Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. 41 Ferðir Nýtt aðal- kortaf Vestíjörðum Landmælingar íslands hafa gefið út nýtt aðalkort af íslandi í mæli- kvarða 1:250,000. Um er að ræða blað 1 sem sýnir Vestfirði. Kortið hefur mikið verið leiðrétt frá síðustu útgáfu. Það veitir m.a. nýjustu upplýsingar um þjóðvega- kerfið á Vestfjörðum, veganúmer, vegalengdir og gerð shtlags. Á kort- inu er að finna rúmlega 2.000 ör- nefni, auk upplýsinga um feijuleiðir, neyðarskýh og söfn, svo dæmi séu tekin. Kortið er fáanlegt í Kortaverslun Landmælinga íslands og á 200 sölu- stöðum um land allt. Norðurleið: Ferðir yfir Sprengisand og Kjöl Norðurleið er með fastar áætlun- arferðir yfir Sprengisand og Kjöl í júh og ágúst. Þegar haldið er yfir Sprengisand er farið frá Reykjavík á mánudögum og fimmtudögum kl. 8 frá BSÍ. Þegar Kjalvegur er ekinn er haldið upp frá Ákureyri á miðviku- dögum og laugardögum kl. 8.30, frá afgreiðslu Sérleyfisbifreiða við Geislagötu. Leiðsögumaður er ætíð með í fór. Meirihluti farþega er yfir- leitt af erlendu bergi brotinn. Farþegar í þessum ferðum fá svo sannarlega sinn skammt af stór- brotnu, íslensku landslagi. Hér er ekki rúm til að rekja ferðirnar í smá- atriðum en nefna má að á norðurleið er t.d. stoppað í Nýjadal og hjá Ald- eyjarfossi. Á suðurleið er t.d. stoppað á Hveravöhum og hjá útsýnisskífu á Fjórðungsöldu. Önnur leiðin um Sprengisand eða Kjöl kostar kr. 8.200, báðar leiðir um hálendið kostar kr. 15.600. Ef önnur leiðin er um hálendið en hin um byggð (Norðurleið er með áætlunar- ferðir mhli Akureyrar og Reykjavík- ur) kostar miðinn kr. 10.800. Veittur er sérstakur barnaafsláttur. Sem dæmi má nefna að 4 th 7 ára greiða kr. 4.100 fyrir aöra leiðina um Sprengisand eða Kjöl. Leiðsögn og veitingar eru innifaldar í verði. Nán- ari upplýsingar eru veittar í síma 91-11145. 1. fíeykjavík — Spféfígœandur — Akureyri 2. Akureyri — Kjölur — Reykjavík Reykjavik £23- Vandinn að velja sjónauka Margir hafa rekið sig á að erfitt getur reynst að velja sjónauka við hæfi. Th eru margar gerðir og ótal útfærslur. Verðið er afar mismun- andi og svo er einnig um gæðin. Sjón- aukinn er gömul uppfinning, eins og kunnugt er úr sögubókum, og hann á sér langa þróunarsögu. Þjóðverjar hafa löngum verið fremstir í fram- leiðslu alls konar sjóngleija og eru það trúlega enn. Merki á borð við Zeiss Ikon og Leica eru heimsþekkt og voru það löngu fyrir stríð. Japan- ar hafa hins vegar sótt á jafnt og þétt og sagt er að bestu japönsku gerðirnar gefi þeim þýsku lítið eftir. Á bak við hönnun sjónaukans er ákveðið lögmál. Þess vegna hafa ekki orðið verulegar breytingar á útliti eða gerðum í áratugi. Á síðustu árum hefur þó komiö á markaðinn ný kyn- slóð sjónauka, nokkurs konar „krhi“. Þeir eru litlir og léttir en það kemur eitthvað niður á gæðunum. Eftirfarandi tafla getur vonandi eitt- hvað hjálpað th við val á sjónaukum. SAMANBURÐARTAFLA 3X25 3X28 4X30 6X21 7X35 7X35 VL 7X42 7X50 8X56 9X63 7X21 8X21 9X25 10X25 8X25 10X42 X ro 1 10X60 10X50 12X50 16X50 20X50 ZOOM Stjörnuskoðun L L G G G Á S S G Á Á G S G Almenn not S G Á Á Á G G G Á G G S L G Innanhús íþróttir G Á Á Á Á S G Á G S S L L G Utanhús íþróttir S G Á Á Á G G G Á G G G L G Kappreiðar S S Á Á Á G S G Á G G G S Á Siglingar L S G G G Á S G G G G S L G Veiðar L G G G G G G Á Á G Á G S G Gönguferðir S Á G G G S Á Á Á L L L L G í skóglendi S G G G G Á S G Á Á Á Á S G Við eftirlitsstörf L S Á Á Á Á G G Á Á Á G G Á Náttúruskoðun L S Á Á Á Á S G Á G G G S . G Fjallaferöir L G G G G L Á G G L L L L S Almenn ferðalög S G Á Á Á G Á Á Á G G S L G Að næturlægi L L G G G Á S S G G G G L G í leikhúsi Á Á G G G L G S G L L L L S Á = Ágætt, G = Gott, S = Sæmilegt, L = Lélegt, VL = Víðlinsa Samkomutjöld Höfurri til leigu 20-75 fm tjöld fyrir ættarmót, starfsmannahátíðir og aðrar samkomur. Skátafélagið Hraunbúar, Hafnarfirði sími 650900 og 985-34205. Ferðafólk á Norðurlandi Frábær sérréttaseðill öll kvöld. Ódýr réttur dagsins í hádeginu og á kvöldin. Gisting í þægilegu umhverfi. Hótel Húsavík Góður áningarstaður í alfaraleið um Þingeyjarsyslur. Heimagisting í Mývatnssveit Að Garði m í Mývatnssveit búa Þorlákur Páh Jónsson og Ingunn Guðbjörnsdóttir ásamt tveimur son- um. í fyrra hófu þau rekstur „Ferða- þjónustunnar Garði 111“ og bjóða þau upp á gistingu í þremur svefnher- bergjum með alls 10 rúmum. Einnig er hægt að fá svefnpokapláss ef óskað er. Gestir geta eldað sér mat ef þeir vhja. Næsta vetur er mögulegt að fá gistingu ef þannig stendur á. Síminn er 96-44314. Verð pr. nótt er kr. 1200 fyrir svefnpokapiáss en kr. 1800 í uppbúnurúmi. DV-myndFB HOTEL BLAFELL BÝÐUR YKKUR VELKOMIN Eins og tveggja manna herbergi. I veitingasal er boðið upp á Ijúffengan og heimilislegan mat hádegi og á kvöldin. Einnig grillrétti og pitsur við allra hæfi. j J Góður staður til að dvelja á ef þér eruð á leiðinni um Austfirði. Seljum lax- og silungsveiðileyfi í Breiðdalsá. HÓTEL i:^tL BLÁFELL Simi (»7)56770 Breiðdalsvík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.