Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1992, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1992.
13
Sviðsljós
Ólafur Skúlason biskup gantast hér við afmælisbarnið. Ólafur B. Thors, gamall félagi Ragnars, heilsar hér upp
Á milli þeirra stendur Lára Margrét Ragnarsdóttir al- á afmælisbarnið og eiginkonu hans, Helgu Thomsen.
þingismaður.
Ragnar Kjartansson fimmtugur:
Fólk úr öllum áttum
Ragnar Kjartansson, fyrrum
stjómarformaður Hafskips og nú-
verandi framkvæmdastjóri rekstrar-
og kynningarráðgjafar Ragnars
Kjartanssonar, hélt upp á fimmtugs-
afmæli sitt í síðustu viku og bauð til
sín hátt í 300 manns af því tiiefni.
Teitið var haldið í sal Tannlækna-
félagsins í Síðumúlanum og er óhætt
að segja að þangað hafi komið fólk
úr öllum áttum.
Þar var t.d. stór hópur fyrrverandi
samstarfsmanna Ragnars og stjóm-
armanna í Hafskipi, fólk sem afmæl-
isbarnið hefur setið með í ýmsum
stjórnum eða verið í félagsskap með,
hópur frá sameiningarnefnd Borgar-
og Landakotsspítala og fyrrum sam-
starfsmenn hans hjá Olíufélaginu.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eim-
skips, hvíslar hér einhverju í eyra
Jóns Steinars Gunnlaugssonar
hæstaréttarlögmanns.
Einnig voru þarna Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eimskipafélags-
ins, fyrrum samstarfsmaður Ragn-
ars, Ólafur Skúlason biskup, sem sat
með honum í stjórn bandalags
Æskulýðsfélaga Reykjavíkur á sín-
um tíma, ættingjar, vinir og kunn-
ingjar afmælisbarnsins.
Þeir Halldór Gunnarsson í Holti,
Valur Páll Þórðarson, fyrrum for-
maður starfsmannafélags Hafskips,
Pétur Sveinbjarnarson og Ólafur B.
Thors fluttu skemmtileg ávörp í létt-
ari kantinum. Þeir Ólafur og Ragnar
eru saman í félagsskap sem kallast
Miðvikudagsklúbburinn og er gam-
all samstarfshópur úr Sjálfstæðis-
flokknum sem enn hittist reglulega.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Barónsstígur 19, hluti, þingl. eig. Haf-
þór Guðmundsson, fer fram á eigninni
sjálfri föstud. 13. mars ’92 kl. 17.00.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Miðstræti 10, hluti, þingl. eig. Tómas
Jónsson og Þórunn Sveinsdóttir, fer
fram á eigninni sjálfri föstud. 13. mars
’92 kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Skipholt 27, þingl. eig. Svavar Egils-
son, fer fram á eigninni sjálfri föstud.
13. mars ’92 kl. 16.00. Uppboðsbeiðend-
ur eru Steingrímur Eiríksson hdl.,
Ath Gíslason hrl., Gjaldheimtan í
Reykjavík, Fjárheimtan hf., Guðjón
Ármann Jónsson hdl., Baldur Guð-
laugssonhrl., Hróbjartur Jónatansson
hrl., Lögrún sf. og Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson hrl.
Skipholt 37,1. hæð og kjallari, þingl.
eig. Hra&kell Guðjónsson, fer fram á
eigninni sjálfri föstud. 13. mars ’92 kl.
15.30. Uppboðsbeiðendur eru Bjöm
Jónsson hdl., Gjaldheimtan í Reykja-
vík, Landsbanki íslands, Jóhannes
Albert Sævareson hdl., Bjami Stefáns-
son hdl. og Ásdís J. Rafnar hdl.
BORGARFÓGETAEMBÆTH) í REYKJAVÍK
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
99-6272
SÍMINN
-talandi dæmi um þjónustu!
Hátt í þrjú hundruð manns voru í afmælisveislunni, þar á meðal þeir Á-
gúst Bjarnason, Björgúifur Guðmundsson, Ólafur Gústafsson, Pétur Svein-
bjarnarson og Ólafur Skúlason. DV-myndir GVA
Sveitasinfónía í Logalandi
Bergþór G. ÚHarsson, DV, Borgamesi:
Ungmennafélag Reykdæla frum-
sýndi fyrir nokkru leikritið Sveita-
sinfóniu eftir Ragnar Arnalds í leik-
stjóm Guðjóns Inga Sigurðssonar.
Sýningunni var frábærlega vel tek-
ið og var leikurum, leikstjóra, höf-
undi og starfsfólki klappað lof í lófa
að henni lokinni.
Sveitasinfónían, sem fyrst var upp-
færð af Leikfélagi Reykjavíkur 1989,
er á margan hátt athyglisvert verk
og margslungið. Átök um orkumál,
ástir og landabrugg eru ofin saman
í eina heildstæða mynd og þó verkið
sé fyrst og fremst byggt upp sem
gamanleikur bregður fyrir hádrama-
tískum hughrifum sem gefa því
ákveðna og sérstæða dýpt. Rétt eins
og mannlífiö sjálft þar sem skiptast
á skin og skúrir.
Ur leikritinu Sveitasinfóníu sem Ungmennafélag Reykdæla sýnir um þess-
ar mundir. DV-mynd Bergþór
Fjöldi bílasala, bíla-
umboöa og einstaklinga
auglýsa fjölbreytt úrval
bíla af öllum geröum og
í öllum veröflokkum með
góöum árangri í DV-BÍLAR
á laugardögum.
Athugiö aó auglýsingar í
DV-BÍLAR [Durfa aö berast
í síöasta lagi fyrir kl. 17.00
á fimmtudögum.
Smáauglýsingadeildin er
hins vegar opin alla ’daga
frá kl. 09.00 til 22.00 nema
laugardaga frá kl. 09.00 til
18.00 og sunnudaga frá
kl. 18.00 til 22.00.
Smáauglýsing í
HELGARBLAÐ veróur aó
berast fyrirkl. 17.00
á föstudögum.
Auglýsingadeild
632700