Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Side 4
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992. 30 Mótorhjól Merkilegasti gripurinn á breska mótorhjólasafninu er án efa þetta sérstæða hjól, 850cc Wilkinson frá árinu 1912. Hjólið er með 4 strokka vatnskælda vél með hliðarventlum, þriggja hraða girkassa, drifskafti og fjöðrun bæði að framan og aftan. Erfitt var að stýra þessu langa hjóli en oftast var það með áföstum hliðarvagni. Framleiðand- inn, Wilkinson, er í dag þekktari fyrir framleiðslu rakvélarblaða en mótorhjóla. Heimsókn á „National Motorcycle Museum" á Englandi: Saga breskra mótorhjóla á einum staö hins vegar skoða glæsilegasta safn mótorhjóla í heiminum þá verða þeir að leggja leið sína til Englands, nánar tiltekið til Solihull í nágrenni Birm- ingham en þar er „The National Motorcycle Museum" og þar gefur að líta fleiri hundruð mótorhjóla sem segja sögu bresks mótorhjólaiðnaöar sem var nánast einráður í heiminum fyrstu sextíu ár þessarar aldar. Annar umsjónarmanna DV Bíla átti þess kost á dögunum að ganga um sali þessa merka safns og virða fyrir sér þessa einstæðu gripi sem þar eru til sýnis. Safninu er skipt í fjóra aðalsali. í þeim fyrsta er rakin saga fyrstu 60 áranna, eitt hjól fyrir hvert ár frá 1902 til 1961 sýnir vel hvemig breski mótorhjólaiðnaöurinn þróaðist ár frá ári. Fyrstu hjólin voru varla meira en reiðhjól með hjálparvél en það var sérstætt að sjá hversu fljótt þau þróuðust í það form sem við þekkjum mótorhjólin í dag. í sal tvö gaf að líta mótorhjól meö vélar undir 500cc og yfir 500cc í sal þijú. í íjórða aðalsalnum var hins vegar safn keppnishjóla frá ýmsum tímum, sum harla sérstæð og kraft- mikil. Fyrir þá sem ekki eru svo fróðir um mótorhjól er þaö nánast upplifun að ganga þama um sali og sjá hvern- ig mótorhjólið hefur þróast í áranna rás. Hvernig hjóhn þróuðust frá reið- hjólum yfir í mótorhjól. í fyrstu var vélaraflið flutt frá vélinni til aftur- hjólsins.með reimdrifi, síðan kom keðjudrif og á tímabih var notað drif- skaft líkt og í bílum. Bara það eitt hvemig bensíntankar þróuðust úr því að vera „flattank“ yfir í „roundtank" er kafli í þróunar- sögunni. Nú er undirritaöur ekki mikill áhugamaður um slíka „mótorfáka" sem þama vom til sýnis en samt sem Áhugi á mótorhjólum hefur aukist stórlega hér á landi á undanförnum ámm sem sést best á þeirri glæsilegu mótorhjólasýningu sem nú stendur yfir í Perlunni. Vilji sannir mótorhjólaáhugamenn Þetta sérstæða hjól með „tvöföldu" að aftan er Brough Superior frá árinu 1932. Þetta hjól var 4 strokka Austin-vél með hliðarventlum og álheddi, hefðbundinni „bílvélasmurningu" og rafmagnsstartara. Gírkassinn er þriggja gíra auk afturábakgirs. Tvöföldu hjólin að aftan voru knúin með drifskafti í stað keðju. Svipmyndir frá safninu. Efst er tveggja sæta glæsifákur þar sem farþeginn situr i bólstruðum stól fyrir framan ökumanninn. Næst er eitt af eldri hjólun- um með stórri tveggja strokka vél. Þriðja hjólið er Triumph sem margir þekkja frá fyrri árum hér á landi. Fjórða hjólið er dæmi um hjól sem byggt hefur verið til þess eins að setja hraðamet og neðst eru tveir góðir fulltrú- ar BSA-hjólanna, annað frá heimsstyrjöldinni siðari og hitt nýrra. tlfty . m i -—- iH . . rrWÉt i ^ -í VeB áður er þetta safn vel þess virði að sækja þaö heim, jafnvel þótt menn hafi aöeins takmarkaðan áhuga á hjólum. Fyrir sanna mótorhjóla- menn er það sjálfsagður hlutur að leggja lykkju á leið sína og koma þama við ef þeir á annað borð eru á ferð um England. Til leiðbeiningar þá er safnið við vegamót 6 á M42-hraðbrautinni þar sem hún sker A45 rétt hjá „National Exhibition Centre" skammt austan Birmingham, um eina mílu frá flug- vellinum og járnbrautarstöðinni í Birmingham. -JR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.