Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Blaðsíða 1
Borgarleikhúsið: Rugl í ríminu frumsýnt Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir á sunnudagskvöld austurríska gaman- leikinn Rugl í ríminu eftir Johann Nestroy í leikgerð og þýðingu Þránd- ar Thoroddsen. „Þetta er fjörugur farsi, ekki ólíkur Fló á skinni í stíl. Miðað við þær viðtökur sem Flóin fékk þá vona ég að Ruglið höföi til jafnmargra," segir Guðmundur Ól- afsson sem leikstýrir. Leikurinn ger- ist í Vínarborg um aldamótin. Fimmtán leikendur fara með hlut- verk sautján persóna og oft mikið um aö vera á sviðinu. Leikurinn æsist þegar á hður, segir Guömund- ur, en þó ekki svo að áhorfendur átti sig ekki vel á hvað um er að vera. Leikurinn segir frá tveimur búðar- lokum í sveitaþorpi skammt frá Vín sem stelast í bæjarferð á sama tíma og húsbóndi þeirra og þá liggur mik- ið við að þeir hittist ekki. Elskendur hlaupast á brott frá sama þorpi og í framhaldinu gengur á með miklum misskilningi eins og vera ber í farsa. Leiðir persóna, sem ekki mega hitts- at, hggja næstum saman og í lokin kemur að því að ahir eru á sama stað. „Og þá þurfa að vera margar út- gönguleiðir en það er ekki rétt að segja meir,“ segir Guðmundur. Johann Nestroy er fæddur í Vín 1801 og flest leikrit hans gerast í sam- félagi Vínarborgar á tima höfundar- ins. Nestroy var afkastasmikill höf- undur og skrifaði hátt á fimmta tug leikverka fyrir svið, en var að auki mjög vinsæll gamanleikari, leik- stýrði gjaman eigin verkum, rak leikhús í Vín og ferðaðist um hið þýskumælandi svæði með sýningar sínar. Leikrit hans hafa æ síðan ver- Skautasvellið: Íshokkí um helgina í kvöld hefst önnur umferð í íslandsmótinu í ísknattleik á skautasvehinu í Laugardal. Klukkan 20 spila hð Skautafélags Reykjavíkur og Skautafélags Ak- ureyrar og á morgun, laugardag, spha Akureyringar gegn ísknatt- leiksfélaginu Biminum. Leikur- inn hefst klukkan 15 og áhorfend- ur em velkomnir. Aðgangseyrir er sá sami og að svelhnu, 200 krónur fyrir fuhoröna og 50 krón- ur fyrir böm. Vegna leikjanna er svelhð að- eins opið aimenningi frá kl. 10-14 á laugardag en annars frá kl. 13 til 18. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er svelliö opið kl. 13-22 en aðra daga kl. 13-18. Skautaíþróttin nýtur sivaxandi vinsælda. Um helgina keppa Reykvíkingar viö norðanmenn í íshokkii. DV-mynd Brynjar Gauti Það gengur á ýmsu í gamanleiknum Rugl i ríminu og oft komast þeir sem ekki mega hittast naumlega hjá því að rekast á. Leikurinn æsist þegar á liður en inn á milli hraðra atriða koma önnur hægari þannig að áhorfendur jafnt sem leikarar ná að pústa út, segir leikstjórinn Guðmundur Ólafsson. DV-mynd GVA ið fastir liðir á verkefnaskrám leik- húsa í Austurríki og Þýskalandi. Margt í verkum hans er svo stað- bundið og njörvað í máhýskum þess tíma að leikir hans þykja óþýðanleg- ir. Því veldur ekki síst að skop hans byggir mikið á orðaieikjum, útúr- snúningum og margs konar mis- skhningi. Guðmundur Ólafsson seg- ist þó enn hlæja að textanum eftir ahar þær æfingar sem á undan frum- sýningimni eru gengnar og hlýtur það að mæla með leiknum. Rugl í ríminu heitir Einen Jux wih er sich machen á frummálinu og var frumsýnt í Vín fyrir 150 árum. Leik-. félagsmenn minnast með sýningu þess 95 ára afmæhs Leikfélags Reykjavíkur. Með helstu hlutverk í Rughnu fara Þorsteinn Gunnarsson, Ehert A. Ingimundarson, Kristján Franklín Magnús, Sigrún Edda Bjömsdóttir, Kjartan Bjargmundsson, Margrét Ákadóttir, Eggert Þorleifsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Edda Björgvinsdóttir og Magnús Ólafsson. Skíðabrautir í Heiðmörk A/\ Þorgeirsstaðir Strípshraun 500 metrar Bauta- steinar Kortið sýnir gönguleiðir fyrir skíðafólk í Heiðmörk. =i Heiðmörk: Göngubrautir fyrir skíðafólk Undanfarin ár hafa æ fleiri áttað sig á þeim möguleikum sem Heið- mörkin býður upp á th útivistar, jafnt að sumri sem vetri. Skógrækt- arfélag Reykjavíkur keypti í fyrra tæki th að troða brautir fyrir göngu- skíðafólk og það var tekið í gagnið fyrir skömmu. Brautimar em að mestu lagðar eftir göngustígakerfi Heiðmerkur þannig að viðkvæmum smáplöntum undir snjónum er hlíft við átroðningi. Vignir Sigurðsson, umsjónarmað- ur Heiðmerkur, segir ásókn göngu- skíðafólks hafa vaxið mjög undanfar- in ár enda svæðið skemmthegt og kjörið th þessarar íþróttar. Skjól er víða í skóginum og brautimar hggja yfir htlar hæðir hér og þar. Ahur hringurinn er fimm khómetrar en eins og sjá má á kortinu er hægt að fara styttri leiðir eför því hvar bíln- um er lagt, aht niður í einn kíló- metra. Th stendur að leggja brautir víðar og þá um Vífilsstaðahhð. Eitt- hvað hefur verið um að vélsleðaeig- endur fari um svæðið og því rétt að geta þess að öh umferð vélknúinna tækja er stranglega bönnuð í Heið- mörk. Bókamarkaóur byrjar í Kolaportinu Bókamarkaður Kolaportsins hefst á morgun, laugardag, en það er jafn- framt fyrsti markaðsdagur ársins. Boðnir verða th sölu um 1200 bóka- titlar frá flestum bókaforlögum landsins. Þess má geta að bókaforlög af landsbyggðinni taka einnig þátt. Bókamarkaðurinn verður opinn á markaðsdögum Kolaportsins, á laug- ardögum í janúar en einnig á sunnu- dögum í febrúar. Mikil sala var á bókamarkaði Kolaportsins í fyrra og góð bóksala fyrir þessi jól gefur að- standendum markaðarins vonir um að svo verði einnig nú. Athygh er vakin á að Kolaportið er aðeins opið á laugardögum frá kl. 10 th 16 í jan- úarmánuði. Notaleg- urdrungi á Naust- Myndlist: y • r i • Lifandi tónlist - sjábls. 19 - sjábls. 20 Tónleikar: Franskt rokká Borginni - sjábls. 21 Leikhús: m Kvikmyndir: íþróttir: hand- bolta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.