Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Síða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991.
Merming
Þjóðleikhúsið sýnir leikritið M. Butterfly:
Byggt á frétt úr heimspress-
unni sem vakti mikla athygli
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir verkinu og Arnar Jónsson leikur aðalhlutverkið.
M. Butterfly er verðlaunaleikrit
sem frumsýnt verður annað kvöld í
Þjóðleikhúsinu. Leikritið var frum-
sýnt á Broadway 1988 og vakti mikla
athygli. Hér er fjallað um konuna
sem hugarfóstur karlmanna, afstöðu
Vesturlanda til Asíulanda og heims-
veldanna til nýlendnanna í marg-
slungnu leikverki.
Leikritið er byggt á frétt úr heims-
pressunni sem vakti mikla furðu al-
mennings fyrir örfáum árum en þar
sagði af miðaldra frönskum diplómat
sem átti vingott við kínverska dans-
mey um tuttugu ára skeið og eignað-
ist með henni barn. Franska leyni-
þjónustan komst á snoðir um að kín-
verska stúlkan var njósnari en þegar
farið var að rannsaka málið kom
jafnframt á daginn að stúlkan var
reyndar karlmaður í dularklæðum.
Höfundur leikritsins er David
Henry Hwang og er hann bandarísk-
ur, sonur kinversks innflytjanda.
Hann fór strax að semja leikrit með-
an hann var við nám í Stanford há-
skólanum en verk þessi lentu öll í
ruslakörfunni en hann var ákveðinn
í að gerast leikskáld og af tilviljun
rakst hann á auglýsingu í dagblaði
um námskeið í leikritun hjá Sam
Shepard. Shepard reyndist honum
síðan afburða kennari.
Þegar þessu námskeiði lauk þóttist
hann loksins vera kominn með not-
hæfa hugmynd að leikriti. Útkoman
varð leikrit sem nefnist FOB. Verk
þetta, sem er að öðrum þræði sjálf-
sævisögulegt, var fyrst leikstýrt af
Hwang sjálfum en síðar sett upp af
leikhópi í New York og hlaut Hwang
Obie-verðlaunin fyrir besta byrj-
andaverk það árið. Hann var rétt lið-
lega tvítugur'þegar þetta gerðist.
Síðan þetta gerðist hafa nokkur
leikrit Utið dagsins ljós frá hendi
Hwang en ekkert þeirra vakið jafn-
mikla athygU og M. Butterfly sem
hann byijaði að skrifa 1986. Rétt eins
og gerist í leikritinu heyrði Hwang
söguna um franska diplómatinn í
samkvæmi innan um skvaldur og
glasaglaum. Hann heiUaðist að sög-
unni og fór eins og sjálfsagt aUir aðr-
ir að reyna aö skilja hvemig í ósköp-
unum diplómatinn hafði látið blekkj-
ast jafnhroðalega og raun bar vitni.
Hann komst fljótlega að þeirri niður-
stööu að þessi blekking hlyti að hafa
byggst á því hve fordómafuUur
diplómatinn hefði verið og að allt
hans viðhorf til austurlensks „kven-
leika“ hlyti að hafa verið hið klass-
íska viðhorf vesturlenskrar „karl-
mennsku" til alls þess sem virðist
smátt og undirgefið í fari austur-
lenskra kvenna en byggíst í raun á
kurteisi og góðum siðum fremur en
undirlægjuhætti. Með þessa niður-
stöðu gerði Hwang sér grein fyrir að
þarna var efni í leikrit. M. Butterfly
var síðan frumsýnt 1988 og fyrir það
hlaut hann Tony-verðlaunin. Var
leikritið vaUð besta leikritið á Broad-
way það árið.
Leikstjóri M. Butterfly í Þjóðleik-
húsinu er Þórhildur Þorleifsdóttir.
Aðalhlutverkin leika Arnar Jónsson,
sem leikur franska diplomatinn, og
Þór TuUnius sem leikur „kínversku
dansmeyna". Aðrir leikarar eru Brí-
et Héðinsdóttir, Erla Rut Harðardótt-
ir, Gísli Rúnar Jónsson, Rúrik Har-
aldsson og Tinna Gunnlaugsdóttir.
-HK
Dætur norðurljósanna
Nordia kammersveitin heldur tón-
leika í Norræna húsinu í kvöld.
Kammersveit þessi var stofnuð 1985
og er taUn ein sú besta í Svíþjóð. Hún
vakti strax athygU fyrir fuUkomnun
og lifandi túlkun í leik sínum. Sveitin
er samsett af strokkvartett, blásara-
kvinett og píanói. Hópurinn hefur
kappkostað að leika verk frá öUum
tímum en upp á síðkastið hefur
áherslan þó legið í samtímatónUst.
Á efnisskránni að þessu sinni eru
einungis verk eftir konur frá Norð-
urlöndunum, þar á meðal eftir Karó-
Unu Eiríksdóttur. Bera tónleikamir
yfirskriftina Dætur norðurljósanna.
KaróUna Eiríksdóttir á nýtt verk
sem leikið verður og var sérstaklega
beðið um verk eftir hana. Verkið,
sem hún samdi með styrk úr menn-
ingarsjóði Norðurlanda, heitir
Rapsody in C. Önnur norræn kven-
tónskáld, sem eiga verk á hljómleik-
unum, eru: Pauline Hall sem var
Nordia kammersveitin.
norskt tónskáld og tónlistargagn-
rýmendi. Hall fæddist 1890 og lést
1969. Karin Rehnquist er ungt sænskt
tónskáld sem sækir efni í sænska
þjóðlega tónlist. Ruth Bakke er norsk
og hefur skrifað mikið af kirkju- og
kammertónUst. Kaja Saariaho er
fmnskt tónskáld sem hefur meðal
annars lagt stund á tónsköpun með
aöstoð tölvu. Elfrida Andreé er
sænskt tónskáld, fædd 1841, lést 1929.
Hún samdi mikið af aUs konar tón-
Ust þótt hún sé þekktust fyrir tón-
leikahald.
í Nordia kammersveitinni er ein
íslensk kona, Klara Óskarsdóttir
hornleikari. Hún er þúsett í Svíþjóð,
en þangað fór-hún eftir nám í píanó-
leik hjá Gísla Magnússyni og horn-
leik hjá Sigursveini Magnússyni.
Hún fór síðan í framhaldsnám í Sví-
þjóð. Kiara hefur leikið með Sinfón-
íuhljómsveit íslands í afleysingum.
Kynnir á tónleikunum í Norræna
húsinu verður Guðrún Ásmunds-
dóttir leikkona.
-HK
Verölaunasamkeppni Bókaútgáfunnar Bjarkar:
Þytur valinn úr Ijörutíu og
þremur handritum sem bárust
Nýlokið er verðlaunasamkeppni
um myndskreytta bamabók sem
Bókaútgáfan Björk efndi tU í tilefni
fimmtíu ára afmæhs útgáfunnar.
Dómnefndin, sem skipuð var þeim
Stefáni JúUussyni rithöfundi, Bjama
Jónssyni Ustmálara og Jennu Jens-
dóttur rithöfundi, var sammála um
að Þytur væri verðugasta handritið
af þeim íjömtíu og þremur sem bár-
ust og vora verðlaunin 150 þúsimd
krónur auk ritlauna en Þytur mun
koma út í nóvemberlok. Þegar að var
gáð reyndust höfundar bókarinnar
vera Jóhanna Á. Steingrimsdóttir,
Ámesi Aðaldal, S-Þing. og teiknarinn
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Sandi
2, Aðaldal, S-Þing.
Bókaútgáfan Björk var stofnuö í
júnímánuði áriö 1941. Tilgangurinn
var að gefa út tvær bamabækur,
Þrjár tólf ára telpur eftir Stefán Júl-
íusson og Söguna um Jens Pétur eft-
ir danska höfundinn A.C. Wester-
gaard í þýðingu Stefáns.
Ekki var áætlun um frekari útgáfu
en bók Stefáns um telpurnar þrjár
seldust það vel að farið var að hugsa
um framhald. Síöan hefur útgáfan
starfað mismikið ár hvert og aldrei
rofnað þótt sum árin hafi útgáfa ver-
ið lítil. Alls hefur Björk gefið út hátt
í fimmtíu titla bamabóka og hafa
sumar komið út í mörgum útgáfum.
-HK
Frá afhendingu verðlaunanna fyrir bestu myndskreyttu barnabókina, talið
frá vinstri Daníel Ágústínusson, framkvæmdastjóri Bókaútgáfunnar Bjark-
ar, Jóhanna Á. Steingrímsdóttir, annar höfunda verðlaunabókarinnar Þyts,
og Stefán Júlíusson rithöfundur, en hann sat í dómnefnd.
Torgrim Sollid, norskur trompet-
leikari, leikur á Púlsinum.
Nlorskyrdjass-
meistariílteiBti-
sókn
Norski trompetleikarinn Tor-
grim Sollid heldur tónleika á
Púlsinum annað kvöld. Mun
hann leika ásamt Kjartani Valdi-
marssyni, Sigurði Flosasyni,
Þóröi Högnasyni og Pétri Grét-
arssyni. Torgrim Sollid hóf íeril
sinn sem trommuleikari og lék
lengi á trommur með kvartett
Jan Garbarek. 1975 skipti hann
yfir í trompet og hefur starfað
sem trompetleikari og tónskáld
síðan. Sollid hefur rekið eigin
hljómsveit, auk þess að koma
fram sem einleikari með stór-
sveitum og leika með erlendum
gestum í Noregi. Hann starfaði
lengi með bandaríska saxófón-
leikaranum Warne Mars. Með
honum ferðaðist hann um Banda-
ríkin og lék inn á plötur. Soliid
er hér á vegum Nord-Jazz og
djassdeildar FÍH og verður gesta-
kennari við Tónlistarskóla FÍH
næstu daga.
Níutíuogsex
umsóknir
Skilafrestur fyrir umsóknir í
Kvikmyndasjóö íslands fyrir árið
1992 er lokið og bárust niutiu og
sex umsóknir. Ef allir fengju út-
hlutað eins og þeir fara fram á
yrði upphæðin 560.356.000 kr.
Umsóknirnar skiptast á eftirfar-
andi hátt: Bíómyndir (fram-
leiösla) 13 umsóknir, bíómyndir
(handrit og undmbúnmgur) 34
umsóknir, heimildarmyndir
(handrít og undirbúningur) 9
umsóknir, stuttmyndir (fram-
leiðsla, handrit og undirbúning-
ur) 13 umsóknir, annað 12 um-
sóknir. Úthlutunamefnd sem
skipuö er þeim Sigurði Valgeirs-
syni, Róbert Arnfinnssyni og
Laufeyju Guðjónsdóttur mun
Ijúka störfum í janúar 1992. ;v;
Málogmenningí
evrópsktsamstarf
Útgefendur kennslubóka og
annars námsefnis í 12 Evrópu-
löndum hafa bundist samtökum
og stofnað samstarfshóp evr-
ópskra kennslubókaútgefenda,
EEPG (European Educational
Puplishing Group) og er Mál og
menning fulltrúi íslands í þessu
samstarfi. Hlutverkið er meðal
annars að vinna kennsluefhi á
samevrópskum grunni, að vinna
að rannsóknum og upplýsinga-
miðlun varðandi þróun mennta-
mála í Evrópu og að kanna
hvermg hægt er að ná upp hag-
kvæmni í framieiðslu kennslu-
efnis. Skrifstofa samtakanna
verður sett á stofn í Amsterdam.
Norrænbarna-
bókaverðlaun
til Færeyja
Norænu barnabókverðlaunun-
um var úthlutað í sjötta skipti í
Gautaborg fyrir stuttu. Fyrir val-
inu varð færeyska bókin Hrossin
í Skorradal eftir Olav Michelsen
meö teikningum eftir Erik Hjorth
Nielsen. í sögunni segir frá hesti
sem í upphafi reikar um grænar
grundir. Hann er síðan hnepptur
í ævilanga þrælkun og áþján í
breskri kolanámu. Bókin kom út
á íslensku í fyrra í þýðingu Hjart-
ar Pálssonar.