Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1992, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992.
23
Kvikmyndir
HÁSKÓLABÍÓ
Sími: 22140
Mál Henrys ★★'A
Vel leikinn dramatísk kvikmynd
um harðan lögfræðing sem
uppgötvar sinn betri mann eftir
slys. Boðskapurinn góður en
melódramað of mikið.
-HK
Impromptu ★★★
Stórskemmtileg mynd um há-
stéttina í París á fyrri hluta 19.
aldar. Judy Davis er með
áhugaverðari leikkonum.
-ÍS
Addams-fjölskyldan ★★'/2
Leikarar, umhverfi og tæknileg
úrvinnsla eins og best verður á
mkosið en söguþráður sundur-
laus. -ÍS
Tvöfalt líf Veróníku ★★★'/»
Tvær stúlkur, fæddar sama dag
hvor í sínu landi, nákvæmlega
eins í útliti og án þess að vita
hvor af annarri. Þetta er við-
fangsefni pólska leikstjórans
Krzystof Piesiewicz í magnaðri
kvikmynd. -HK
The Commitments ★★★★
Tónlistarmynd Alans Parker er
ógleymanleg skemmtun.
Söguþráðurinn er stór-
skemmtilegur og soul-tónlistin
frábær. Ein af betri myndum
Alans Parker. -ÍS
LAUGARÁSBÍÓ
Sími: 32075
Prakkarinn 2 ★★
Lítið vit en nokkuð gaman að
tveimur pottormum í vígahug.
Betri en sú fyrsta. -GE
REGNBOGINN
Sími: 19000
Ó, Carmela ★★★
Nýjasta kvikmynd Carlosar
Saura er létt og skemmtileg og
fjallar um þriðja flokks kabar-
ettfólk og raunir þess í
spænsku borgarastyrjöldinni.
Enn ein skrautfjöðrin í hatt leik-
konunnar frábæru, Carmenar
Maura. -HK
Ungir harðjaxlar ★★★
Góðum leikstjóra tekst vel að
byggja upp spennu í þessari
mynd. -ÍS
Fuglastríðið í
Lumbruskógi ★★
Hugljúf teiknimynd fyrir börn.
Það sem gerir hana þó eftir-
sóknarverða er íslensk talsetn-
ing sem hefur heppnast sérlega
vel. -HK
SAGA-BÍÓ
Sími: 78900
Thelma & Louise ★★★
Davis og Sarandon eru framúr-
skarandi útlagar í magnaðri
„vega-mynd" sem líður aðeins
fyrir of skrautlega leikstjórn
Scotts.
Benni og Birta í Ástralíu ★★
Góðteiknimynd frá Disney, líka
fyrir fullorðna. Frábærlega
teiknuð með skemmtilegum
persónum. -GE
STJÖRNUBÍÓ
Sími: 16500
Bilun í beinni
útsendingu ★★★ 'A
Heilsteypt kvikmynd frá Mont-
hy Python, leikstjóranum Terry
Gilliam, raunsæ og gamsöm í
senn og ekki spillir frábær leik-
ur Jeff Bridges og Robin Will-
iams. -HK
Tortímandinn ★★★
Áhættuatriðin eru frábær og
tæknibrellurnar ótrúlega góðar.
Bara að sagan og persónurnar
hefðu verið betur skrifaðar.
-GE
Börn náttúrunnar ★★★
Enginn ætti að verða fyrir von-
brigðum með Börn náttúrunn-
ar. Friðrik Þór hefur gert góða
kvikmynd þar sem mikilfeng-
legt landslag og góður leikur
blandast mannlegum sögu-
þræði. -HK
Kristján Arason og lærisveinar hans í FH-liðinu taka á móti KA á íslandsmótinu í handknattleik á sunnudagskvöld-
ið. FH-ingar eru í efsta sæti 1. deildar en KA-menn hafa verið að rétta úr kútnum upp á síðkastið eftir dapra byrjun
í mótinu. Myndin að ofan er úr leik FH-liðsins gegn HK fyrr í vetur og er Kristján Arason að gera sig líklegan til aö
gefa sendingu inn á línuna en hann hefur næmt auga fyrir línusendingum.
Spennan eykst í
handboltanum
Íþróttalíf er almennt að komast í
gang að loknu jólafríi. Um helgina
verður heil umferð á íslandsmótinu
í handknattleik, þrír leikir sídegis á
laugardag og umferðinni lýkur síðan
með þremur leikjum á sunnudags-
kvöldið. Keppnin er orðin spennandi
um hvaða átta efstu lið komast í úr-
slitakeppnina þegar hinni eiginlegu
deildakeppni lýkur.
Leikir laugardagsins hefjast allir
klukkan 16.30. Breiðablik og Stjarn-
an leika í Digranesi. Sem stendur
berst Stjarnan um sætin átta en
Breiðablik er neðst í 1. deild. Spenn-
andi leikur verður eflaust í íþrótta-
húsinu í Hafnarflrði þergar Haukar
taka á móti Gróttu þó Haukamenn
teljist sigurstranglegri í þessari viö-
ureign. Valsmenn leika gegn Eyja-
mönnum á Hlíðarenda og má búast
við hörkuviðureign eins og ávallt
þegar þessi lið mætast.
A sunnudagskvöldið verða þrír
leikir og hefjast þeir allir klukkan
20. Fram og HK leika í Laugardals-
höllinni. Framarar eru í fjórða sæt-
inu en HK er í tíunda sæti. Efsta lið-
ið, FH, leikur gegn KA í Kaplakrika.
KA-menn hafa verið að sækja í sig
veðrið að undanförnu og í öllu falli
má búast við spennandi leik. Víking-
ar leika gegn Selfyssingum í Víkinni
en Selfoss er það lið sem komið hefur
hvað mest á óvart í deildinni í vetur.
Fimm leikir verða í 1. deild kvenna.
Stjarnan - Grótta á laugardag kl.
13.30 og Valur - Ármann kl. 14.40. Á
sunnudag kl. 18.30 leika FH - Hauk-
ar, Víkingur - ÍBK og Fram -KR.
-JKS
Útivist:
Gengið um
kirkjusóknir
Aðalraðganga Útivistar 1992 verð-
ur gengin um kirkjusóknir með við-
komu í kirkjum. Lögð verður áhesrla
á að fá heimamenn til að kynna sögu
kirkjustaðanna í stuttu máli, kynna
kirkjugripi, kirkjulist og starfsemi
sóknamefnda.
Á sunnudag verður lagt af stað í
fyrsta áfanga kirkjugöngunnar. Far-
ið verður frá skrifstofu Útivistar,
Iðnaðarmannahúsinu, Hallveigar-
stíg 1, með rútu. Ekið verður með
ströndinni frá Elliðaárvogi að Gróttu
og síðan að Nesstofu. í Nesi mun
Heimir Þorleifsson sagnfræðingur
rifla upp sögu kirkjunnar að Nesi.
Að því loknu hefst gangan. Gengið
verður eftir gömlu leiðinni til Dóm-
kirkjunnar með viðkomu í Seltjarn-
arneskirkju, Lambastöðum, gamla
lendingarstaðnum í Gróflnni og Vík-
urgarði.
í Dómkirkjunni tekur séra Jakob
Ágúst Hjálmarsson á móti hópnúm.
Andrés Ólafsson rifjar upp sögu
Dómkirkjan er fyrsti viðkomustaöur
Útivistar í aðalraðgöngu ársins.
DV-mynd Brynjar Gauti
Reykjavíkurkirkju og Dómkirkjunn-
ar í forföllum Þóris Stepehensen.
Auður Garðarsdóttir sóknarnefnd-
arformaður kynnir safnaðarstarfið
og að lokum verður haldin stutt
helgistund. Frá Dómkirkjunni verð-
ur gengin gamla alfaraleiðin inn í
Laugames. í listasafni Sigurjóns Ól-
afssonar mun Þór Magnússon þjóð-
minjavörður fjalla um sögu kirkju-
staöarins í stuttu máh. Úr Laugar-
nesi verður gengiö að Laugarnes-
kirkju og litið þar inn. Þátttakendum
verður síðan ekið að skrifstofu Úti-
vistar eða á þá staði sem þeir hófu
gönguna. Allir eru velkomnir. Ekk-
ert þátttökugjald er í rútuna né
gönguferðina.
Tímatafla: Kl. 10.30 er farið í rútu
frá skrifstofu Útivistar. Kl. 11 er
komið að Nesstofu, kl. 14 er komið í
Dómkirkjuna, kl. 16 í Laugames og
kl. 17 lýkur þessum fyrsta áfanga
kirkjugöngunnar.
íþróttir
Bikar og
deild í
körfunni
Tveir leikir verða í Japis-
deildinni í körfuknattleik í
kvöld, báðir úti á lands-
byggðinni. Skallagrímur og
Snæfell leika í Borgarnesi
klukkan 20. Þessi lið standa
svo til jöfn að vígi í deild-
inni svo að þessi leikur er
mjög mikilvægur fyrir bæði
liðin. Víst má telja að ekkert
verður gefið eftir í þessari
viðureign.
Þór og Keflvíkingar leika á
Akureyri klukkan 20.30.
Þórsarar fá þarna erfiðan
mótherja að etjaltappi við,
enda Keflvíkingar með eitt
sterkasta liðið í deildinni.
Þór verður að ná toppleik
svo að liðið eigi einhverja
möguleika I þessum leik.
Á sunnudagskvöldið leika
Valur og Tindastóll í bikar-
keppninni á Hlíðarenda og
er þarna á ferðinni stórleikur
þar sem allt getur gerst.
-JKS
Ishokkí í
Laugardal
íslandsmótio í íshokkí held-
ur áfram um helgina með
tveimur leikjum. Skautafé-
lag Reykjavíkur og skauta-
félag Akureyrar leika á
skautasvellinu í Laugardal
klukkan 20 í kvöld og á
sama stað á morgun klukk-
an 15 leika Björninn og
Akureyringar.
ishokkí á vaxandi vin-
sældum að fagna á íslandi
og er áhugafólk um íþrótt-
ina hvatt til að fara á völlinn
og berja augum spennandi
og fjöruga leiki.
-JKS
Ferðafélagid
Ferðafétagið býður til ferðar að
Grafarholti á sunnudag. Brottför
er frá Mörkinni 6 og gengið um
Etliðaárdal upp Reiðskarð að
Árbæ. Áð er vtð gamla bæinn
og síðan haldið áfram að Rauða-
vatni um Reynisvatnsheiði að
Grafarholti eða Reynisvatni.
Rútuferð er til baka kl. 15.
Stutt ganga er I boði fyrir alla
fjölskylduna frá Mörkinni 6 upp
fyrir Arbæ. Rútuferð er til baka
kl. 13. Brottför í báðar göngurnar
er ki. 11 og þátttaka er ókeypis.
Með nýju ári verður hafin stutt
raðganga í sex áföngum á hálfs
mánaðar fresti frá Reykjavík upp
á Kjalarnes. Þeir sem það kjósa
geta haldið áfram með aðalrað-
göngu ársins I tiu áföngum um
Hvalfjörð til Borgarness. Skfða-
ganga verður á sunnudag ef
snjóalög leyfa. Aflið frekari upp-
lýsinga hjá Ferðafélagi íslands.
Hana nú
Lagt verður af stað í vikulega
laugardagsgöngu Hana nú I
Kópavogi frá Fannborg 4 kl. 10
á morgun. Nýlagað molakaffi og
skemmtilegur félagsskapur.