Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1992, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1992. 17 Iþróttir igri síðan hann tók við sem þjálfari Vals og ; gegn Keflavík. DV-mynd GS KR-ingar fá gífurlegan liðsstyrk fyrir sumarið: Eyjólfur leikur með KR í frfinu - Eyjólfur og Guido Buchwald með KR og HK á sandgrasinu í kvöld Eyjólfur Sverrisson, landsliðsmaö- ur í knattspyrnu, mun leika með KR-ingum þar til keppnistímabilið í Þýskalandi hefst í ágúst. Frá þessu var endánlega gengið í gær- kvöldi en hinn nýi samningur, sem Eyjólfur skrifaði undir við Stutt- gart á dögunum, var gerður með þennan möguleika í huga. „Þetta hefur staðið til í nokkum tíma og ég er mjög spenntur fyrir því að leika í 1. deildinni heima á Islandi. Það verður ný reynsla íyrir mig og vonandi tekst mér að skora nokkur mörk fyrir KR-inga. Ég hafði síðan hugsað mér að verja hluta sumarleyfisins heima á Sauð- árkróki og því getur vel verið að ég nýti mér nýju reglumar um félaga- skipti og spih með Tindastóli nokkra leiki í 3. deild,“ sagði Eyjólf- ur í samtali við DV í gærkvöldi. Eyjólfur Sverrisson mátaði KR- búninginn við komuna til landsins í gær. DV-mynd EJ Hann mun ekki æfa stíft með KR, enda er um „sumarfrí" að ræða hjá honum. „Ég geri þetta mest til gam- ans, en einnig til að verða í góðri leikæfmgu þegar þýska úrvals- deildin hefst á ný,“ sagði Eyjólfur. Eyjólfur mun nýtast okkur KR-ingum vel „Við KR-ingar erum himinlifandi með að þetta mál skuli vera í höfn. Það er engin spuming að Eyjólfur mun nýtast okkur vel og styrkja hö okkur gífurlega. Það er verst að geta ekki notið krafta hans allt sumarið, en ég er sannfærður um að mörk þau sem Eyjólfur mun skora fyrir KR duga til þess að við verðum með yfirburðaforystu í deildinni þegar hann fer, og það verði aðeins formsatriði fyrir okk- ur eftir það að tryggja okkur ís- landsmeistaratitihnn í fyrsta skipti í 24 ár,“ sagði Lúðvík S. Georgsson, formaður knattspyrnudeildar KR. Eyjólfur með KR og Buchwald með HK Eyjólfur kom til landsins í gær- kvöldi og mun leika æfingaleik'með KR gegn HK á sandgrasvellinum í Kópavogi klukkan 19.50 í kvöld. Félagi hans úr Stuttgart, landshðs- maðurinn Guido Buchwald, kom með honum og mun spila með HK í þessum leik. Þeir fara síðan aftur til Þýskalands á morgun og leika með Stuttgart í úrvalsdeildinni á laugardaginn. Eyjólfur kemur síð- an alkominn til landsins eftir loka- leik Stuttgart í vor, sem er 16. maí, og verður löglegur með KR þegar 1. deildin hefst viku síðar. -VS/GH/JKS oker með sýningu í Njarðvík: ron hjá Val 9löngár síjarðvikur út eftir framlengingu, 78-82 um við að fylgja þessu eftir á móti Kefla- vík,“ sagði Franc Booker, besti maður vaharins, við DV eftir leikinn. Hann gerði fjórar þriggja stiga körfur í röð og gerði öll stig Vals frá 55 upp í 71! „Booker spilaði mjög vel, þetta var hálfgerð sýning hjá honum, en við höfð- um trú á því að við gætum unnið Njarð- vík og þetta er ólýsanlegt. Við komum með sama hugarfari gegn Keflavík, og vitum að þeir geta gert útum leikinn á 5 mínútna kafla. Þess vegna verðum við að spila allar 40 mínúturnar vel,“ sagði Tómas Holton, leikmaður og þjálfari Vals, sem hefur gert frábæra hluti með liðið síðan hann tók við því í vetur. „Ég óska Valsmönnum til hamingju og vona að þeir spih svona áfram gegn Keflavík. Við vissum að þessi leikur yrði erfiður en þegar við vorum komnir með góða stöðu í hálfleik urðum við of væru- kærir og sóknarleikurinn brást. Ef við hefðum náð að nýta vítaskotin betur hefðum við unnið leikinn," sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga. „Þeir eru á uppleið og spiluðu mjög vel, og eiga þetta skihð. Þetta var virki- lega skemmtilegur leikur, en ég held að við höfum ekki verið eins hungraðir og í fyrra, og það gæti haft áhrif að við vorum þegar búnir að vinna einn titil í vetur,“ sagði Teitur Örlygsson, Njarð- víkingur. Valsmenn hafa spilað mjög vel og skynsamlega í leikjunum við Njarðvík og í gærkvöldi náðu þeir að bijóta niður sóknarlotur heimamanna. Þeir hafa sýnt að þeir eiga á að skipa mjög góðu hði og hafa hafa ágæta breidd. Hver maöur skilar sínu hlutverki, mest ber á Booker en frammistöðu hans hefur þegar verið lýst, en aðrir gera vel það sem til er ætlast af þeim. Hjá Njarðvík var sóknarleikurinn í molum, vítanýtingin var slök, aðeins 56 prósent, og liðið skoraði ekki eina ein- ustu þriggja stiga körfu þrátt fyrir 10 skottilraunir! Njarðvíkurliðið hefur spil- að mjög vel í vetur, en í leikjunum viö Val náði það aldrei að sýna sitt besta, og svo virtist sem ósigurinn í fyrsta leiknum gegn Val setti hðið úr jafnvægi. Kristinn lék mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik, og Friðrik Ragnarsson átti ágæta kafla en aðrir náðu sér ekki vel á strik. Njarðvík (42) (73) 78 Valur (33) (73) 82 3-0, 9-9, 18-18, 26-20, 34-31, (42-33), 42-40, 49-42, 49^9, 57-58, 63-61, 67-67, 70-69,71-73, (73-73), 75-73,75-77,77-77, 77-80, 78-80, 78-82. Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygsson 24, Kristinn Einarsson 21, Friðrik Ragnarsson 15, Rondey Robinson 9, Sturla Örlygsson 7, ísak Tómasson 2. Stig Vals: Franc Booker 39, Tómas Holton 13, Svali Björgvinsson 11, Magnús Matthíasson 8, Ragnar Þór Jónsson 6, Símon Ólafsson 4, Guðni Hafsteinsson 1. Varnarfráköst: Njarövlk 28, Valur 28. Sóknarfráköst: Njarövík 10, Valur Bolta tapað: Njarðvík 9, Valur 7. Boita náð: Njarðvik 12, Valur 12. 3ja stiga: Njarðvík o, Vafur 10. Dómarar: Jón Otti Ólafsson ogKnst- inn Oskarsson, góð tök gertu sín mistök. Áhorfendur: 726. leiknum en United á topt ManchesterUnitederánýkomið yfir en CyrUle R( á topp 1. deUdar ensku knattspym- Viha. tinn ;gis jafnaði fyrir unnar eftir 1-3 sigur á Norwich í Michael Thomas >, SteveMcMana- gærkvöldi. Paul Ince skoraði tvö man, Ian Rush o mörk og Brian McClair eitt, en Lee skoruðu fyrir Li Power geröi mark Norwich. United sigri á Notts Coui hefur því eins stígs forskot á Leeds Úrslit í 2. deild og á einn leik til góða. Ipswich -Barnsley Úrsht í 1. deild í gærkvöldi: Plymouth -^Grims % Barry Venison iierpool í léttum ity. urðu þessi: 2-0 iy 1-2 Arsenal - Nott.Forest 3 3 "ort Va,e BiaeKbi 1111 u Aston Villa - Sheff.Utd 1-1 Portsmouth - Chai Liverpool - Notts County 4-0 Tranmere - Bristo Iton 1-2 City 2-2 Norwich - Manch.Utd... 1.3 Watford - Brightoi Lee Dixon, Paul Merson og Tony Wolves Newcastl Adams skomðu fyrir Arsenal en * undanurshtui Ian Woan, Nigel Clough og Roy keppnmnar vann Keane fýrír Forest í 3-3 leik lið- Celtic, 1-0, með t ....0—1 3«»..6—'2 n skosku bikar* Rangers sigur á marki frá Aily anna. McCoist- Kevin Gage kom Sheffield United -VS Hörður fyrir Atla - KSÍ í stríði vegna Amórs og Guðna Ein breyting hefur verið gerð á ís- lenska landshðshópnum í knatt- spyrnu sem leikur gegn ísraels- mönnum þann 6. apríl. Atii Helgason úr Víkingi getur ekki farið vegna próflesturs í Háskóla íslands og hef- ur FH-ingurinn Hörður Magnússon verið kallur í hópinn í hans staö. Bordeaux, félagið sem Amór Guðjohnsen leikur með, hefur gefið það út að Amór fái ekki leyfi til að leika umræddan leik og þá hafa for- ráðamenn Tottenham, hðs Guðna Bergssonar, óskað eftir því að Guðni verði ekki með. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði í samtali við DV að skýr ákvæði væru í samningum þessara leik- manna að KSÍ hefði rétt á leikmönn- unum í að minnsta kosti 7 leiki á ári. „Við erum þegar búnir að senda þeim erlendu félögum, sem íslenskir leikmenn leika meö, hsta yfir aha þá leiki sem við óskum eftir leikmönn- unum og leikurinn gegn ísrael er einn þeirra. Þetta er mikilvægur leikur í undirbúningi okkar fyrir heimsmeistarakeppnina sem hefst í maí og við munum ekki gefa okkur neitt í þessu máh,“ sagði Eggert. -GH ÍBR mfl. karla A-riðill KRR REYKJAVÍKURMÓT MEISTARAFLOKKUR KARLA ÍR-ÁRMANN í kvöld kl. 20.00 Á GERVIGRASINU I LAUGARDAL Landsliðs- konur úr KR til ÍA Landshðskonurnar Helena Ól- afsdóttir og Guðlaug Jónsdóttir hafa ákveðið aö yíirgefa KR og ganga til liðs við bikarmeistara IA. Ákvörðun þeirra kemur nokkuð á óvart þar sem KR-ingar hafa verið að fá mikinn hðsstyrk á síðustu dögum. „Þetta var búið að blunda lengi í okkur. Við höfum veriö lengi í KR og fannst kominn tími til að breyta til,“ sagði Helena Ólafs- dóttir. „Við vildum komast í hð utan höfuðborgarsvæðisins, það kom ekki til greina að fara í eitt- hvert hð hér á svæðinu. Skagahð- ið er gott og það verður ekkert sjálfgefið að komast í 11 manna hóp. Það er vissulega erfltt aö taka þá ákvörðun að fara frá KR en þær hafa verið að fá mannskap og 2. flokks stelpumar eru það sterkar að þær eiga auðveldlega að geta fyllt okkar skarð.“ Guðlaug Jónsdóttir tók í sama streng og Helena. „Við tókum þessa ákvörðun fyrst og fremst vegna þess að okkur langaði til að breyta til. Ég held að við höf- um gott af þessu, knattspymu- lega séð. Við þroskumst og verð- um vonandi betri knattspymu- konur." Ekki hefur enn verið gengið frá félagaskiptunum en aö sögn Hel- enu verður það vonandi fljótlega. KR-ingar hafa einnig misst Klöru Bjartmarz, markvörð. Hún hefur gengið frá félagaskiptum yfir í Stjörnuna. Klara var aðal- markvörður KR á síðasta tíma- bih, lék aha leiki hðsins og stóð sig vel. Þá hafa Valsstúlkurnar íris Eysteinsdóttir, Berghnd Jóns- dóttir og Birna Bjömsdóttir, markvörður stúlknalandshðsins, ákveöið að ganga til hðs við 2. deildar hö Hauka í Hafnarfirði. -ih

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.