Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1992, Side 7
LAUGARDAGUR 28. MARS 1992. 37 DV Bflar Margir litu hýru auga þennan sjö manna Cadillac frá 1932. Að utan og innan er hann að mestu upprunalegur nema hvað felgur og hjólbarðar voru nokkrum tommum stærri á sinum tíma. Vélbúnaðurinn er hins vegar nýr af nálinni. Eins og sjá má voru það ekki Citroén-verksmiðjurnar sem fyrstar kynntu framljós sem „litu til hliðar" þegar stýrishjólinu var snúið heldur var slíkur búnaður á Cadillac 1932. Lugtirnar eru einfaldlega tengdar stýrisbún- aðinum með grönnum stöngum. Daytona Beach í Flórída á dögunum og ég fór auðvitaö að skoða. Og hví- hk sjón! Ég fékk oíbirtu í augun. Mótið var haldið á Daytona Spe- edway, hinni geysistóru og frægu kappakstursbraut. Allt svæðið mor- aði í bílum - þeir voru 2500 talsins - og lakkgljáinn og krómið var þvílíkt að maður þurfti nánast dökk sólgler- augu. Það var ekki keppni í einu eða neinu - nema óformlega á þann veg að hverjum fannst sinn flíill fagur - heldur var bílunum einfaldlega stiilt upp svo að gestir mættu skoða og dást að. Tugir þúsunda gerðu það. Fjörlegur markaður Jafnframt var mótið markaður, bíl- ar gengu kaupum og sölum og hundruð varahlutasala og annarra sem þjóna sérþörfum bíladellukarla buðu vöru sína eða þjónustu. Flestir eru á einhverju sérsviði, eru til dæm- Ég stóðst ekki mátið að mynda þennan hálfrar aldar gamla Ford sem var eins og nýr og hafði verið hiaðið á hann ýmsu því sem einkennir hina risa- stóru dráttarbíla sem þeysa með gáma í eftirdragi um hraðbrautir Banda- ríkjanna. Á bak við hann sést í Chevrolet Bel Air, tveggja dyra hardtop, frá 1957. Góð eintök af þeim seljast á 25-40 þús. dollara. ; s Dæmigerðir „street rod“-bílar: Ford Coupé árg. 1929-32 með V-8 Chevrolet eða Ford-vélum, sjálfskiptingum og drifbúnaði úr yngri árgerðum. is eingöngu með hluti í Chevrolet Corvette eða sérfræðingar í að auka afl V-8 véla. Maðurinn sem hefur lagt aUan frítíma sinn undanfarin ár í að gera upp draumabílinn sinn, segjum Ford Victoria Crown 1956, og króm- ramminn utanum hægra afturljósið er heyglaður hann gat fundið óskemmdan ramma í einu sölutjald- inu. Og sá sem vantaði réttu klukk- una í Chevrolet pick-up 3100 árgerð 1952 hefði fengiö hana hjá klukkus- pesíalistanum. Sá var með lítið sölu- tjald, nokkur hundruð klukkur og ekkert annað. Og það var nóg að gera. Filman var því miður búin þeg- ar ég gekk fram á hann. Glæsileikanum, hugmyndaauðg- inni og handbragðinu verður ekki með orðum lýst en myndimar segja sitt. Bílasala í fyrrum A-Þýskalandi: OpelKadettog Renault 19 á toppnum Bins og áður hefur komið fram Nú hafa verið gerðar upp sölutöl- hér í DV-bílum hefur bílasala í ur fyrir hluta af síðasta ári og þar þeim hluta Þýskalands, sem áður kemur fram aö á fyrstu þremur tilheyrði austurblutanum, verið ársfjórðungum 1991 var Opel Kad- mjög rmkil allt frá því að múrinn ett í efsta sæti meðal nýskráðra féll. Mest hefur saian veriö í notuö- bíla meö 60.000 nýja bíla selda og um bílum frá vesturhlutanum og nokkuð óvænt er innfluttur bill í eins í mótomm í þann bílaflota sem öðru sæti en það er Renault 19 með fyrir var í landinu. 35.000 nýja bíla. Eftir tvö ár kemur arftaki Peugeot 405 á markað undir nafninu Peugeot 506. Þessi nýi 506 verður svipaður 605 í útliti og töluvert stærri en núver- andi 405, 4,5 metrar i stað 4,41 nú og þar af leiðandi töluvert rýmri. Þessi nýi bíll er byggður á svipuðum grunni og Citroen BX sem kemur líka frá PSA-samsteypunni en arftaki hans mun koma á næsta ári. Nýr jeppi í samvinnu Nissan og Ford Nissan og Ford eru í sameiningu að hanna nýjan jeppa. Þessi arftaki Patrol verður að sögn jafnt til sölu undir merkjum Ford og Nissan og helsti keppinauturinn verður að sögn þýska blaðsins Auto Bild Opel Frontera. Bíllinn á að koma á markað 1993/94. Þessi nýi jeppi kemur í tveimur gerðum, stuttri og langri, og er sá styttri á myndinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.