Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1992, Síða 8
28
MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 1992.
Iþróttir
Hvenærkomum
viðtil
í huga stráka í 6. flokki í knatt-
spymu eru Vestmannaeyjar og
Shell-mót Týs eitt og þaö sama.
Þetta sannaðist þegar einn bóp-
urinnvará leið til Eyja raeð Heij-
ólflL Einum þeirra fannst þeir
hafa verið nokkuð lengi á leiöinni
og spyr upp úr eins manns hij óði.
„Hvenær komum viö til þessara
Shell-eyja?“
Harður
Á hverju kvöldi voru haldnir
fundir með fararstjórum og gafst
þeim þar tækifæri til að kvarta
ef þeir höfðu ástæðu til. Ekki
voru umkvörtunarefnin mörg því
á einum fundinum sagöi einn far-
arstjórinn að til þess að geta
kvartaö yfir einhverju vildi hann
minnast á það að klósettpappír-
inn i herbúðum félags hans væri
í harðara lagi. Strax morguninn
eitir var bætt úrþví þegar nokkr-
ar Týskonur færðu honum siiki-
mjúkan pappír.
Daðikom
Daði Guðmundsson, besti leik-
maður Sheli-mótsins í fyrra, kom
til í Eyja gær í boði Týs. Afhenti
hann verðlaun á lokahófinu
ásamt fúlltrúa Skeljungs og Helga
Sigurlássyni, formanni Týs.
Björngal
ekkikomið
Björn Thoroddsen listflugmað-
ur hefúr á hverju ári sýnt listir
sínar á Shell-mótinu. Því miöur
fyrir strákana komst hann ekki í
ár vegna vinds í Vestmannaeyj-
um. Vonandi verður hann tilbú-
inn í slaginn á næsta ári.
Safframmií
Strax að loknu lokahófi Shell-
mótsins hófúst flutningar á kepp-
landið. FH-ingar fóru með fyrstu
flugvél Flugleiöa tið Reykjavikur
og bauð flugstjórinn, sem kynnti
sig aem gamlan FH-ing, þá vel-
komna umborð. Einn strákurinn
datt í lukkupottinn því hann fékk
aðsifjaframmi ibjáflugmönnun-
um á leiðmni og var hinn montn-
asti þegar lent var í Reykjavík.
Á Shell-mótinu er gefið út dag-
blað sem dreift er hvejjum
morgni. í því er að finna nauö-
synlegar upplýsingar fýrir móts-
gesti og úrslit leikja gærdagsins.
Hefur þetta framtak mælst vel
fyrir og er blaðið auk þess mikil
og góð heimild fyrir þá sem sótt
hafa Shell-mótin.
NýrHerjótfur
vaktiiukku
Eitt af fyrstu verkefnum nýs
Heijólfs var að flytja stráka og
stelpur á Shell-mót Týs. Þótti
þeim mikið tll koma að ferðast
milii lands og Eyja með svo glæsi-
legum farkosti sem Herjólfur er.
Ómar Ragnarsson, sjónvarps-
fréttamaður með meiru, lét sig
ekki vanta á Shell-mótið. Hann
hefur í öll nfu skiptin mætt og
teflt fram Stjörnuliði sínu og
skemmt krökkunum á kvöldvök-
unni. Oft hefúr hann fengiö
landsfræga menn í liö með sér en
núna var það valinn hópur af
mótinu sem fyllti liöiö.
Andri Fannar Ottósson:
„Mótið er
búið að vera
frábært"
- segir besti leikmaður mótsins
Það kom fáum á óvart, nema
kannski Andra Fannari Ottóssyni
sjálfum, að hann var valinn besti
maður Shellmótsins. Andri Fannar
spilar með A-liði Fylkis sem varð sig-
urvegari mótsins. Fylkisliðið spilar
mjög skemmtilegan, en um leið agað-
an fótbolta og er Andri Fannar þar
fremstur meöal jafningja.
Á síðasta Shell-móti var hann í B-
liðinu og spilaði þá til úrslita á móti
Stjömunni og varð að lúta í lægra
haldi. Andri er ákveðinn í að ná langt
í fótboltanum, en hvað þakkar hann
þennan árangur.
„Smára, þjálfaranum okkar. Hann
er alveg frábær. Mótið er búið að
vera frábært, en skemmtilegast var
að vinna," sagði þessi Fylkisstrákur
sem stefnir á landsliðið 1 framtíðinni.
Landsliðið
Andri Fannar Ottósson úr Fylki hampar hér bikarnum sem hann vann fyrir
að vera kosinn besti leikmaður Shell-mótsins.
Egill Sveinbjömsson:
Stuðnings-
maður Shell-
mðtsins
sigraði Pressuna
- Viktor Amarsson gerði þrennu
Hápunktur Shellmótsins, hinn ár-
legi leikur landsliðs og pressuliðs
Shellmótsins, fór fram eftir grill-
veisluna á laugardagskvöldið að við-
stöddum fjölmörgum áhorfendum.
Leikurinn, sem var í ömggum hönd-
um Hugins Helgasonar dómara, fór
heldur rólega af stað.
Pressan sótti heldur meira gegn
norðaustan golu og kom nokkrum
skotum að, en Haukur Gottskálksson
landsliðsmarkvörður sá við þeim öll-
um. Kollegi hans í hinu markinu,
Kristján V. Kristjánsson, þurfti líka
einu sinni aö taka á honum stóra sín-
um eftir gott skot Andra Gunnars-
sonar. Seinni hálfleikur varð talsvert
fjörugri.
Landsliðið mætti tvíeflt til leiks og
fljótlega lék Andri Fannar Ottósson
upp kantinn, sendi boltan á Viktor
Amarsson sem þrumaði honum í
netið, 1-0 fyrir landshðið. Viktor fékk
fljótlega annað færi en markvörður
pressunnar, Yngvi Leifsson, varði
gott skot hans stórkostlega.
Viktor var aflur á ferðinni skömmu
síöar, eftir góða sókn fékk hann bolt-
ann úti á kanti, sendi hnitmiðaðan
bolta á kollinn á Andra Fannari sem
skallaöi hann örugglega í netið, 2-0.
Eftir þetta sótti pressan heldur í sig
veðrið. Gunnar Heiðar Þorvaldsson
átti skot rétt framhjá, og stuttu síðar
skaut Gunnar aftur, Sveinn Jóhann
Sveinsson landsliðsmarkvörður
varði en boltinn barst út til Guðlaugs
Amar Haukssonar sem skoraði, 2-1.
Eftir þetta var allur vindur úr
Pressumönnum, Viktor fylgdi vel á
eftir fyrirgjöf og skoraði þriðja mark
landshðsins og annað mark sitt, og
það var Sigurður Logi Jóhannesson
sem innsiglaði sigur landsliðsins
með góðu skoti.
Lokatölur því 4-1 fyrir landsliðið.
Viktor stóð sig geysflega vel fyrir
landsliðið, var síógnandi og mjög
virkur. Félagi hans Sigurður Logi lék
líka ágætlega. í pressuliðinu bar
einna mest á Gunnari Heiðari en
annars var liðið jafnt að getu. Það fór
ekki á milli mála að bæði lið lögðu
sig öll fram enda var leikurinn vel
og drengilega leikinn og bauð upp á
góð tilþrif og falleg mörk.
Einn virkasti stuðningsmaður
nokkurs liðs á mótinu var án efa
Egfll Sveinbjömsson. Ávallt þegar
hans lið (ÍR) háði keppni, þandi hann
raddböndin sleitulaust.
Hvatningarhróp, söngvar, ábend-
ingar og hughreystingar streymdu í
ómældu magni af vörum hans og
ávallt var hvatningin jákvæð og upp-
byggjandi, jafnt fyrir ÍR-inga sem
andstæðinga. Egill er faðir Erlends,
fyrirliða A-liðs ÍR, og þetta er í annað
skiptið sem hann fylgir honum á
Shell-mót.
Þú kannt vel við þig á Shell-mótum
Egili Sveinbjörnsson í kunnugiegri
stellingu á Shell-mótinu. Egill kom
einnig til Eyja f fyrra meö syni sínum.
Egill. „Já, þetta er mjög gott mót í
alla staði. Skipulag, mórall og tíma-
setningar, allt er þetta til mikfllar
fyrirmyndar. Það eina sem mér
flnnst að gæti betur farið er að dóm-
arar og þjálfarar mættu taka strang-
ar á grófum brotum.
Mér fmnst það góð regla að þjálfari
kippi leikmanni út af um stundar-
sakir hitni honum um of í hamsi.“
Þú styður strákana af miklum krafti?
„Já, að sjálfsögðu, enda finnum við
að stuðningurinn skiptir máli. Við
ÍR-ingar reynum að vera jákvæðir
og hvetjandi, við úthúðum ekki mót-
heijum okkar, heldur styöjum við
bakið á okkar strákum með hvatn-
ingarhrópum.“
Þú lifir þig inn 1 mótið, ekki rétt?
„ Jú, það er rétt, mér finnst ekki leið-
inlegra að horfa á 6. flokk en meist-
araflokk enda leggja strákamir sig
alla fram og hafa gífurlegan sigur-
vilja.“ Er röddin ekkert farin að gefa
sig, eftir þetta langtímaálag? „Nei,
alls ekki. Það er ákveðið leyndarmál
á bak við röddina mína en hvert, það
er verður ekki látið uppi hér, enda
viljum við ekki að öll lið eignist
svona góða stuðningsmenn. Nei,
svona í alvöru þá held ég bara að
náttúran hafi gefið mér góða rödd,
sem þolir álagið sem þessu fylgir,“
sagði Egill Sveinbjömsson, stuðn-
ingsmaður Shellmótsins 1992.
Landsliö mótsins sem sigraði Pressuna í mjög góöum leik.
Frá vinstri, besti markvörðurinn, Yngvi Leifsson, Völsungi, besti vamarmaö-
ur, Kristján Páll Pálsson úr Fram, og markakóngurinn Brynjar Harðarson
úr Fylki.