Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1992, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1992, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1992. Fréttir Vegalaus böm: Happadrýgst að koma á fót heimili en ekki stof nun - segir Drífa Kristjánsdóttir á Torfastöðum sem rekið hefur slikt heimili árum saman „Ég gleðst mjög yfir áhuga al- mennings fyrir þessu málefni og hann kom mér á óvart miðað við reynslu fyrri ára. Ég vona að nú sjái stjómvöld að þetta er mikill vandi þó að fólk hafi til þessa viljað loka augunum fyrir því,“ segir Drífa Kristjánsdóttir en hún og maður hennar, Ólafur Einarsson, reka heimih fyrir vegalausa unglinga að Torfastöðum í Biskupstungum. Alis söfnuðust um 32 milljónir fyrir vegalaus böm um helgina. „Ég tel það happadrýgst að söfnunarfénu yrði varið til þess að koma á fót álíka heimih og þessu þar sem lítill hópur fólks myndar heimili og tekur að sér reksturinn fyrir ríkið,“ segir Drífa. Þau Ólafur stofnuðu heimihð ásamt öðmm hjónum fyrir 13 árum en hafa rekið það ein síðustu sjö ár sem verk- takar fyrir ríkið. Pláss er fyrir sex unglinga í senn og telur Drífa að miðað við eftirspum þyrfti 24 pláss á ári. „Staðsetningin skiptir ekki öhu máli en okkur hefur reynst vel að vera úti á landi, íjarri áreitinu í Reykjavík en samt í grennd við byggðakjarna þannig að auðvelt sé að fá fjölskyldur til að koma og vinna með okkur,“ segir hún. Rekstrinum eru úthlutaðar um 13 milljónir á fjárlögum ársins en Drifa segir að heimilið þyrfti að fá 15-16 milljónir svo hægt væri að ráða fleira fólk. Hún er kennaramenntuð og bæði hafa þau hjónin áralanga reynslu af vinnu með unghngum á Unglingaheimihríkisins. -VD Flugmálastjórn hefur frestaö ákvörðun um hvers konar slökkvikerfi verði sett upp í flugstjórnarmiðstöðinni sem er í byggingu, þar sem búist er við að halon-kerfin verði bönnuð innan tíðar og óvíst hvað kemur í staðinn. DV-mynd GVA Uppsetning halon-slökkvikerfa bönnuð innan tveggj a ára: Ovissaum nýju flugstjóm- armiðstöðina Búist er við að bann verði lagt við uppsetningu nýrra halon-slökkvi- kerfa hér á landi innan tveggja ára, að sögn Sigurbjargar Gísladóttur sem á sæti í óson-nefnd umhverfis- ráðuneytisins. Nefndin á að gera til- lögur th stjórnvalda að dagsetningu en hefur ekki gert þaö enn þar sem stutt er síðan hún var skipuð og mik- il vinna hefur farið í upplýsingasöfn- un það sem af er. Vegna þessa væntanlega hanns hefur ákvörðun um hvaða kerfi á að nota í nýju alþjóða flugstjómarmið- stöðinni á Reykjavíkurflugvehi verið frestað. Halldór S. Kristjánsson hjá Flugmálastjórn segir slíkt kerfi koma að mjög góðum notum þar vegna þess að í húsinu verði tölvu- lagnir undir fölsku gólfi og mjög við- kvæmur búnaður. Taka á stöðina í notkun seinni hluta næsta árs. Alþjóða sighngamálastofnunin, sem Island á aðild að, hefur gefið út tilmæh um að uppsetning kerfa um borð í skipum verði bönnuð 1. júlí á þessu ári. Páll Hjartarson siglinga- málastjóri segir ekki vitað til þess! að hægt verði að setja halonstað- gengla á eldri halon-slökkvikerfi þeg-1 ar slík efni koma á markaö eftir nokkur ár. Óvíst sé hvort þau efni muni hafa sömu dreifieiginleika og halon. Því blasi við að skipta þurfi um eða breyta kerfum í flestum ís- lenskum fiskiskipum takist ekki að finna efni sem gengur á sömu kerfin. Hönnuöur halonslökkvikerfis fyrir kjahara Þjóðarbókhlöðunnar sagði hins vegar í samtali við DV fyrir helgi að því myndi fylgja lítill til- kostnaður að setja staðgengilefni á kerfið þegar þar að kæmi. Annars staðar á Nprðurlöndunum. og víðar í Evrópu hefur ýmist verið samþykkt eöa gerðar tillögur um að uppsetning kerfa verði bönnuð innan eins til tveggja ára og áfylling með haloni á gömul kerfi verði einnig óleyfileginnanmjögfárraára. -VD í dagmælir Dagfari Samið um Ögmund in. Formaður verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri segir í DV í gær að „þaö sé forkastanlegt hjá stóru samtökunum að hafa fólk samn- ingslaust í marga mánuði. Menn eru ahtaf að bíða hverjir eftir öðr- um. Það er beðiö eftir rikisstjórn- inni, beðið eftir hinu og beðið eftir þessu.“ Og formaðurinn heldur áfram og segir: „Mér er óskiljanlegt hvers vegna menn geta ekki sest niður og talað saman áður en samningar renna út. Þetta virðist vera komiö út í það að menn þykjast vera aö tala saman." Já, þetta er hljóðið í grasrótinni. Og ekki að furða. Samningar hafa verið lausir frá því 1 september í fyrra og enn er ósamið þrátt fyrir að heih her manna sitji á samn- ingafundum og þykist vera að tala saman. Svo kemur í ljós að þeir eru ahs ekki að semja hver viö annan heldur eru þeir alhr í sameiningu aö bíða eftir því að þriöji aðili, sem ahs ekki situr í karphúsinu, segi hvað megi semja um. Það er beðið eftir ríkisstjórninni sem stafar af því að vinnuveitendur hafa ekkert th að semja um og ASÍ og BSRB hafa fundið það út að það sé ríkis- stjórain sem eigi að semja um kjör- Og af hveiju á ríkisstjórnin aö semja um kjörin? Þaö er vegna þess að Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, hefur fengið að sitja á sanm- ingafundum mhh ASÍ og VSÍ og heimtar að ríkið ausi út peningum í þágu velferðarinnar sem er fólgin í því, að mati Ögmundar, að ahir hafi nógu mikla peninga út úr hinu opinbera. Ögmundur néitar að gefa eftir biðlaun opinberra starfs- manna, jafnvel þótt þeir séu komn- ir á laun annars staðar og séu hætt- ir að vera opinberir starfsmenn og Ögmundur krefst þess að ríkið hætti að spara í lyfjakostnaði og Ögmundur heimtar að ekki verði spöruð króna í hehbrigöiskerfinu. Nú er það að vísu rétt að Ög- mundur Jónasson hefur verið kos- inn formaður hjá opinberum starfsmönnum en Dagfari minnist þess ekki að sá maður hafi fengiö umboð hjá öðrum launþegum th að semja um kaup og kjör fyrir þá. Samt er þessi sjálfskipaði forystu- maður verkalýðshreyfingarinnar orðinn aðaltalsmaður óbreyttra launþega og segir aö það sé þungt í sér hljóðið vegna þess að ríkis- stjómin bugtar sig ekki og'beygir fyrir kröfum hans. Sannleikurinn mun vera sá að aðrir forystumenn launþega, sem sitja í karphúsinu, eru famir að spyrja sjálfa sig að því hvaðan Ög- mundur Jónasson hafi umboð til að fara með þeirra mál og að minnsta kosti kannast formaður verkalýðsfélagsins á Flateyri ekki við það að Ögmundur sé málsvari sinn í samningum. Ögmundur má hans vegna bíða eftir svari frá rík- isstjóminni fram á haust ef hann kássast ekki upp á annarra manna jússur. Það er haft fyrir satt að samning- ar væru fyrir löngu komnir á kopp- inn ef atvinnuþrasarar á borð við Ögmund Jónasson væru ekki að þvælast fyrir. Nú ganga samninga- viðræður í karphúsinu aðahega út á það hvernig semja megi við Ög- mund um Ögmund. Þaö er verið aö semja um Ögmund. Á að hafa hann með í samningum eða á aö láta Ögmund sigla sinn sjó? Enginn maður ræðir lengur efnisatriði samninga eða setur fram röksemd- ir um venjulegar kjarabætur. Samningar snúast um Ögmund og hvað gera eigi við manninn til að losna úr þeirri klípu að Ögmundur geti samið um Ögmund án þess að Ögmundur sé að semja fyrir aðra en þá sem vilja að samið sé um Ögmund. Það er auðvitað gott og blessaö að vera harður í samningum og láta á sjálfum sér bera en það er auðvitað nokkuð langt gengið ef kjarasamningar tugþúsunda manna standa og falla með per- sónulegu stríði og metnaði eins manns til að sanna ágæti sitt fyrir sjálfum sér. Ögmundur Jónasson er ekki að semja um kaup og kjör opinberra starfsmanna. Hann er að semja um pólitíska stefnu nú- verandi ríkisstjómar án þess að kjósendur hafi nokkurn tímann beðið hann um þann erindrekstur. Þjóðin hefur aldrei beðið Ögmund Jónasson að semja um persónu sína og prívatskoðanir og því fyrr sem aðrir samningamenn skhja það því fyrr tekst þeim að semja fyrir þá sem þeir eiga að semja fyr- ir. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.