Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 22
40 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. Ferðir „Vissulega hafa bílamir breyst töluvert á undanfómum árum. hæfni mannsins og dómgreind hans hefur ekki tekið sýnilegum framfór- um. Það em hins vegar mannleg mistök sem em orsök mikils meiri- hluta allra umferðarslysa hér á landi. Það er sárasjaldan haegt að skella skuldinni á bílinn eða veginn. Það er maðurinn sem stýrir bílnum sem gerir gæfumuninn." Bílbelti og barnastólar - En hefur öryggisbúnaður eins og bílbelti og barnabílstólar ekki aukið öryggið? „Jú, það er óhætt að svara því með jái. Hins vegar kemur öryggisbúnað- ur aldrei í veg fyrir óhöpp. Hann getur hins vegar skipt miklu máh til að koma í veg fyrir að afleiðingar óhapps verði mjög alvarlegar. Ég held að fullyrða megi að ákveðnum áverkum í umferðarslysum hafi fækkað til muna á síðari árum fyrir áhrif bílbeltanna. Á undanfornum árum hefur mátt sjá greinilega fækk- un alvarlega slasaðra í umferðinni og eina sjáanlega skýringin er aukin notkun bílbelta og annars öryggis- búnaðar. En það skiptir miklu máli að fólk sé vel á verði og muni að spenna beltin. Takið lífinu með ró! Er hægt að nefna einhver sérstök atriði sem fólk getur haft í huga þeg- ar það leggur af stað út á þjóðvegina? „Ég var fyrr búinn að minnast á hraðann. Þá ber að nefna að fólk sýni aðgát við framúrakstur og reyni hann ekki nema það sé fullvisst um að óhætt sé að fara fram úr. Það spar- ar kannski fáeinar sekúndur að fara fram úr bílum en því fylgir gífurleg áhætta og streita. Þá má ekki gleyma blindbeygjunum og blindhæðunum. Við síkar aðstæður þarf að fara gæti- lega og einnig þegar komið er að stöð- um þar sem vegur þrengist, eins og við brýr. Og slíkar þrengingar geta líka verið á vegum með bundnu slit- lagi og þeir eru margir sem átta sig ekki nógu fljótt á að það er aðeins ein akrein yfir brúna. Það skiptir líka miklu máh að fólk sem er í fríi taki lífinu með ró. Sá sem er að flýta sér mikið á mun frekar í hættu að lenda í óhappi en sá sem er rólegur og yfirvegaður. Einnig er mikhvægt séu böm með í fór að stoppa með reglulegu mhlibih. Þann- ig verða bömin rólegri í bílnum og auðvitað hafa allir gott af að rétta úr sér og hvUa sig frá akstrinum. Það skiptir verulegu máh að aUir leggi sig fram í umferðinni. Hún er eins og keðja þar sem einn veUcur hlekkur getur skipt sköpum. Og aðal- atriðið er að við gerum okkur öll grein fyrir því hversu mikU ábyrgð fylgir því að stjórna bíl. Undir stýri berum við ábyrgð, gagnvart okkur sjálfum og einnig gagnvart öðrum vegfarendum,“ sagði Sigurður að lokum. Ferðir um Sprengisand Á miðvikudögum og laugardögum klukkan 8 fer rúta frá Guðmundi Jónassyni frá Reykjavík (BSÍ) tU Mývatns um Sprengisand. Komið er í Mývatnssveit (Reynihhð) klukkan 20. Rútan fer frá Mývatnssveit á fimmtudögum og sunnudögum kl. 8:30 og frá Skútustöðum kl. 8:50. TU Reykjavíkur er komið um kl. 20. Nestispakki í hádegi er innifalinn í verði ásamt leiðsögn. Önnur leiðin kostar kr. 6.300 en kr. 10.900 ef keypt- ar eru báðar leiðir. Fólk er beðið um að panta miða með fyrirvara. Nánari upplýsingar fást í síma 91-683222. Reykjavík Reykjavík — Sprengisandur — Mývatn Förum varlega í umferðinni. Komum heil heim. • • DV-mynd S Oryggisbúnaður kemur aldrei í veg fyrir óhöpp - segir Sigurður Helgason, upplýsingafulltrúi Umferðarráðs Ef þú ert í vondu skapi: Farðu afar varlega í umferðinni! Það skiptir afar miklu máh að öku- menn hafi ekki farið öfugum megin fram úr rúminu áður en haldið er af stað - hvort sem um ferðalög er að ræða eða bara stutta ferð í bæinn. Fjölmörg óhöpp má rekja beint til þess að ökumennimir voru í slæmu andlegu ástandi. Þýskur sérfræðing- ur hefur leitað orsaka fyrir 1.382.000 mnferðaróhöppum og komist að þeirri niðurstöðu að orsakarinnar sé að leita í andlegu ójafnvægi hjá öðr- um hvorum aðilanum í 460.000 tilfeh- um! Þar sem verslunarmannahelgin er ekki langt fram undan er rétt að minnast annarrar athugunar sem einnig var gerð í Þýskalandi. Afar margir létust í umferðarslysum eftir að hafa farið á diskótek. Og orsök slysanna var ekki áfengisneysla heldur hafði stemmningin á diskó- tekunum örvandi áhrif sem leiddi th ógæthegs aksturs. Guðmundur Jónasson: aðstæðum, sagði Sigurður Helgason, upplýsingafuhtrúi Umferðarráðs." Bakkus tók 50 manns á 10 árum - Er ölvunarakstur stórt vandamál í umferðinni? „ Já, það er ótrúlega algengt að öku- menn, sem lenda í slysum, séu undir áhrifum áfengis. Það á ekki síst við á sumrin. Og því miður eru afleiðing- ar margra slysa, þar sem ölvun kem- ur við sögu, mjög alvarlegar. Má þar nefna að í a.m.k. einu af hveijum fimm banaslysum í umferðinni hér á landi á undanfómum árum hefur mátt rekja orsökina th ölvunar. Sam- kvæmt því má áætla að um fimmtíu manns hafi látið lífið af þeirri ástæðu á síðustu tíu árum. Og oftar en ekki er þar um ungt fólk að ræða.“ Skuldinni verður ekki skellt ávegeðabíl - Hafa bhar ekki breyst og orðið ör- uggari á síðustu árum og er því ekki í lagi að hækka hámarkshraðann? Langflest umferðarslys verða á sumrin, samkvæmt reynslu undan- farinna ára. Það eru fyrst og fremst júní, júlí og ágúst og getur munurinn orðið mjög mikhl í þeim mánuðum sem fæst slys verða. Þetta segir Sig- urður Helgason, upplýsingafulltrúi Umferðarráðs. Hann segir ennfrem- ur að ungt fólk komi margfalt oftar við sögu í umferðarslysum heldur en aðrir aldursflokkar. Hraðinn er óvinur ökumanna - Hveijar eru algengustu orsakir slysa? „Það er hægt að nefna margar ástæður. í fyrsta lagi eru margir á ferð á þessum árstíma á vegum þar sem þeir þekkja htið th. Aðstæður eru hugsanlega framandi og fyrir bragðið lendir fólk í óhöppum. Hrað- inn er óvinur ökumanna númer eitt. Þeir eru margir til dæmis sem ekið hafa út af eða velt bílum á malarveg- um vegna þess að of hratt hefur ver- ið farið. Það stafar meðal annars af því að fólk er óvant akstri á malar- vegum og eins hafa margir brennt sig á því að aka á sama hraða á veg- um með bundnu slitlagi og á möl- inni. Þar kemur th eins konar hraða- blinda þar sem ekið er jafnhratt óháð Reyndar hafa þær breytingar bæði verið til góðs og hls því smábhum hefur fjölgað og þeir eru ekki eins öruggir og stærri bílar. En hraðinn er áfram og veröur jafn hættulegur og þótt bílamir hafi í sumum tilfell- um breyst til batnaðar er eitt atriði sem hefur lítið eða ekkert breyst. Þar á ég við mannlegt eðli, þannig að Sigurður Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.