Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1992, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ 1992.
Merming
Daniel Buren býr til útilistaverk á Islandi:
Fáguð í útliti og
útsmogin í hugsun
Síðari hluti afhjúpunar Staðbundin verk - Staðsetning/framsetning/tilfærsla
fór fram við Listasafn íslands.
Daniel Buren er heimsþekktur
listamaður sem Galierí 11 og Lista-
safn íslands hafa fengið til landsins
í tilefni Listahátíðar í Reykjavík.
Hefur hann undanfama daga verið
að setja saman tvö listaverk sem
ganga undir samheitinu Staðbundin
verk - Staöfesting/framsetning/til-
færsla. Vom Ustaverkin afhjúpuð í
gærkvöldi, fyrst við Gallerí 11 og síð-
an var farið að Listasafni íslands þar
sem seinni hluti athafnariimar fór
fram.
í sýningarskrá segir: „Daniel Bur-
en er í dag vafalaust orðinn þekkt-
asti og virtasti núlifandi myndlistar-
maður Frakka á alþjóðavettvangi.
Aðaieinkenni verka Buren er hversu
þau em sjónrænt, afar grípandi.
Fyrstu viðbrögð margra frammi fyr-
ir verkum hans gætu því einfaldlega
verið að hrópa upp yfir sig eða
muldra í barm sér; „fallegt“ með til-
heyrandi handapati, en við nánari
athugun kemur í ljós að ekki er allt
sem sýnist því verk hans era afleið-
ing á mjög róttækri og greindarlegri
endurskoðun á ýmsum af viðteknum
og djúpstæðum viðhorfum í vest-
rænni myndlist."
Buren var í hópi þeirra róttæku
listamanna sem komu fram á sjónar-
sviðið um og eftir 1968 og hrundu af
Daniel Buren við að setja saman
listaverk sitt í Listasafni íslands.
DV-myndir GVA
stað gagngerri endurskoðun á ýms-
um grandvallargildum í vestrænni
myndlist. Buren hefur oft unnið verk
sín í samvinnu við listasöfn um allan
heim. Það er því mikil lyftistöng fyr-
ir íslenskt hstalíf að fá Buren hingað
til landsins og vinna hér verk sem
vafalaust á eftir að vekja mikla at-
hygli. Hægt er taka undir þau orö
sem era í sýningarskránni en þar
segir aö íslenskir Ustunnendur fái
einstakt tækifæri til að kynnast sam-
tímamyndhst eins og hún gerist
fáguðust í útUti og útsmognust í
hugsim. -HK
Árbæjarsafn og Listasafn Siguijóns:
Listahátíðarstemning fyrir alla
fjölskylduna á Laugarnesi
ar verða til sýnis í safninu. A mynd-
inni má sjá módelteikningu sem Sig-
urjón gerði ca 1926-1977.
í tilefni Ustahátíðar munu Árbæj-
arsafn og Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar standa sameiginlega að fjöl-
skyldudögum á Laugarnesi. Dagskrá
mun verða aUa daga meðan á hátíð-
inni stendur frá ld. 13-18.
Áhersla er lögð á að gefa yngstu
kynslóðinni kost á að njóta Ustar og
náttúra og kynnast sögu Laugarness.
Verður einnig komið til móts við
tjáningarþörf hinna ungu gesta. í
upphituðu tjaldi, sem sett verður upp
við Sigurjónssafn, verður aðstaða tU
að teikna og mála og verða verkin
sett upp í safninu jafnóðum. Ýmsar
gerðir flugdreka verða til sýnis og
tækifæri gefst til að skreyta eigin
flugdreka. Sunnudaginn 14. júní
verður haldin flugdrekahátíð á Laug-
amestúninu þar sem böm setja lit-
skrúðuga dreka sína á loft.
í Sigurjónsasafni verður efnt til
sýningar á bernsku: og æskuteikn-
ingum Siguijóns Ólafssonar sem
flestar era gjöf til safnsins. Teikning-
ar þessar hafa aldrei verið sýndar
áður en þær vitna um hve mikilU
leikni Sigurjón náði í teikningu á
unga aldri og hvers konar vegarnesti
hann hafði er hann innritaðist í Kon-
unglega Ustaakedemíið í Kaupmn-
annahöfn haustiö 1928.
Meðal þess sem gert verður á fjöl-
skyldudögunum verða gönguferðir
um Laugames með borgarminja-
verði, Margréti HaUgrímsdóttur, en
nesið nýtur þegar mikflla vinsælda
sem útivistarsvæði. Bömum verður
boðið í ratieUti um svæðið og 15. júní
kemur Gestur Þorgrímsson mynd-
höggvari og fer hann með fólk um
svæðið og rifjar upp bernskuminn-
ingar í leiðinni.
Af öðra má nefna að Jón E. Guð-
mundsson, sem hefur skapað sér-
staka hefð í menningarlífl bama,
kemur með íslenska brúðuleikhúsiö
í Sigurjónssafn aUa þriðjudaga með-
an Listahátíð stendur yfir og nem-
endur Suzukiskólans halda nem-
endatónleika í Sigurjónssafni.
Tónverk eftir Stefán S. Stefánsson á samnorrænum geisladiski:
Sáttur við minn hlut
Nýlega kom í verslanir geisladisk-
urinn Nordjazz big 5 með Stóru
dönsku útvarpshljómsveitinni, undir
stjóm Ole Koch Hansen. Á þessum
geisladiski era fimm verk eftir einn
höfund frá hveiju Norðurlandanna.
íslenska verkið er eftir Stefán S. Stef-
ánsson og heitir Agara gagara, er það
tæplega tíu mínútna langt. Nordjazz
Big 5 kom út á öðrum Noröurlöndum
í janúar og hafa viðtökumar verið
góðar. Stefán var inntur í stuttu
spjaUi eftir sínum hlut á þessum
geisladiski og tilurð verksins:
„Verkiö er samið vorið 1987 og var
það tekið upp seinna um haustið. Það
var ákveðiö aö fara í þetta verkefni
áramótin 1986-87 á Nordjazz fundi.
Þar komu fram margar hugmyndir,
meðal annars að semja sameiginlegt
verk. Það gekk nú samt ekki upp og
í lokin var ákveöið það fyrirkomulag
sem er á diskinum. Ég sendi síðan
mitt verk út um vorið og vora öU
verkin flutt fyrir troðfuUum sal
áheyrenda í Montmarte um haustið
og era upptökumar frá þeim tónleik-
um mjög góðar, en það var samt
ákveðið að fara í stúdíó og taka verk-
in upp þar.“
- Þekkir þú til hinna höfundanna?
„Ekki persónulega heldur kannast
ég við nöfnin og haföi heyrt í Peter
GuUin sem er sonur Lars Gullin sem
var á sínum tíma einn helsti díass-
maður Svía, en við kynntumst þegar
þetta verkefni hófst.“
- Ertu sáttur við hvemig tekist
hefur til með flutninginn á Agara
gagara?
„Já, ég er mjög sáttur, hljómburð-
urinn er ótrúlega góður þegar haft
er í huga að þetta er tekið upp í einni
töku.“
- Verður framhald á þessu sam-
starfi?
„Ég hef rætt við hugmyndasmiðinn
að baki þessu verkefni, Steinar Krist-
iansen, en þetta er ótrúlega mikið
mál að koma þessu saman því það
þarf að treysta á styrki frá hinu opin-
bera og heyrðist mér að það yrði ein-
hver bið, allavega þar til hann myndi
reyna þetta aftur."
- Ertu eitthvað að semja þessa dag-
ana?
„Já, það vUl nú svo til að ég fékk
starfslaun í vor, sem kom mér
skemmtilega á óvart, og ég hef átt í
fórum mínum drög að mörgum verk-
um sem ég hef tekið til við að fuU-
klára. Þótt sum þessara verka hafi
verið hugsuð fyrir Utlar hljómsveitir
ætla ég að skrifa öU þau verk sem
ég klára fyrir stærri sveitir."
- Ertu þá að hugsa um hljómleika
þegar þú hefur lokið við verkin?
„Það er draumurinn en hér á landi
er erfitt aö koma saman stórri sveit.
Stefán S. Stefánsson, höfundur Ag-
ara gagara.
Verk þessi krefjast þess að það sé í
hveiju sæti mjög góöur spUari og
allir okkar bestu hljóðfæraleikarar
era í atvinnumennsku og leUcandi
úti um aUt og erfitt að ná þeim sam-
an en þaö er vonandi að það takist
þegaraðþvíkemur.“ -HK
að þýða Meðan
áenskti
Bókaútgáfan Forlagið hefur
fengið styrk að upphæð 40.000
danskar krónur (400.000 íslensk-:
ar) til að þýöa verðlaunaskáld-
sögu Fríðu Á. Sigurðardóttur,
Meðan nóttin líöur, yfir á ensku.
Styrkur þessi er úr norræna þýð-
ingarsjónum og er þetta 1 fyrsta
skiptið sem veittur.er styrkur til
að þýða á eitthvert annað mál en
NorðurlandamáL Eins og kunn-
ugt er hlaut Fríða Á. Sigurðar-
; dóttir bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs fyrir skáldsögu sína
og hafði áður fengið hér heima
meðal annars Menningarverð-
laun DV fyrir þessa rómuðu sögu.
Stórtónleikar
nýrrí kvikmynd
Bíórokk nefnast stórtónleikar
sem verða haldnir í Laugardals-
holhnni 16. júm. Verða þessir tön-
leikar á vegum kyikmyndafélags-
ins Art Film og íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur.; Tón-
leikarnir tengjast nýrri íslenskri
kvikmynd sem tekin verður upp
í Reykjavík dagana 8.-30, júní og
hefur hún hlotið vinnuheitið
Stuttur frakki. Vegna myndar-
innar verður 40 manna kvik-
myndatökulið á vegum Art Film
við upptökur á tónleikunum. Um
krikmyndatökuna á þessum tón-
leikum sér Ágúst Jakobsson en
hann hefur meðal annars unnið
við kvikmyndatöku í Bandaríkj-
unum með stórsveitunum Nir*
vana og Guns ’n Roses. Á þessum
tónieikum koma fram Ný dönsk,
Todmobile, Síðan skein sól, Sálin
hans Jóns míns og Bubbi Morth-
ens.
Savnsýmng
erlendra
listamanna
Átta erlendir listamenn, sem
allir eru búsettir hér á landi, hafa
opnað samsýningu sem er til
staðar í Gallerí 8 í Austurstræti.
Þetta er í fyrsta skipti sem slík
samsýning er haldin hér á landi.
Myndlistarmennirnir átta, sem
sýna verk sín í Gailerí 8, eru
Jaqueline Lafleur Björgvinsson
frá Bandaríkjunum, Dominique
Ambroise frá Frakklandi, UUa
Hofsford frá Svíþjóð, Heidi
Christiansen frá Noregi, John
Soul frá Englandi, Viggo Karlsen
frá Noregi, Marilyn H. Mellk ft'á
Bandarikjunum og Brian Pilk-
ington frá Englandi.
Klúbbur
listahátíðar
áHressé
Eins og á síðustu listahátíö er
starfræktur Klúbbur listahátíðai-
á veitingaliúsinu Hressó. Klúbb-
urinn er vettvangur fýrir ís-
lenska listamenn og er reynt aö
gera Öllum listgreinum jafnhátt
undir höfði og verður eitthvaö
um aö vera á hveijum degi. Dag-
skráin er síbreytileg vegna þess
að margir bætast við á síðustu
stundu. Klúbburinn hóf starf-
semi sína á laugardaginn með
tónlist, upplestri, örleikriti og
dansi. Veröur klúbbuiinn starf-
ræktur utandyra þegar veöur
leyfiren fluttur^hin á^veitin^
verður meöai annars boðið upp á
djass með tríói Karls Möller og
Andreu Gylfadóttur og upplestur
eigin ijóöum.