tilboðið
„Þessu tilboði var tekið vegna þess
að það þótti einfaldlega best af því
sem fékkst í húsið,“ sagði Þórður
Friðjónsson, stjórnarformaður
Framkvæmdasjóös, við DV vegna
húsasölu sjóðanna í Þorlákshöfn.
Þórður sagði að þessi sala heföi
farið fram undir leiðsögn Iðnþróun-
arsjóðs og „sinna rnanna" í fram-
kvæmdasjóði. Kvaðst hann vilja vísa
á Iðnþróunarsjóð varðandi frekari
upplýsingar. Vegna skulda fiskeldis-
fyrirtækjanna tveggja viö sjóðinn
bæri aö hafa í huga að viðkomandi
aðili væri aðeins hluthafi í þeim.
„Málið snýst fyrst og fremst um aö
þetta var hagstæðasta tilboðið og að
kaupendur afhentu ákveðna fjárhæð
við undirritun samninga. Þeir sem
fóru yfir máhð fýrir hönd viðkom-
andi sjóða töldu að þetta væri hag-
kvæmastatilboðið.“ -JSS
Götur Kópavogs ekki saltaöar:
Strætó hætti akstri
og fólk gekk heim
Ágreiningur um vinnufyrirkomu-
lag milh bílstjóra saltbíls Kópavogs-
bæjar og bæjaryfirvalda veldur því
að götur Kópavogs hafa ekki verið
saltaðar þau skipti sem fryst hefur i
vetur. Að sögn Kópavogsbúa sem DV
ræddi við var mjög hált á föstudags-
kvöld og fram á laugardagsmorgun
þar sem ekkert var saltað. Hættu
strætisvagnar að ganga í Kópavogi á
laugardag th að þrýsta á um söltun.
Urðu farþegar að ganga heim frá bið-
stöðinni við Hamraborg. Var utanað-
komandi aðih loks fenginn til að salta
seinna um daginn.
Síöasthðin 10 ár hafa sex starfs-
menn Kópagvogsbæjar verið á sölt-
unar- og snjómökstursvöktum yfir
veturinn. Síðasta sumardag í ár barst
hins vegar thkynning frá bæjaryflr-
völdum þar sem tilkynnt var að vökt-
unum yrði frestað um viku. Viku síð-
ar kom síðan önnur tilkynning þar
sem tilkynnt var að vöktunum yrði
frestað um óákveðinn tíma. Hug-
mynd bæjaryfirvalda er að hringt
verði í heim í söltunarmenn ef ísing
myndast á götunum og einungis einn
maður verði þá kahaður út.
„Menn undu þessum spamaðar-
ákvörðunum heldur hla. Um síðustu
helgi var töluverð ísing á götunum
en þá náðist ekki í neinn til að salta.
Okkur bílstjórunum finnst vanda-
máhð aðallega hggja í samskiptamát-
anum hjá bænum ,“ sagði Valdimar
Jónasson, einn bhstjóra saltbhsins,
viö DV.
Vagnstjórar Strætisvagna Kópa-
vogs héldu fund á fóstudag þar sem
fram kom að þeir væru í fullum rétti
th að leggja vögnunum ef ekki yrði
saltað. Þeir bæru ábyrgð á bæöi
vögnumogfarþegum. -hlh
I
I
1
>
í
>