Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Qupperneq 4
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992.
30
Mótorhjól
Merkilegasti gripurinn á breska mótorhjólasafninu er án efa þetta sérstæða hjól, 850cc Wilkinson frá árinu 1912.
Hjólið er með 4 strokka vatnskælda vél með hliðarventlum, þriggja hraða girkassa, drifskafti og fjöðrun bæði að
framan og aftan. Erfitt var að stýra þessu langa hjóli en oftast var það með áföstum hliðarvagni. Framleiðand-
inn, Wilkinson, er í dag þekktari fyrir framleiðslu rakvélarblaða en mótorhjóla.
Heimsókn á „National Motorcycle Museum" á Englandi:
Saga breskra
mótorhjóla á
einum staö
hins vegar skoða glæsilegasta safn
mótorhjóla í heiminum þá verða þeir
að leggja leið sína til Englands, nánar
tiltekið til Solihull í nágrenni Birm-
ingham en þar er „The National
Motorcycle Museum" og þar gefur
að líta fleiri hundruð mótorhjóla sem
segja sögu bresks mótorhjólaiðnaöar
sem var nánast einráður í heiminum
fyrstu sextíu ár þessarar aldar.
Annar umsjónarmanna DV Bíla
átti þess kost á dögunum að ganga
um sali þessa merka safns og virða
fyrir sér þessa einstæðu gripi sem
þar eru til sýnis.
Safninu er skipt í fjóra aðalsali. í
þeim fyrsta er rakin saga fyrstu 60
áranna, eitt hjól fyrir hvert ár frá
1902 til 1961 sýnir vel hvemig breski
mótorhjólaiðnaöurinn þróaðist ár
frá ári. Fyrstu hjólin voru varla
meira en reiðhjól með hjálparvél en
það var sérstætt að sjá hversu fljótt
þau þróuðust í það form sem við
þekkjum mótorhjólin í dag.
í sal tvö gaf að líta mótorhjól meö
vélar undir 500cc og yfir 500cc í sal
þijú. í íjórða aðalsalnum var hins
vegar safn keppnishjóla frá ýmsum
tímum, sum harla sérstæð og kraft-
mikil.
Fyrir þá sem ekki eru svo fróðir
um mótorhjól er þaö nánast upplifun
að ganga þama um sali og sjá hvern-
ig mótorhjólið hefur þróast í áranna
rás. Hvernig hjóhn þróuðust frá reið-
hjólum yfir í mótorhjól. í fyrstu var
vélaraflið flutt frá vélinni til aftur-
hjólsins.með reimdrifi, síðan kom
keðjudrif og á tímabih var notað drif-
skaft líkt og í bílum.
Bara það eitt hvemig bensíntankar
þróuðust úr því að vera „flattank“
yfir í „roundtank" er kafli í þróunar-
sögunni.
Nú er undirritaöur ekki mikill
áhugamaður um slíka „mótorfáka"
sem þama vom til sýnis en samt sem
Áhugi á mótorhjólum hefur aukist
stórlega hér á landi á undanförnum
ámm sem sést best á þeirri glæsilegu
mótorhjólasýningu sem nú stendur
yfir í Perlunni.
Vilji sannir mótorhjólaáhugamenn
Þetta sérstæða hjól með „tvöföldu" að aftan er Brough Superior frá árinu
1932. Þetta hjól var 4 strokka Austin-vél með hliðarventlum og álheddi,
hefðbundinni „bílvélasmurningu" og rafmagnsstartara. Gírkassinn er
þriggja gíra auk afturábakgirs. Tvöföldu hjólin að aftan voru knúin með
drifskafti í stað keðju.
Svipmyndir frá safninu. Efst er tveggja sæta glæsifákur þar sem farþeginn
situr i bólstruðum stól fyrir framan ökumanninn. Næst er eitt af eldri hjólun-
um með stórri tveggja strokka vél. Þriðja hjólið er Triumph sem margir
þekkja frá fyrri árum hér á landi. Fjórða hjólið er dæmi um hjól sem byggt
hefur verið til þess eins að setja hraðamet og neðst eru tveir góðir fulltrú-
ar BSA-hjólanna, annað frá heimsstyrjöldinni siðari og hitt nýrra.
tlfty . m i -—- iH . . rrWÉt i
^ -í VeB
áður er þetta safn vel þess virði að
sækja þaö heim, jafnvel þótt menn
hafi aöeins takmarkaðan áhuga á
hjólum. Fyrir sanna mótorhjóla-
menn er það sjálfsagður hlutur að
leggja lykkju á leið sína og koma
þama við ef þeir á annað borð eru á
ferð um England.
Til leiðbeiningar þá er safnið við
vegamót 6 á M42-hraðbrautinni þar
sem hún sker A45 rétt hjá „National
Exhibition Centre" skammt austan
Birmingham, um eina mílu frá flug-
vellinum og járnbrautarstöðinni í
Birmingham.
-JR