Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1992, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 1992.
Fréttir
Fulltrúi dreifbýlinga í hreppsnefnd Ölfushrepps:
Sársaukaf ull og illa þol-
andi kúgun meirihlutans
Góa25ára:
Starfsmönn-
um boðið
til Flórída
Starfsmönnum sælgætisgerðar-
innar Góu hefur verið boðið til
Flórída í Bandaríkjunum í tilefni 25
ára afmælis fyrirtækisins. „Fyrst
manni tókst að ná þessum aldri
fannst mér þetta fyrirtakshug-
mynd,“ segir eigandi og stofnandi
Góu, Helgi Vilhjálmsson.
Fastráðnir starfsmenn sælgætis-
gerðarinnar eru tólf talsins og hyggj-
ast nær allir þeirra þiggja boðið. Far-
iö verður vestur um haf 18. mars og
komið heim aftur 31. mars. „Ég vona
aö fólkið njóti sólarinnar og alls sem
sem í boði er. Við fljúgum til Orlando
og ætli maöur veröi ekki á strönd þar
skammt frá,“ segir Helgi.
Hann býður upp á flugfar og hótel-
gistingu en staifsmenn fá tækifæri
til að vinna fríið af sér. Nokkrir taka
maka með sér í ferðina.
Góa framleiðir nú um 25 tonn af
sælgætiámánuði. -IBS
„Oddvitinn leitaði ekki eftir sam-
þykki mínu og ég er afar undrandi
yfir vinnubrögðum hans. Ég hef aldr-
ei séð neina skynsemi í að byggja
þetta hæli þarna, eitt út af fyrir sig.
Að Þorlákshafnarbúar og meirihluti
hreppsnefndar skuh geta kúgað okk-
ur í dreifbýlinu er sársaukafullt og
Ula þolandi," segir Sjöfn Halldórs-
dóttir, fulltrúi dreifbýlisbúa í hrepps-
nefhd Ölfushrepps.
Eins og DV greindi frá í gær hefur
meirihluti Ölfushrepps skuldbundið
sig til að samþykkja að meðferðar-
heimili fyrir ósakhæfa fanga verði
starfrækt að Sogni í Ölfusi. Formlega
verður málið afgreitt á næsta fundi
nefndarinnar síðar í vikunni. Um
síðustu helgi aflaði Einar Sigurðsson
oddviti tillögu þessa efnis fylgis hjá
meirihluta hreppsnefndar.
Meirihluti hreppsnefndar er skip-
aður fuUtrúum Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks en í minnihluta
eru einn fulltrúi dreiíbýUsbúa í
hreppnum og einn fulltrúi A-flokk-
anna. Þess má geta að þrír fjórðu
hlutar íbúa hreppsins eru búsettir í
Þorlákshöfn en einungis fjórðungur
í Ölfusi.
„Það var samþykkt á fundi í
hreppsnefndinni á fimmtudag með
öUum greiddum atkvæðum aö gefa
hálfsmánaðar frest tíl að skoða
kauptUboð sem væntanleg væru í
jörðina. Fyrir okkur í dreifbýUnu var
þetta afar áhugavert því þama eru á
ferðinni aðUar sem hyggja á ferða-
þjónustu, hestaleigu og jafnvel hótel.
MáUð er ekki afgreitt, alla vega ekki
af minni hálfu.“
Aðspurð útUokar Sjöfn ekki að tU
klofnings geti komið í hreppnum,
þannig að dreifbýUsbúamir segi skU-
ið við Þorlákshafnarbúa í kjölfarið.
Hún segir þó engar ákvarðanir hafa
verið teknar í þá átt.
„Næstu skref hjá okkur hafa ekki
verið ákveðin. Ölfushreppur hefur
hins vegar afar mikla sérstöðu því
mikUl meirihluti íbúanna býr í Þor-
lákshöfn. Þangað sækjum við úr
dreifbýlinu hins vegar enga þjónustu
og ekkert barn fer þangað í skóla.
Við sækjum allt til Hveragerðis og
Selfoss."
Sjöfn segir þau rök léttvæg hjá
meirihluta hreppsnefndar að hæU að
Sogni sé atvinnuskapandi. Eigi að
- útilokar ekki aö hreppurinn klofni í kjölfar deilna um Sogn
reka það sem heUbrigðisstofnun þá menntað starfsfólk sem ekki sé að starfsemi, svo sem hestaleiga, ferða- rekstur, sé ekki síður atvinnuskap-
hljóti að verða ráðið þangað sér- finna í sveitinni. Önnur atvinnu- mannaþjónusta og jafnvel hótel- andi. -kaa
Merkjasöludagur
Rauða krossins
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími: 91-26722
Rauði kross íslands
ÖSKUDAGUR er hefðbundinn merkjasöludagur Rauða krossins. Á hverju
ári síðan 1925 hafa börn og unglingar um land allt aðstoðað Rauða kross
deildirnar við landssöfnun þennan dag.
Fénu, sem safnast, er varið til margvíslegs hjálpar-
starfs, svo sem til byggingar heilsugæslustöðvar í
Lesótó, kaupa á sjúkrabílum og fleiri brýnna
verkefna.
Við hvetjum alla landsmenn til að taka vel á
móti sölubörnunum þegar þau bjóða merki
dagsins og styrkja þannig hjálparstarf Rauða
krossins.