Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Side 12
30 p t. MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. iðárkn Eiðar| \ Bjarkarlund Stykkishólmur Víndh Reykjavík Ferðir Útihátíðir um versiunarmannaheigina Brekkubær Höfn Vestmannaeyjar \ Samkomustaður Vík í Mýrdal: Páll Péturasan, DV, Vílc í Vík í Mýrdal verður haldin flöl- skylduhátíð um verslunarmanna- helgina eins og mörg undanfarin ár. Skemmtun þessi er búin aö vinna sér fastan sess í ferðaflóru íslendinga um þessa helgi og kemur þar margt til. I fyrsta lagi er það einfaldleiki og sveigjanleiki en fólk er ekki matað á skemmtiatriðum allan sólarhring- inn. Auk þess getur fólk valið um mjög fjölbreytta afþreyingu við allra hæfi. Þá er það talinn kostur að ein- ungis er selt inn á tjaldstæðið í Vík, þ.e. greidd er viss upphæð á hvert tjald og skiptír ekki máh hve margir einstaklingar hafa aðsetur í því. Verðið fyrir nóttina er kr. 1.000 en tvær nætur kosta kr. 1.800 og öll helg- in kr. 2.500. Útigrill á tjaldstæðinu Meðal dagskráratriöa má nefna varðelda og íjöldasöng öll kvöld. Stórt útigrill verður á tjaldstæðinu og hefur oft skapast skemmtileg stemmning í kringum það og ný vinatengsl myndast. Dansleikir verða á laugardags- og sunnudags- kvöld. Aldurstakmark er 16 ár og miðaverð er kr. 1.700. Hljómsveitin sér einnig um söngvakeppni bama á sunnudag og „Prestley-prógramm" á laugardag. Þessi dagskráratriði verða í Félagsheimilinu Leikskálum. Fleira verður gert fyrir bömin því farið verður í íþróttir og leiki með þeim fyrir hádegi á laugardag. Gönguferðir með leiðsögumanni verða um nágrennið og sýnt verður bjargsig í Klettunum hjá tjaldsvæð- inu á sunnudag. Jeppamenn sýna torfæmtröllin sín á laugardag og þeir verða einnig með sýningu í fjör- unni skammt frá Vík. Náttúruskoðun Það kom fram hjá mótshöldurum aö náttúmskoðun skipar veglegan sess á fjölskylduhátíðinni. Búið er að merkja gönguleiðir í nágrenni Víkur og hjólabátarnir fara í útsýnis- siglingar að Reynisdröngum. Þessar ferðir verða þátttakendum ógleym- anlegar. Hægt er að fara í vélsleða- ferðir á Mýrdalsjökli og þar er einnig skíðalyfta. Reynisflug býður upp á útsýnisflug og hestaferðir eru á veg- um Jöklahesta. Einnig er hægt að fá leigða hesta hjá Höfðabrekku. í ná- grenni Víkur er 9 hola golfvöllur. Veitingasala verður í Víkurskála og einnig verða flestar verslanir í Vík opnar yfir helgina. Það má segja að Vík ’92 bjóði upp á eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Að sjálfsögðu er meöferð áfengis bönnuð. Umsjón með hátíðinni er á vegum félaga í Björgunarsveitinni Víkverja og Ung- mennafélaginu Drangi. Snæfellsás '92: Mann- undir „Snæfellsás er fjölskyldumót áhugafólks um m.a. breyttan lífs- stíl, nýjan hugsunarhátt, gleðina, umhverfismál og jákvæðan þroska. Snæfellsás er því góður valkostur fyrir þá sem hafa mannrækt i fyrirrúmi. Mótið er öllum opið,“ segja forráðamenn Snæfellsáss ’92. Þetta er sjötta mótið sinnar tegundar á íslandi og hafa þau öll verið haldin á Snæfellsnesi. Mótssvæðið er land Brekkubækjar að Hellnum (10 mín. akstur frá Amarstapa). Gamalt bóndabýli er miðstöð mótsins þar sem hlaðan gegnir nú hlutverki fundarsalar og í hluta annarra útihúsa hefur ver- ið komíð upp hreinlætisaðstöðu ognámskeiðssal. Dagskráin hefst á fóstudagskvöldi og er slitiö síð- degis á mánudag. Hún verður fjölbreytt að vanda og er í formi fyrirlestra og námskeiöa á daginn en kvöldvökur með varðeldi, leikjum og söng á kvöldin. Fyrirlesarar og leiðbeinendur eru bæði innlendir og erlendir. Heiðursgesturinn að þessu sinni er dr. Molly Scott, þekktur heil- unartónlistarmeistari. Á dagskrá er m.a. dulspeki, heilun, söngur, hugleiðslur, leikfimi, útiguðs- þjónusta o.fl. Mótin hafa ávallt farið ftiðsamlega fram enda er meöferö áfengis ekki leyfö á svæðinu. Þá skal það einnig tekiö fram við hundaeigendur, sem hyggjast taka hundinn með, að þeim trúfasta fjölskylduvin verð- ur ekki leyft að ganga lausum á mótssvæðinu. Forsala aögöngumiða er hafin í versluninni Betra líf, Laugavegi 66, og kostar miðinn kr. 4000. Aðgangur fyrir börn er ókeypis. Innifalið í miðaverði er aðgangur að öllum dagskrárliðum mótsins að undanskildum námskeiðum og einkatímum. Miðasala verður einnig við heimtröð Brekkubæjar frá og með 30. júlí. Hægt er aö hafa samband við Brekkubæ frá og með þeim degi i síma 93-56754. Allar nánari uppiýsingar um dag- skrá verða einnig í Betra líf og hjá Nýaldarsamtökunum. • •» Síldarævintýri á Siglufirði Öm Þórarinsson, DV, Fljótuin; Siglfirðingar ætla að rifja síldarár- in upp um verslunarmannahelgina og verður mikið tilstand sem stendur frá fimmtudegi fram á sunnudags- kvöld. Snemma á síðasta ári kvikn- aði sú hugmynd aö setja upp dagskrá sem líktist síldarstemmningunni á árum áður. Þetta var reynt í fyrra og gafst vel og þúsundir manna komu til Siglufjarðar meðan á hátíðinni stóð. Síldarævintýrið um næstu verslunarmannahelgi á að vera enn umfangsmeira en í fyrra. „Þetta hefst með því að Halla Har- aldsdóttir, myndlistarkona og brott- fluttur Siglfirðingur, opnar sýningu á verkum sínum í ráöhúsinu," sagði Theódór Júlíusson, framkvæmda- stjóri hátíöarinnar. „Þá verður um kvöldið flutt dagskrá á Hótel Læk sem kallast Enn er lundin létt. Þetta er léttblönduð revía, flutt af heima- mönnum. Hún verður endurtekin á föstudagskvöldið.“ Theódór við bát Gústa guðsmanns en Sigurvin verður til sýnis i miöbænum meðan síldarævintýrið stendur yfir. DV-mynd örn aö eitthvaö sé nefht af því sem í boði sannarlega vonum við að fólk komi er. „Þessi útihátíð er byggð upp í bæinn og njóti þess sem hér verður þannig að jafnt ungir sem aldnir geti til skemmtunar," sagði Theodór að fundið eitthvað við sitt hæfi. Svo lokum. Á fóstudag verður síldarævintýrið formlega sett á Ráðhústorgi og þar með hefst skemmtidagskrá sem stendur til kvölds. Theódór sagði að síðan ræki hver viðburöurinn ann- an. Á laugardag verður samfelld dag- skrá frá hádegi til klukkan þrjú um nóttina og verða skemmtiatriði víða um bæinn. Sömuleiðis verður margt um að vera á sunnudag. M.a. ríða hestamenn upp í Hvanneyrarskál og verður sóknarpresturinn í broddi fylkingar. Síöan verður guðsþjón- usta. Hápunktur ævintýrisins verð- ur sjálf síldarsöltunin sem fer fram á laugardag og sunnudag. Byggt verður sérstakt síldarplan skammt frá Ráðhústorginu. Vinnu- brögð við söltunina verða nánast eins og í gamla daga. Þá verður að geta þriggja dansleikja og sjóstanga- veiðimótsins SJÓSIGL sem stendur í tvo daga. Sirkus Arena verður með sýningar, fólk getur leigt hesta og gestir geta siglt út fjörðinn á smábát- um og bílferðir verða upp í Skarð svo mótUngs fólks með hlutverk Ðagana 30. júlí til 3. ágúst verð- ur fjölskyldumót Ungs fólks með hlutverk á Eyjólfsstöðum í Valla- hreppi, aðeíns 10 km frá Egjls- stöðum. Mótið er haldið á jörð samtakanna, þar sem rekinn er biblíuskóli á vetuma en gisti- þjónusta á sumrin. Aðstæður á staönum eru góöar og tjaldstæði næg. Mótiö er öllum opið. Á kvöldin verða samkomur en á morgnana verður biblíu- fræðsla. Sérdagskrá verður fyrir böm og unglinga, en einnig verð- ur boöið upp á fiölbreytta skemmtidagskrá sem allir geta tekið þátt í. Ungt fólk meö hlut- verk eru kristileg samtök sem starfa innan þjóðkirkjunnar. Markmið Ungs fólks með hlut- verk er að boða fagnaðarerindið til allrar þjóðarinnar. Nánari upplýsingar og skráning I síma 97-12171 og 97-11732.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.