Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1992, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1992.
3
Helgi Tómasson: verðiaunaður
af Dance Magazine.
verðlaunaður
Helgi Tómasson er einn þriggja
listamanna er hljóta verðlaun
hins virta timarits Dance Maga-
zine í ár.
{leiðara í marsútgáfu tfmarits-
ins segir að undir stjórn Helga
Tómassonar hafi San Francisco
ballettinn öðlast nýjan þokka og
kraft. Þess er jafnframt getið að
Helgi Tómasson hafi verið stjóm-
andi San Francisco ballettsins
síðan 1985 þegar hann liætti störf-
um sem aðaldansari New York-
ballettsins. Þar hafi hann orðið
einn besti klassiski ballettdansari
síns tíma.
Auk Helga hljóta dansaramir
Darci Kistler og Meredith Monk
verðlaun Dance Magazine í ár.
Kistler starfar við New York ball-
ettinn en Monk hefur verið leiö-
andi í tilraunaleikhúsi, tónlist og
dansifrál962. -IBS
Einar Sanden:
hringingar
„Mér var sagt að ég ætti ekki
að hafa neitt meö Mikson að gera
því að þá áliti fólk að óg væri
jafnsiðlaus og hann. Einn sagði
mjög ógnandi röddu: „Við höfum
fyigst með þér síðan þú gafst
ævisögu Mikson út“ en sagði ekki
hverjir „við“ væru,“ segir Einar
Sanden, ævisöguritari Eðvalds
Mikson Hinrikssonar.
Einar fékk þrjár nafniausar
upphringingar í síðustu viku.
Tveir karlmemi hringdu sama
dag, annar talaði ensku en hinn
eistnesku. Annan dag í sömu
viku hringdi sá þriðji og talaöi
hann eistnesku.
Þeir sem hringdu neituðu að
segja til nafns, Einar kvaðst þá
ekki hafa neitt viö þá að tala og
þannig lauk samtölunum. „Þeir
sem töluðu eistnesku gætu hafa
verið eistneskir gyðingar en ég á
samt erfitt með að trúa að nokkur
Eistlendingur vilji Mikson feigan
því þeir styðja hann allir,“ segir
hann.
Einar Sanden segist eindregiö
hlynntur því að íslensk stjórn-
völd hafi samband við eistnesk
yfirvöld og fái þau til að rannsaka
mál Miksons gaumgæfilega. „ís-
Ienska sfiórnin getur ekki vitað
hvað gerðist en eistneskasfjómin
hefur aðgang að öllum skjölum
og gæti rannsakað málið," segir
hann. „Þannig gætu islensk
stjómvöld fengið botn í þessar
ásakanir og gefið út yflrlýsingu
þess efnis. Mér finnst mikilvægt
að það sé gert."
-VD
Fréttir
AA\
SERTILBOÐ
METRO
Stakar mottur og
teppi á sérstöku
tilboðsverði
/ERSLUN I MJODD
Þjóðhagsstofmm vinnur að spá fyrir 1993:
Kreppa áf ram á næsta ári
Atvinnuleysi 1969 - 1992
- í prósentum -
1969 1970 1989 1990 1991 1992
Grafið sýnir atvinnuleysið í ár samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar, borið
saman við atvinnuleysi siðustu ára og atvinnuleysið erfiðleikaárin 1969
og 1970.
Kreppa verður áfram í efnahags-
lífi okkar á næsta ári. Þjóðhags-
stofnun vinnur þesa dagana að spá
fyrir árið 1993. Stefnt er að því, að
spáin verði tilbúin í aprílmánuði. í
minnisblöðum, sem Þjóðhagsstofn-
un hefur látið ríkisstjórnina fá, seg-
ir um horfur á næsta ári, að um-
svif í þjóðarbúskapnum verði lík-
lega í bezta falli svipuð á árinu 1993
og á yfirstandandi ári. Atvinnu-
ástand verði áfram erfitt á árinu
1993 og atvinnuleysi jafnvel ívið
meira en á yfirstandandi ári.
„Jafnvel næstu árin..
Margt kemur til, sem veldur þess-
ari svartsýni. Ástand fiskstofna
umhverfis landið er tahð fremur
bágborið og því óvarlegt að reikna
með umtalsverðri aukningu afla.
Þá er verð á sjávarafurðum tahð
frekar í hærri kantinum um þessar
mundir. Af því leiðir, að hagfræð-
ingar telja, að verðið muni fremur
lækka en hækka. Það verður því
ekki til að lyfta okkur úr lægðinni.
Til viðbótar þessu má nefna, að enn
eru engar horfur á álversfram-
kvæmdum þeim, sem ætlað var að
koma efnahagnum úr kreppunni.
Ráðherrar eru þó ekki hættir að
láta líklega í þeim efnum, en sann-
ast sagna er bygging álvers engu
nær en var fyrir hálfu ári. Loks
má nefna viðskiptahallann gagn-
vart útlöndum. Hagfræðingar álíta
ekki, að viðskiptahalli, sem orðinn
er 5 prósent af framleiðslu í land-
inu, geri kleift að auka útgjöld þjóð-
arinnar. Sérhver sæmileg stefna
Sjónarhom
Haukur
Helgason
stjórnvalda í efnahagsmálum út-
heimtir því verulegt aðhald. Við
verðum að öllum líkindum áfram
í kreppunni um skeið. Sennileg út-
koma úr spá Þjóðhagsstofnunar
fyrir 1993 væri í bezta falli spá um
hugsanlega 0-0,5 prósent vöxt
framleiðslunnar, hagvöxt, á því
ári, sem er sama og ekkert.
Því segir stofnunin í minnisblaöi
til ráðherra: „Flest bendir til þess,
að hagvöxtur verði lítill á næsta
ári, jafnvel næstu árin."
Atvinnuleysið jafn-
mikiðog1969
Þjóðhagsstofnun hefur sett fram
spá um, að atvinnuleysi verði að
meðaltali talsvert meira á yfir-
standandi ári en árin á undan og
verði að meðaltali 2,5 prósent af
vinnuaflinu borið saman við 1,5
prósent í fyrra. Stofnunin leggur
þó áherzlu á, að spáin sé óviss.
Spáin byggist meðal annars á því,
segir stofnunin, að vinnuframboð
aukist minna en nemur íjölgun
landsmanna á vinnufærum aldri.
Þjóðhagsstofnun segir í minnis-
blöðunum, að tölur um atvinnu-
leysið fyrstu tvo mánuði þessa árs
gefi ekki tilefni til að endurskoða
fyrri spá. Hinu sé þó ekki að leyna,
að ýmis einkenni atvinnuleysisins
nú valdi sérstökum áhyggjum.
Þannig sé fjöldi atvinnulausra á
höfuðborgarsvæðinu óvenjumikill
um þessar mundir, sem bendi til
þess, að atvinnuleysið nú sé ekki
jafntengt árstíðabundnum sveifl-
um í sjávarútvegi og áður. At-
vinnuleysið komi ennfremur fram
í greinum, þar sem þess hefur htið
eða ekki orðið vart um árabil.
Athyghsvert er að bera atvinnu-
leysið nú saman við atvinnuleysið
á samdráttarárunum 1969 og 1970.
Samanburðurinn leiðir í ljós, að
miðað við spá Þjóðhagsstofnunar
verður atvinnuleysið í ár jafnmikið
og það var 1969, þegar yfir allt árið
erhtið.
Verd nu kr. 882,- m
Verd nu kr. 2.990,- m
GERÐU GOÐ KAUP !
Verd nu kr. 2.090,- m