Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991 13 Sviðsljós Þekktir listamenn í íslensku operunm Rafn Jónsson hljómlistarmaöur, eða Rabbi eins og hann er kallaður, hélt útgáfutónleika í íslensku Óper- unni í síðustu viku ásamt fjölmörg- um af okkar bestu söngvunnn og hljómlistarmönnum. Tilefnið var útkoma hljómplötunn- ar Andartak sem gefin er út til styrktar lömuðum og fötluðum og til stofnunar á sjóði til rannsóknar á sjúkdómnum MND. Yfir 40 lista- menn koma fram á plötunni. Á tónleikunum voru leikin lög af hljómplötunni en Rabbi taldi þar einnig í nokkur gömul Grafíklög. Hljómsveitin Hvítir hrafnar lék fyrir gesti en hljómleikarnir voru bæði hljóðritaðir og kvikmyndaðir. . v:-' - V-- ■ ■ Hljómsveitin Hvítir hrafnar sá um allan undirleik en hana skipuðu margir af okkar bestu hljóðfæraleikurum. DV-myndir S Rabbi sá um trommurnar um kvöld- Helgi Björnsson úr Sólinni tók lagið ið enda þar á heimavelli. en hann er einn af þeim fjölmörgu listamönnum sem syngja á plötunni Andartak. Starfsmenn Steina hf.: Neita að raka sig og klippa „Við höfum svo mikla trú á ís- lensku útgáfunni sem við erum með að við ætlum okkur ekki að skerða hár okkar né skegg fyrr en við höfum selt 100 þúsund eintök allt í allt á þessu ári,“ sagði Steinar Berg í sam- tah við DV en starfsmenn hans eru að verða fúlskeggjaðir um þessar mundir. Steinar nefndi til samanburðar að heildarplötusalan hjá fyrirtækinu í fyrra hefði verið 75 þúsund eintök. „Við höldum aö þetta sé raunhæft. Salan á árinu hingað til hefur verið 35 þúsund eintök þannig að við þurf- um að selja 65 þúsund í viðbót. Það er mjög mikið samt sem áður en við höldum að þetta takist." Með „við“ á Steinar við alla sölu- og lagermenn fyrirtækisins í sölu- og markaðsdeild en þeir vonast til að ná markmiðinu fyrir 15. desember svo að þeir geti rakað sig og khppt fyrir jóhn. „Það eru ákveðin hegningará- kvæði sem við þurfum að ganga í gegnum ef þetta tekst ekki. Þá á að loka okkur inni í herbergi með stór- hljómsveit Höskuldar Höskuldsson- ar,“ sagði Steinar. Fyrir þá sem hafa ekki heyrt í þeirri hljómsveit sagði Steinar þá ekki geta ímyndað sér hvers lags kvöl það er að þurfa að hlusta á hana í heha dagstund. „Þetta er eins konar innanhúss- hljómsveit sem fyrrum starfsmaður okkar er í. Hann starfar nú fyrir Skífuna þannig að hann er örugglega tilkipphegur að hegna okkur,“ sagði Steinar að.lokum. Steinar Berg, i miðið, ásamt sölu- og lagermönnum sinum. Það verður fróð- legt að sjá hvernig þeir líta út um jólin. DV-mynd BG TILBOD! Pottasett kr. 8.990 ItiO*; US'IAMII ■ . í HÆSTA GÆOAFU GÆÐASTÁL Tvöfaidirbotnar faV.egaSagaóuf vatnsKetlii úf .vöndudugæðastan •vðins'. Hann ar ínao [tVðfOÍOuTDO' 'i getðir eidavéfó 03 [ et miog orkuspa' 1 rancíi. Handtang og Iflautustútur I e'mangtandi . laeívieini.semþoi.t Ivei hita. |pÖntunamr.350.7Tu Eidhúsáhöld «| A Fyrir Kröfuharda Þetta frábæra pottasett uppfyllir ströngustu kröfur um efni og vöruvöndun: Vandað gæðstál og allir pottar meó tvöföldum botni, sem leiðir hitann mjög vel. Hentar fyrir allar gerðír eldavéla. Eru med handföngum, sem þola að fara i bakaraofn. Mjög auðveldír í umhirðu. Tveir af hvorri gerð, lágir og háir suðupottar 016 og 0 20 cm, einn skaftpottur 016 cm, ein skál til að hræra í, á hritKilaga stativi 016 cm, einn þeytari 30 cm, tvær skálar 016 og 018 cm og sósusigti 015 cm. A!Is 10 hlutir. Pontunamr. 066.410 Vandaðut vatnsketili. 1.0 iitrar. lAðeins w * RYÐFhíTT GÆÐASTÁL 1 Quelle STÆRSTA PÚSTVERSLUN EVRÓPU VERSLUN OG AFGREIÐSLA, HJALLAHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI SÍMI 91-50200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.