Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. Ferdir Hólmfríður á veröndinni. A sólríkum sumardögum er afar vinsælt að snæða þar morgun- og hádegismat. Hótel Edda, Húsmæðraskólanum á Láugarvatni: Laugarvatn er sælu- reitur Suðurlands segir Hólmfríður Gísladóttir hótelstjóri Það er ekki tilviljun að heima- menn skuli kalla Laugarvatn „sumarleyflsparadís". Á góðviðris- dögum er engu líkara en fólk sé komið til suðrænna sólarstranda því á Laugarvatni spranga menn um léttklæddir og bömin busla í vatninu. Sumir njóta þess að vera fjarri erb dagsins og damla á ára- bátum um vatnið meðan aðrir steypa sér 1 splunkunýja sundlaug íþróttakennaraskólans. Enn aðrir slaka á í gufubaði sem er sérstætt fyrir þá sök að þar er notuð hrein hveragufa. Þaö var eimitt á svona degi sem DV tók hús á Hólmfríði Gísladóttur hótelstýru. Hólmfríður stýrir rekstri Edduhótelsins í Hús- mæðraskólanum á Laugarvatni - og hefur gert í níu sumur. Með henni starfa ellefu manns. Til að fyrirbyggja hugsanlegan misskiln- ing skal þess strax getið að á vet- uma er íþróttakennaraskóli ís- lands í húsinu. Húsið var byggt fyrir aldarfjórðungi og hvert sum- ar síðan hefur verið starfrækt sum- arhótel í því. Laugarvatn er miðsvæðis og stutt til margra merkra og fallegra staða. Það tekur stutta stund að aka á Þingvöll eða íara og skoða Geysi, Gullfoss og Skálholt svo dæmi séu tekin. Þaðerkyrrðin sem heillar „Það er kyrrðin sem heillar,“ sagði Hólmfríður þegar við stóðum á tröppunum. „Ég verð alltaf jafn snortin af henni þegar ég kem hing- að á vorin. Þetta er líka níunda sumárið mitt héma og það segir sitt um álit mitt á staðnum. Ég kalla Laugarvatn sælureit Suður- lands.“ Það er ekkert skrítið þótt Laugarvatn hafi tekið Hólmfríði föstum tökiun. Veðursæld er mikil á Laugarvatni og á kyrrum sumar- kvöldum speglast skógivaxin hlíðin í vatninu. Saga lands og þjóðar er lika við hvert fótmál. Niðri við vatn- iö er Vígðalaug þar sem menn vom skírðir til foma og lík þeirra Hóla- feðga vora lauguð vorið 1551 áður en þau vom flutt til greftrunar fyrir norðan. Þar er líka Jónasarlundur, skjólgóður gróðurreitur 1 kjarrlend- inu ofan við þorpiö, kjörinn staður til að njóta sólar. Laugarvatn er skólastaður og þar er að finna eitt af glæsiverkmn Guðjóns Samúels- sonar arkitekts. Hér er um að ræða Héraðsskólann sem byggður var í burstabæjarstíl árið 1928. Sú bygg- ing ætti að gleðja augu hvers þess sem hefur áhuga á fögrum og sér- stæðum byggingum. Gufubað, seglbretti og gönguferðir „Það er svo margt sem fólk getur gert á þessum slóðum. Hingað kem- ur t.d. margt hjóna- og fjölskyldu- fólk sem dvelur hér í tvo, þijá daga og slappar af. Gestimir geta farið í gufubaðið sem er í næsta húsi eða spilað golf en nú er verið að leggja lokahönd á 9 holu völl sem einnig er í næsta nágrenni. Við vatniö er báta- og seglbretta- leiga sem leigir ýmsar gerðir af vatnafarkostum auk þess sem hún stendur fyrir námskeiðum í segl- brettasiglingum. Þá em nokkrar minigolf brautir á vatnsbakkanum og hægt er að fá veiðileyfi hjá land- eigendum í ár og vötn á svæðinu. Þá má nefna hestaleigu sem er í Miðdal og ekki megum við gleyma nýju útisundlauginni sem var opn- uð í síðasta mánuði. Tilkoma henn- ar breytti afar miklu fyrir ferða- fólk." Hólmfríður sagði einnig að gönguleiðir væm margar og falleg- ar í nágrenninu. Sem dæmi má nefna göngutúr upp á Laugar- vatnsfjall. Frá fjallsrótum em um 500 metrar upp á brún og er það tilvalin fiölskyldugönguleið. Styst er að fara upp frá Pósti og síma en auðveldara er að ganga öxlina ofan skíðalyftu. Þegar upp er komið er útsýni til allra átta. Stóragil eystra er gilskomingm- milli Laugar- vatnsfjalls og Snorrastaðaíjalis. Það tekur um 15 til 20 mínútur að ganga þangað frá Laugarvatni og í gilinu era hellar og klettar sem skemmtilegir em fyrir klifurgarpa. Neðan við hellana er Reyniviðar- brekka og þar er svonefnd Trúlof- unarhrísla. Sagan segir að henni fylgi álög ef tekin er af henni grein - en ekki er vitað hvort henni fylg- ir gæfa eða ógæfa! Hlýlegtviðmót „Ferðamannastraumurinn er all- ur að færast í aukana. Júnímánuð- ur var frekar slakur en ástæðan er sú að hér voru engar ráðstefnur eins og mörg undanfarin ár. Auk þess rigndi talsvert í júní og það hefur sitt að segja hjá okkur þar sem við leggjum mikið upp úr hin- um almenna ferðamanni en minna er um hópa. Yfirleitt fara þeir t.d. í Edduhótehð í menntaskólanum," sagði Hólmfríður. í hótelinu henn- ar Hólmfríðar era 27 tveggja manna herbergi með baði. Að sjálf- sögðu er rúmgóður matsalur í hót- elinu og þar er einnig að finna bar með öllum þeim vökvum sem til- heyra. Á þeim árum sem liðin em síðan Hólmfriður fyrst steig inn 1 skólann, sem í upphafi hýsti ungar meyjar sem vildu læra hússfjómar- fræði, hefur mikið veriö lagað og bætt. Að sjálfsögðu er ekki hægt að bera hótelið saman við lúxushótel í höfuðborginni en það sem skortir í ytri glæsileik er bætt upp með hlý- legu viðmóti, óviðjafnalegu um- hverfi og margvíslegri dægradvöl. Sfiómendur margra fyrirtækja hafa líka uppgötvað hótehð. Það gerist æ algengara að haldin séu stutt námskeið fyrir starfsmennina í því enda næst mun betri árangur í sveitakyrrðinni en í erUnum í Reykjavík. Þá hafa starfsmanna- hópar oft lagt leið sína á Laugar- vatn eftir vinnu og notið þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða, farið í gufu og sund og endað dag- inn með stórsteik - og farið heim um kvöldið eða jafnvel gist. Hið sama gera fjölmargar fjölskyldur um helgar og þær fara ekki síst í kaffihlaðborðið sívinsæla sem stendur tíl boða um helgar. Töfradúkar í eldhúsinu? í eldhúsinu ráða ríkjum þeir Guöjón Harðarson og Jón Sigfus- son og líklega ráða þeir yfir töfradúkum úr gömlum ævintýr- um eða hver man ekki eftir slíkum sögum efltir þá Grimms bræður? Nokkur dularíuU orö og þá spruttu fram ijúkandi réttir. Það kæmi ekki á óvart þótt einn slíkur dúkur væri í eldhúsinu. Þess má og geta að Jóni er fleira tíl Usta lagt en að búa til góðan mat. Um næstu helgi opnar hann sýningu á málverkum í báðum Edduhótelunum! Glaðlegt, ungt fólk ber matinn fram með bros á vör og maginn fyllist fljótt af gómsætum lambasteikum og sU- ungi úr Laugarvatni. Hólmfríður sagði að þegar öUu væri á botninn hvolft væri það einmitt lambakjöt- ið og sUungurinn sem nytu mestra vinsælda gesta. íslendingar em ív- ið duglegri við að reyna nýja og framandi rétti en útlendingar hafa mestan áhuga hefbundnum mat. Sautján Edduhótel í sumar Með tilkomu Edduhótelanna fyr- ir 30 ámm gjörbreyttust möguleik- ar mörlandans ög erlendra ferða- .manna. Fyrir daga þeirra var Ult að fá inni á hótelum enda voru þau fá og nær einungis að finna á þétt- býUsstöðum. í sumar em þau 17 talsins. Edduhótelin eru opin frá júnibyijun tíl ágústloka en auk þess em Hótel Edda á Kirkjubæjar- klaustri og Hótel HvolsvöUur starf- rækt aUt árið. Á Edduhótelunum er boðið upp á gistingu í herbergj- um með handlaug og á sumum, eins og í íþróttakennararskólan- um, má fá herbergi með baði. Á flestum hótelanna má einnig fá gistingu í svefnpokaplássi. Á öUum hótelunum er veitingaþjónusta frá morgni tU kvölds. „Það verður gjörbreyting á skól- unum á vorin. Á örfáum dögum breytist heimavist í alvöm hótel og í sumum tílvikum verður stað- urinn nánast óþekkjanlegur. Hvað okkur varöar þá breytist húsið nokkuð en við emm mjög heppin því nemendur í íþróttakennara- skólanum ganga mjög vel um húsa- kynni á vetuma. Utlendingar sem hingað koma era mjög hrifnir af því hvemig við gjörnýtum hús- næðiö. Laugarvatn er staöurinn fyrir þá sem vUja slaka á og slappa af. Hér hafa börnin nóg við að vera og fuU- oröna fóUdð ekki síður. Hér geta menn hlustað á þögnina. Sá sem gengur hér út í sumamóttina og upplifir kyrrðina og frelsið verður ekki samur á efdr. Það er meiri- háttar að fara út og heyra ekki neitt, ef svo mætti að orði kom- ast.“ Því ekki að skeUa sér til Laug- arvatns? Þú færð nánari upplýs- ingar í síma 98-61154.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.