Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1991, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991.
31
DV
Sinead O'Connor:
Móðgaði
Stefaníu
Mónakó-
prinsessu
Sinead O’Connor hefur lengi farið
sinar eigin leiðir, sama hvað fólk
segir.
Söngkonan umdeilda Sinead O’C-
onnor, sem sumir segja að sé versta
útflutningsvara íra síðan þeir fluttu
út myglaðar kartöflur, hefur litlar
áhyggjur af almenningsálitinu, nú
sem endranær.
Fyrir nokkru fékk hún heimboð frá
Michael Jackson þar sem henni var
hoðið að heimsækja poppgoðið á bú-
garð hans í Kaliforníu, en hvað hald-
ið þið að hún hafi gert?
Hún sendi svar um hæl og sagðist
ekkert eiga sameiginlegt með dúkku-
lísum!
Stuttu seinna kom Stefanía Món-
akóprinsessa auga á söngstjörnuna á
tónlistarhátíð í París og hað vin sinn
að segja Sinead að hún hefði mikinn
áhuga á að hitta hana.
Sinead var kurteis að vanda og lét
ekki standa á svarinu: „Ég hef engan
tíma fyrir þrítugar dekurdúkkur!”
Stefanía, sem er 26 ára gömul,
heyrði svarið og hreytti út úr sér:
„Hún er stórskrítin!"
Haldið á
mottunni
Það skiptir foreldra Fred Savage,
þess sem fer með aðalhlutverkið í
þáttunum Wonder Years, litlu máli
hvort barnið er frægt eða ekki. Hon-
um er sko haldið á mottunni og pass-
að að frægðin stígi honum ekki til
höfuðs.
Fred þarf að vinna fyrir sínum
vasapeningum eins og hver annar
unglingur óg fær nú 1200 krónur fyr-
ir að taka að sér uppvaskið á heimil-
inu.
Fyrir nokkru fór stjarnan fram á
það að fá kauphækkun og viti menn;
vasapeningarnir voru hækkaðir upp
í 1800 krónur á viku en í staðinn
þarf hann að slá blettinn og reyta
arfa í garðinum!
Fred fær ósköp venjulegt uppeldi
þrátt fyrir frægðina.
Þessi hattur var sýndur á góðgerðarsamkundu sem verslunin Harrods
í London efndi til á Savoy-hótelinu fyrir nokkru og er hönnun Grahams
Smith. Graham kallar hattinn Framlag til Evrópu en hann er dökkblár,
skreyttur með fánum hinna ýmsu landa Evrópu.
Fjölmiðlar
Þegar líða tók á í gærkvöldi og
börn og unglingar voru, eða áttu að
vera komin undir sæng, sýndi sjón-
varpið umræðu- og fræðsluþátt um
vandann sem tengist eyðni. Frétta-
stofa sjónvarpsins sá um þáttinn
sem var sendur út í tilefni alþjóðaal-
næmisdagsins sem verður þann 1.
desember. í þættinum voru sýnd
viðtöl úr raunveruleikanum á ís-
landi við þá sem í hlut eiga.
Dagskráin var fróðleg og þörf en
svo virðist sem sjónvarpið hafl talið
' aö hún ætti ekki erindi tíl ung-
menna sem gengin voru til hvílu á
ellefta timanum í gærk völdi. Sjón-
varpið taldi greinilega að Landslag-
ið, sjónvarpsdagskráin ogTónstof-
an, sem er einn af þessum Föstu lið-
um eins og venjulega, ættu meira
erindi til áhorfenda. Ef umræðu-
þáttur eins og þessi um eyðnina í
gærkvöldi átti ekki erindi til sem
flestra þá á enginn þáttur það.
í þættínum kom meðal annars
fram aö forvarnir þarf að efla og
óþarfa tortryggni þarf að eyða gagn-
vart þeim sem smitaðir eru af sjúk-
dómnum. Hér er í raun umtvenn
talsvert andstæð skilaboð að ra;ða -
forðast cyðnismit en umgangast og
foröast ekki eyðnismitaöa í daglegri
umgengni. Hér verður ekki lagt mat
á þátttakendur umræðnanna í þætt-
inum í gærkvöldi að undanskíldu
þvi að Haraldur Briem læknir var
þar sá eini sem gat imdanbragða-
laust talað á einfaldan, skýran og
væmnislausan hátt um aðalatriði
umræðunnar. Það var vel til fundín
viðleitni hjá sjónvarpinu að sýna
þennan þátt en hann hefði mátt sýna
straxeftirfréttír.
Óttar Sveinsson
Sviðsljós
Hryllirvið
æstum
skar anum
Júlía Roberts, stjarnan úr kvik-
myndinni Stórkostleg stúlka, ættí
nú að vera farin að venjast aðdá-
endaskaranum sem kemur sam-
an hvar sem hún birtist en hana
hryllti þó við ósköpunum fyrir
nokkru.
Það var þegar hún missti af sér
annan skóinn í látunum er hún
var að hlaupa frá mannfjölda sem
safnast hafði saman fyrir utan
veitingastað í Beverly Hills þar
sem hún snæddi kvöldverö.
Er hún leit við á hlaupunum sá
hún hvar einn úr hópnum hélt
skónmn sigri hrósandi á lofti eins
og um sigurtákn væri að ræöa!
Þolir ekki
glðp
Hin kynþokkafulla Michelle
Pfeiffer er sögð láta það fara
óhemju í taugamar á sér þegar
karlkyns meðleikarar hennar og
aðrir þeir sem vinna að gerö
kvikmyndarinnar Batman 2
glápa úr sér augun þegar hún
birtist í níðþröngum Kattar-
konu-búningnum.
Sem svar við glápinu hefur hún
látið útbúa handa sér lítinn vagn
á hjólum, meö svörtum tjöldum
fyrir, sem hún lætur aka sór um
i þegar hún þarf að fara á milli
staða í kvikmyndaverinu! (Hefði
ekki verið einfaldara að fá lánaða
kápu?)
t DAe
í
FM 90.9TFM 1(k2
AÐALSTÖÐIN
AÐALSTRÆTI ló • 101 REYKJAVÍK • SÍMIÓ2 15 20
Kl. 14 SVÆÐISÚTVARP
frá Reykjavík
Kl. 17 ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ
Kl. 19 LUNGA UNGA FÓLKSINS
með Snælandsskóla
Kl. 21 Á ÓPERUSVIÐINU
umsjón
íslenska óperan
Kl. 22 í LÍFSINS ÓLGUSJÖ
umsjón
Inger Anna Aikman
- í fyrramálið-
Kl. 7 ÚTVARP REYKJAVÍK
með Birni Bjarnasyni
Aðalstöðin þín
RÖDD FOLKSINS - GEGN SÍBYLJU
MARGFELDl 145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900
GULL- & SILFURSMIÐIR
SKIPHOLTI 3, S. 20775
Opið 10-18, laugardaga 10-14
Veður
Vaxandi suðaustanátt og slydda eða rigning um allt
land, þegar líður á morguninn gengur í suðvestan-
og vestankalda eða stinningskalda með skúrum
sunnan og vestanlands en þegar liður á daginn geng-
ur í norðvestan stinningskalda og léttir þá til sunn-
an- og austanlands en áfram verða skúrir norðvestan
og norðanlands. Hlýna mun um allt land og má
búast við 6-9 stiga hita víða þegar líður á daginn.
Akureyri alskýjað 1
Egilsstaðir skýjað -6
Keflavíkurflugvöllur rign/súld 3
Kirkjubæjarklaustur snjókoma 0
Raufarhöfn alskýjað 0
Reykjavik rigning 4
Vestmannaeyjar rign/súld 3
Helsinki snjókoma -2
Kaupmannahöfn skýjað -2
Ósló heiðskírt -7
Þórshöfn léttskýjað 3
Berlin þokumóða 3
Chicago rigning 7
Frankfurt rigning 7
Hamborg rigning 3
London léttskýjað 5
túxemborg skýjað 1
Nuuk léttskýjað -4
Orlando léttskýjað 19
Vín rigning 4
Winnipeg heiðskírt -8
Gengið
Gengisskráning nr. 222. - 20. nóv. 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 57,750 57,910 60,450
Pund 103,777 104,064 103,007
Kan. dollar 50,928 51,069 53,712
Dönsk kr. 9,2898 9,3155 9,1432
Norsk kr. 9,1871 9,2125 9,0345
Sænskkr. 9,8921 9,9195 9,7171
Fi. mark 13,2561 13,2928 14,5750
Fra. franki 10,5614 10,5907 10,3741
Belg. franki 1,7514 1,7563 1,7196
Sviss. franki 40,7120 40,8248 40,4361
Holl. gyllini 32,0113 32,1000 31,4181
Þýskt mark '36,0768 36,1768 35,3923
Ít. líra 0,04774 0,04787 0,04738
Aust. sch. 5,1254 5,1396 5,0310
Port. escudo 0,4130 0,4142 0,4120
Spá. peseti 0,5702 0,5718 0,5626
Jap. yen 0,44579 0,44703 0,45721
írskt pund 96,318 96,585 94,650
SDR 80,4278 80,6507 81,8124
ECU 73,5995 73,8034 72,5007
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
19. nóvember seldust alls 100,387 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Blandað 1,560 40,55 20,00 205,00
Grálúða 4,774 95,59 95,00 99,00
Karfi 0,012 60,00 60,00 60,00
Keila 2,428 38,80 33,00 39,00
Langa 3,266 67,92 65,00 79,00
Lúða 0,271 446,92 405,00 520,00
Lýsa 0,698 55,00 55,00 55,00
Siginn fiskur 0,043 155,00 155,00 155,00
Steinbitur 1,626 87,04 86,00 88,00
Steinbitur, ósl. 0,121 59,00 59,00 59,00
Þorskur, sl. 28,083 102,00 86,00 115,00
Þorskur, ósl. 15,267 86,04 85,00 93,00
Ufsi 0,022 42,00 42,00 42,00
Ufsi, smár 0,297 36,00 36,00 36,00
Undirmál. 6,012 57.65 49,00 68,00
Ýsa, sl. 13,646 103,63 33,00 110,00
Ýsa, ósl. 22,260 86,81 50,00 101,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
19. nóvember seldust alls 39,712 tonn.
Ýsa 0,337 102,76 102,00 103,00
Smárþorskur 1,434 74,00 74,00 74,00
Þorskur 10,603 115,15 101,00 117,00
Langa 0,145 45,00 45,00 45,00
Keila 0,414 39,00 39,00 39,00
Lýsa.ósl. 0,161 25,00 25,00 25,00
Þorskur, st. 0,275 134,84 131,00 139,00
Koli 0,054 85,00 85,00 85,00
Steinbítur 0,112 80,00 80,00 80,00
Lúða 0,142 391,77 305,00 435,00
Karfi 0.023 26,52 20,00 30,00
Blandað 0,059 40,00 40,00 40,00
Ýsa, ósl. 17,823 87,90 71,00 95,00
Smáýsa, ósl. 1.66T 51,00 51,00 51,00
Smáþorskur, ósl. 1,007 30,00 30,00 30,00
Þorskur, ósl. 3,839 100,99 85,00 112,00
Steinbítur, ósl. 0,231 20,00 20,00 20,00
Langa, ósl. 0,158 73,00 73,00 73,00
Keila, ósl. 1,233 38,36 33,00 40,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
19. nóvember seldust alls 116,121 tonn.
Þorskur 40,838 105,61 86,00 123,00 >
Ýsa 36,990 90,35 30,00 103,00
Skarkoli 0,054 • 80,00 80,00 80,00
Svartfugl 0.075 60,00 60,00 60,00
Skötuselur 0,092 334,24 300,00 675,00
Hlýri 0,200 66,00 66,00 66,00
Blálanga 0,292 100,00 100,00 1 00,00
Ufsi 15,211 55,60 46,00 57,00
Háfur 0,018 5,00 5,00 5,00
Lúða 0,426 438,13 310,00 535,00
Langa 4,682 74,74 47,00 93,00
Skata 0,024 117,00 117,00 117,00
Keila + bland 2,217 40,00 40,00 40,00
Keila 8,022 33,96 20,00 40,00
Karfi 1,354 57,04 31,00 58,00
Undirmál. 3,714 57,69 51,00 58,00
Blandað 1,363 59,05 53,00 61,00
Fiskmarkaður Þorlákshafnar
19. nóvember seldust alls 30,197 tonn.
Blandað 0,286 40,87 36,00 79,00 ^
Geirnyt 8,680 12,00 12,00 12,00
Karfi 0,094 36,00 36,00 36,00
Keila 4,873 46,00 46,00 46,00
Langa 1,429 79,34 50.00 82,00
Lúða 0,030 479,75 405,00 500,00
Lýsa 0,158 29,00 29,00 29,00
Skata 0,099 140,00 140,00 140,00
Skötuselur 0,073 262,33 240,00 500,00
Steinbitur 0,062 50,00 50,00 50,00
Þorskur, sl. 0,147 93,47 45,00 102,00
Þorskur, ósl. 5,814 103,56 96,00 120,00
Ufsi, ósl. 0,042 20,00 20,00 20,00
Undirmál. 0,204 39,51 38,00 42,00
Ýsa, sl. 0,300 110,00 110,00 110,00
Ýsa, ósl. 7,898 88,85 79,00 97,00