Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991. Fréttir 27 ára Reykvíkingur dæmdur 118 mánaða fangelsi í sakadómi: Dró unglingsstúlku á hár- inu og nauðgaði á eftir - sló hana einnig hnefahöggi 1 andlitið og hótaði meira ofbeldi 27 ára Reykvíkingur, Jónas Jón- asson, hefur veriö dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa með ofbeldi og ógnunum þröngvað 16 ára stúlku til samræðis við sig á heimili sínu í Unufelli aðfaranótt 29. desember 1990. Stúlkan var illa útleikin líkamlega og andlega eftir atburðinn. Maðurinn var dæmdur til að greiða henni 500 þúsund krónur í miskabætur. Pétur Guð- geirsson, sakadómari við Sakadóm Reykjavíkur, kvað upp dóminn. Umrædda nótt hljóp stúlkan frá heimili mannsins að húsi í ná- grenninu og bað um að kallað yrði á lögreglu - hún ætlaði að kséra mann fyrir nauðgun. Maðurinn bjó með móður sinni og sambýlis- manni hennar í Unufelli. Þegar lög- reglan kom þangað á vettvang voru blóðblettir fyrir utan húsið. Greini- leg blóðslóð lá frá útidyrum að her- bergi sakborningsins innandyra. Inni í herberginu var mikil óreiða, stór blóðpollur á gólfinu og brotin ölkrús. Læknisrannsókn á stúlk- unni leiddi í ljós marga áverka á líkama hennar auk þess sem hún var í mikilli geðshræringu. Einnig var ljóst að togað hafði verið harka- lega í hár hennar. Maðurinn og stúlkan hittust á Gauki á Stöng að kvöldlagi. Tóku þau leigubíl áleiðis á annan veit- ■ ingastað. í millitíðinni sagðist mað- urinn ætla að fara heim til sín og ná í peninga og áfengi. Hann taldi stúlkuna síðan á að koma með sér inn á heimili sitt þar sem þau hittu móður mannsins og sambýlismann hennar. Fyrir dómi kom fram að maður- inn klæddi sig úr í herbergi sínu og vildi eiga mök við stúlkuna en hún vísaði honum frá. Bauð hann einnig greiðslu fyrir og neitaði hún. Við svo búið hljóp hún út. Maður- inn fór á eftir á nærbuxum einum fata, náði henni og dró hana á hár- inu inn í húsið og sló hana með hnefanum í andlitið. Inni í húsinu kom til átaka og neyddi maðurinn síðan stúlkuna til að hafa við sig mök inni í herbergi sínu. Einnig kom fram fyrir dómi að móðirin og sambýlismaðurinn urðu vitni að átökunum en ekki að kynferðis- lega ofbeldinu sem átti sér staö í herbergi mannsins. Framburður stúlkunnar var studdur af rannsókn á vettvangi, læknisrannsókn, fötum hennar og lögregluvitnum. Framburður mannsins var hins vegar óstöðugur í skýrslum sem þóttu hver um sig ótrúverðug. Framburður móður- innar og sambýlismannsins rakst á í verulegum atriðum. Þau þóttu hvorki óvilhöll né trúverðug. Með hliðsjón af þessu var maðurinn sakfelldur fyrir nauðgun með of- beldi og hótunum. Maðurinn hlaut skilorðsbundna ákærufrestun fyrir þjófnað árið 1983 og sekt sama ár fyrir annað hegningarlagabrot. Honum hafði þrisvar verið refsað fyrir ölvunar- akstur. Stúlkan fór fram á 1,5 millj- ónir króna í miskabætur en dóm- urinn dæmdi manninn til að greiða henni 500 þúsund. Hann var einnig dæmdur til að greiða 110 þúsund krónur í sakarkostnað. -ÓTT Kópavogur: Viljabyggja skýjakljúf „Það hefur komið fram hug- mynd frá lóðarhöfum um bygg- ingu 11 hæða húss gegnt verslun- inni Brekkuvali. Fyrir nokkrum árum var ákveðiö að byggja þriggja hæða hús á þessari lóö og var fyrirhugað að það myndi hýsa ýmiss konar atvinnustarf- semi. Nú þykir lóðarhöfum hins vegar fullreynt að það takist að selja atvinnuhúsnæði á þessum stað sökum lítillar eftirspurnar. Þeir hafa því óskað eftir því við bæjaryfirvöld að fá að byggja 11 hæða ibúðablokk álóðinni," segir Birgir Sigurðsson, skípulags- stjóri í Kópavogi. íbúar í nágrenninu eru ekki á eitt sáttir um þessa hugmynd þar sem þeir telja að svo hátt hús muni skyggja á útsýni og einnig sé hætta á að skrúðgarður, sem er í austurhluta lóðarinnar, verði eyðilagður. Bæjarstjórn hefur ekki tekið afstöðu til hvort bygg- ing háhýsisins veröur samþykkt. „Ef samþykkiö fæst verður leit að heimildar Skipulagsstjómar ríkisins um aö auglýsa nýtt skipulag og fá í framhaldi af þvi athugasemdir og ábendingar frá íbúum í nágrenninu," segir Birg- ir. -J.Mar Ríkisskíp: Fundað um hlutafélag Starfsmannafélag Rncisskipa hefur boðað til undirbúnings- fundar á Hótel Sögu í kvöld vegna fyrirhugaðrar stofhunar hlutafé- lags er kaupi Skipaútgerð ríkis- ins. Á fttndinum verður kosin undirbúningsstjóm sem síðan er ætlað að boöa til formlegs stofn- fundar félagsins. Halldór Blöndal samgönguráð- herra hefur tekiö vel í hugmynd- ir starfsmanna Ríkisskipa og fleiri, þar á meöal Félags stór- kaupmanna, um að kaupa fyrir- tækið af ríkinu, Þá hefur hann einnig rætt við Eimskip og Sam- skip um málið. Eyjólftir Konráð Jónsson al- þingismaður, Hjörtur Emilsson, gjaldkeri Starfsmannafélags Rík- isskipa, Eiríkur Greipsson, fram- leiðslustjóri Hjálms hf. á Fiat- eyrí, Jón Kristjánsson alþingis- maður og fleiri munu taka til máls á fundinum. Guðmundur Eiríksson, forstjóri Ríkisskipa, j mun svara fyiirspumum. -hlh Forystumenn Alumax að snæðingi með íslenskum ráðamönnum á Þingvöllum. F.v. Allen Born, stjórnarformaður Amax, Davíð Oddsson, torsætisráð- herra, Paul Drack, stjórnarformaður Alumax, Jóhannes Nordal seðlabankastjóri. DV-mynd GTK Álver í fyrsta lagi í gagnið undir aldamót - segja bjartsýnustu spár um þróun álverðs Myndin sýnir þróun álverðs miðað við verðlag 1991. Sjá má ársgamla spá um þróun álverðs til aldamóta, sem hrundi, og nýja spá. Þá er í myndinn lína sem sýnir lágmarksverð sem forstjóri Alumax segir að þurfi að vera á áli áður en álfyrirtækin taka ákvörðun um byggingu álvers á Keilisnesi. Nýjustu spár um þróun álverðs á heimsmarkaði næsta áratug og full- yrðingar forstjóra bandaríska álfyr- irtækisins Alumax um lágmarksverö á áh, sem þarf til að framkvæmdir á Keilisnesi fari af stað, þenda til að álver verði ekki þyggt fyrr en í fyrsta lagi um og eftir miöjan þennan ára- tug. Miðað við það tekur álver í fyrsta lagi til starfa undir aldamót. Þá er miðað við bjartsýnustu spár. Paul Drack, forstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alumax, sem er aðili að Atlantsálverkefninu, sagði í heim- sókn sinni í vikunni að heimsmark- aðsvérð á áli þyrfti að hækka upp í 1550-1650 dollara á tonnið áður en hægt yrði að taka ákvörðun um byggingu álvers á Keilisnesi. Paul Drack spáir hins vegar versnandi stöðu í áhðnaðinum á næsta ári og litlum líkum á bata fyrr en 1993. Nýjustu spár fyrirtækisins James Fisher King, sem gert hefur spár um þróun álverðs fyrir Landsvirkjun, segja að álverðið nái lágmarki eða viðmiðunarverði Atlantsálfyrirtækj- anna í fyrsta lagi 1993 eða 1994. Er þá gengið út frá ástandi á álmarkaði í dag. Það þýðir að framkvæmdir vegna álvers gætu í fyrsta lagi hafist 1994-1995. Það er á sama tíma og hingað til hefur veriö áætlað að álver á Keilisnesi yrði tilbúið. Tonn af áh kostar nú um 1150 doll- ara. Verðið hefur hrapað allt þetta ár. Orsakirnar eru raktar til mikik rússnesks áls á heimsmarkaði og hægs efnahagsbata í Bandaríkjun- um. í ágúst var því spáð að álver kæmi í gagnið samtímis methækkun álverðs en þær spár viröast hafa kol- fallið. Það verður ekki fyrr en 1997 sem núverandi spá um álverð nær gömlu spánni. Þrátt fyrir toppa og lægðir í álverði virðist meðalverð á áh hafa haldist í kringum 2000 dollara tonnið. Miðað við verðlag 1991 hefur álverð ekki verið lægra en einmitt nú. Mikil óvissa er um framhaldið af fyrr- nefndum ástæðum. Þá er enn ótalið að aðstæður í efnahagsmálum í heiminum þurfa að breytast til batn- aðar svo lánsfé á hagstæðari kjörum fáist til framkvæmdanna. Óhagstætt lánsfé var einmitt aðalástæða þess að Atlantsálfyrirtækin frestuðu byggingu álversins á Keihsnesi um óákveðinntíma. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.