Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Síða 10
32
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1992.
íþróttir
Valbjörn Þorláksson, ÍR, setti trú-
lega heimsmet í hástökki í flokki
55-59 ára.
Unnur Stefánsdóttir, HSK, stóð sig
frábærlega og setti 4 íslandsmet I
flokki 40-44 ára.
Aðalsteinn Bernharðsson, UMSE,
náði góðum árangri á öldunga-
meistaramótinu f flokki 35-39 ára.
Meistaramót öldunga í frjálsum íþróttum:
Tíu Islandsmet
- liklega heimsmet hjá Valbirm í hástökki án atrennu
Tíu íslandsmet voru sett á meist-
aramóti öldunga í fijálsum íþróttum
innanhúss um helgina. Rúmlega 30
keppendur mættu til leiks en keppt
var á laugardag og sunnudag í Bald-
urshaga.
Unnur Stefánsdóttir, HSK, sigraði
í 4 greinum á mótinu og setti 4 ísland-
met í flokki 40-44 ára. Hún hljóp 50
m á 7,3 sek., stökk 4,78 m í lang-
stökki, 2,55 m í langstökki án atrennu
og loks stökk Unnur 7,25 metra í þrí-
stökki án atrennu. Valbjöm Þorláks-
son, ÍR, setti tvö íslandsmet í flokki
55-59 ára og vann 6 greinar. Hann
stökk 1,51 m í hástökki og sömu hæð
án atrennu. „Þetta er trúlega heims-
met hjá Valbimi og frábær árang-
ur,“ sagði Ólafur Unnsteinsson sem
er allt í öllu varöandi öldungastarfið
hér á landi.
Anna Magnúsdóttir, HSS, frænka
Hreins Halldórssonar, setti íslands-
met í kúluvarpi í flokki 45-49 ára,
varpaði 10,06 m. Þá setti Helgi Hólm,
íþróttafélagi Keflavíkur, met í há-
stökki í flokki 50-54 ára, stökk 1,51 m
og vann 3 greinar. Karl Þorvaldsson,
UMSB, setti met í þrístökki, stökk
10,39 m í flokki 55-59 ára. Loks setti
Marteinn Guðjónsson íslandsmet í
langstökki án atrennu í flokki 65-69
ára, stökk 2,31 m.
Aðalsteinn Bemharðsson, UMSE,
vann 5 greinar í flokki 35-39 ára og
náði besta árangri sínum í langstökki
er hann stökk 3,18 m. Sigurvegari í
flokknum varð Flosi Jónsson, UMSE,
stökk 3,20 m. Þá setti Kristján Gissur-
rarson, UMSE, einnig persónulegt
met í hástökki í sama flokki, stökk
1,51 m. Páll Ólafsson, FH, vann 5 titla
í flokki 45-49 ára og Trausti Svein-
bjömsson, FH, 4 titla. Flesta titla á
mótinu í sama flokknum vann hiim
73 ára gamli Jóhann Jónsson í Víði
úr Garði. Jóhann vann 7 greinar í
flokki 70-74 ára.
FH-ingar og ÍR-ingar unnu til
flestra íslandsmeistaratitla á mótinu,
hvort félag vann 11 greinar. UMSE
vann 8 titla, Víðir 7, HSK 5, og
íþróttafélag Keflavíkur 3. Önnur fé-
lög færri.
Mótið þótti takast vel í alla staði
og mikil gróska virðist vera í öld-
ungastarfinu um þessar mundir. Tíu
öldungar stefha á þátttöku á Evrópu-
meistaramótinu sem fram fer í Nor-
egi í sumar.
-SK
Pétur náði lágmarkinu fyrir EM
Pétur Guðmundsson, kúluvarp- Pétur varpaði kúlunni 19,65 enn nárameiðsla sem hann hlaut á
ari í KR, náði um helgina lágmark- metra í þriðja kasti en lágmarkið HM í Tokyo í fyrra og reyndust þau
inu í kúluvarpi fyrir Evrópumeist- er 19,50 metrar. Mótið fór fram í alvarlegri en haldið var í fyrstu.
aramótiö innanhúss sem fram fer Reiöhöllinni og varpaði Pétur að- -SK
í Genúa á Ítalíu um næstu mánaöa- eins þrívegis enda leikurinn gerður
mót. til að ná lágmarkinu. Pétur kennir
Islandsmótið 1 blaki:
Víkingum skelH
úr bikarkeppninni
Tíðindi helgarinnar eru vafalaust
þau að Víkingar, íslands- og bikar-
meistarar síðasta árs, eru dottnir út
úr bikarkeppninni eftir naumt tap
gegn KA á Akureyri, 3-2:17-15,8-15,
14-16, 15-8 og 15-12.
KA-stúlkur léku óvenjuvel með
þær Jösnu Pavlovich, Höllu Hall-
dórsdóttur og Karítas Jónsdóttur
bestar. Jasna, sem hefur ekki náð sér
á strik í langan tíma, lék mjög vel.
Of lítill sóknarstyrkur
Leikur Víkingsstúlkna var nokkuð
sveiflukenndur, mjög góður í byrjun
en eftir það náðu þær sér aldrei al-
mennilega á strik. Breiddin í sókn
Víkinga var ekki næg. Það var ein-
ungjs í fyrstu hrinu, sem sókn á öll-
um vígstöðvum skilaði sér, eftir það
sáu kantamir nær alfarið um að
gjörsamlega ótækt aö dómarar viti
ekki hvar skuli draga mörkin og þeir
skuh komast upp með að dæma hver
eftir sínu nefi, sem er misjafnt eins
og mennimir em margir. Dómara-
nefndin þarf að kalla dómara á fund
þar sem línur varðandi dómgæslu
em lagðar. Til þess að íþróttin þróist
í rétta átt verður dómgæslan að
fylgja með.
Úrslit helgarinnar og staðan
Fimm leikir fóm fram um helgina.
Nú er orðið nokkuð ljóst hvaða fjög-
ur kvennalið fara í úrslitakeppnina.
Víkingur og ÍS era örugg þangað.
HK og Breiðablik eiga auðvelda leiki
eftir og það þarf eitthvað mikið að
gerast ef þessi lið sitja eftir.
Staðan í kvennadeildinni
smassa en það var einfaldlega ekki ÍS - Sindri... .3-0
nóg. Breiðablik - Sindri .3-0
Bestar Víkinga vora þær Jóhanna
K. Kristjánsdóttir og Jóna Lind Sæv- Víkingur 9 9 0 27-4 18
arsdóttir. ÍS ...10 8 2 26-15 16
HK ...11 7 4 25-16 14
Af slakri dómgæslu Breiðablik.... ...10 6 4 21-19 12
Mikið vantar upp á að dómgæsla sé Völsungur.... ...11 5 6 21-21 10
nógu góð. Hér er einkum um að ræða KA ...11 4 7 21-22 8
mat á þvi hvenær dæma skuh „tvi- ÞrótturN 9 1 8 7-24 2
slag“ og „mokstur". Sindri 9 0 9 0-27 0
Það er nær undatekningarlaust að
bæði sigur- og taphöum þyki dóm- Staðan í karladeildinni
gæslu ábótavant, þannig að ekki er
bara um „beiskju taparans" að ræða.
Dómarar kvarta sjálfir yfir þvi að
samræmingu í dómum vanti og þeir
viti ekki hvar draga skuli mörkin
milli leyfilegra og óleyfilegra slaga.
„Dómaranefnd í dvala“
Það er biýn þörf á þvi að dómara-
nefnd BLÍ vakni af dvalanum og geri
eitthvað í þessum málum. Það er
ÍS - ÞrótturN KA - ÞrótturR.... .3-0 3-1
UMF Skeið - ÞrótturN.... .1-3
ÍS 12 12 0 36-6 24
KA 12 8 3 30-13 18
HK 11 8 3 25-15 16
Þróttur N.... 14 5 9 22-30 10
ÞrótturR.... 11 2 9 13-30 4
UMF Skeið., 14 1 13 7-39 2
-gje
Skíðaganga:
Daníel sigraði í Svíþjóð
Tveir íslenskir skíðagöngumenn vora á meðal þátttakenda á móti í
Svíþjóð um helgina og var hlutskipti þeirra ólíkt.
Sigurgeir Svavarsson keppti í 30 kílómetra göngu og svo fór að lokum
að hann hafnaði í 45. sæti. Ungur og efnilegur göngumaður, Daníel Jakobs-
son, keppti í unglingaflokki í 15 kílómetra göngu og gerði sér lítið fyrir
ogsigraðiallaandstæðingasína. -SK
Pétur Pétursson knattspymukappi:
„Mikil viðbrigði að
f ara aftur í skóla"
„Þetta era mikil viðbrigði fyrir okkur en til góðs fyrir fjölskylduna,
held ég. Maður þurfti á því að halda að komast í annað umhverfi og
breyta aöeins um lífsstíl," segir Pétur Pétursson knattspymumaöur sem
fluttur er til Sauðárkróks og mun hann sem kunnugt er leika með 3.
deildar hði Tindastóls í knattspymunni í sumar.
Pétur flutti norður með fjölskylduna um áramótin og settist á skólabekk
í Fjölbrautaskólanum. Þar stundar hann nám í bóklegum greinum sem
Pétur á ólokið í ljósmyndaranámi sem hann hefur stundað síðustu þrjú
árin.
„Það era gífurleg viðbrigði að setjast aftur á skólabekk eftir 17 ár. Mín
kynni af skóla á sínum tíma vora reyndar ekki góð. Ég var ekki þessi
„þægi“ nemandi heldur frekar uppreisnargjam. Það verður að segjast
eins og er að afstaða mín til skólanáms hefur breyst á þessum tíma. Nú
er ég í skóla til að læra. Ég sé mikið eftir því núna að hafa ekki klárað
skólanámið þegar ég var yngri. Ég get því miðlað af eigin reynslu til
unglinga í dag, að það er um að gera að nýta tímann til skólanáms á
meðan maður er ungur," segir Pétur.
- Snúum okkur að knattspymunni. Nú sýnist mönnum aö hópurinn hjá
Tindastóli sé orðinn svo sterkur að það verði nánast formsatriði að fara
upp í 2. deild?
„Það verður einmitt að vera formsatriði að það sé ekki formsatriði að
fara upp. Það er ábyggilegt að öll hin hðin í 3. dehd leggja mikla áherslu
á að vinna okkur í sumar og því verðum við að standa vel saman innan
vahar sem utan.“
Pétri hst vel á aðstæður á Króknum. Þessa dagana er t.d. verið að koma
fyrir flóðlýsingu við malarvöllinn. „Th að byija með verður lögð áhersla
á þrek- og þolþjálfun. Við stefnum síðan að æfingaleikjum um hveija
helgi í mars, munum leika við hð í 1. og 2. dehd og reynt verður eftir
megni að fá leiki hingað á Krókinn." -ÞÁ, Sauðárkróki
Pétur Pétursson í skólanum á Sauóárkróki. Hann segir þaö mikil viðbrigði að vera aftur kominn á skólabekk
og ráðleggur unglingum að nýta tfmann vel til skólanáms. DV-mynd ÞÁ