Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1992, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1992.
Útlönd
gönginafturfyr-
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum:
Áki Eleffsen, samgönguráö-
herra Pæreyinga, ætlar aö leggja
frumvarp um neðansjávargöng
frá Sfraumey til Vogeyjar aftur
fyrir lögþingiö. Litlu munaði í
haust að frumvarp þetta yröi
stjórninni að falli, enda göngin
dýr og landsjóður í miklum íjár-
hagskröggtmi.
Aki er þingmaöur fyrir Voga
og því mikið t mun að sýna kjós-
endum sínum að hann geti komið
máiinu í höfn.Heimamenná Vog-
ey líta á göngin sem mikilvægt
hagsmunamál. Að sögn kunn-
ugra eru þó litlar líkur til að af
lagningu ganganna verði vegna
kostnaðarin8.
Dæmdurfil
aðframleiða
Viilby Theilgaard, pylsugerðar-
meistari í Sonderborg í Dan-
mörku, verður að breyta aðferð
sinni við framleiösluna því pyls-
urnar hans eru of sverar. Dóms-
yfirvöld i bænum hafa úrskurðað
S málinu og komist að þeirri nið-
urstöðu að Villby sé brotlegur viö
lög,
Eftir því sem danskar reglur
kveða á um þá mega pylsur sem
ætlaðar eru í brauð meö tilheyr-
andi sósum ekki vera meira en
24 millímetrar í þvermál. Villby
pylsugerðarmaður ætlar að
fylgja úrskurði yfirvalda og
mjókka pyísur sínar.
Danirfáeðalvín
frá Suður-Afriku
Nú t vikunni koma eðalvín frá
Suður-Afríku í búðir í Dan-
mörku. Þar í landi hefur innflutn-
ingur frá Suöur-Afríku verið
bannaður um árabíl vegna að-
skilnaðarstefhu suður-afriskra
stjórnvalda.
Eftir aíkvæðagreiðslu hvítra
manna í síðustu viku, þar sem
afnára aðskilnaðarstefnunnar
hlaut yfirgnæfandi stuðning, eru
allar hömlttr á viðskiptum núlli
Suður-Afríku og Ðanmerkur úr
sögunni.
Þunglyndiveld«
ur hjarta-
sjúkdómum
Bandarískir vísindamenn hafa
fundið út að samband er á milli
þunglyndls og hjartasjúkdóma.
Rannsóknir mannanna bendir til
að þunglynt fólk sé í meiri hættu
að fá kransajðastíflu en aðrir.
Þessi hætta eykst síðan um all-
an helming ef aðrir áhættuþættir
eru einnig fyrir hendi, svo sem
reykingar og óhollt mataræði.
Þannig viröast þunglyndir reyk-
ingamenn í mestri hættu.
Launhvergi
..... éhS - ^Mhlfeflk ■ '
nærneni
Ný könnun sýnir að laun eru
hvergi hærri í heiminum en í
Þýskalandi. Látlu munar þó að
Svisslendingar geri betur því
laun þar eru aðeins einu prósenti
lægri en 1 Þýskalandi.
í Evrópu eru lægstu launin í
i’ortúgal og þar næst í Grikk-
landi. í þessum löndum eru laun
aðeins áttundi hluti af þýskum
launum.
BUl Clinton tapaöi óvænt fyrir Jerry Brown í forkosningum í Connecticut:
Osigurinn verulegt
áfall fyrir Clinton
- Bush forseti verður einnig að sætta sig við slakan árangur gegn Buchanan
Þvert gegn öllum spám tapaði Bill
Clinton fyrir Jerry Brown í forkosn-
ingum demókrata vegna væntan-
legra forsetakosninga í Connecticut.
Síðustu daga hafa menn vestra al-
menn gengið út frá því sem vísu aö
Clinton væri öruggur með útnefn-
ingu flokksmanna sinna en úrshtin
í gær sýna að engu er að treysta fyrr
en fullur sigur er í höfn.
Munurinn á fylgi þeirra Clintons
og Brown var þó ekki mikill. Þegar
lokið var við aö telja bróðurpart at-
kvæðanna hafði Brown fengið 38%
en Clinton 35%. Þá vakti og athygli
að Paul Tsongas hlaut 20% atkvæða
þótt hann hefði þegar tilkynnt um
uppgjöf sína í baráttunni við Clinton.
Clinton getur þó huggað sig við að
í Connecticut eru tiltölulega fáir full-
trúar kjömir á landsfund demókrata
í sumar en þar verður endanlega
skorið úr um hver verður forsetaefni
flokksins. Þá var kjörsókn heldur
dræm.
Brown getur nú hugsað gott til
glóðarinnar þegar kemur að kosn-
ingum í vesturríkjunum síðar í vor.
Þar á hann heimaríki og nýtur meiri
stuðnings en Clinton. Brown gæti
einnig sótt að Clinton þegar kosið
verður í New York, nágrannaríki
Connecticut, þann 7. apríl. Þar eru
margir fulltrúar kjörnir á landsfund
demókrata.
Clinton sagði í kosningabaráttunni
í Connecticut að Brown væri ekki til
stórræðanna og framboð hans því
rétt til málamynda. Clinton hefur
verið öruggur með sig frá því hann
Jerry Brown, fyrrum ríkisstjóri í Kaliforníu, fagnaði vel þegar úrslitin í Connecticut lágu fyrir í nótt. Hann átti ekki
von á miklu fyígi á austurströndinni enda á hann ætt og óööl á vesturströndinni. Bill Clinton varð fyrir áfalii með
ósigrinum. Símamynd Reuter
vann góða sigra í Illinois og Michigan
í síðustu viku en nú verður hann að
herða á baráttunni á ný.
George Bush forseti náði aðeins
60% atkvæða í baráttu sinni gegn Pat
Buchanan. Þessi niðurstaða sýnir að
fylgismenn repúbhkana hafa enn
hug á að refsa Bush fyrir slaka efna-
hagsstjórn. Bush er þó öruggur með
útnefningu en Buchanan veldur hon-
um enn vandræðum.
Reuter
ÍPialdsmenn halda kosningafundi 1 Skotlandi:
Þjóðemissinnum líkt
við Fidel Castroá Kúbu
Ian Lang, Skotlandsmálaráðherra
bresku ríkisstjómarinnar, réðst
harkalega að flokki skoskra þjóðem-
issinna fyrir að berjast fyrir heima-
stjóm og sagði að þeir mundu breyta
landinu 1 „nýja Albaníu". Þá líkti
ráðherrann vinstristefnu þjóðernis-
sinna við stefnu Fidels Castros á
Kúbu.
Hörð stefna íhaldsflokksins gegn
einhvers konar heimastjórn í Skot-
landi nýtur ekki mikils fylgis meðal
kjósenda. Samkvæmt skoðanakönn-
un, sem birtist í dagblaðinu Scots-
man, njóta íhaldsmenn stuðnings 22
prósent kjósenda en þjóðemissinnar
eiga stuðning 27 prósent þeirra vísan.
Verkamannaflokkurinn nýtur þó
mestrar hylli meðal skoskra kjós-
enda eða 41 prósents þeirra.
Stuðningur við skoska heimastjórn
hefur farið mjög vaxandi að undan-
förnu þar sem margir Skotar telja
að stjórn íhaldsmanna í London hafi
sýnt hagsmunum þeirra lítinn
áhuga. Þá vilja Skotar fá umráð yfir
arðbærum olíulindum í Norðursjón-
um.
Verkamannaflokkurinn, sem á 48
af 72 þingsætum fyrir Skotland í
breska þinginu, hefur lofað Skotum
eigin þingi innan sambandsins við
England. Flokkurinn treystir á kjós-
endur í Skotlandi til að binda enda á
þrettán ára stjórnarsetu íhalds-
manna.
Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands, var í
baráttuhug í gær og sagði að Skotar
mundu hafna sjálfstjórninni þegar
þeir gerðu sér grein fyrir hættunni
sem henni fylgdi.
John Major forsætisráðherra held-
ur fundi í Skotlandi í dag þar sem
hann mun ítreka þá skoðun sína að
sjálfstjórn mundi óhjákvæmilega
leiða til krafna um fuilt sjálfstæði
landsins.
John Major, forsætisráðherra Bretlands, heldur kosningafundi í Skotlandi Reuter
i dag. Þar í landi á íhaldsflokkurinn undir högg að sækja. Simamynd Reuter
Kemurheimí
breytta veröld
eftirtíumán-
„Hann getur örugglega ekki
ímyndað sér hvemig lííð er nú í
landinu sem hann yfirgaf á síð-
asta ári,“ segir Alexander Kaleri,
rússneksur geimfari, sem leyst
hefur félaga sinn Sergei Krik-
aljov af hólmi í geimstöðinni Mír.
Sergei hefur verið á braut um
jörðu í tíu mánuðu. Hann átti að
koma til jarðar í haust en vegna
íjárhagsvandræða sovésku geim-
ferðastofnunarinnar reyndist
þaö ekki unnt. Síöan gerðist það
að Sovétríkin voru lögð niður og
enginn virtist vita hver bæri
ábyrgð á að koma Sergei til síns
heima.
Á endanum tókst þó að manna
geimfar og senda það með nýja
áhöfn í Mír geimstöðina. Sergrei
kemur heim í dag. Veröldin sem
mætir honum er þó öll önnur en
þegar hann lagði upp í ferð sína.
Ríkið sem sendi hann er ekki
lengur til og landar hans hafa
endanlega snúiö baki við lífshátt-
unum sem hann ólst upp við.
Menn eru sammála um að við-
brigðin verði mikil fyrir Sergei.
Hann þarf einnig að venjast lífi á
jöröinni eftir langa dvöl í þyngd-
arleysi. Venjulega eru geimfarar
mjög máttfamir eftir svo langa
vist í geimnum því þar reynir lít-
ið sem ekkert á vöðvana.
Óvíst er hve lengi Rússar.ætla
að halda uppi merki Sovétmanna
í geimferðum því viðurkennt er
að fjármagn skortir til starfsem-
Ínnar. Reuter