Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Qupperneq 12
12 Spumingin MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992. Hefurðu fylgst með tilraunaútsend- ingum hjá Sýn? Kristín Gísladóttir nemi: Nei. Davið Alexanderson: Nei, það hef ég ekki gert enda horfi ég ákaflega lítið á sjónvarp. Iðunn Andrésdóttir húsmóðir: Nei, ég vissi ekki einu sinni af því. Bjarni Árnason rafvirki: Það getur varla heitið. Ég hef horft á einn leik. Þetta er góð viðbót við það sem fyrir er. Þór Sigurðsson, starfsm. Mikla- garðs: Já, ég hef aðeins fylgst með því. Mér líst vel á en dagskráin mætti vera lengri. Sturla Magnússon framkvæmda- stjóri: Nei, ég næ þessu ekki á sjón- varpið hjá mér. Lesendur Veröbréf: Vaxtatekjur Guðmundur Gíslason skrifar: Mér sýnist að aðstæður hafi verið nokkuð erfiðar á verðbréfamarkað- inum undanfarið. Maður er hættur að sjá auglýst opinberlega gengi á hlutabréfum helstu fyrirtækjanna eins og lengi tíðkaðist og eftirspurn eftir hlutabréfum eða öðrum verð- bréfum hefur ekki verið jafn mikil og menn þóttust sjá fyrir að myndi verða. Viðskipti virðast satt að segja vera með daufara móti og eigendur verðbréfa eru ekki í rónni vegna ástandsins og hvemig það virðist ætla að þróast. Ástandið á vinnumarkaðinum flýt- ir heldur ekki fyrir að viðskipti auk- ist með verðbréf frekar en annað á meðan allt er í óvissu með fram- kvæmdir í landinu. Ekki þýöir að fara á verðbréfamarkað með hluta- bréf sín til sölu ef maður vill losa sig við þau því að þar eru ekki keypt bréf nema í takmörkuðum mæh. í það heila tekið hefur því vantrú fólks á hlutabréfum og verðbréfum hvers konar vaxið frekar en hitt og traust manna á bréfaviðskiptum er því í lágmarki. Raunar hefur sjaldan veriö á vísan að róa hér á landi fyrir þá sem eiga umfram fé í fórum sín- um. Eina haldreipið, sem dugað hef- ur, em fasteignir og menn vilja ógjarnan fórna þeim fyrir verðlítil verð- eða hlutabréf sem illa seljast. Ef ríkisstjórnin ætlar að halda fast „Bankar og sparisjóðir munu því enn verða haldreipi sparifjáreigenda." við boðskap sinn á skattlagningu fjármagnstekna er hún að reka síð- asta naglann í þá líkkistu sem lengi hefur staðið opin fyrir sparifjáreig- endur og aðra sem hafa ekki haft í önnur hús að venda en banka og aðrar innlánsstofnanir. Þeir hafa ekki treyst veröbréfunum eða fyrir- tækjum til að skila þeim jafntryggum vöxtum og þó eru í boði í bönkunum. Ég hef ekki þá trú að penigamarkað- inn hér á landi verði hægt að treysta að neinu marki. Til þess emm við íslendingar of tortryggnir á allt sem nýtt er og framandi þótt viðgengist hafi um langan aldur erlendis eins og verðbréfamarkaður. - Bankar og sparisjóðir munu því enn um sinn verða eina haldreipi sparifjáreig- enda. Fyrirhugaðar ráðstafanir rík- isstjórnarinnar í skattlagningu sparifjár eru því ekki til farsældar, hvorki fyrir þá sem standa undir lán- veitingum innlánsstofnana, sparifj- áreigendur, né ríkiskassann. Hann yrði ekki feitur af þessari ráðstöfun. Menntun, skyldur: Laun þroskaþjálfa Sólveig Steinsson og Svanhildur Jónsdóttir þroskaþjálfar skrifa: Við emm þroskaþjálfar og störfum í kjaranefnd Félags þroskaþjálfa. Mikillar óánægju gætir meðal ílestra stétta varðandi kaup og kjör og emm við í einni þeirra stétta. Þroskaþjálf- ar starfa samkvæmt lögum um þroskaþjálfa nr. 18/1978 og reglugerð um störf, starfsvettvang og starfs- hætti þroskaþjálfa nr. 15/1987. Nám í þroskaþjálfun fer fram í Þroska- þjálfaskóla íslands sem er fram- haldsskóli og tekur námið 3 ár. Félag þroskaþjálfa er fagfélag innan SFR. Hvað ætli það sé sem við erum óánægð með? í fyrsta lagi það að hægt sé að draga samningagerð svo lengi sem raun ber vitni, en ekki síð- ur hversu starf okkar er illa metið til launa. - Er hugsanlegt, að sama- semmerki sé milli þeirrar virðingar sem fatlaðir njóta í okkar samfélagi og þeirra launa sem talin em hæfileg fyrir þá er vinna með fötluðum? Þau laun sem verið er að tala um hér em þessi: Byrjunarlaun þroskaþjálfa eru kr. 56.668. Deildarþroskaþjálfi eftir 8 ára starf kr. 66.494. Deildarþroskaþjálfi eftir 9 ára starf með eins árs framhaldsnám úr ÞSÍ kr. 70.870. Að okkar mati er það fjarri lagi að þessi laun séu réttmæt og raunhæf, hvort sem horft er út frá menntun, skyldum og ábyrgð í starfi eða því hvort þau geti talist mannsæmandi. - Við skorum á viðsemjendur okkar að setjast hið fyrsta að samninga- boröinu og semja þannig að m.a. þroskaþjálfar geti stundað sína vinnu sem þeir hafa menntaö sig til og þjóðfélagið hefur kostað. Notaðirbílar: Hvað er raunhæft markaðsverð? samkomulagi við seljandann sjálfan. Það em víxlar, með eða án vaxta, skuldahréf í ýmsu formi. Og það sem meira er, það er hægt að ná sam- komulagi um staögreiöslu ef útborg- un þykir ásættanleg. Markaðsverð eða ekki markaös- verð. Auðvitað er ekkert til sem heit- ir markaösverð á'notuðum bíl. Verð- ið fer hreinlega eftir því hvernig við- komandi bíll lítur út og hvemig semst um kaup. Eina aðdráttaraílið, sem fær mig til að skoða notaðan híl hjá bílaumboðunum, er þegar þau auglýsa að bílamir séu skoðaðir 1992. Það segir manni að viðkomandi bíll hafi þó gengið gegnum nýlega athug- un. Það er stórt atriði í sölu notaðra bíla. „Auðvitað er ekkert til sem heitir markaðsverð á notuðum bílum,“ segir m.a. í bréfinu. Ólafur Magnússon skrifar: Það er nú að komast nokkurt líf í sölu notaðra bíla hjá bílasölum hér á höfuðborgarsvæðinu. í lesenda- dálki DV sá ég nýlega bréf þar sem bréfritari sagðist frekar skipta við hinar almennu bílasölur notaðra bíla en þær sem bifreiðaumboðin eru með. Einfaldlega vegna þess, sagöi hann, að hjá bifreiðaumboðunum væm notaðir bílar verðlagðir á föstu verði sem ekki væri hægt að hnika til. Hins vegar væri þar hægt að fá lán til lengri tíma á óhagkvæmum kjörum. Ég held að þessi bréfritari hafi nokkuö til síns máls. í raun selja bíla- umboðin ekki marga bíla á stað- greiðsluverði heldur á láns- eða kaupleigusamningi þar sem fæstir staðgreiða bílana. Á hinum venju- legu hílasölum eru bílar hins vegar auglýstir á ákveðnu veröi sem auð- velt er að hnika til á báða vegu. Þar er líka um alls kyns möguleika að ræða á greiðslukjörum, allt eftir DV áskilur sér rétt til aó stytta aðsend lesendabréf. L.P. hringdi: Ég vil taka undir tímabæra ádrepu formanns Félags fast- eignasala sem hefur gagnrýnt vinnubrögð verktaka í húsasmíð- um. Þetta hafa húshyggjendur iðulega þurft að líða vegna þess að þeir hafa hrehilega ekki þorað að gagnrýna vinnubrögðin af ótta við að menn hlypu frá verkinú. En það er einnig í öðmm iön- greinum sem vinnubrögöum er áfátt hjá okkur og það þyrfti að taka til umræðu í þjóðfélaginu. Davíðskákar Byggðastofnun Páll Ólafsson hríngdi: Það var frábært hjá Davíð Oddssyni að láta þaö koma fram opinberlega að þeir sem lengst og mest hafa talað um aö alltof mik- ið væri einblínt á Reykjavik sem miðstöð allra stofnana, opinberra sem annarra, hafa í raun engan áhuga fyrir að þessar stofnanir séu staðsettar úti á landsbyggð- inni. - Ég held aö nú Iiggi ljóst fyrir að þingmenn dreifbýlisins vilja ekki veg þess meiri en góðu hófi gegnir. Tílfundar íSfrasborg F.P. hringdi: Þaö var eftir þvi tekið þegar skýrt var frá því að forseti ASÍ og lögfræðingur og fram- kvæmdastjóri hefðu yfirgefið samningaboröm og flogið nætur- flug til Strasborgar til að sitja þar fund til aö skýra sjónarmið sin gagnvart ámælum fyrir að laun- þegum hér á landi er skylt að gerast aðilar að stéttarfélögum. Ég hef hins vegar ekki lesið fréttir um hvort forseti ASÍ og lögfræðingurinn hafi fiogið með venjulegum hætti, þ.e. í áætlun- arflugi, eða hvort þeir hafi tekið einkavél, sem áreíðanlega er margfalt dýrari. Ef satt reynist er það vissulega fréttaefni. Mótmælifisk' kaupumfráskip- um EB4anda K.S. skriför: Mér finnst aö þeir í Vestmanna- eyjum eigi alls ekki aö fá heimild til að kaupa fisk af skipum sem veiða við Nýfundnaland. Þetta eru skip frá EB-löndunum, aðal- lega Portúgal og Spáni. Þeir börð- ust harðast gegn því aö fslending- ar fengju tollfríðindi vegna EES- samninga við EB. Mér finnst að við eigum ekki að auðvelda þeira sem eru búnir að eyðileggja sín eigin mið að stunda rányrkju við Nýfundna- land. Vonandi standa sjómanna- samtök hér á landi meö starfs- bræðrum sínum á Nýfundna- landi og mótmæla harðlega. - Og á sama tíma er svo fluttur út gámafiskur til vinnslu erlendis! Eg bara næ þessu ekki. Guðm. Friðriksson hrrngdi: Ég hef ekki langa lengi mætt eins þægilegri og um leið alúö- legri og þjálfaðri símaþjónustu og þeirri hjá Radíóbúðinni. Þar var svo kurteis simadama að mér beinlínis kom það á óvart. Það er nefnilega ekki oft að maður hittir á svo fágaða og þaulæfða rödd í síma hjá fyrirtækjum hér. Mér þykir því rétt að minnast á þetta og láta það koma fram. Það er alltof oft sem maður heyrir þessi stööluðu svör og sönglandi símaraddir þegar maö- ur hringir í fyrirtækL Þetta fer þó batnandi verð ég að segjá, svona aimenntEnþama í Radíó- búðmni er dæmi um viðtökur sem ættu að vera sem víðast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.