Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1992, Side 7
ÞRIÐJUÐAGUR 9. JÚNÍ 1992.
29
faðmaður innilega af félögum sinum úr Víking eftir að hafa skorað fyrsta mark leiksins i gær. Steinar Adolfsson er hins vegar niðurlútur en hann jafnaði metin
DV-mynd GS
ideilt sigurmark
kingar skoruðu úr vítaspymu á lokamínútunni og unnu Val, 2-1
markvaröar áöur en hann féll við í
teignum.
Leikurinn var mjög fjörugur og vel
spilaður í fyrri hálfleik. Valsmenn
höföu frumkvæðið og á 16. mínútu
skall hurð nærri hælum við Víkings-
markið eftir stórskotahríð Valsmanna.
Fyrst átti Jón Grétar skot utan víta-
teigs sem Guðmundur varði. Hann hélt
ekki knettinum og þar kom Anthony
Karl Gregory á fleygiferð og þrumaði
knettinum í stöngina. Þar tók Steinar
Adoifsson-á móti boltanum og skaut
hörkuskoti í slá og yfir, Víkingar svo
sannarlega heppnir þar.
Tveimur mínútum síðar lá knöttur-
inn í marki Vals og kom það nokkuð
gegn gangi leiksins. Eftir homspymu
Harðar Theodórssonar mistókst Vals-
mönnum að hreinsa og Atli Helgason
þakkaði fyrir sig með því að skora af
stuttu færi framhjá Bjama Sigurðs-
syni.
Valsmenn héldu sókninni áfram og
uppskáru mark á 27. mínútu. Amljótur
Davíðsson átti þá skot að marki Vík-
inga en knötturinn hafði viðkomu í
hendi eins leikmanna Víkinga og Kári
dómari dæmdi vítaspyrnu. Steinar
Adolfsson framkvæmdi spymuna og
skoraði af öryggi. Það sem eftir var
hálfleiksins vom Valsmenn ágengari
og léku á köflum mjög góða knatt-
spymu.
Síðari hálfleikurinn var jafn daufur
og sá fyrri var skemmtilegur. Nánast
engin marktækifæri htu dagsins Ijós
en bæði Uð sýndu þó oft góð tilþrif.
Salih Porca og Antony Karl áttu báðir
ágæt færi áður en sigurmarkið kom á
lokamínútunni eins og áður er lýst.
„Ég er mjög ósáttur við þennan víta-
spymudóm og hann var algjörlega út
í höttv Við höfðum undirtökin sérstak-
lega í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik
var biliö á mili varnar og sóknar of
mikið og þess vegna náðum við ekki
upp eins góðum leik. Það er samt ekk-
ert annað að gera en halda áfram, hver
einasti leikur verður erfiður enda hðin
í deildinni svipuð að getu,“ sagði Sævar
Jónsson, fyrirhði Vals, við DV eftir
leikinn.
íslandsmeistarar Víkings hafa nú
unnið tvo leiki í röð eftir að hafa tapað
fyrsta leiknum og era komnir í 2. sæt-
ið. Liðið lék á köflum ágæta knatt-
spymu en samleikur þeirra var samt
ekki eins markviss og Valsmanna. Vík-
ingar era sterkir á boltann og hafa inn-
an sinna raöa mikla vinnsluhesta eins
og þá Ólaf Ámason og Atla Helgason
og vel spilandi vamarmann þar sem
Janni Zilnik er. Aðalstein Aðalsteins-
son var drjúgur á miðjunni og Ath Ein-
arsson er ahtaf hættulegur.
Það var ffekar súrt fyrir Valsmenn
að horfa á eftir öllum stigunum eins
og þeir léku í gær. Valshðiö hefur leik-
9
l 1 Varið
E33 Stöng/þverslá
I...I Framhjá
ið vel í fyrstu leikjum sumarsins og
verður í toppbaráttunni haldi hðið
áfram á sömu braut. Sævar Jónsson
og Izudin Dervic vora sterkir í vöm-
inni, Porca duglegur á miðjunni og
þeir Anthony Karl og Baldur Bragson
kvikir í sókninni.
-GH
10
Markskotin á Víkingsvelli
Víkingur Valur
fþróttir
Óvísthvort
Wrightleikur
Enn eitt vandamálið blasir nú
við Graharn Taylor, þjálfara
enska landslíðsins í knattspymu.
Varnai-maðurinn Mark Wright á
við meiðsh að stríða í nára sem
getur leitt til þess að hann geti
ekki leikið með Englendingum í
Evrópukeppni landshða sem
hefst í Svíþjöð á morgun. Áður
höföu þeir John Barnes og Gary
Steveh dottið úr úr hópnum
vegna meiðsla. Þeir Andy Sinton
og Keith Curle komu í stað Bar-
nes og Stevens og nú er Tony
Adams, fyrirhð Arsenal, í við-
bragösstöðu vegna meiösla
Wríghts. -GH
Knattspyman í Bandaríkjun-
um er heldur betur á uppleiö. Þaö
sést best á því að bandaríska
landsliðið sigraði í fjögurra liða
móti sem lauk í Clúcago í gær.
Þá skildu Bandaríkin og Ítalía
jöfn, 1-1, en áður höfðu Banda-
ríkjamenn sigrað íra, 1-0, og
Portúgala, 3-1. ítahr gerðu 0-0
jafntefh gegn Portúgölum og
unnu sigur á írum, 2-0. Roberto
Baggio skoraði mark ítala gegn
Bandaríkjamönnum en John
Harkes jafnaði metin. í gær léku
síðan írar og Portúgalar. írar
sigraðu, 2-0, meö mörkum Steve
Staunton og Tommy Coyne og
lentu í 3. sæti en Portúgahr ráku
lestina. -GH
Hollenski landshðsmaðurinn
Aaron Winter, leíkmaður með
Ajax í Hollandi, hefur gert samn-
ing viö ítalska liðið Lazio. Kaup-
verð Lazio er um 240 milljónir
íslenskra króna. Winter er ætlað
að leika við við hlið Paui Gasco-
igne á miðjunni.
-GH
Flóttifrá
Júgöslavíu
Sampdoria á Ítalíu hefur gert
munnlegt samkomulag við Red
Star Belgrad í Júgóslavíu um að
það kaupi Vladiroir Jugovic en
kaupin geta samt ekki átt sér stað
fyrr en banni Sameinuöu þjóð-
anna á Júgóslavíu lýkur. Þá mun
annar leikmaður Red Star, Sinisa
Mihaijhvic, vera á leið til Real
Madrid með sömu skilyröum.
-GH
Rúnarfær
millúrið
tgtllltll IV
Rúnar Kristinsson lék sinn 25.
landsleik fy rir Islenska landsliðið
I knattspymu þegar ísland vann
sigur á Ungverjum í HM í Búda-
pest í síðustu viku. Runar fær að
launum gullúr frá KSÍ en það fa
allir sem ná 25 leikja markinu.
Þetta er mjög góður árangur hjá
Rúnari því hann er einungis 23
ára gamall.
Feldkamp til
Tyrklands
Þjóðverjinn Karl Heins Feld-
karop hefur verið ráðinn þjálfari
tyrkneska 1. deildar hðsins Gal-
atasaray. Feldkamp þjálfaði Ka-
; iserslautern í Þýskalandi og gerði
að meisturum í fyrra.
-GH