Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1992, Page 5
24
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1992.
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1992.
25
Þannig skoruðu liðin mörkin:
Iþróttir
Molar úr
leiknum
Markatalan jöfn
Þegar tvær viöureignir eru að
baki er markatala liöanna jöfn.
Hvort lið hefur skoraö 60 mörk
eftir venjulegan leiktíma og fram-
lengingar. Þetta sýnir svo ekki
verður um villst hve liðin eru
jöfn að getu.
Þrjú víti í súginn
Þrjú vítaköst fóru í súginn hjá
FH-ingum gegn Selfyssingum á
laugardag. Gísli Felix varöi eitt
en tvö fóru fram hjá. Þau vega
þungt vítaköstin þegar upp er
staðið. Sigurður Sveinsson nýtti
hins vegar bæði vítaköst Selfyss-
inga.
Jöfnun í tvígang
FH-ingar hafa í tvígang jafnað
leikinn þegar leiktíminn hefur
verið að fjara út. Guðjón Ámason
jafnaði leikinn, 25-25, í Hafnar-
firöi í fyrsta leiknum og í annarri
viðureigninni jafnaði Hálfdán
Þórðarson af línunni, 23-23.
Eitt mark úr langskoti
FH-ingar áttu í efiðleikum með
að skora úr langskoti í fyrri hálf-
leik á Selfossi. Eina mark þeirra
úr slíku færi kom ekki fyrr en ein
mínúta var eftir af hálfleiknum.
í þeim síðari voru skoruð 9 mörk
úr langskotum.
Guðmundur fékk rautt
Guðmundur Karlsson, aöstoöar-
þjálfari FH, fékk að líta rauða
spjaldið hjá dómurunum um
miðjan síðari hálfleik. Guðmund-
ur mótmælti dómi þegar Hálfdán
Þórðarson skoraði mark af línu,
18-15. Dæmd var lína á Hálfdán
sem Guðmundur mótmælti.
Sigurður markahæstur
Sigurður Sveinsson er marka-
hæstur hjá Selfyssingum eftir
tvær viöureignir. Hann hefur
skorað 21 mark, þar af fimm úr
vítum. Einar Gunnar Sigurðsson
kemur næstur með 13 mörk.
Hans Guðmundsson er iðnastur
við markaskorunina hjá FH-
ingum, hefur skorað 18 mörk, þar
af fjögur úr vítum. Guðjón Árna-
son kemur næstur með 13 mörk,
þar af fimm úr vítum.
Einar vardeyfður
Selfyssingurinn Einar Guð-
mundsson, sem meiddist á læri í
fyrsta leiknum í Hafnarfirði, var
deyfður fyrir leikinn á Selfossi.
Meiðslin virtust ekki há honum
en Einar leikur stórt hlutverk í
sóknarleiknum.
Frábær skotnýting
Siguröur Sveinsson var með frá-
bæra skotnýtingu á Selfossi. Sig-
urður skoraði 14 mörk og á stat-
istik var hann með tæpa 90%
skotnýtingu sem getur varla orð-
iö betri. Sigurður hefur einnig
sýnt að hann getur leikið vöm.
Sjálfstraustið er lagi hjá Sigga
þessa dagana.
Hans í landsliðsklassa
FH-ingurinn Hans Guðmundsson
hefur leikið í landsliðsklassa í
úrslitakeppninni og raunar á ís-
landsmótinu öllu. Hans hefur
veriö áberandi besti maður FH-
Uðsins. Þorbergur Aðalsteinsson
hfýtur að hafa hann í huga þegar
hann velur landsUðshópinn til
sumaræfmga.
Dómarar í ströngu
Dómaramir í úrsUtakeppninni
em ekki öfundsverðir af hlut-
verki sínu. Auðvitað má aUtaf
finna eitthvað að dómgæslunni
en svona yfir höfuð hafa þeir
staðið vel í stykkinu. Dómgæslan
er mun betri nú en hún var fyrr
ímótinu. -JKS
íþróttir__________________
1. leikurinn
FH (11) 33
Selfoss (15) 30
2-0, 2-2, 5-5, 5-7, 7-8, 9-9, U-U,
(11-15). 13-15, 13-17, 14-19, 16-20,
19-20, 22-22, 22-24, 24-24, 24-25,
25-25.27-25, 28-26, 28-27, 30-27,
33-30.
Mörk FH: Guöjón Amason 10/5,
Hasn Guðmundsson 7/3, Hálfdán
Þóröarson 5, Kristján Arason 4,
Gunnar Beinteinsson 4, Sigurður
Sveinsson 2, Pétur Petersen 1. Var-
in skot Bergsveinn Bergsveinsson
18/3,
Mörk Selfoss: Einar Gunnar Sig-
urðsson 7, Sigurður Sveinsson 7/8,
Gústaf Bjamason 4, Einar Guð-
mundsson 4, Kjartan Gunnarsson
3, Jón Þórir Jónsson 2, Sverrir
Einarsson 1. Varin skot: 10/1, Einar
Þ. 1/1.
Brottrekstrar: FH 6 mín, Selfoss
6mín.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og
Sigurgeir Sveinsson, dæmdu ágæt-
lega.
Ahorfendur 1810.
Selfoss (11) 30
FH ( 9) 27
1-0, 2-2, 4-2, 5-5, 5-6, 6-7, 10-7,
11-7, (11-9). 12-9, 13-10, 14-11,
16-12, 16-15, 16-15, 19-19, 21-21,
22-22, 23-23.23-24, 24-24, 27-25,
28-27, 30-27.
Mörk Selfoss: Siguröur Sveins-
son 14/2, Einar Gunnar Sigurösson
6, Gústaf Bjamason 5, Siguijón
Bjarnason 2, Jón Þórir Jónsson 2,
Einar Guömundsson 1. Varin skot:
Gísli Felix Bjamason 16/1.
Mörk FH: Hans Guðmundsson
ll/l, Gunnar Beinteinsson 5, Sig-
urður Sveinsson 4, Guðjón Áma-
son 3, Hálfdán Þórðarson 3, Kristj-
án Arason 1. Varin skot: Berg-
sveinn Bergsveinsson 12, Haraldur
Ragnarsson 2.
Brottrekstrar: Selfoss 4 mín, FH
12 mín.
Dómarar: Óli P. Olsen og Gunnar
Kjartansson, gerðu sín mistök en
höfðu annars góð tök á erfíðum
leik.
Áhorfendur um 1000.
Molar úr
leiknum
Elnar undir smjásjánni
Selfyssingurinn Einar Gunnar
Sigurösson er einn efnilegasti
handknattleiksmaður sem komið
hefur fram um árabil. Einar hef-
ur allt til aö bera til að ná langt
og heyrst hefur að mörg af stóru
liðunum í Evrópu séu farin aö
líta hýra auga til hans.
Markvarslan góð
Markvarslan, sem var lengi höf-
uðverkur margra liða fyrri part
vetrar, er ekki lengur til trafala
nú. Markmenn beggja liða í úr-
slitakeppninni hafa varið mjög
vel. Bergsveinn Bergsveinsson
landsliösmarkvörður hefur stað-
ið fyrir sínu og Gísli Felix hjá
Selfyssingum er farinn að berja
allhressilega á dyrnar hjá Þor-
bergi landsliðsþjálfara.
Hraðaupphlaupin bág
Sigurður Sveinsson, homamað-
urinn hjá FH-ingum, fór illa með
hraðaupphlaupin í leiknum á Sel-
fossl Þijú hraðaupphlaup fóru
forgörðum hjá honum. Sigurði óx
ásmegin eftír því sem á leikinn
leiö og skoraði þá falleg mörk úr
hominu.
Kristján hálfur maður
FH-liöið væri án eía mtm beittara
ef Kristján Arason gæti beitt sér
sem skyldi i sókninni. Meiðsli í
öxl koma i veg fyrir þaö og mun-
ar um rainna.
„Sigurður hélt
okkur á f loti"
„Eför vonbrigöin í Hafnarfirði í
síðasta leik var fmmstólyrði að
vinna leikinn hér á Selfossi. Mínir
menn læröu ýmislegt af síðustu
framlengingu í fyrsta leiknum og
þjöppuðu sér vel saman. Sigurður
Sveinsson lék frábærlega vel og
hélt okkur nánast uppi á síðustu
minútum venjulegs leiktima.
Framhaldið í næstu leikjum verður
eins, úrslitin munu ekki ráðast fjrr
en á lokasekúndunum," sagði Ein-
ar Þorvarðarson, þjálfari Selfyss-
inga, eftír leikinn.
„Það hefur verið geysileg barátta
i leikjum þessara liöa og það er
mitt mat að það llðiö sem hefur
meiri kraft vínni titilinn. Það er
ekki nýtt fýrir okkur að Siguröur
og Einar Gunnar séu teknir úr
umferð. Við höfum staðið frammi
fýrir þessu vandamáli í allan vetur.
Viö eigum lausn á þessu máli en
óöryggi kom upp þegar Einar Guð-
mundsson meiddist í fyrsta leikn-
um,“ sagði Einar Þorvarðarson.
Einar Þorvarðarson.
Ólýsanleg stemning hefur verið á leikjunum til þessa. Á myndinni sést
skrautlegur hópur Selfyssinga hvetja sína menn til dáöa.
DV-mynd Brynjar Gauti
Selfyssingar fögnuðu sigrinum á viðeigandi hátt. Einar Guðmundsson ásamt
samherjum er i sjöunda himni með aö sigurinn er kominn i höfn .
DV-mynd Brynjar Gauti
Hvemig haga liðin undirbúningi?
Þriðja rimman
verður í kvöld
Þriðja rimman milli FH og Selfoss
um íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik verður í kvöld í Kaplakrika
klukkan 20. Eftir tvær vlðureignir
standar leikar jafnir, hvort lið hefur
unrúð einn leik.
En hvemig skyldu liðin búa sig
undir leitónn í kvöld:
„Við vorum með stutta æfmgu í
gær þar sem farið var yfir nokkur
atriöi. í dag munum við hittast á
fundi í Krikanum og leggja línumar
fyrir leitónn," sagði Kristján Arason,
þjálfari FH-inga.
„Ég gaf strákunum frí í gær, leik-
menn slöppuðu því af og fóru í simd.
í dag hittumst við þremur tímum
fyrir leitónn á Holiday Iim hótelinu
og förum yfir gamla leiki á mynd-
bandi," sagöi Einar Þorvarðarson,
þjáfari Selfossliösins.
-JKS
SELFOSS
17
3
Félögin eru mjög
jöf n að getu
- segir Kristján Arason
„Ég er mjög svekktur með úrslitin
í leiknum. Það er engin spuming að
einstaklingsframtak Sigurðar
Sveinssonar stópti sköpum í þessum
leik. Við gerðum aiit sem í okkar
valdi stóð til að stöðva hann en allt
kom fyrir ektó. Við munum grand-
skoða leik andstæðinga okkar fyrir
leikinn á mánudag (í kvöld) og eiim-
ig að finna út hvemig best sé að
stöðva Sigurð Sveinsson," sagöi
Kristján Arason, þjálfari og leikmað-
ur FH-inga, í samtali við DV eftir
leikinn á Selfossi.
„Það sjá allir eftir þessa tvo leitó í
úrslitakeppninni að liðin em mjög
jöfn að getu. Leitómir sem eftir eru
munu þróast með svipuðum hætti
og þeir sem búnir eru. Heimavellirn-
ir í þessu dæmi vegna þungt, það var
ekki aðeins að Sigurður færi á kost-
um heldur voru áhorfendur vel með
á nótunum. Ég ætia bara rétt að vona
að Siggi verði ekki í svona hörku-
formi í þeim leikjum sem eftir eru í
úrslitakeppninni," sagði Kristján
Arason.
-JKS
„Heimavöllurinn
ræður ótrúlega miklu“
- sagöi Hans Guðmundsson
„Heimavöllurinn ræöur ótrúlega
mitóu í keppni sem þessari. Heima-
völlurinn getur vegið 3-4 mörk. Þaö
er annars virkilega gaman að taka
þátt í úrslitakeppninni. Hún býður
upp á taugveiklunj spennandi leitó
og mikinn hasar. Eg vildi ektó með
nokkm móti missa af þessu. Leitóm-
ir hafa verið tvísýnir og úrslitin ektó
ráðist fyrr en á lokasekúndunum,"
sagði FH-ingurinn Hans Guðmunds-
son eftir leikinn á Selfossi.
„Dómaramir gerðu sín mistök í
leiknum en þau réðu samt ektó úr-
slitum. Það er hörð keppni framund-
an og ég yrði ektó hissa þótt leika
þyrfti fimm leitó,“ sagöi Hans.
-JKS
TJmdeildajöfhunarmarkið:
■ Langsko □ Hor
□ Gegnumbro O Cín
.---------------I—
Sigurður Sveinsson fór á kostum i öðrum leik Selfyssinga og FH-inga um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik á Selfossi á iaugardaginn var. Sigurður skoraði 14
mörk og á myndinni er eitt þeirra í uppsiglingu en þeir Hans Guðmundsson og Gunnar Beinteinsson koma engum vörnum við. Sigurjón Bjarnason er við öllu búinn
á línunni. DV-mynd Brynjar Gauti
FH seig fram úr í frantlengingu í Krikanum
- FH-ingar sigruðu Selfyssinga í fyrstu viðureigninni, 33-30
FH-ingar hófu úrslitakeppnina um varsla Bergsveins Bergsveinssonar og og það nýttu þeir sér til fulls þegar ar Gunnar Sigurðsson og Sigurður
íslandsmeistaratitilinn í handknatt- stórleikur Guðjóns Arnasonar sem Guðjón Ámason skoraði. Miklar um- Sveinsson hjá Selfyssingum.
leik með sigri á Selfyssingum í æsi- skóp sigur Hafnarfjaröarliösins. í ræður spruttu upp í kjölfar jöfhunar- Selfyssingar urðu fyrir mitólli blóð-
spennandi leik í Kaplakrika á timmtu- venjulegum leiktíma virtist allt ætla marksins og sýndist sitt hverjum en töku þegar Einar Guðmundsson varð
dagskvöldið var. Að loknum venjuleg- að stefha í sigur Selfyssinga sem voru martóð var engu að síður látið standa. að fara af leikvelli og kom brotthvarf
um Jeiktíraa var staðan jöfn, 25-25, en með eins marks forystu þegar örfáar Selfyssingar voru miklir klaufar að hans mikið niður á leik liðsins.
í frainlengmgu reyndust FH-ingar sekúndur voru til leiksloka. Ótíma- látaunnlnnleikrennasérúrgreipum. -JKS
sterkari og sigruðu, 33-30. bært skot þegar nokkrar sekúndur Eins og áður sagði voru Bergsveinn
Það var öðru fremur frábær mark- voru eftir gaf FH-ingum færi á aö jafna og Guðjón bestir hjá FH-liðinu en Ein-
„Einn besti leikur
minn á ferlinum"
- sagði 14 marka maðurinn Sigurður Sveinsson eftir sigur Selfyssinga á FH, 30-27
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Selfossi:
Úrslitakeppnin um íslandsmeistara-
titilinn í handknattleik hefur svo um
munar sannað ágæti sitt. Selfyssingar
og FH-ingar háðu annan leik sinn aust-
ur á Selfossi á laugardaginn var fyrir
troðfullu húsi eins og vænta mátti.
Áhorfendur höfðu þar fyrir augum
þrælgóðan handbolta, mikiö fjör og
spennu eins og hún best getur orðið.
Heimamenn gerðu sér lítið fyrir og sigr-
uðu í leiknum, 30-27, eftir framlengdan
leik og standa því leikar jafnir eftir tvær
viöureignir. Upphafsmínútur leiksins
gáfu fyrirheit um þaö sem á eftir kom.
Selfyssingar voru þó öllu beittari fram-
an af en Hafnfirðingar voru þá aldrei
langt undan, þeir náðu í eitt stópti for-
ystunni í fyrri hálfleik en í leikhléi
höfðu heimamenn tveggja marka for-
skot, 11-9.
í upphafi síöari hálfleiks tóku FH-
ingar það til bragðs að taka þá Einar
Gunnar Sigurðsson og Sigurð Sveins-
son úr umferð. Selfyssingar voru svo-
litla stund að átta sig á hlutunum en
smám saman gekk þessi taktík ekki upp
hjá FH-ingum. Selfyssingar náðu um
tíma fjögurra marka forskoti en FH-
ingar jöfnuðu. Undir lok venjulegs leik-
tíma stefndi allt í sigur Selfyssinga en
Hálfdán Þórðarson jafnaði, 23-23, þegar
leiktíminn var að fjara út.
í framlengingu reyndust Selfyssingar
sterkari og tryggðu sér öruggan sigur,
30-27.
Sigurður Sveinsson
sigurvegari leiksins
Segja má að sigurvegari þessa leiks
hafi enginn annar verið en Sigurður
Sveinsson. Sigurður lék á als oddi og
skoraði hvortó meira né minna en 14
mörk og aðeins tvö af þeim komu úr
vítaköstum. Ekkert stöðvaði Sigurð en
sex af mörkum hans komu upp úr auka-
köstum þar sem hann stökk jafnfætis
upp fyrir framan vörn FH-inga og bolt-
inn söng í netinu. Óhætt er að fullyrða
að Sigurður hafi aldrei á sínum litríka
ferli sem handknattleiksmaður leitóð
jafn vel og einmitt á þessu íslandsmóti.
En hvað skyldi Sigurður sjálfur segja
um frammistöðu sína í leiknum:
„Ég komst í feiknalegt stuð í leiknum
og ég held að þetta sé með betri leikjum
sem ég hef leitóð á ferlinum. Það gekk
nánast allt upp hjá mér. Þetta var virki-
lega skemmtilegur leikur og það er mín
trú að svona verði leitórnir sem eftir
eru í þessari úrslitakeppni. Við þjöpp- .
uðum okkur vel saman fyrir framleng-
inguna, ákveðnir í að berjast til síðasta
blóðdropa og það gekk eftir sem betur
fer. Það er mitóð álag á leikmönnum
beggja liða og það lið sem hefur betra
úthald stendur uppi sem íslaudsmeist-
ari,“ sagði Sigurður Sveinsson í samtali
við DV eftir leikinn á Selfossi á laugar-
daginn.
Einar Gunnar Sigurðsson komst vel
frá sínu þrátt fyrir stranga gæslu. Gísli
Felix Bjamason varði á köflum stórvel
í markinu. Einar Guðmundsson og
Gústaf Bjamason voru drjúgir á mitól-
vægum augnablikum.
Hans Guðmundsson var yfirburða-
maður í FH-liðinu, án hans væri liðið
ektó eins sterkt og það er í dag. Gunnar
Beinteinsson var einnig góður og
Kristján Arason var sem klettur í vörn
aö venju en er hálfur maður í sóknar-
leiknum og varla það vegna meiðsla í
öxl.
Engin kæra
lögð fram
- Einar áfram þjálfari Selfyssinga
„Þaö var sameiginleg ákvörðun
stjómar handknattleiksdeildar og
leikmanna að kæra ektó umrætt at-
vik sem átti sér staö í fyrsta leiknum
í úrslitakeppninni gegn FH-ingum í
Kaplakrika á fimmtudagskvöldið
var. Við töldum að með kæm hefðum
við stefnt úrslitakeppninni í hættu.
Kepnnin hefði óhjákvæmileg dregist
á langinn þannig að öll stemning
hefði minnkað en handboltinn má
alls ektó viö slíku. Menn vildu klára
íslandsmótið með sæmd. Á hinn bóg-
inn munum við senda dómaranefnd-
inni bréf þar sem við fordæmum
vinnubrögðin við timagæslu á leikn-
um,“ sagði Þorgeir Ingi, formaður
handknattleiksdeildar Selfoss, í sam-
tali við DV í gær.
Einar áfram þjáifari
Þorgeir Ingi var inntur eftir þjálfara-
málum fyrir næsta tímabil og sagði
hann að ektó væri búið að ganga
formlega frá þeim málum en hann
ætti ektó von á öðru en Einar Þor-
varðarson yrði áfram þjálfari liðsins.
Þorgeir Ingi sagði í framhaldi að
engar breytingar væru heldur fyrir-
sjáanlegar hvað leikmenn varðaði.
-JKS