Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992.
13
dv____________________________________Fréttir
Umhverflsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Ríó:
Á hana verður ekki
settur verðmiði
- segir Magnús Jóhannesson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra
Magnús Jóhannesson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra, og Eiður Guðna
son umhverfisráðherra.
„Á ráðstefnunni verður fjallað um
umhverfismál í víðasta skilningi.
Mörg þessara mála eru hyrningar-
steinar í lífi okkar íslendinga, til
dæmis þau sem varða fiskveiðar,
nýtingu sjávarspendýra, mengun
hafsins og eyðingu ósonlagsins. Fyrir
okkur sem sjálfstæða þjóð, sem bygg-
ir lífsafkomu sína á á náttúruauð-
lindum, hefur þessi ráðstefna ótví-
ræða þýðingu. Á hana er ekki hægt
að setja neinn verðmiða," segir
Magnús Jóhannesson, aðstoðarmað-
ur umhverfisráðherra.
Magnús er nýkominn af fjórða og
síðasta undirbúningsfundi fyrir um-
hverfisráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna sem fram fer í Ríó í byrjun júní.
Fundinum, sem fram fer í New York,
lýkur í lok vikunnar. Ráðstefnuna í
Ríó sitja leiðtogar 170 landa og taka
þeir afstöðu til Sáttmála um verndun
jarðar og framkvæmdaáætlunar í
umhverfismálum.
Á undirbúningsfundunum fjórum
hafa íslendingar látið sig mörg mál
skipta og lögðu meðal annars fram
átta tillögur um verndun hafsins. Að
sögn Magnúsar hafa margar þeirra
verið samþykktar, þar á meðal til-
laga um að ríki heims hætti losun
lífrænna og þrávirkra efna út í um-
hverfið. í tillögu íslands var reyndar
gert ráð fyrir að bannið tæki gildi
um aldamótin en ekki hefur náðst
samstaða um þá tímasetningu.
Auk þessa hafa íslendingar látiö sig
nýtingu sjávar miklu varða á fund-
unum. í því sambandi hafa þeir lagt
áherslu á að nýta beri allar lifandi
auðlindir í sjónum, þó þannig að ekki
sé gengið of nærri lífríkinu. Á síðasta
fundi komu Nýsjálendingar með þá
tillögu að hvalveiðum yrði hætt í 10
ár. Meðal annars vegna andstöðu ís-
lendinga hafa þeir sæst á að draga
hana til baka.
Auk þessa hafa íslensku fulltrú-
amir á fundunum unnið að því að
greint verði á milli endumýjanlegra
orkugjafa, til dæmis vatnsorku og
jarðhita, og mengandi, óendurnýjan-
legra orkugjafa, svo sem kjarnorku.
Að sögn Magnúsar er of snemmt
að segja til um hvemig sá texti verð-
ur sem lagður verður fyrir Ríó-ráð-
stefnuna. Það mun ekki koma í ljós
fyrr en undirbúningsfundinum í
New York lýkur. Hann segir ekki
útilokað að á ráðstefnunni sjálfri
komi fram tillögur sem ekki hafi
náðst samstaða um á undirbúnings-
fundunum.
Magnús segir að enn hafi ekki ver-
ið tekin nein ákvörðun um hversu
margir fari frá íslandi á ráðstefnuna.
Hann segir að auk þeirra sem fari á
vegum ríkisins verði einhver hópur
frá félagasamtökum með í förinni. í
því sambandi nefnir hann fulltrúa
atvinnurekenda, launþega og neyt-
enda en samtök þessara aðila hafi
lýst yfir áhuga á þátttöku.
„Formlega höfum við eitt atkvæði
í Rió rétt eins og Bandaríkin. Hins
vegar era þetta mjög viðamikil mál
og um þau er fjallað í mörgum nefnd-
um. Maður tekur ekki einn mann og
skiptir honum upp. Það væri mjög
misráðið ef við ætluðum aö fara að
senda einn mann til Rio de Janeiro
til að halda utan utan um öll þau
mikilvægu mál sem þar verða til
umfjöllunar."
Aðspurður segir Magnús sam-
þykktir Ríó-ráðstefnunnar ekki vera
lagalega skuldbindandi fyrir þátt-
tökuríkin. Á hinn bóginn muni verða
mikið vitnað til þeirra og gera megi
ráð fyrir að stefnumörkun á sviði
umhverfismála í einstökum ríkjum
munitakamiðafþeim. -kaa
SUMARBÚSTAÐUR
Starfsmannafélag óskar að kaupa vandaðan
sumarbústað, helst í Borgarfirði.
Um staðgreiðslu er að ræða og til greina
kemur einnig að kaupa innbú með.
Tilboð sendist DV, merkt „S-3943", fyrir
5. apríl nk.
Blaðamaður óskast
DV óskar eftir blaðamanni til að skrifa um viðskipta-
og efnahagsmál. Nauðsynlegt er að hann hafi einnig
þekkingu á notkun töflureikna og gagnagrunna.
Skriflegar umsóknir berist ritstjórum fyrir 4. apríl nk.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum eignum:
Höföabraut 14,02.02., þingl. eig. Krist-
inn Bjamason og Erla Haraldsdóttir,
fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn
3. apríl 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeið-
andi er Lögmannsstofan Kirkjubraut
11.
Jörundarholt 12, þingl. eigandi Sigríð-
ur Andrésdóttir, fer fram á eigninni
sjálfri föstudaginn 3. apríl 1992 kl.
11.30. Uppboðsbeiðendur eru Fjár-
heimtan hf., Veðdeild Landsbanka ís-
lands, Lögmenn Hamraborg 12 og
Lögmannsstofan Kirkjubraut 11.
Sóleyjargata 12, neðri hæð, þingl. eig-
andi Ingimundur Ingimundarson, fer
fram á eigninni sjálfri föstudaginn 3.
apríl 1992 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur
eru Ásgeir Thoroddsen hrl., Lög-
mannsstofan Kirkjubraut 11, Skúli
Bjamason hdl., Skúli J. Pálmason
hrl. og Landsbanki íslands.
BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI
...... HEIMILISTÆKl
VIÐ RÝMUM FYRIR NÝJUM LÍNUM
BOSCH
ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR
Því er einstakl tækifæri til að
eignast gæðatæki á góðu verði
- OFNAR
- HELLUBORÐ
- ÖRBYLGJUOFNAR
- KÆLISKÁPAR
- FRYSTISKÁPAR
- ÞVOTTAVÉLAR
- ÞURRKARAR
- GRILL
- DJÚPSTEIKINGARPOTTAR
Á sama tíma höfum við spennandi sértilboð á búsáhöldum
Jóhann Olafsson & Co
SUNDABOKt; U • 104 KKYKJAVÍK • SÍMI 6HH SKS
ZTENWZ T\L PAsm