Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991.
Fréttir
DV
„Namibíumaðurinn“ dæmdur 1 fangelsi fyrir ýmis svik 1 sakadómi í gær:
Gekk undir 7 skírnarnöf num
- er eftirlýstur Kanadamaður en tekur refsinguna út á íslandi
„Namibiski Kanadamaðurinn" veifar hönskum sínum að Ijósmyndara DV við dómsuppkvaðninguna í Sakadómi
Reykjavikur í gær. DV-mynd GVA
26 ára karlmaður, svonefndur
Namibíumaður, var í gær dæmdur í
6 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði
skilorðsbundið, fyrir hótelsvik, fjár-
svik og umboðssvik í Sakadómi
Reykjavíkur. Hann var dæmdur til
að greiða þremur fyrirtækjum í
Reykjavík 284 þúsund krónur í
skaðabætur vegna svikanna auk 270
þúsund króna í sakarkostnað.
Maðurinn ætlar að taka sér 14 daga
umþóttunartíma til að ákveða hvort
hann áfrýjar til Hæstaréttar. Hjörtur
0. Aðalsteinsson kvað upp dóminn.
Kærði 5 úrskurði
Frá 16. október hefur maðurinn
kært 5 úrskurði Sakadóms til Hæsta-
réttar - vegna gæsluvarðhalds, far-
banns, heimild til að taka fingraför
og ljósmyndir af honum og heimild
til að rannsaka muni sem lagt var
hald á. Hæstiréttur féllst ekki á þijár
af kærunum en hnekkti gæsluvarð-
haldsúrskurðinum. Eina kæru aftur-
kallaði maðurinn. Hann hefur nú
verið úrskurðaður í farbann til 30.
desember og er vegabréf hans í hönd-
um íslenskra stjórnvalda.
Samkvæmt dóminum mun maður-
inn afplána þriggja mánaða fangels-
isrefsingu hér á landi. Eftir það verð-
ur hann frjáls ferða sinna. Gerist
hann ekki sekur um önnur brot á
næstu 3 árum fellur skilorðsbundna
refsingin niður. Þó að maðurinn sé
eftirlýstur í Kanada vegna auðgun-
arbrots frá í febrúar hefur ekki verið
farið fram á framsal á honum.
Hver er þessi maður?
í dómsalnum í gær sýndi maðurinn
htil svipbrigði þegar dómarinn kvað
upp dóminn. Verjandi hans, Ragnar
Aðalsteinsson, útskýrði fyrir honum
dómsorðið. Túlkur las einnig niður-
stöðu dómsins fyrir hann á ensku.
Samkvæmt namibísku vegabréfi
heitir maðurinn Torbjomen Gunn-
asson. Sjálfur kveöst hann heita Þor-
bjöm Vilhelm Anders Gunnarsson.
25. október bámst RLR upplýsingar
frá Interpol í Kanada um að maður-
inn væri Lars Erik Gunnarsson,
fæddur í Manitoba þar í landi. Sá
maður er eftirlýstur í Kanada vegna
auðgunarbrots sem framið var í fe-
brúar í ár. Afrit af fingrafömm sama
manns, nánar tiltekið Lars Erik Tor-
bjorn Matti Pekka Gunnarsson, vom
send RLR 7. nóvember. Þau ásamt
fæðingardegi mannsins koma heim
og saman viö fingraför Namibíu-
mannsins. Honum vom kynnt gögn-
in frá Kanada fyrir dómi. Sagði hann
þau staðfesta að hann væri Þorbjöm
Gunnarsson en kvað gögnin ekki
mæla gegn því að hann væri nam-
ibískur ríkisborgari. Maðurinn hefur
haldiö fast við aö þar sé hann fæddur
og vísar til fæðingarvottorðs.
í viðtali við blaðamann DV fyrir
skömmu sagði maðurinn að foreldr-
ar hans byggju í Afríku en vildi ekki
gefa upp hvar. Hann sagði þá báða
vera af skandinavísku bergi brotna.
Aðspurður um ástæðu fyrir komu
sinni til íslands sagðist hann hafa
ætlað að heimsækja íslenska ætt-
ingja sína - en þeir hefðu bara verið
farnir þegar hann kom. Hann sagist
í dómsalnum
Óttar Sveinsson
oft hafa komið til íslands áður og
heimsótt ættingjana sína og vini.
Maðurinn sagði jafnframt að máls-
höföun íslenskra yfirvalda gegn sér
væri eingöngu til þess „að eyða pen-
ingum íslenskra skattborgara".
Dæmdur fyrir um 700
þúsund króna svik
Maðurinn var ákæröur fyrir sam-
tals 721 þúsund króna hótelsvik, fjár-
svik og umboössvik. Hann var fund-
inn sekur um meginhluta ákærunn-
ar. Honum var gert að greiða 9/10
hluta sakarkostnaðar. Það hlutfall
gefur ákveðna mynd af sakfelling-
unni.
Maðurinn var dæmdur fyrir að
hafa þegið þjónustu á Hótel Holti frá
19. september til 11. október án þess
að greiða reikning sinn, 214 þúsund
krónur, eða leggja fram tryggingu
fyrir honum. Maðurinn var dæmdur
til að greiða alla þá upphæð með
vöxtum í skaðabætur.
Eftir að hafa verið vísað af Hótel
Holti gisti maðurinn á Hótel íslandi.
Reikningurinn þar var orðinn 41
þúsund krónur þegar RLR handtók
hann 15. október. Fyrir þetta var
maðurinn hins vegar sýknaður og
ekki fallist á skaðabótakröfu Hótel
íslands. Ósannað þótti að hann heföi
ekki ætlað að greiða hótelreikning-
inn þar því á þessum tíma átti hann
fyrir rúmlega andvirði reikningsins.
Snyrtir fæddur á Húsavík!
Krista sf. í Kringlunni lagði fram
kæru á hendur „Namibíumannin-
um“ 14. október fyrir 426 þúsund
króna fjársvik. í kærunni sagði að
maðurinn hefði sagst vera íslenskur
ríkisborgari, fæddur á Húsavík, með
aiþjóðapróf í snyrtingu með virðis-
aukaskattsnúmerið 4254. Það númer
hefur fyrirtæki á Hellu.
Á tímabihnu 3.-10. október fékk
sakborningurinn vörur afgreiddar
hjá Kristu sf. fyrir umrædda upp-
hæð. Sagðist hann ætla að setja upp
snyrtistofu hjá „virtri hárgreiðslu-
stofu“. Lofaði hann að greiða 11. okt-
óber en fékk frest til 19. þar sem
hann sagðist þurfa „að skreppa til
Parísar vegna andláts föður síns“.
Sakadómur taldi þetta vera blekk-
ingar til að vekja traust hans hjá
Kristu sf. Hefði sannleikurinn og
fjárhagur hans komið í ljós heföi
ekki orðið af framangreindum samn-
ingi. Forsvarsmönnum Kristu tókst
að ná í mestan hluta af vörunum á
Hótel Holti 13. október. Maðurinn
var sakfelldur fyrir þennan ákæru-
lið. Andvirði þess sem ekki náðist,
vörur fyrir 32 þúsund krónur, var
maðurinn dæmdur til að greiða
Kristu sf. í skaðabætur.
Skuldar 9 þúsund dollara
„Namibíski Kanadamaðurinn" var
einnig dæmdur fyrir að hafa frá 19.
september til 6. október tekið út vör-
ur fyrir 38 þúsund krónur í Reykja-
vík fyrir Mastercard greiðslukort.
Kortið var gefið út í Jóhannesarborg.
í máhnu lá fyrir staðfesting frá yfir-
manni fiársvikadeildar Nedbank
Credit Card um að „Namibíumaður-
inn“ hefði fengið kortið 14. mars.
Úttektarheimildin var $ 1.745 dollar-
ar en skuldin við bankann nam $
9.680 dollurum. Kortið fór á vákorta-
lista 6. ágúst. Eurocard á íslandi er
bundið af úttektum sakborningsins
hér á landi. Maðurinn var sakfelldur
fyrir þennan ákæruhð og dæmdur
tii að greiða Kreditkortum hf. 38 þús-
und krónur.
Sakadómur sýknaði manninn af
kröfu ákæruvaldsins um frávísun úr
landi að lokinni fangelsisafplánun.
-ÓTT
í dag mælir Dagfari
Hin hagsýna húsmóðir
Nú er nokkur ár liðin síðan
Kvennalistinn haslaði sér vöh í ís-
lenskum stjómmálum. Var ekki
vanþörf á. Konur áttu erindi í póh-
tík en höföu að mestu veriö hunds-
aðar af gömlu flokkunum sem aldr-
ei hafa skilið hin mjúku gildi og
aldrei haft skilning á viðhorfum
kvenna. KvennaUstinn bauð fram
í nafni hinnar hagsýnu húsmóður
og fékk fljúgandi byr bæði hjá körl-
um og konum í kosningum vegna
þess að þjóðin metur hina hagsýnu
húsmóður að verðleikum.
FuUtrúar húsmóðurinnar kom-
ust á þing og fóru aö láta að sér
kveða og svo fóru karlamir að tala
um álver og stóriðju og orkuver og
hin hagsýna húsmóðir var rekin
upp í hom og mátti sín einskis í
öUum þessum stóriðjudraumum.
Um tíma leit út fyrir að stóriðjan
yrði að veruleika en kvennhsta-
konur sátu við sinn keip og þar
kom að álfurstamir lýstu yfir því
að þeir heföu ekki efni á því að
byggja álver á íslandi og þjóðin
lagðist í sorg og sút. AUir nema hin
hagsýna húsmóðir.
Húsmæðumar á þingi léku við
hvem sinn fingur og fögnuðu því
ákaft aö álver væri úr sögunni og
hafa ekki fariö dult með þá skoðun
sína aö kreppan væri kærkomiö
ástand sem hentaði hinni hagsýnu
húsmóður. Sannaðist enn í þeirri
póhtísku stöðu aö sjónarmið hús-
mæðranna áttu erindi á Alþingi og
það var kominn tími tíl að einhver
rödd heyrðist hér á landi sem telur
kreppuástand af hinu góða. Það er
alveg makalaust hvað karlar hafa
fengið að vaða áfram með þau sjón-
armið að hér þurfi að vera atvinna
og hér þurfi að nýta auðlindir og
að hér þurfi að auka hagvöxt og
kaupmátt. Viðhorf hinnar hagsýnu
húsmóður era einmitt fólgin í því
að halda vemdarhendi yfir landinu
óskertu og koma í veg fyrir mengun
og röskun og varðveita mannlífið
eins og það var á árum áður, svo
fólk geti lifað í sátt og samlyndi og
kröpp kjör í samræmi við lífshætti
íslendinga fram eftir öllum öldum.
Nú era að vísu góð ráð dýr þegar
álver kemur ekki og hundraðum
manna er sagt upp störfum og hin
hagsýna húsmóðir þarf að sjá fyrir
fæði og klæði harna sinna og eigin-
manna sem ráfa um atvinnulausir
og tekjulausir. En hin hagsýna
húsmóðir kann ráð við því. Hún
segir að nú eigi þjóðin að taka lán,
stórt erlent lán, og þá sé enginn
vandi að halda þessari þjóð á floti
og una við krepp.una.
Forsætisráðherra segir að það sé
óráð aö taka lán. Þjóðin sé nógu
skuldug fyrir. Hann segir það ekki
góða búmennsku eða hagsýni að
eyða meira en aflað er og vill ekki
taka lán. Menn verða að sníða sér
stakk eför vexti, segir forsætisráð-
herra og talar eins og hálfgerður
bjálfi. Sér maðurinn ekki hagsýn-
ina í því að slá lán úr því að hann
á ekki fyrir matnum handa börn-
um sínum og buram? Veit hann
ekki að hin hagsýna húsmóðir gef-
ur dauðann og djöfulinn í alla spar-
semi og þarf á sínu aö halda? Hin
hagsýna húsmóðir vílar það ekki
fyrir sér að bæta við skuldirnar ef
hún á ekki fyrir nauðsynjunum.
Sjá ekki allir hvemig þjóðin lifir á
kreditkortum og vixlakaupum og
svo hafa margir karlar fyrir sið að
slá og slá þangað til þeir fara á
hausinn? Sjálfsagt búa þeir við
konuríki, þar sem hin hagsýna
húsmóðir rekur karlinn í bankann
til að slá lán og heimtar að hann
fari á hausinn til að húsmóðirin
eigi nóga aura í buddunni.
Þessi fiármálastefna hefur verið
ráðandi á heimilum og í fyrirtækj-
um og reyndar hjá ríkissjóði einnig
og hin hagsýna húsmóðir hefur
eignast talsmenn á Alþingi sem
segja þetta þjóðráð aö slá stórt er-
lent lán fyrir útgjöldunum. Hvers
vegna hlustar ekki forsætisráð-
herra á Kvennalistann? Hvers
vegna vill ríkisstjómin ekki fara
að ráðum kvennastéttarinnar og
húsmæðranna sem túlka hagsýn-
ina á þann veg að kreppa sé af hinu
góða vegna þess að menn geti lifaö
af lánum?
Dagfari hefur sagt það og segir
það enn aö Kvennahstinn veit hvað
hann syngur og hagsýn húsmóðir
mundi aldrei láta sér detta í hug
að draga saman seghn þótt eitthvað
bjáti á. Þær mæla með stóra, stóra
erlendu láni og svo geta börnin og
komandi kynslóðir haft veg og
vanda af því að borga þær skuldir.
Den tid, den sorg. Það er hagsýnin
semblífur. Dagfari