Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1992, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1992.
27
Iþróttir
Svartur frá Unalæk stóð efstur i flokki fjögurra vetra stóðhesta. Eigandi hans, Oddur Björnsson, stendur yst til
vinstri, þá Leifur Kr. Jóhannesson og loks Þórður Þorgeirsson knapi meö Svart.
Stóðhestasýning 1 Gunnarsholti um helgina:
Svartur frábær
Hin árlega sýning Stóðhestastöðv-
arinnar í Gunnarsholti var haldin 2.
maí. Geysilegur fjöldi manna mætti
á staðinn hvaðanæva af landinu.
Talið er að allt að þijú þúsund manns
hafi lagt leið sína í Gunnarsholt.
Aðstæður í Gunnarsholti hafa
breyst töluvert fyrir staðarhaldara.
Nýtt stóðhestahús var tekið í notkun
síðastliðið haust, glæsilegt mann-
virki sem getur hýst 65 stóðhesta.
Aðstaða fyrir hestana og þá sem
vinna við umsjón þeirra er góð enda
voru hestarnir vel fóðraðir og húsiö
tandurhreint og fint.
Þar eru nú fóðraðir sextíu og tveir
stóðhestar: tólf veturgamlir, tíu
tveggja vetra, tólf þriggja vetra, íjórt-
án fjögurra vetra, níu fimm vetra og
fimm sex vetra eða eldri. Fjögurra
vetra stóðhestarnir og þeir eldri voru
allir fulldæmdir utan tveir sem voru
meiddir: Galdur frá Sauðárkróki og
Stormur frá Stórhóli.
Eiríkur Guðmundsson hefur haft
með höndum umsjón stöðvarinnar í
vetur en auk hans hafa Þórður Þor-
geirsson, Elvar Einarsson, Kristín
Lárusdóttir og Anna Thunstedt
starfað á stöðinni. Eiríkur, Þórður
og Elvar sýndu stóðhestana í dómi
og á sýningunni.
Sörli á flesta afkomendur
Ef litið er á ættir þeirra sextíu og
tveggja stóðhesta sem eru á stöðinni
kemur í ljós að Kjarval frá Sauðár-
króki á þar níu syni, Gassi frá
Vorsabæ, Hrafn frá Holtsmúla og
Ljóri frá Kirkjubæ íjóra, Feykir frá
Hafsteinsstöðum, Léttir frá Sauðár-
króki, Otur frá Sauöárkróki, Ófeigur
frá Flugumýri og Angi frá Laugar-
vatni þrjá hver, en aðrir minna.
FlestaÚir stóðhestamir geta rakiö
ættir sínar í beinan hrossalegg til
eftirtalinna: Sörla frá Sauðárkróki,
sem á 23 afkomendur á Stóöhesta-
stööinni, Þáttar frá Kirkjubæ sem á
15 afkomendur og Hrafns frá Holts-
múla sem á 13 afkomendur.
Þá er ekki tekið tilfit til mæöranna,
sem margar hveijar eru einnig
skyldar fyrmefndum stóðhestum.
Alls á þijátíu og einn stóðhestafaðir
son á stóðhestastöðinni.
Fimm fengu 8,00 eða meira
Alls vom fulldæmdir 26 hestar. 16
þeirra em uppaldir á Stóðhestastöð-
inni, en 10 eru í tamningu á kostnað
eigendanna. Fyrst skal getið þeirra
sem eru uppaldir á stöðinni. Þrír af
fjórum fimm vetra hestanna fengu
yfir 8,00 í aðaleinkunn. Farsæll frá
Ási, undan Náttfara og Vöku frá Ási,
fékk 8,28 fyrir byggingu og 7,93 fyrir
hæfileika, 8,10 í aöaleinkunn.
Glæðir frá Hafsteinsstöðum, undan
Feyki og Glóð frá Hafsteinsstöðum,
fékk 7,88 fyrir byggingu og 8,33 fyrir
hæfileika, 8,10 í aðaleinkunn.
Ernir frá Efri-Brú, undan Kjarval
og Pamelu frá Efri-Brú, fékk 7,93 fyr-
ir byggingu og 8,13 fyrir hæfileika,
8,03 í aðaleinkunn.
Þá er ógetið Léttis frá Grundar-
firði, undan Viðari og Sunnu frá Fá-
skrúðarbakka, sem fékk 7,98 fyrir
byggingu, 7,99 fyrir hæfileika og 7,98
í aðaleinkunn.
Svartur fékk hæstu einkunn
Fjögurra vetra stóðhestarnir vöktu
mikla athygli. Tveir þeirra fengu 8,00
eða meir í aðaleinkunn. Svartur frá
Unalæk, undan Kjarval og Fiðlu frá
Snartarstöðum, fékk hæstu einkunn
allra hesta á stöðinni, 8,16 í aðalein-
kunn. Hann fékk 8,18 fyrir byggingu
og 8,14 fyrir hæfileika.
Gumi frá Laugarvatni, undan Pá
og Glímu frá Laugarvatni, fékk 8,02
í aðaleinkunn. Hann fékk 8,18 f>TÍr
byggingu og 7,86 fyrir hæfileika.
Gumi fékk meðal annars 9,0 fyrir
háls og herðar.
Þá vakti Gnýr frá Hrepphólum
mikla athygli. Hann er undan Gassa
og Gígju frá Drumboddsstöðum.
Hann fékk 7,96 í aðaleinkunn, 7,95
fyrir byggingu og 7,97 fyrir hæfileika,
þar af 9,0 fyrir tölt.
Sex hestar fengu 8,00 eða meir fyr-
ir byggingu og þrír fengu 8,00 eða
meir fyrir hæfileika.
Stóðu fyrir sínu
Tiu hestar, sem eru í tamningu á stóö-
hestastöðinni, fengu einnig dóm. Tveir
sex vetra hestar fengu 8,00 eða meir.
Stormur frá Bólstað, undan Otri og
Von frá Bjamarstöðum, fékk 8,07 í
aðaleinkunn, 7,68 fyrir byggingu og
8,46 fyrir hæfileika.
Mozart úr Garðabæ fékk 8,04 í aðal-
einkunn. Hann er undan Óði og Hrafn-
hettu frá Reykjavik. Mozart fékk 7,78
fyrir byggingu og 8,30 fyrir hæfileika.
Tveir fimm vetra hestar fengu 8,00
eða meir. Kjamar frá Kjamholtum,
undan Kolgrími og Hrefnu frá Holts-
múla fékk 8,11 í aðaleinkunn. Hann
fékk 8,15 fyrir byggingu og 8,07 fyrir
hæfileika.
Seimur frá Víðivöllum fékk 8,06 í
aðaleinkunn. Hann fékk hæstu hæfi-
leikaeinkunn allra hestanna, 8,50, en
einungis 7,63 fyrir byggingu. _ej
Farsæll frá Ási á mikilli ferð. Knapi er Eirikur Guðmundsson.
DV-myndir EJ
íbr mfl. karla A-riðill krr
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
FYLKIR - ÍR
í kvöld kl. 20.00
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
Félagsfundur
Félag starfsfólks í veitingahúsum heldur félagsfund
vegna nýgerðs kjarasamnings og sáttatillögu ríkis-
sáttasemjara mánudaginn 4. maí 1992 kl. 17.00 í
Baðstofunni, Ingólfsstræti 5. Að fundi loknum geta
félagsmenn tekið þátt í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt
í atkvæðagreiðslunni.
Félagsfundur
Félag hárgreiðslu- og hárskerasveina heldur félags-
fund vegna nýgerðs kjarasamnings og sáttatillögu
ríkissáttasemjara mánudaginn 4. maí 1992 kl. 19.00
í Baðstofunni, Ingólfsstræti 5. Að fundi loknum geta
félgasmenn tekið þátt í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt
í atkvæðagreiðslunni.
ALLSHERJARAT-
KVÆÐAGREIÐSLA UM
MIÐLUNARTILLÖGU
RÍKISSÁTTASEMJARA
Allsherjaratkvæðagreiðsla um miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara, sem var lögð fram þann 26. apríl sl„
hefst á félagsfundi VR í kvöld, 4. maí, á Hótel Sögu,
Súlnasal, og verður framhaldið þriðjudaginn 5. maí
og miðvikudaginn 6. maí í húsakynnum félagsins á
9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Kjörfundur stendur báða dagana frá kl. 4)9.00 til
21.00.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu félagsins.
Kjörstjórn.
NÁM í TANNSMÍÐASKÓLA ÍSLANDS
Umsókn skal senda til Tannsmíðaskóla Islands co.
skrifstofu Tannlæknadeildar Háskóla Islands, Vatns-
mýrarvegi 16, 101 Reykjavík.
Umsókn skal hafa borist fyrir 1. júní næstkomandi.
Inntökuskilyrði:
Umsækjandi skal hafa lokið grunnskólaprófi og hafa
jafngildi stúdentsprófs í ensku og einu Norðurlanda-
máli, auk þess er undirstöðuþekking í efnafræði
æskileg.
Umsókn skal fylgja:
1. Staðfest afrit eða Ijósrit af prófskírteinum.
2. Læknisvottorð um almennt heilsufar ásamt vott-
orði um óbrenglað litskyggni.
3. Meðmæli sem kynnu að skipta máli.
Skólanefnd Tannsmíðaskóla íslands.