Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991.
Menning Myndgáta DV
Torfi Olafsson - Kvöldvísa:
Samið við Ijóð
Steins Steinarrs
Kvöldvísa er endurútgáfa á lögum Torfa Ólafssonar
sem flest komu út í byijun níunda ártugarins. Er um
að ræða lög Torfa við ljóð Steins Steinarrs. Hafa lögin
verið hljóðblönduð á nýjan leik af Jóhanni Ásmunds-
syni og Torfa Ólafssyni og eitt þeirra, í draumi sér-
hvers manns, endurunnið.
Á sínum tíma vann Torfi lögin með aðstoð Mezzo-
forte sem þá voru að stíga sín fyrstu skref í hljóðveri.
Auk þess er Eiríkur Hauksson einn söngvara og er
það einnig hans fyrsta verk á plötu. Torfi Ólafsson
syngur sjálfur aðeins eitt lag enda hafði hann htt lagt
fyrir sig söng þegar platan kom fyrst út. Aðrir söngvar-
ar sem koma við sögu eru Jóhann Helgason, Sigurður
Kr. Sigurðsson, Ingibjörg Ingadóttir og Jóhann G. Jó-
hannsson. Tvö laganna eru nokkuð þekkt og hafa í
gegnum árin fengið talsverða spilun, Húsið við veginn
og Þjóðin og ég, bæði létt og grípandi lög sem enn
standa fyrir sínu.
Lögin á Kvöldvísu eru öll mjög róleg og jöfn, kannski
um of róleg þegar á heildina er litiö, engar hæðir og
engar lægðir. Tónhstin er smekklega unnin en ekkert
sérlega eftirminnileg. Um ljóðin þarf ekki að fjölyrða.
Ljóð Steins Steinarrs eru perlur íslenskra bókmennta
og lög Torfa falla vel að ritsmíðinni, svo vel að lagið
kaffærir aldrei ljóðið. Allir söngvarar komast vel frá
Hljómplötur
Hilmar Karlsson
sínu, sérstaklega passar rödd Jóhanns Helgasonar vel
við texta Steins Steinarrs.
Tónsmiðar Torfa eru einfaldar en vel unnar. Það er
allt önnur Mezzoforte sem við heyrum í á Kvöldvísum
heldur en við eigum að venjast í dag. Fyrir utan fyrr-
nefnd tvö lög standast þau ekki tímans tönn ein sér
og ef ekki heföi verið um þessa endurútgáfu að ræða
væru flest þeirra gleymd og grafin.
Andlát
Haraldur Ólafsson sjómaður, Sjafn-
argötu 10, Reykjavík, lést mánudag-
inn 18. nóvember.
Marteinn Stefánsson, Rauðarárstíg
26, er látinn.
Karl Ágúst Torfason, Tunguvegi 70,
lést í Landspítalanum fóstudaginn
15. nóvember.
Jarðarfarir
Guðrún Kristjánsdóttir frá Hafra-
fellstungu andaðist á Reykjalundi
þann 9. nóvember. Jarðarfórin hefur
farið fram i kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Sigurlaug Guðmundsdóttir, Reyni-
mel 52, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 21. nóv-
ember kl. 13.30.
Ása Sigurðardóttir, Öldrunarstofn-
un Flateyrar, sem andaðist 15. nóv-
ember sl., verður jarðsungin frá Flat-
eyrarkirkju fóstudaginn 22. nóvem-
ber kl. 14.
Guðbjörg Erlendsdóttir, Furugerði
1, verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni fimmtudaginn 21. nóvember kl.
15.
Tilkyimingar
Afmæli Hússtjórnarskóla
íslands
Skólinn verður fmuntíu ára nk. febrúar.
Aðstandendur skólans hafa ákveðiö að
halda upp á afniælið laugardaginn 23.
maí 1992. Tilhögun hátíðahaldanna er
skammt á veg komin en ákveðið hefur
verið að hafa opið hús í skólanum árdeg-
is og hátíðadagskrá í Háskólabíói síðdeg-
is, kvöldið hafa árgangamir til eigin ráð-
stöfunar. Hafm er ritun á sögu skólans
og stefnt er að því að hún komi út í maí.
Tilmælum er beint til allra fyrrverandi
nemenda um að hver árgangur hafi sam-
band innbyrðis til þess að kanna væntan-
lega þátttöku og velji síðan fulltrúa til
þess að vera tengill við skólann.
Skákskólinn byrjar
vetrarstarf
Námskeið i skákskólanum í Reykjavík
hefjast í dag, 20. nóvember, kl. 16 og hefst
þá innritun í námskeiðin, en þau veröa
í 2-3 flokkum. Kennt verður frá kl. 14-19,
en kennsla hefst 21. nóvember kl. 14-19,
en að öðra leyti eftir samkomulagi.
Kennslu- og bókagjald greiðist við innrit-
un. Nánari upplýsingar í síma Skákskól-
ans, Laugavegi 162, s. 25550, einnig í
heimasímum 19564 Óli Valdimarsson og
38605 Sturla Pétursson. Það skal enn-
fremur tekið fram að einnig er tekið á
móti þátttökubeiðnum frá landsbyggð-
inni, varðandi námskeiðahald á viðkom-
andi stöðum, sé þess óskað.
D £ f &
1 i it m L, JL
1
Wr' i .]
Fundir
1931
1991
VÖRUBILSTJORAFELAGIÐ ÞROTTUR
Félagsfundur veröur haldinn fimmtudaginn 21. nóv.
kl. 20.
Dagskrá:
Nr. 1 Atvinnumál
Nr. 2 Félagsmál
Nr. 3 Önnur mál
Stjórnin
ITC deildin Gerður,
Garðabæ,
heldur fund í kvöld, 20. nóvember, í
Kirkjuhvoli kl. 20.30. Fundurinn er öllum
opinn. Upplýsingar veita Bjamey Gísla-
dóttir, s. 641298, og Edda Bára Sigur-
bjömsdóttir, s. 656764.
ITC deildin Korpa
heldur fund í Safnaöarheimilinu í kvöld
kl. 20 stundvislega. Efni m.a.: ísbrjótar
og fræðsla um íslensk mál. Nánari upp-
lýsingar gefur Helga, s. 666457, eða Fann-
ey, s. 679328.
Fyrirlestrar
Vöruþróun og markaðssókn í
Ijósi EES samninganna
Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins, heldur
ráðstefnu um Vöruþróun og markaðs-
sókn í ljósi EES samningana á Holiday
Inn frmmtudaginn 21. nóvember kl.
13.30-17. Fyrirspumir verða leyfðar í lok
hvers framsöguerindis. Fundarstjóri:
Jón Gunnarsson ráðgjafi. Allir sem
áhuga hafa em velkomnir.
W
' S l LAh
í
o°0
'-w
V|.
NM< c— '*"■
? •>
AW
-EVÞOR--
Jólasveinaland i Blómavali
Fimmtudaginn 21. nóvember verður
Jólasveinalandið opnað í Blómavali. .
Þessi ævintýraheimur er fyrir löngu orð-
inn landsþekktur og fastur liður í til-
hlökkun yngstu bamanna fyrir jólin ár
hvert. Að þessu sinni er óvenju vandað
til verksins í Jólasveinalandi og íbúarnir
á ferð og flugi við jólaundirbúninginn.
Blómaval býður nú í fyrsta skipti upp á
skipulagðar heimsóknir í Jólasveina-
landið kl. 11 f.h. alla virka daga. For-
stöðumenn dagvistunarstofnana og skóla
em vinsamlegast beðnir að panta heim-
sóknartíma í síma 689070. Eins geta for-
eldrar komiö með börnin sín á þessum
tíma og slegist í förina.
Námstefna á vegum Öldrun-
arfélags íslands
Fimmtudaginn 21. nóvember nk. verður
haldin námsstefna í ráðstefnusal Hótel
Holiday Inn á vegum Öldmnarfélags fs-
lands. Efni námsstefnunnar er Hafa aldr-
aðir sérþarfir? Framsögumenn verða:
Páll Skúlason heimspekingur, Kristinn
Bjömsson sálfræðingur, Anna Þrúður
Þorkelsdóttir, yfirmaður félagsstarfs
aldraðra, og Hilmar Þór Björnsson arki-
tekt. Námsstefnan hefst kl. 13.15 og lýkur
kl. 16.15. Innritun hefst kl. 12.45 og er
þátttökugjald kr. 800. Námsstefnan er
öllum opin.
Reykjavíkurprófasts-
dæmi vestra
Fræðslukvöld í Neskirkju í kvöld kl.
20.30. Efni kvöldsins: Táknmál kirkjunn-
ar. Fyrirlesari: Dr. Einar Sigurbjömsson
prófessor. Tónlist, umræður.
Myndgátan hér að ofan
lýsir orðatiltæki.
Lausngátunr. 185:
Marhnútur
Tónleikar
Tapad fundið
Háskólatónleikar
Fjórðu háskólatónleikar vetrarins veröa
í Norræna húsinu í dag, 20. nóvember,
kl. 12.30. íris Erlingsdóttir sóprán og Lára
Rafnsdóttir flytja lög eftir Stefano Do-
naudy, Mozart og Ravel. Aðgangur er 300
kr. en 250 kr. fyrir handhafa stúdenta-
skírteinis.
Fyrirlestrar
Háskólafyrirlestur
Ingegerd Fries frá Umeá í Svíþjóð heldur
opinberan fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands fimmtudaginn
21. nóvember kl. 17.15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku
og nefnist „Moa och Harry Martinsons
barndomsminnen - Nássloma blokka
och Mor gifter sig“. Ingegerd Fries er
einn kunnasti þýðandi íslenskra bók-
mennta Lheimalandi sínu og hefur kennt
íslensku við háskólann í Umeá. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn.
Rebekka er týnd
Hún á heima í Holtagerði 28 í vesturbæ
Kópavogs. Hún hvarf fyrstu helgina í
nóvember. Þá var hún með endurskins-
ól. Kisa er eyrnamerkt R0h032. Hún gæti
hafa lokast inni eða þvælst milli borgar-
hluta. Ef einhver hefur orðið hennar var
er hann vinsamlegast beðinn að hafa
samband í síma 641195 eða við Kattholt.
Leikhús
| ÍSLENSKA ÓPERAN FRÚ EMILÍA
eftir W.A. Mozart Miðvikud. 20. nóv. Skólasýning. Uppselt. Föstudaginn 22. nóv. kl. 20. Laugardaginn 23. nóv. kl. 20. Föstudaginn 29. nóv. kl. 20. Laugardaginn 30. nóv. kl. 20. „Haust með Ibsen“ Leiklestur þekktra ieikverka eftir Henrik Ibsen i Listasafni íslands viðFrikirkjuveg. AFTURGÖNGUR Laugard. 23. nóv. og sunnud. 24. nóv. kl. 14. BRÚÐUHEIMILI
Ósóttar pantanir seldar tveimur dögum fyrir sýningar- dag. Laugard. 30. nóv. og sunnud. I.des. kl. 14. FRÚ EMILlA-LEIKHÚS
Sunnud. 24. nóv. Syning i samkomuhúsinu Ýdöium, Aðaldal. Sýningkl. 15 og 20.30.
Miðasalan opin frá kl. 15-19, simi 11475. Greiðslukortaþjónusta VISA - EURO - SAMKORT r T? Tfanrtt fyrlr alt« T| Œörml