Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991. 3 HQíðarfjall: Lyfturígang um helgina „Eins og staöan er í dag og ef ekki kemur hér hláka þá stefnum við að því að opna lyftumar á laugardag," segir ívar Sigmundsson, forstöðu- maður skíðasvæðisins í Hhðarijalli við Akureyri. „Það er enn frekar lítill snjór í fjall- inu og fólk verður að sýna varúð, t.d. við gil sem hér eru. En við munum nota dagana fram að helginni til að ýta til snjónum og reyna að gera þetta sem best úr garði og það veröa allar helstu skíðaleiðir í fjallinu sæmilegar. Það var árið 1986 sem fjallið var síðast opnað í nóvembermánuði en síðan þá hefur orðið að bíða fram yfir áramót með að opna. Um þver- bak keyrði síðan í fyrra en þá var ekki opnað fyrr en í febrúar og snjór var þá mjög lítill eða minni en nú er í Hlíðarfjalli. Um 10% hækkun verður á lyftu- kortum, mest fyrir fuUorðna. Vegna ástandsins sl. vetur hefur hins vegar verið ákveðið að þeir sem þá keyptu árskort geti notað þau til áramóta og er með því verið að koma til móts við þá sem keyptu slík kort en gátu htið aöhafst í brekkunum vegna snjóleysis. ÓlafsQörður: íkveikjan er upplýst Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: Rannsóknarlögreglan á Akureyri telur sig hafa upplýst það mál er eld- ur kom upp í húsi við Ólafsveg á Ólafsfirði um helgina en grunur manna um íkveikju af mannavöldum kom strax upp. Greinilegt virtist að eldur hafði verið kveiktur á tveimur stöðum í íbúðinni þar sem heimilisfólk svaf værum svefni og er talin mesta mildi aö eldsins varð vart í tæka tíð svo ekki varð um mikið tjón að ræða og heimilisfólkið hefði að sjálfsögðu verið í mikilli hættu ef eldurinn hefði ekki uppgötvast jafn skjótt og raun varð á. Rannsóknarlögreglan á Akureyri, sem vann að rannsókn málsins, segir að rannsókn sé lokið, máliö talið upplýst og það var sent bæjarfóget- anum á Ólafsfirði til frekari af- greiöslu í gær. Grei&slukjör vib allra hæfi SKIPHOLT119 SÍMI29800 rEi £F\ EUROCARD msmm Samkort \ v____________________________________________:____________Fréttir Arabar vilja kaupa heil- agt vatn frá Patreksf irði - hyggjastnotavatniöviötrúarathafmrsmar „Okkur hefur borist fyrirspum um sölu vatns frá arabalöndunum. Þeir eru að leita að hreinu vatni til að nota við trúarathafnir sínar. Mér skilst að þeir þvoi sér um andlitið áður en þeir snúa sér í áttina til Mekka,“ sagði Ólafur Arnfjörð Guð- mundsson, bæjarstjóri á Patreks- firði, við DV. Patreksfirðingar eru nú að huga að sölu á vatni til útlanda. Forsaga málsins er sú að fyrir 6-7 árum var borað eftir heitu vatni í svonefndum Mikladal. Ekkert heitt vatn fannst, en upp komu 20 sekúndulítrar af 6,5 gráðu vatni. Voru nú send vatnssýni til Iðn- tæknistofnunar og Hollustuverndar. Reyndist vera um einkar hreint og gott vatn að ræða. í framhaldi af þessu var fenginn til aðstoöar rekstr- arhagfræðingur úr Reykjavík, Kristján Jóhannsson, sem starfað hefur á vegum iðnaðarráðuneytisins að vatnssölumálum. Hann hefur lagt fram tiUögu þess efnis að gerð verði frumathugun á arðsemi þess að setja á stofn verksmiðju á Patreksfirði. „Það sem menn eru að skoða í dag er í fyrsta lagi hefðbundin átöppún- arverksmiðja," sagði Ólafur. „Slíkt fyrirtæki kostar 5-700 miUjónir. Við yrðum því ekki einir um það. Annar kosturinn er sá, að vera með svokaUaö iðnaðarvatn. Það er notað í lyfjaiðnaði, snyrtiiðnaði og þess háttar. Loks er fyrirspurnin frá arabalöndunum. Hún barst Kristjáni í gegnum Svíþjóð. Síðast taldi mögu- leikinn er sá sem við horfum mest á í dag. Það væri líka vel við hæfi að selja aröbunum vatn, til trúariðkana, frá Patreksfirði sem nefndur er eftir heilögum Patrek.“ -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.