Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991.
25
Fólk í fréttum
Guðni Þ. Sigurjónsson
Guðni Þór Siguijónsson pípulagn-
ingamaður varð heimsmeistari í 110
kg flokki á heimsmeistaramótinu í
kraftlyftingum sem fram fór í Sví-
þjóðumhelgina.
Starfsferill
Guðni fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp til þriggja ára aldurs en
flutti þá með fjölskyldu sinni í Kópa-
voginn þar sem hann ólst upp eftir
það. Að loknum samræmdum próf-
um hóf hann nám í pípulögnum hjá
föður sínum og stundaði jafnframt
nám við Iðnskólann í Reykjavík
1980-82 en sveinsprófi lauk hann
1983. Guðni hefur síöan stundað
pípulagnir.
Guðni hefur lagt stund á hinar
ýmsu íþróttagreinar frá því hann
var drengur. Hann var innan við
fermingu er hann fyrst kynntist
lyftíngum en stundaði einkum
knattspyrnu og frjálsar íþróttir á
unglingsárunum. Hann lék knatt-
spymu með Breiðabliki og keppti
með hðinu í fimmta-, fjórða-, þriðja-
og öðrum flokki og lék jafnframt níu
leiki með drengjalandsliðinu. Þá
æföi hann handbolta með KR og
stundaði ftjálsar íþróttír. Hann
hreppti eitt sinn þriðja sætið í víða-
vangshlaupi drengja, vann nokkru
síðar viðavangshlaup Ármanns og
jafnaði íslandsmet í 50 m hlaupi
karla innanhúss 1987. Þá kepptí
hann í fijálsum íþróttum á smá-
þjóðaleikunum 1987.
Guðni hóf lyftingar fyrir alvöru
fyrir tveimur árum og hefur stund-
að þær síðan af kappi. Hann náði
þriðja sætinu í Evrópumóti kraft-
lyftinga hér á landi í fyrra.
Fjölskylda
Sambýhskona Guðna er Berglind
Ármannsdóttir, f. 3.10.1966, versl-
unarmaður.
Dóttir Guðna og Berglindar er
Auður Eir, f. 15.5.1988.
Systkini Guðna eru Helga Sigrún,
f. 27.11.1958, rekur Félagaþjón-
ustuna hf., í sambýh með Ágústi
Sigurðssyni bílstjóra og eiga þau
einn son; Eyja Guðrún, f. 6.3.1967,
íþróttakennari í Kópavogi, gift Pétri
Hákoni Halldórssyni rafvirkja og
eiga þau einn son; Jón Auðunn, f.
27.2.1969, pípulagningamaöur og
sleggjukastari, í sambýU meö Guð-
björgu Lilju Svansdóttur fóstru;
Jórunn Dóra, f. 10.4.1972, nemi í
snyrtifræði, í sambýU með Jóni Þór
Sigurðarsyni bílstjóra.
Foreldrar Guðna eru Siguijón
Einarsson, f. 29.5.1938, pípulagning-
armeistari í Kópavogi, og kona
hans, Auður Jóna Auðunsdóttir, f.
10.3.1937, húsmóðir.
Ættir
Siguijón er sonur Einars, b. á
Moldnúpi undir EyjafjöUum, bróður
Önnu skáldkonu frá Moldnúpi. Ein-
ar var sonur Jóns, b. á Moldnúpi,
Eyjólfssonar, b. á RaufarfelU, Þórar-
inssonar. Móðir Einars á Moldnúpi
var Sigríður, systir Tómasar, föður
Þórðar, safnvarðar og rithöfundar í
Skógum. Sigríður var dóttil’ Þórðar,
b. og formanns á RaufarfelU, bróður
Tómasar, afa Stefáns Harðar Gríms-
sonar skálds og Sigurðar, föður
HaUa og Ladda. Þórður var sonur
Tómasar, b. ogformanns í Ásólfs-
skála, bróður ívars, b. í Tungu í
FljótshUö, langafa Oddgeirs Kristj-
ánssonar tónskálds. ívar var einnig
afi Nikulásar kennara, afa Nikulás-
ar Sigfússonar yfirlæknis, og afi
Tómasar, afa Ómars Valdimarsson-
ar blaðamanns. Tómas var sonur
Þórðar, b. á Moldnúpi, Pálssonar.
Móðir Sigríðar var Guðrún Tómas-
dóttír frá VarmahUð undir Eyjaíjöll-
um. Móðir Guðrúnar var Sigríður
Einarsdóttir. Móöir Sigríðar var
Ragnhildur Sigurðardóttir. Móöir
Ragnhildar var Sigríður Jónsdóttir,
eldprests Steingrímssonar.
Móðir Siguijóns var Eyjólfvína
Guðrún Sveinsdóttir, b. á Feðgum í
Meðallandi, Þorsteinssonar, b. á
Undirhrauni, Þorgerðarsonar Run-
ólfssonar. Móðir Eyjólfvínu var
Guðrún Eyjólfsdóttir, b. á Gríms-
stöðum, Jónssonar og Guðrúnar
Jónsdóttur.
Guðni Þór Sigurjónsson.
Auður Jóna er dóttir Auðuns
sterka, b. að Ysta-Skála undir Eyja-
ijöllum, Jónssonar, í Hvammi Auð-
unssonar, b. á Núpi II, Einarssonar.
Móðir Auðuns sterka var Sigríður
Ólafsdóttir, b. á Núpi Jónssonar, og
Sigríður Sigurðardóttir. Móðir Auð-
ar Jónu var Jórunn Siguröardóttir,
b. á Lambhól, Björnssonar, og Jór-
unnar Ögmundsdóttur. Móðir Jór-
unnar var Þorbjörg, systir Amlaug-
ar, langömmu Magnúsar Jóhannes-
sonar siglingamálstjóra. Þorbjörg
var dóttir Sveins, b. í Nýja-Bæ, Ein-
arssonar, hreppstjóra á Ysta-Skála,
Sighvatssonar.
Afmæli
Halldór Jónsson
HaUdór Jónsson verslunarmaður,
Ljósheimum, Króksfjarðamesi, er
sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Halldór er fæddur á Kjörseyri í
Hrútafirði og dvaldi þar og á Bæ í
sama firði fyrstu þijú árin. Hann fór
síðan í fóstur að Garpsdal í Geira-
dalshreppi og bjó þar og starfað
ósUtiðtilársins 1968.
Halldór stundaöi nám í Reykja-
skóla í Hrútafirði í tvo vetur. Hann
fékkst við landbúnaðarstörf hjá
fósturforeldrum súium í Garpsdal
en frá 1968 hefur hann starfað hjá
Kaupfélagi Króksijarðar. HaUdór
vinnur þar við afgreiöslustörf.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 8.1.1972 Huldu
Pálsdóttur, f. 17.9.1922, frá Hafra-
felU í Reykhólasveit. Þau em barn-
laus.
Börn Huldu frá fyrra hjónabandi
með Hafliða Breiðfjörð Guðmunds-
syni, f. 4.1.1922, d. 29.11.1955: Jó-
hann Magnús, lögreglumaður í
Kópavogi, maki Inga Þómnn Sæ-
mundsdóttir, þau eiga tvö börn en
Inga áttí eitt áður; Guðrún, húsmóð-
ir og starfsm. á Landspítalanum,
maki Snorri Jóhannesson, þau eiga
íjögur böm; Guðmundur, bensínaf-
greiðslumaður í Hafnarfirði, maki
Guðrún Magnúsdóttír, þau eiga þijú
börn en Guðrún átti tvö áður; Sig-
ríður Fnðgerður, húsmóðir í Hvíta-
nesi, N-ísafjarðarsýslu, maki Krist-
ján Kristjánsson, þau eiga íjögur
börn; Hjálmfríöur, húsmóðir og
fyrrv. póstafgreiðslu- og verslunar-
maður, maki Guðbrandur Ingi Her-
mannsson, þau eiga fjögur böm;
Einar Valgeir, bóndi Fremri-Gufu-
dal, A-Barðastrandarsýslu, maki
Svandís Reynisdóttir, þau eiga þijú
böm.
Systkini Halldórs: Jóhann, f. 14.1.
1912, d. 1.2.1986, bóndi á Þverfelli,
Dalasýslu, hans kona var María
Ólafsdóttir, þau eignuðust þrjú
böm; Guðrún Ólöf, f. 5.7.1913, hús-
móðir í Kópavogi, hennar maður
var Sveinn Jónsson, látinn, þau
eignuðust tvö böm. Fóstursystkini
Halldórs: Björn Júlíusson, raf-
virkjameistari, írafossi, Árnessýslu,
maki Aðalheiður Bjömsdóttir, þau
eiga eitt bam; Sigríður Guðrún,
húsmóðir í Reykjavík, maki Njáll
Guðmundsson, þau eiga tvö börn en
Sigríður áfti eitt áður.
Foreldrar Halldórs: Jón Jóhanns-
son, f. 1876, d. 9.8.1918, húsmaður í
Strandasýslu, og kona hans, Guö-
björg Jónasdóttir, f. 14.2.1882, d.
14.8.1941, húsmóðir og vinnukona.
Halldór Jónsson.
Fósturforeldrar Halldórs: Júlíus
Björnsson, f. 28.7.1889, d. 24.12.1977,
bóndi í Garpsdal, og kona hans,
Haflína Ingibjörg Guðjónsdóttir, f.
16.5.1897, d.5.7.1968.
Ætt
Jón var sonur Jóhanns Jónssonar,
bónda í Grænanesi, Níelssonar,
bónda á Kleifum, Sveinssonar. Guð-
björg var dóttir Jónasar Jónssonar,
bónda í Blönduhlíð, Dalasýslu.
Halldór er að heiman á afmælis-
daginn.
Til hamingju með afmælið 20. nóvember
Drápuhlíð 20, Reykjavík.
Þorkell Sigurjónsson,
Blönduhlíö 12, Reykjavík.
90ára
Svava Guðmundsdóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
80 ára
Ólafur Steinsson,
Stóragerði 4, Hvolsvelli,
Sigurlaug Sigurjónsdóttir,
Þórufelli 6, Reykjavík.
70 ára
Jónheiður Gunnarsdóttir,
Kirkjulækjarkoti 3a, Fljótshlíðar-
hreppi.
Kristin Helgadóttir,
Heiðarbóli lOe, Keflavík.
Kristín Guðmundsdóttir,
Dropiaug Pálsdóttir,
Marklandi 6, Reykjavik.
60ára
Lára Ágústsdóttir,
Álfaskeiði 70, HafnarfirðL
SOára
Grétar Benediktsson,
Lerkilundi 16, Akureyri.
Hann tekur á móti gestum á heimili
sínu nk. laugardag(23.1I.)eftirkl.
20.
Katrín Sigurðardóttir,
Skógarási 13, Reykjavík.
Aðalbjörg Níelsdóttir,
Esjubraut21, Akranesi.
40 ára
Málfríður Kolbrún Guðnadóttir,
Lambhagal9, Selfossi.
Kjartan Baldursson,
Skógarási 11, Reykjavík.
Guðrún K. Hauksdóttir,
Hvammstangabraut 29, Hvamms-
tanga.
Smári Stefánsson,
Mánagötu 12, Reyðarfirði.
Ragnheiður Bjömsdóttir,
Suðurbraut 5, Kópavogi.
Hörður Ragnarsson,
Breiðvangi 20, Haínarfirði.
Helga Björk Eðvarðsdóttir,
Markholti 5, Mosfellsbæ.
ÁsgeirHeiðar,
Fannafoldl99, Reykjavík.
Ólafur Benedikt Þórðarson,
Staðarvör 14, Grindavík.
Kári Marisson,
Sólheimum, Akrahreppi.
Stór eldhústæki til sölu
Rafmagnspottar, 50 I, 100 I og 200 I, 220 volt.
Rafha eldavél, 22 kW. 220 volt.
Uppþvottavélar, Hobart, 2 stk.
Hitaborð.
Vaskaborð, ýmsar stærðir.
Fataskápar úr járni (frá Of asmiðju).
Upplýsingar á skrifstofutima í sima 50281.
Sólvangur - sjúkrahús - v/Hörðuvelli, Hafnarf irði
MYNDBAND FRÁ HÁSKÓLABÍÓI
Á MYNDBANDALEIGURNAR1DAG
Borgarskipulag Reykjavíkur
Borgartún 3 -105 Reykjavik - simi 26102 •
Myndsendir 623219
Frá Borgarskipulagi
íbúar í Foldahverfi
Hér með er íbúum í Foldahverfi boðið að kynna sér
tillögur Borgarskipulags um mögulegar aðgerðir til
þess að draga úr umferðarhraða í Fannafold. Með
kynningunni gefst íbúum í Foldahverfi tækifæri til
að meta og velja á milli þessara tillagna og koma
með athugasemdir og ábendingar. Allar ábendingar
eru vel þegnar.
Uppdrættir verða til sýnis í Félagsmiðstöðinni Fjörg-
yn, Logafold 1,-frá 19. nóvemþer til 29. nóvemþer
1991, alla virka daga kl. 9-19.
Ef íbúar óska eftir nánari upplýsingum er þeim þent
á að hafa samband við Borgarskipulag Reykjavíkur,
Borgartúni 3, sími 26102 og 27355, frá kl. 8.20-
16.15 á sama tímabili.