Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1992, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1992, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1992. Fréttir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri um gróðureyðinguna vegna ofbeitar: Hrossin miklu fleiri en landkostir leyf a - ágreiningur við bændur í Mývatnssveit leystur með samningum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii „Hin mikla íjölgun hrossa, sem orðiö hefur hér á landi, er mikið áhyggjuefni og hrossin eru oft á tíð- um miklu fleiri en landkostir leyfa. Þetta er víða um land að verða eitt brýnasta málið sem leysa þarf varð- andi gróðurvemd," segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. Sveinn segir að starfsmenn Land- græðslunnar hafi undanfarin miss- eri varað á hótlegan og varfærinn Egilsstaöir: Bakað úr lífrænt ræktuðu byggi Sigrún Björgvinsd, DV, Egflsstöðum; „Þetta er tyrsta árið sem ég er með lífrænt ræktað bygg. Ég sendi það valsað til brauögeröar í Reykjavík sem malar byggið til baksturs. Nú hef ég fengið kvörn og þá get ég útvegað by ggið malað eða brotið en þá er það nokkuð gróft,“ sagði Eymundur Magnús- son I Vallanesi. Eymundur kvaðst hafa ræktað bygg með lífrænum áburði í ein- um hektara lands í sumar og upp- skeran varð fimm tunnur sem er með ólíkindum mikið en þess ber að geta að í þessu stykki hafði verið ræktað grænmeti um nokk- ur ár og var því mjög fqótt orðið. Hjá brauðgerð Kaupfélags Hér- aðsbúa á Egilsstöðum eru nú bök- uö brauð úr þessu byggi og heita Héraðsbrauð, nema hvað, Fáskrúðsíjörður: Fimm tilboð i dýpkun smá- bátahafnar Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúðsfirör Opnun tilboða í dýpkun smá- bátahafhar á Fáskrúösfirði var gerð á skrifstofu Búðáhrepps 11. mars sl- að viðstöddum nokkrum tilboðsgjöfum. Fimm tilboö bárust í þetta verk, langlægsta tilboðið kom frá Vökvavélum á Egilsstöðum, 1.685.045 kr. sem er 51 prósent af kostnaöaráætlun. Guölaugur Einarsson, Fáskrúðsfirði, átti næsta tilboð, 3.423.750 kr. sem er 4 prósentum yfir kostnaðaráætl- un. Páll Óskarsson vinnuvél- stjóri, Fáskrúðsfirði, 4.170.750 kr. sem er 27 prósent yfir kostnað- aráætlun. Borgþór Guðjónsson, Reyöarfirði, 5.166.750 kr. sem er 57 prósent yfir kostnaöaráætlun og Guömundur Þorgrímsson og Páll Óskarsson, Fáskrúðsfirði, 3.678.746 kr. sem er 12 prósent yfir kostnaðaráætlun. Aætlun frá Hafnamálastofnun ríkisins hljóðaöi upp á 3.300.000 kr. hátt við vaxandi beitarvandamáli vegna fjölgunar hrossa sem því mið- ur blasi við víða um land. „Svo ótrú- legt sem það kann að virðast eru til einstaka menn í röðum okkar hesta- manna sem viðurkenna ekki að um nein umtalsverð beitarvandamál sé að ræða. Það er frumskilyrði þess aö unnt sé að leysa vandamál aö menn viðurkenni þau, þá fyrst er unnt að skilja þau og meta og leita úr- lausna,“ segir Sveinn. Hann segist oft hafa lýst því yfir að geysileg offramleiðsla í þessari framleiðslugrein sé geymd í landinu og það sé því miður orðið svo að land- ið bíði skaða af. Gróður og jarövegur í Þingeyjarsýslum megi t.d. alls ekki við aukinni hrossabeit. „Það hafa ekki komið upp alvarleg ágreiningsmál varöandi upprekstur á sauðfé hin síðari ár. Þaö kom að vísu upp ágreiningur við bændur í Mývatnssveit á síðasta ári, en sá ágreiningur var ekki alvarlegur og það tókst að semja í því máli með því að mætast á miðri leið,“ segir Sveinn um áhrif uppreksturs á sauðfé á gróður á afréttum. Sveinn segir að í Mývatnssveit séu skilyrði á sumum bæjum erfið, sum- ir bændur hafi lítil beitarlönd í heimahögum en það hafi tekist aö leysa ágreining um upprekstrartíma undanfarin ár með samningum í Mývatnssveit sem annars staðar. Leiðangursmenn Hafró á Ljósafelli SU. Frá vinstri; Gísli Ólafsson, Höskuldur Jónsson, Ásgeir Gunnarsson og Sólmundur Einarsson leiðangursstjóri. Eyjan Skrúður i baksýn. DV-mynd Ægir Togararall Hafrannsóknastofnunar: Ljósaf ell togaði á 118 stöðum Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði: Togarinn Ljósafell SU var í togara- ralli Hafrannsóknastofnunar sem er nýlokið. Togarinn hóf rannsóknar- leiðángurinn 4. mars og honum lauk 17. mars. Stofnmælingar botnfiska hafa farið fram árlega undanfarin ár og er þetta í áttunda sinn. Á Ljósafelli var togað á 118 stöðum frá Hjörleifshöfða að GlettinganesL og voru magasýni tekin úr 27 fiskteg- unum auk annarra rannsókna. Þetta var fyrsti túrinn í svokölluðu fjölstofnaverkefni. Aörir togarar, sem tóku þátt í þessu verkefni í ár, voru Bjartur NK, Rauðinúpur ÞH, Arnar HU og Vestmannaey VE. Leið- angursstjóri á Ljósafelli var Sól- mundur Einarsson fiskifræðingur en skipstjóri á Ljósafelh er Albert Stef- ánsson. Haugakvísl á Eyvindarstaöaheiði: Jakar löskuðu brúna Þórhaflur Asmundsson, DV, Sauðárkróki; Menn sem áttu leið fram á Eyvind- arstaöaheiði nýlega urðu þess varir að ný brú yfir Haugakvísl, fram á miðri heiðinni, hafði laskast veru- lega í vetur. Eftir greinilegum vegs- ummerkjum að dæma er tjóniö vegna klakastíflna og jakahlaups í ánni. Handrið á brúnni var brotið, burðarbitar úr stáli höfðu svignað og festingar fyrir brúargólf höfðu rést upp eins og málmþynnur væru. Þá hafði tekið talsvert úr veginum við brúarstólpann. Lokið var við gerð brúarinnar á síðasta vori. Hún er ríflega 10 metrar að lengd og sá Landsvirkjun um byggingu hennar. Siguijón Guðmundsson, bóndi á Fossum í Svartárdal, segir aö heima- menn séu hræddir um að brúnni verði hætt í framtíðinni. „Menn voru svo sem búnir aö spá fyrir að brúin yrði ekki lengi ólösk- uð. Reyndar hiélt maður aö þetta hefði sloppið þar sem svo snjólítið hefur verið það sem af er vetri. Hins vegar er þess að gæta að það hefur myndast klaki á ánni í vetur og leys- ingarnar hafa orðið mjög snöggar og miklar því hitastigið hefur verið svo hátt stundum. Svo er vatnasvæðið svo gífurlega langt þaðan sem áin rennur lengst framan og austan af Hraunum. Það hefur líka sýnt sig að hún getur farið ansi hátt með klaka- hrönglið. Það hefur sést á möl og jarðvegi sem hún ber með sér í jök- unum. Þó að brúin standi hátt má því alltaf búast við að hún verði í hættu,“ sagði Siguijón á Fossum. Nemenda- garðará Bifröst Bergþór G. Úl&rsson, DV, Borgarfirði; Stjóm nemendagarða Sam- vinnuháskólans á Bifröst áætlar að byggja þrjátíu og tvær nem- endaíbúðir á næstu fjórum árum. í fyrsta áfanga er ætlunin að byggðar verði fjórar 3 herbergja íbúðir sem hægt er að nýta fyrir tvo einstaklinga, einstæða for- eldra eða íjölskyldur. Húsnæöisstofnun ríkisins hef- ur þegar gefiö lánsloforð fyrir þremur þessara íbúða. Þá er stefnt að byggingu átta 3 her- bergja íbúða í svonefndum B- áfanga og aö framkvæmdir við þaer hefjist nú á þessu ári. Á árinu 1993 veröur hafist handa við annan áfanga en þá er ráðgerð bygging á sex 3 herbergja íbúðum og tveimur 4 herbergja. í þriðja áfanga er áætlað að byggja aðrar sex 3 herbergja íbúðir og tvær 4 herbergja. En í' lokaáfanga framkvæmdarinnar, sem miðast við árið 1995, skulu byggðar fjórar 5 herbergja íbúðir sem nýta má fyrir fjóra einstakl- inga. Byggingaráætlunin er háð lán- veitingum frá Húsnæðisstofnun ríkisins en alls er hér um að ræða tuttugu og fjórar 3 herbergja íbúðir, fjórar 4 herbergja íbúöir og flórar 5 herbergja íbúðir. Útboð í verkið annaðíst Al- menna verkfræðistofan og bárust alls fjórar tillögur. Ákveðið var að taka tilboði frá Byggingafélag- inu Borg í Borgarnesi. Arkitektar eru EgOl Guðmundsson og Þórar- inn Þórarinsson. Burðarþol og lagnir: Verkfræðistofan Forsjá hf. og raflagnir Rafteiknistofan. Norðurland eystra: Samtöksveitar- félagastofnuð? Jóhannes aguijónssain, DV, Húsavflc Á síöasta flórðungsþingi Norð- lendinga var skipuð nefnd til að kanna og vinna að hugmynd um stofhun samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Nefndina skipa bæjarsflórarnir á Akureyri og Húsavík, Halldór Jónsson og Einar Njálsson, og Jóhannes Sigf- ússon, oddviti í Svalbaröshreppi. Nefndin telur aö grundvöllur fyrir stofnun þessara samtaka sé fyrir hendi og hefur sent sveitar- stjórnum á svæðinu erindi með hugmyndum um ramma að upp- byggingu slíkra samtaka til um- flöllunar. -Þetta mál var til umræðu á bæjarsflórnarfundi á Húsavík nýverið. Einar Njálsson bæjar- stjóri geröi grein fyrir málinu. Hann sagöi aö máliö heföi verið rætt í héraðsnefhdum og meiri- hluti sveitarsflórna virtist já- kvæður fyrir hugmyndinni en ekki væri einhugur um málið og sumir hefðu efasemdir um gildi svona samtaka sem tækju við af Fjórðungssambandi Norðlend- inga. Hugmyndin er sú að fulltrúar i héraðsnefhdum séu eirrnig full- trúar í samtökunum og þannig skapist samstarfsgrundvöllur héraðsnefhdanna og þar með sveitarstjóma í lflördæminu. Samtökin yrðu umsagnaraðili og ráðgefandi um málefhi kjördæm- isins gagnvart ríkisvaldinu og hefði aðgang að ákvarðanatöku um veitingu flármagns og for- gangsröð verkefna á svæðinu. Nokkrar umræður urðu um raálið á fundinum. Flestir virtust þeirrar skoðunar aö Fjóröungs- samband Norölendinga væri búið að vera og eitthvað þyrfti aö koma í staðinn án þess aö verða jafnmikið batteri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.