Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1992, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1992, Síða 8
28 MÁNUDAGUR 4. MAÍ 1992. VERSLITNIN AILT AUGLÝSIR Margar nýjar tegundir af garni. Ný bómullarefni, gott verð. 15% kynningarafsláttur. Góðar vörur - gott verð. VERSLUNIN ALLT, DRAFNARFELLI6 SÍMI 78255 Lögreglustöð, Egilsstöðum Héraðsdómur Austurlands Tilboð óskast í innanhússfrágang á lögreglustöðinni á Egilsstöð- um. Húsið er samtals 760 m2 að gólffleti. Verktími fyrir efri hæð er til 21. september 1992 en fyrir allt verkið til 1. mars 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri í Borgartúni 7, Reykja- vík, til og með fimmtudeginum 14. maí 1992 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni 7, Reykjavík, þriðjudaginn 19. maí kl. 11.00 f.h. IIMNKAUPASTOFIMUN RIKISINS BORGARTUNI 7. 105, REYKJAVIK URSUT ASKRIFENDAL Dregið hefur verið i áskrifendaleik Kaupþings. Fyrstu verðlaun, Einingabréf fyrir 100.000 krónur, hlaut Haukur Þórðarson Vatnsholti 311 Borgarnesi kt: 251154-3769 Kaupþing óskar vinningshafanum og öðrum áskrifendum Einingabréfa góðrar og ávöxtunarríkrar framtíðar - með Löggilt verðbréfafyrirtœki Einingabréfum. Kringlunni 5, stmi 689080 KAUPÞING HF r jj Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins. Dagskrá og ársreikningur félagsins liggja frammi til sýnis fyrir hluthafa á skrifstofu félagsins að Skólavörðustíg 12, 2. hæð, Reykjavík. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórn Hlutabréfasjóðsins hf. I . ■— AÐALFUNDUR HLUTABRÉFASJÓÐSINS HF. Aðalfundur Hlutabréfasjóðsins hf. verður haldinn á Hótel Sögu, Ársal, 2. hæð í ráðstefnuálmu, miðvikudaginn 6. maí 1992 og hefst hann kl. 17.15. Iþróttir Magnús Korntopp, ÍFR, sigraði í lyftingum þroskahettra á Hængsmótinu um heigina. Tíunda Hængsmót fatlaðra á Akureyri: DV-mynd GK Reykvíkingar unnu Hængsmótsbikarinn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Um 120 keppendur tóku þátt í 10. Hængsmóti fatlaðra íþróttamanna sem haldið var á Akureyri um helg- ina en Lionsklúbburinn Hængur hef- ur staðið fyrir þessu móti frá því árið 1983. Mótið er fjölmennasta íþróttamót fatlaðra ef íslandsmót þeirra er undanskiiið og umfangs- mesta verkefnið sem Hængsmenn taka að sér ár hvert en þeir annast sjálfir alla framkvæmd mótsins. Á mótinu nú var í fyrsta skipti veitt- ur nýr bikar, því félagi sem fær flest stig, Hængsmótsbikarinn, og var það íþróttafélag fatlaðra, Reykjavík, sem vann bikarinn. Þá er veittur bikar þeim Akureyringi sem nær bestum árangri í mótinu, Hængsbikarinn, og kom hann að þessu sinni í hlut Sigur- rósar Karlsdóttur, íþróttafélaginu Akri. Sigurrós sigraði í einstaklings- keppni hreyfihamlaðra í boccia, vann Elvar Thorarensen, Akri, í úr- shtum. Hún sigraði einnig í opnum flokki kvenna í borðtennis og var í sigursveit Akurs sem sigraði í sveita- keppni í boccia. Elvar Thorarensen, Akri, í sigraði í opnum flokki karla í borðtennis. í lyfdngum hreyfihamlaðra sigraði Þorsteinn Sölvason, ÍFR, eftir harða keppni. í bogfimi keppa bæði fatlaðir og ófatlaðir íþróttamenn og þar var keppt í þremur flokkum. Gunnlaug- ur Bjömsson, Akri, sigraði í opnum flokki, Leifur Karlsson, ÍFR, í flokki karla, og Stefanía Eyjólfsdóttir í kvennaflokki. Þroskaheftir íþróttamenn kepptu í boccia og lyftingum og þar er jafnan háð hörð kepþni sem ekki er síður skemmtilegt að fylgjast með enda keppnisgleðin geysileg. í sveita- keppni í boccia sigraði C-sveit Eikar á Akureyri, í einstaklingskeppninni Þór Jóhannsson, Snerpu, og í lyfting- um sigraði hinn „ógurlegi“ Magnús Komtopp. Boccia þroskaheftra: 1. Þór Jóhannsson, Snerpu. 2. Aðalsteinn Friðjónsson, Eik. 3. íris Gunnarsdóttir, Snerpu. Boccia hreyfihamlaðra: 1. Sigurrós Karlsdóttir, Akri. 2. Elvar Thorarensen, Akri. 3. Elma Finnbogadóttir, ÍFR. Sveitakeppni hreyfihamlaðra í bocc- ia: 1. Akur A. 2. ÍFR A. 3. Akur B. Sveitakeppni þroskaheftra í boccia: 1. Eik C. 2. Snerpa A. 3. ívar B. Lyftingar þroskaheftra: 1. Magnús Korntopp, ÍFR. 2. Gunnar Örn Erlingsson, Ösp. 3. Jón E. Guðvarðarson, Ösp. Lyftingar hreyfihamlaðra: 1. Þorsteinn Sölvason, ÍFR. 2. Jón Stefánsson, Akri. 3. Reynir Kristófersson, ÍFR. Borðtennis kvenna: 1. Sigurrós Karlsdóttir, Akri: 2. Hulda Pétursdóttir, NES. 3. Sigríður Geirsdóttir, ÍFR. Borðtennis karla: 1. Elvar Thorarensen, Akri. 2. Jón Heiðar Jónsson, ÍFR. 3. Viðar Árnason, ÍFR. Bogfimi kvenna: 1. Stefanía Eyjólfsdójfir, ÍFR. 2. Björk Jónsdóttir, ÍFR. Bogfimi karla: 1. Leifur Karlsson, ÍFR. 2. Jón Eiríksson, ÍFR. 3. Óskar Konráðsson, ÍFR. Bogfimi, opinn flokkur: 1. Gunnlaugur Bjömsson, Akri. 2. Þröstiu- Steinþórsson, IFR. 3. Jón Heiðar Leifsson, ÍFR. Lið Eikar, sem sigraði í sveitakeppni þroskaheftra, frá vinstri: Magnús Asmundsson, Sævar Bergsson og Nanna Haraldsdóttir. \ DV-mynd GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.