Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Side 4
t 22 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. Ferðir Góð myndavél er ómissandi ferðafélagi Myridavélar eru margar og mis- munandi aö gæðum. Þær eiga þó eitt sameiginlegt: að skrá ferðalagið í myndum. Fátt er eins skemmtilegt og að skoða myndir og rifla upp ferð- ina löngu eftir að hún hefur verið farin. En þekking á myndavélum og búnaði þeirra er nauðsynleg svo að árangurinn verið sem bestur. Myndataka er í sjálfu sér ekki flókið verk en æfmgin skapar meistarann á því sviði eins og öðrum. Dýr vél er í sjálfu sér ekki trygging fyrir falleg- um myndum og fólk, sem tekur sjald- an myndir, ætti tæplega að fjárfesta í rokdýrum búnaði. Kaup á mynda- vél ætti því að miða við líklega notk- un. Algengustu vélarnar eru kallað- ar 35 mm myndavélar og það eni einmitt þær sem við munum fjalla um í þessari grein. Hægt að skipta myndavélum í þrjá flokka „Við getum skipt öllum 35 mm vél- um mjög gróflega í þrjá flokka. í fyrsta lagi ódýrar, einfaldar og óvandaðar vélar með fóstum linsum. í öðru lagi vandaðar vélar með fóst- um linsum og í þriðja lagi vélar með skiptanlegum Unsum en þær eru oft- ast dýrastar. í fyrsta flokknum eru ódýrustu vélamar. í þeim eru ódýrar plastiinsur og þær eru oftast fast- stiUtar, þ.e. ekki er hægt að stiUa fjar- lægð, ljósop eöa annað. í sumum er þó stundum sjálfvirk ljósopsstilling. Margar þessara véla uppfyUa þær kröfur sem gerðar eru til þeirra en þær skila þokkalegum myndum við bestu skilyrði. Séu myndimar hins vegar bomar saman við myndir úr vandaðri vélum kemur munurinn í Ijós. Vélamar í flokki tvö eru vand- aðri. Linsan er betri, þær bjóða upp á fjarlægðarstiUingu, oftast sjálf- virka, stiUanlegt ljósop og mismun- andi hraða. Ljósop og hraði em þá oftast stiUt saman sjálfvirkt. Þessar vélar em oft ágætar og hafa þann kost að vera léttar og meðfærilegar. Séu myndir úr þeim bornar saman við myndir úr vönduðustu vélunum kemur í ljós mikUl munur. Þennan mun sér maður best í homum mynda sem hafa verið stækkaðar eða á myndskyggnum. Á myndavélum í flokki þrjú er hægt aö skipta um Unsu sem getur veriö mikiU kostur. Yfirleitt em þessar vélar betri en vélar með fóstum Unsum. GaUinn viö þær er sá að þær em stærri og þyngri,“ sagði Tryggvi PáU Friðriks- son, starfsmaður Landsbjargar. Þyngd vélarinnar skiptir miklu máli Fyrir ferðalanga skiptir þyngd vél- arinnar og meðfærileiki miklu máU. Ennfremur verður vélin að vera sterkbyggö og þola töluvert frost. Þar fyrir utan er auövitaö mikUvægt aö vélin ráði vel við myndatökur við erfið skUyrði. TU þess verður að vera hægt að stilla hana. Þótt til séu ágætar myndvélar með fastri linsu uppfyUa þær yfirleitt ekki ströng skUyrði um gæði. Við góðar aöstæður er hægt að taka prýðUegar myndir á góða „vasamyndavél" en gamanið kámar ef aöstæður versna. Góðar vélar af þessari gerð, en aöeins góðar, geta verið heppUegur kostur fyrir ferðamann og þá vegna þess hversu einfaldar þær era í notkun og léttar. Nú em komnar á markað- inn vélar í þessum flokki sem em með aðdráttarUnsu og það er til mik- illa bóta. Veljið linsur eftir þörfum og verkefnum Bestu myndavélamar eru að öUu jöfnu vélar með skiptanlegum lins- um. Ótal gerðir eru til af slíkum vél- um og em gæði þeirra æði misjöfn. Hægt er að fá vélar sem em nánast (eða algjörlega) sjálfvirkar, vélar sem hafa enga (eða Utla) sjálfvirkni eða vélar sem eru sambland af þessu tvennu. FuUyrða má að vélar í síðast- nefnda flokknum séu heppUegastar og þannig era flestar vélar sem fáan- legar em um þessar mundir. Þegar keypt er vél með skiptanlegri Unsu er heppUegast að kaupa vélina linsulausa en velja svo Unsur eftir þörfum og verkefnum. Þegar linsur era keyptar getur maður vaUð um linsur frá sama framleiðenda og vél- hætt viö að þær verði ekki eins skarpar. Sem þumalputtareglu getur þú reiknað með aö því minna sem ljós- opið er þeim mun skarpari verður myndin, þ.e. meiri dýpt verður í henni. Einnig þarf að huga að hrað- anum. Við getum hugsað okkur að tekin sé mynd af bíl sem kemur í átt til okkar á fuUri ferð. Við verðum að stiUa á mikinn hraða (1/250,1/500 eða 1/1000 sek.) til að myndin verði ekki hreyfð og verðum því aö nota stórt ljósop til að fá nægilega birtu. Við getum því búist við að myndin af bílnum verði skörp en umhverfið næst okkur og fjærst verði óskýrt (ekki í fókus). Þetta myndi breytast ef bUlinn væri kyrrstæður og við gætum notað Utið ljósop og lengri tíma. Tryggvi Páll Friðriksson. Ljósmyndun er fyrir alla, jafnt unga sem aldna. in er eða frá fyrirtækjum sem sér- hæfa sig í að framleiða linsur fyrir ýmsar tegundir myndavéla. Þær síð- arnefndu em oftast ódýrari en gæða- munur þarf ekki að vera verulegur. Hér er lagt til að keypt sé aðallinsa frá framleiðanda vélarinnar. Minni líkur em á að það komi að sök þótt aukaUnsur séu frá öðmm framleið- anda. Ljósop, ljósmæling og hraði Femt skiptir höfuðmáU ef góður árangur á að nást við ljósmyndun: Jjósop, hraði, aðdráttur og fjarlægð. Er þá reiknað með notkun á vél með skiptanlegri Unsu. Þar að auki er ýmislegt annaö sem kemur til greina, eins og sjálfvirk flarlægðarstilling, sjálfvirkni í hraða og ljósopi, raf- vinda á filmu, nemi sem greinir hvers konar filma er notuð og fleh-a sem ekki hefur bein áhrif á gæði myndanna. Á öUum betri vélum er hægt að stUla stærð Ijósopsins og ákveða með því hversu mikU birta fer inn á film- una. Birtumagnið fer einnig eftir því hve lengi flósopið er haft opiö. Ljós- opsstillingar em mismunandi eftir gæðum linsunnar, þ.e. ljósopið stækkar eða minnkar eftir birtu og því hversu lengi það er haft opið. M)ög stórt Ijósop er t.d. 1,4, 1,8 eöa 2,8 en mjög Utið ljósop er t.d. 16, 22 eða 32. Eftir því sem flósopið er stærra því auðveldara er að taka myndir við slæm birtuskUyrði, t.d. innanhúss. Ef maður hins vegar tek- ur myndir með mjög stóm ljósopi er Meira um ljós og hraða Áður fyrr voru ljósmælar ekki inn- byggðir í vélamar og gat orðið tölu- vert vandaverk að ná réttri lýsingu. Nú em innbyggðir mælar í allar góð- ar vélar. Mælirinn er oftast og á að vera bak við linsuna, á filmuplani vélarinnar. Þá mæla nýjustu vélar ljósið á fleiri en einum stað á mynd- fletinum og er það til mikiUa bóta. í myndavéUnni er svokaUaður lok- ari sem ákveður hve lengi Ijósiö á aö skína á filmuna. Tíminn (hraðinn) er stiUtur á vélinni sjálfri en ekki Unsunni. Með honum ákveðum við hve lengi ljósopið á að vera opið. Á nýjustu vélum er hæsta hraöastilling a.m.k. 1/8000 úr sekúndu en 1/1000 er oftast nóg. Þá er yfirleitt hægt að stUla hraðann upp í nokkrar sekúnd- ur eða stUla á óendanlegan tíma. TU að ná óhreyfðri mynd, án þess aö setja véUna á þrífót, má hraöinn ekki vera minni en 1/30 og helst þarf hann að vera 1/60 eða meiri. Aðdráttur linsunnar Styrkleiki linsunnar (aðdráttur) er mældur eftir flarlægö ysta glers hennar frá filmunni. Algengt er að linsur á 35 mm vélum séu 50 mm. Ef linsan er sterkari telst hún að- dráttarUnsa en sé hún veikari þá gleiðUnsa. Aðdrátturinn mjókkar sjónsviðið um leið og aðdrátturinn eykst en gleiðUnsan virkar þveröf- ugt. Linsur era til af öUum stærðum og gerðum. Algengast er að þær séu frá 28 mm og upp í 400 mm en til em frávik í báðar áttir. Mjög vinsælt er að eiga zoomlinsur, þ.e. linsur með stiUanlegum styrkleika. Notadrýgsta Unsan að mati Tryggva er 35-70 mm. Næst á eftir kemur Unsa sem er 80-200 mm en hún er miklu stærri og þyngri. Tryggvi ráðleggur fóUti að kaupa sem fyrstu Unsu 35-70 mm zoom- linsu. Zoomlinsur em eitthvað dýr- ari en notagUdið er meira og gæðin ágæt sé um viöurkennd merki að ræða. Sumar Unsur em jafnframt svokaUaðar macroUnsur en meö sér- stakri stiUingu er hægt að taka myndir mjög nálægt viðfangsefninu. Fjarlægð Fmmatriði góðrar myndatöku er góð og nákvæm flarlægðarstilling (fókus). Hægt er að fá vélar með sjálf- virkri stillingu (auto-fókus) og getur það verið mjög gott. Á vönduðum vélum mæUr véUn flarlægðina á fleiri en einum stað og er þaö til bóta. Það nýjasta er að hægt er að „festa" fiarlægðina að vUd á ákveðnum hlut. Einnig er hægt að vefia um stillingu á ákveðinn punkt eða dreifimælingu. Eltifókus er það allra nýjasta. Þá reiknar vélin út hraða hlutarins sem tekin er mynd af og áætlar flarlægð- ina eftir þvi. GaUar em hins vegar við þessa |sjálfvirkni. Rafmagnseyðsla er meiri og Unsur fyrir þessar vélar era bæði jdýrari og þyngri. Því mælir Tryggvi frekar með vél sem ekki er sjáífvirk Jað þessu leyti. Sjálfvirkar stillingar Á flestum nýrri og vönduðum vél- um er boðið upp á nánast alsjálfvirka myndatöku. Vélin mælir ljósmagnið og UtUl tölvukubbur ákveður bæði hraða og fiósop. Helsti galUnn við þessa tækni hefur verið sá að með sjálfvirkninni var „mannlegi" þátt- urinn tekinn úr myndatökunni og allar myndir urðu „svipaðar". Nýj- ustu vélamar em hins vegar með nokkrum mismunandi sjálfvirkni- möguleikum. Það er því engin ástæða til annars en að notfæra sér tæknina enda gott sjálfvirkt kerfi til mikUla þæginda við myndatökur á ferðalögum. Þó þarf maður að geta stUlt vélina sjálfur við sérstakar að- stæður. Best er því að velja vél sem hefur bæði sjálfvirkt og handvirkt kerfi. Nýjasta nýtt er eins konar strika- merking. „Þú ert með bækUng með alls konar fyrirmyndum og velur eina sem Ukist myndinni sem þú ætlar að taka. Sem dæmi má nefna mann sem situr í gluggakistu. Á fyr- irmyndinni er strikamerking og þú strýkur skynjara eftir merkinu. Þetta finnst mér ekki sniðugt,“ segir Tryggvi. Að kaupa myndavél Ömggast er að kaupa aðeins myndavél frá traustum og þekktum framleiðenda. GUdir þar sama regla og með annan búnað. Skoðaðu aUa möguleika og gerðu þér grein fyrir til hvers þú ætlar að nota myndavél- ina. Veldu vél sem er auðveld í notk-. un og ekki of þung. Á markaði eru vélar sem eru svo flóknar að það er meiri háttar mál að nota þær. Athug- aðu hvemig viðgerðarþjónustu er hagað hér á landi og að ábyrgðarskír- teini fylgi véUnni. Ef þú kaupir vél erlendis gUdir ábyrgðin aðeins í því landi þar sem þú kaupir véUna - jafn- vel þótt vélinni fylgi „alheims- ábyrgð". Ekki kaupa myndavél 1 fyrstu versluninni sem þú kemur í. Spyrðu afgreiðslufólkið og berðu saman svör í mismunandi verslunum. Ef þú ert á leið úr landi berðu saman verðið í ljósmyndavömverslunum og Frí- höfninni. Þú getur hringt í Fríhöfn- ina og spurt hvemig vélar fást þar. Láttu eklti plata inn á þig hlutum sem þú hefur ekkert með að gera og gættu þín á tilboðum erlendis. Ef þú kaupir „origmal" linsur getur munað háum upphæðum á milU stærða. Svo dæmi sé tekið þá er 50 mm linsa, sem hefur ljósop 1,8 eða 1,4, dýrari en 50 mm linsa sem er með ljósop 2,8. Tryggvi ráðleggur fólki að fara ódýrari leiðina. Sama má segja um víðlinsur. Linsa, sem er 28 mm, er mun dýrari en linsa sem er 35 mm. Sú ódýrari kemur að sama gagni í langflestum tilfeUum. Láttu því 35 mm linsu duga til að byrja með. Athugaðu hvort burðartaska fylgir í verðinu, ef ekki getur verið hent- ugra að kaupa stærri tösku sem rúm- ar aukalinsur, leifturljós, ljóssíur og filmur auk myndavélarinnar. Ef burðartaskan fylgir getur þú e.t.v. skipt og fengið stærri tösku í staðinn. Þegar þú kaupir myndavél ertu að kaupa hlut sem verður „félagi" þinn í mörg ár. Það er því ekíti galin hug- mynd að lesa sér vel til um viðkom- andi vél áður en hún er keypt. Um- sagnir er að finna í erlendum fiós- myndablöðum og jafnvel auglýs- ingabæklingum. Spurðu ennfremur vini þína og kunningja. Ekki hika viö að afla þér upplýsinga. Það gæti nefnilega borgað sig þegar upp er staðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.