Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 6
22
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992.
Joe Mantegna og Wiliiam H. Macy leika tvo lögregluþjóna í Morðdeildinni.
Regnboginn:
Morðdeildin
Háskólabíó:
Hasar
r
1
Harlem
Hasar í Harlem (Rage in Harlem)
gerist 1954. Er hér um svarta kómed-
íu að ræða og hefst myndin í Miss-
issippi þar sem Harlem Hoos, Slim
og félagar þeirra eru um það bil að
fara að drepa feitan, ríkan og hvítan
mann vegna peninga hans. Eftir bar-
dagana, sem þessu fylgir, hverfur
unnusta eins þeirra, Imabella, með
allan ránsfenginn og heldur til Harl-
em í New York. Þar tekur hún saman
við aðstoðarmann grafara en félagar
hennar frá Mississippi hafa upp á
henni og þá fara hlutirnir að gerast
hratt í þessu svarta hverfi.
Allir aðalleikaramir eru svartir og
í aðalhlutverkum eru Forest Whi-
taker, Gregory Hines, Robin Givens
Zakes Mokae og Danny Glover. Leik-
stjóri er Bill Duke sem er leikari og
leikstjóri og vinnur jöfnum höndum
bæði fyrir framan og aftan mynda-
vélina. Þá hefur hann einnig leik-
stýrt þrjátíu leikritum í New York
utan Broadway. Frægasta leikstjóm-
arverk hans er sjónwarpsmyndin
The Killing Floor sem fengið hefur
tíu alþjóðleg kvikmyndaverðlaun.
-HK
Gregory Hines og Robin Givens í
hiutverkum sinum í Hasar í Harlem.
Morðdeildin er þriðja kvikmyndin
sem leikritahöfundurinn og kvik-
myndahandritshöfundurinn David
Mamet leikstýrir. Fjallar myndin um
lögregluþjón sem er gyðingur. Hann
hefur engin afskipti haft af trúmál-
um og síst af öllu haft afskipti af
öörum gyðingum. Starfið er honum
allt og hann veit ekki betri fyllingu
í líf sitt en aö handtaka glæpamann.
Hann verður samt að hafa afskipti
af öðrum gyðingum þegar hann fær
til rannsóknar morð á gamalli gyð-
ingakonu. Grunar hann að hér sé
ekki um venjulegt ránsmorð að ræða
heldur sé hér byrjunin á útýmingu á
fjölskyldu þar sem allir eru gyðingar.
David Mamet er virtur leikritahöf-
undur sem fyrst vakti athygli með
leikritunum Sexual Perversity in
Chicago og American Buffalo. Fékk
hann mörg verðlaun fyrir þessi tvö
verk sín. Þekktasta leikrit hans er
Glengarry Glen Rose sem einnig afl-
aði honum virtra verðlauna. 1987
leikstýrði hann sinni fyrstu kvik-
mynd, House of Games, sem íjallaði
um kvensálfræðing sem óviljandi
lendir í glæpamáli. Mamet fylgdi
þessu verki sínu eftir með Things
Change, gamansamri kvikmynd um
misheppnaðan atvinnumorðingja
hjá mafíunni.
Bíóborgin:
Löggan á háu
hælunum
Einkaspæjarinn V.I. Warshawski
er sjarmeramdi stúlka sem er hörku-
tól inn við beinið. Um ævintýri Wars-
hawskis hefur rithöfundurinn Sara
Paretsky skrifaðar nokkrar bækur
og hafa þær notiö mikilla vinsælda.
Tvær þeirra hafa komið út á ís-
lensku. Löggan á háu hælunum (V.I.
Warshawski) er ekki byggð á neinni
einstakri bók heldur persónum og
blöndu söguþráðar úr þeim sex bók-
um sem hafa að aðalsöguhetju V.I.
Warshawski.
Warshawski starfar í Chicago og
notfærir sér til hins ýtrasta kyn-
þokkafullt útht sitt og reynslu konu
sem þekkir til viða í undirheimum
stórborgarinnar. Warshawski hefur
einn veikleika en það eru skór.
í myndinni tekur Warshawski að
sér að leysa morðgátu en fyrrverandi
íshokkístjarna hefur verið myrt og
leitar þrettán ára dóttir hins látna á
náðir Warshawskis þegar lögreglan
getur ekki fundið morðingjann.
Leikstjóri myndarinnar er Jeff
Kanew sem er búinn að vera viðloð-
andi kvikmyndgerð í rúm þrjátíu ár
og hefur leikstýrt nokkrum mynd-
um. Má þar nefna Eddie Macon’s
Run, Revenge of the Nerds, Tough
Guys og Troop Beverly Hills, auk
þess sem hann hefur unnið við kUpp-
ingu á myndum (Ordinary People),
skrifað handrit og kennt kvikmynda-
gerðviðColumbiaháskólann. -HK
Kathleen Turner leikur einkaspæjar-
ann V.l. Warshawski.
Kvikmyndir
BÍÓBORGIN
Sími: 11384
Billy Bathgate ★★
Dustin Hoffman er góður í hlutverki
mafíuforingja í mynd sem segir sögu
unglings sem er á mála hjá glæpa-
samtökunum. Myndin veldur nokkr-
um vonbrigðum.
-HK
í dulargervi ★★★
Breski skemmtikrafturinn Lenny
Henry reynir fyrir sér í kvikmyndum
með góðum árangri. Förðunarvinn-
an er fyrsta flokks.
-is
Flugásar ★★
Fyndin svo langt sem hún nær og
dugar ágætlega í skammdeginu.
Einnig sýnd í Saga-bíói.
-GE
Aldrei án
dóttur minnar ★★‘/2
Hvort sem þetta er allur sannleikur-
inn eða ekki þá er þetta gott sögu-
efni og Sally Field er frábær.
-GE
BÍÓHÖLLIN
Sími: 78900
Tímasprengjan ★ 'A
Mistæk blanda af Total Recall og
The Terminator. Hasarinn góður,
sömuleiðis Kensit, en ófrumleikinn
dregur verulega úr.
-GE
Svikahrappurinn ★★
Sykursæt fjölskyldumynd úr verk-
smiðju Johns Hughes. Hin stutta
Alisan Porter er nútímaútgáfa af
Shirley Temple og stendur sig nokk-
uð vel.
-HK
Dutch ★★★
Prýðis gamanmynd sem er tilvalin
til að ná upp góða skapinu fyrir jólin.
-ÍS
New York
♦ 1.(2) All 4 Love
Color Me Badd
f 2.(3) Can't Let Go
Mariah Carey
f 3. (4) Don't Let the Sun Go down on
Me
George Michael/Elton John
0 4. (1 ) Black or White
Michael Jackson
♦ 5. (5) Finally
Ce Ce Peniston
^ 6. (6) Diamonds & Pearls.......Prince
4 7. (7) I Love Your Smile
Shanice
♦ 8. (9) Smells Like Teen Spirit
Nirvana
♦ 9. (15) Mysterious Ways
U2
♦10. (31) l'm too Sexy
Right Said Fred
Pepsí-listi FM
♦ 1.(1) Ekkert breytir því
Sálin hans Jóns míns
f 2. (8) Hit
Sykurmolarnir
f 3.(6) Do I Have to Say the Word
Bryan Adams
^ 4. (4) I Love Your Smile
Shanice
0 5. (3) Don't Let the Sun Go down on
Me
George Michael/Elton John
0 6. (5) Vængbrotin ást
Þúsund andlit
0 7. (2) Heal the World
Michael Jackson
f 8.(11) Sönnást
Sléttuúlfarnir
f 9. (24) Finally
Ce Ce Peniston
éio. (10) I Wonder Why
Curtis Steiger
Stöðugir
umhleypingar
Ekki fór það svo að við sæjum
Sykurmolana á topp tíu í Lundún-
um; þeir hækkuðu sig einungis um
tvö sæti frá fyrri viku og eru því í
sautjánda sæti listans. Þetta þýðir
einfaldlega það að molamir ná ekki
inn á topp tíu að þessu sinni heldur
verða að láta sér nægja að jafna
besta árangur íslenskrar hljóm-
sveitar á breska listanum hingað
til en Mezzoforte náði þessu sama
sautjánda sæti með lagið Garden
Party árið 1983. Sykurmolarnir
geta hins vegar glaðst yíir því að
lag þeirra Hit er í efsta sæti ís-
lenska listans og í öðru sæti Pepsí-
lista FM. Á CD/LP lista DV eru
sveiflumar enn allsráðandi og
þessa vikuna stekkur Prince á
toppinn og fjórar nýgamlar plötur
koma inn á listann eftir nokkra
fjarveru. Þar fer fremst plata Dire
Straits en Tina Tumer og Michael
Bolton fylgja á eftir, auk þess sem
safnplata ýmissa listamanna, sem
syngja lög Eltons John, skríður inn
á listann.
Meiraínæstuviku. -SþS-
London
♦ 1.(3) Goodnight Girl
Wet Wet Wet
0 2. (1 ) Bohemian Rhapsody/The Days of
Our Lifes
Queen
0 3. (2) Everybody in the Place
Prodigy
♦ 4. (9) God Gave Rock & Roll to You II
Kiss
♦ 5.(-) GiveMeJustaLittleMoreTime
Kylie Minogue
Ý 6. (7) We Got a Love Thang
Ce Ce Peniston
♦ 7.(10) I Can't Dance
Genesis
0 8. ( 5 ) Too Blind to See It
Kym Sims
♦ 9.(-) Twilight Zone
2 Unlimited
010. (4) Justyfied & Ancient
KLF
íslenski iistinn
♦ 1.(2) Hit
Sykurmolarnir
♦ 2. ( 5 ) Diamonds & Pearls
Prince
0 3. (1 ) Ekkert breytir því
Sálin hans Jóns míns
♦ 4. (7) Too Blind to See It
Kym Sims
♦ 5. (18) Do I Have to Say the Words
Bryan Adams
0 6. (4) Sönn ást
Sléttuúlfarnir
♦ 7.(10) Daniel
Wilson Philips
0 8. (3) Finally
Ce Ce Peniston
♦ 9.(15) Heal the World
Michael Jackson
010. (6) Mysterious Ways
U2
Bandaríkin (LP/CD)
ísland (LP/CD)
Bretiand (LP/CD)
^ 1.(1) Ropin' the Wind...................Garth Brooks
* 2. (2) Dangerous.....................Michael Jackson
Á3.(3) TooLegittoQuit.........................Hammer
é 4. (4) Nevermind...........................Nirvana
f 5. (6) Time, LoveandTenderness..........Michael Bolton
♦ 6. (7) Achtung Baby.............................U2
0 7. (5) Metallica.........................Metallica
ö 8. (8) Cooleyhighharmony................Boys II Men
ö 9. (9) Emotions.........................Mariah Carey
#10. (12) No Fences.......................Garth Brooks
f 1. (6) Diamonds 8t Pearls...................Prince
t 2. (3) Stóru börnin leika sér................Ýmsir
t 3. (4) Ég er............... ..........Bubbi Morthens
t 4. (8) Sálin hans Jóns míns.......Sálin hans Jóns míns
t 5. (16) OnEveryStreet...................DireStraits
t 6. (14) SimplytheBest....................TinaTurner
0 7. (2) Achtung Baby.............................U2
0 8.(1) Ópera.............................Todmobile
♦ 9. (Al) Time, LoveandTenderness.......Michael Bolton
f10. (11) Two Rooms.............................Ýmsir
^ 1.(1) Stars................................Simply Red
t 2. (5) We Can't Dance........................Genesis
ö 3. (3) Real Love........................Lisa Stansfield
Ö 4. (2) Greatest Hits II........................Queen
0 5.(4) SimplytheBest......................TinaTurner
t6.(~) MagicandLoss..........................LouReed
0 7. (6) Greatest Hits...........................Queen
8. (8) Diamonds8tPearls.......................Prince
9. (9) AchtungBaby................................U2
10.(10) Nevermind............................Nirvana