Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Blaðsíða 24
42
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992.
Ferðir
- á hestbaki á slóðnm Gunnars Hámundarsonar
Jón Þórðarson, DV, Rangárþingi:
Á löngu ferðalagi er nauðsynlegt
að hvíla sig annað slagið á stressinu
sem fylgir því aö aka þjóðveg nr. 1.
Ferðamenn á Suðurlandi ættu til
dæmis að aka inn Fljótshlíð og
bregða sér á hestbak hjá hestaleig-
unni í Eyvindarmúla. Það er margt
sem fyrir augu ber þegar ekið er inn
Fljótshlíðina. Landslagið er fagurt
og fjölbreytilegt og Hlíðin er fallega
gróin og búsældarleg. Það er ekkert
skrítið þótt Gunnar Hámundarson
hafi haft orð á því að Hlíðin væri
fógur.
Innarlega í hlíðinni, nánar tiltekið
tvo km austan við afleggjarann, þar
sem beygt er niður að gömlu Markár-
fljótsbrúnni, er bærinn Eyvindar-
múli. Þar er rekin ferðaþjónusta
bænda með gistingu og tilheyrandi
þjónustu. Einnig er þar hestaleiga.
Hægt er að mæta á staðinn og fá leigð
hross til fárra stunda en einnig er
möguleiki á ferðum sem standa í
heila viku - en þá þarf að panta með
góðum fyrirvara.
Góð aðstaða er á bænum til að taka
á móti ríðandi ferðalöngum en bær-
inn er á góðum stað fyrir þá sem fara
um Syðri-Fjallabaksleið. I grennd við
bæinn eru fallegar gönguleiðir. Nán-
ari upplýsingar fást í síma 98-78492.
Nýr möguleiki í
gistingu á Akureyri
Ferðafólki
fjölgar á
Króknum
. ÞórhaHur Ásmunds., DV, Sauðárkróki:
„Þaðer eins og spölurinn sé að
styttast út á Krók eftír þvi sem
staöurinn verður þekktari. Viö
erum komin vel inn á landakort-
ið. Líklega er það körfuboltanum
mikið að þakka en slöan er þaö
Drangey og ýmiss konar afþrey-
ing á staðnum sem togar í fólk,“
sagði Einar Steinsson, fram-
kvæmdastjóri Áningar. Sem
dæmi neöidí Einar að bókanfr
ferðahópa hefðu aukist um 10%
miðað viö sumariö í fyrra
„Þetta gerist þrátt fyrir allan
barlóminn í kringum okkur og
við höfum veriö að bæta við okk-
ur ár frá ári. Á síðasta ári jukust
bókanir um 25%, þar áður um
50% og enn meira árið á undan.
Þrátt fyrir það getum við enn
bætt nýtinguna sem er 80% í júli
en dettur niöur fyrir 60% í júní
og ágúst."
Áning hefur yfir að ráða mjög
góðri aöstöðu í heimavist fjöl-
brautaskólans en þar er 71 her-
bergi með baði Þá er þar ein
svíta, rúmgóð setustofa, koníaks-
stofa og fleira mætti nefna. Þá eru
sex gistiherbergi á Kirkjutorgi
með ódýrari gistingu. í vor færði
Áning út kvíarnar þegar fyrir-
tækiö tók aö sér rekstur ferða-
mannaþjónustunnar i grunn-
skólanum á Hólum í Hjaltadal.
Starfsemi Áningar hefur mikia
þýðingu fyrir atvinnuiif i héraö-
inu yflr sumartímann. Fastráönir
starfsmenn á Sauöárkróki eru 25
faisins, sex eru iausráðnir og á
vegum Áningar starfa þrír viö
ferðamannaþjónustuna á Hólum.
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyn:
„Þegar við fórum að leita aö mögu-
leikum á nýtingu á þessu húsi datt
okkur í hug móttaka á ferðamönn-
um, ferðamannaþjónustan er í vexti
og okkur datt í hug að reyna að finna
nýjan gistimáta hér í bænum. Hér
eru mörg gistiheimiii en engar svona
íbúðir eins og fólk þekkir í útlönd-
um,“ sögðu þeir Tryggvi Pálsson og
Jón Páll Tryggvason er DV leit inn
hjá þeim að Strandgötu 13 á Akur-
eyri á dögunum.
í því gamla húsi, sem var byggt
árið 1906, hafa nú verið standsettar
sex svokallaðar „stúdíóíbúðir" sem
eru þær fyrstu sinnar tegundar á
Akureyri. íbúðimar eru 30-35 fer-
metrar að stærð, þar era rúm fyrir
fjóra og hægt að setja inn aukarúm.
Állar íbúðirnar eru með eldhúsi með
Áhugamenn um sjóstangaveiði
ættu að leggja leið sína til Grindavík-
ur. Daglega klukkan 13 fer bátur frá
Grindavík með sjóstangaveiöimenn
og komið er að landi klukkan 18.
Þessar ferðir verða boðnar tii 15.
ágúst.
Léttmeti, heitir og kaldir drykkir
fást um borö. Fyrir þá sem ekki eiga
þess kost að fara á eigin bíl er rétt
öllum búnaði, baðherbergi með
sturtu, sjónyarpi og síma og hinar
vistlegustu. í skáp á gangi, sem gest-
ir hafa lykil að, er hægt að nálgast
straubretti og straujám, hárþurrku
og ryksugu ef fólk vill sjálft ryksuga
íbúð sína. Verð fyrir hveria íbúð á
sólarhring er sex þúsund krónur.
Tryggvi Pálsson sagði að sú þjón-
usta væri fyrir hendi fyrir þá sem
vildu notfæra sér hana að gestir
gætu haft aðgang að bréfasíma, ljós-
ritunarvél og jafnvel ritvinnslu og
væri sú þjónusta án aukagjalds.
„Við höfum ekki orðið varir við
annað en ánægju hjá þeim sem hafa
gist hjá okkur. Við sjáum það best á
gestabókunum í íbúöunum að fólk
er ánægt og þaö skrifar nánast und-
antekningarlaust að það hyggist
koma aftur og gista hér,“‘ sagöi
Tryggvi.
að geta þess að þeir geta tekið rútu
sem fer frá BSÍ klukkan 10:30. Hægt
er að leigja útbúnað um borð - þar
með talin hefbundin færi ef menn
vilja þau frekar. Hópar geta tekið
bátinn á leigu á öðrum tíma en fyrr
var nefndur. Lágmarksfjöldi í veiði-
ferð er sjö og verðiö er kr. 5.000 á
mann. Nánari upplýsingar er að fá í
síma 92-68626 og 15575.
Sjóstangaveiði
frá Grindavík
íslandsbanki:
Styður við bakið á
umhverfissinnimi
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að landeyðing á íslandi er mik-
il og mun fara vaxandi ef ekki verður
gripið til frekari aðgerða á næstu
árum. Þó fer vitund fólks hvar sem
er í heiminum almennt vaxandi um
nauðsyn þess að við göngum betur
um garða móður náttúru. íslands-
banki er eitt þeirra fyrirtækja á ís-
landi sem vilja auka veg náttúru-
vemdar og með gerðum sínum á því
sviði hvetur hann fleiri fyrirtæki til
aö styðja við málstaðinn í orði og
verki.
„Við viljum styðja við bakið á þeim
sem starfa að umhverfismálum,
virkja starfsfólk til góðra verka á því
sviði og skoða hvað við getum gert í
rekstri bankans í umhverfismálum.
Við höfum til dæmis hrint í fram-
kvæmd átaki sem miðar að reyklaus-
um banka fyrir árið 2000 og öll frétta-
bréf og umslög bankans eru prentuð
á vistvænan pappír. Þá beinum við
því til starfsmanna að nota ekki ein-
nota plastmál undir drykki,“ sagði
Tryggvi Pálsson bankastjóri.
Sérstakur skógræktar-
dagur
Undanfarin tvö ár hefur starfsfólk
íslandsbanka, VÍB og Glitnis ásamt
fjölskyldum tekið þátt í að græða
landið grænum greinum. Á síðasta
ári gaf íslandsbanki Skógræktarfé-
lagi Islands 90 þúsund trjáplöntur til
að gróðursetja og á bilinu fimm til
sex hundruð starfsmenn bankans
gróðursettu um 25 þúsund þeirra á
14 stöðum viðs vegar um landið á
sérstökum degi sem bar yfirskrifina
Skógræktardagur íslandsbanka.
Sem dæmi um áhuga starfsmanna
og fjölskyldna þeirra má geta þess
að Húsvíkingar hafa heldur betur
tekið til hendinni því þeir hafa gróð-
ursett a.m.k. 6500 trjáplöntur upp
með Búðará og fyrir neðan Botns-
vatn á undanfornum þremur árum.
„Við höfum tekið einn dag í þetta
eftir vinnu og farið ásamt fjölskyld-
um okkar og sett niður. Eftir það
höfum við grillað saman. Mér finnst
mjög gaman að standa í þessu því
auk þess sem maður er að greiða
hluta af skuldinni við landið skapar
svona samstarf mikla samkennd
meðal starfsmanna. Þetta er hollt
fyrir starfsanda á vinnustöðum,"
segir Örn Bjömsson, útibússtjóri á
Húsavík.
Fjórar plöntur fyrir
hvem fæddan íslending
Tryggvi Pálsson segir að íslands-
banki hafi einnig ákveðið á síðasta
ári að gefa Skógræktarfélagi íslands
íjórar tijáplöntur fyrir hvern fæddan
Islending sem kemur í heiminn á
árinu 1991. Á síðasta ári fæddust alls
4.533 böra og ætlar starfsfólk bank-
ans og fjölskyldur þeirra, ásamt liðs-
mönnum skógræktarfélaga, að gróð-
Tryggvi Pálsson.
ursetja um 20.000 plöntur í sumar.
Sami háttur verður hafður á næstu
árin og mun starfsfólk bankans því
koma saman a.m.k. einu sinni á ári
til að gróðm-setja.
íslandsbanki gaf Landgræðslu rík-
isins á síðasta ári eina milljón króna
til kaupa á raðsáningarvél til land-
græðslu og landbóta. Landgræðslan
átti fyrir eina slíka vél sem keypt var
frá Nýja-Sjálandi og hefur hún reynst
ákaflega vel við erfiðar aðstæður en
vélin er mjög traustbyggð og þohr
talsvert hnjask.
Snúisttilvamar .
í Dimmuborgum
„Dimmuborgir eru ein mesta nátt-
úruperla sem Islendingar eiga. Þang-
að leiiar fjöldi ferðamanna, íslenskra
sem erlendra, á ári hverju til að njóta
stórbrotinnar náttúru og veðursæld-
ar. Nú er svo komið að borgunum
stafar veruleg hætta af vaxandi
ferðamannaþunga og sandi sem stöð-
ugt leitar inn í borgimar frá öræfun-
um sunnan þeirra. Því ákvað fs-
landsbanki að veita Náttúruvemdar-
ráði hálfrar mihjónar styrk til að
bæta aðstöðu ferðamanna á svæðinu
og hefta sandfok áður en óbætanlegt
tjón hlýst af,“ sagði Tryggvi.
Að sögn Sólveigar Jónsdóttur,
landvarðar í Dimmuborgum, er ætl-
unin að leggja þrjá til fjóra aðal-
göngustíga sem hggja í mismunandi
hringi um borgirnar. Styrknum frá
íslandsbanka er varið til gerðar
fyrsta áfanga að einum þessara stíga
og hafa 700 metrar verið lagðir.
„Verkið hefur gengið vonum fram-
ar, það er að segja eftir að við komum
möhnni niður í borgimar. Til þess
lögðum við fjalir í brattasta stigann
sem hggur niður og fórum með efnið
í kerru aftan í fjórhjólum. Þetta
verða frábærir stígar þegar yfir lýk-
ur og gjöfin frá bankanum flýtir mjög
fyrir því að aðstöðu í Dimmuborgum
verði komið í viðunandi horf,“ sagði
Sólveig Jónsdóttir, landvörður hjá
Náttúruvemdarráði.
Sólgarðsskóli í Fljótum:
Orn Þóiarinsson, DV, ffyStum:
Undanfarin sumur hefur sífeht
farið í vöxt að haldin séu ættarmót
í Fijótum og er þá bæði um burt-
flutta sveitunga að ræða og einnig
ókúnmigt fólk sem hefur heiiiast
af sveitinni. Ættarmótin eru haldin
í bamaskólanum aö Sólgöröum en
í skólanum er svefnpokapláss fyrir
20 til 30 manns í fjórum skólastof-
um. Gestir hafa aögang að eldhúsi
skólans.
Það sem gerir skólann ekki síst
eftirsóknarverðan er sundlaug og
heitur pottur sem er við húsið. Fé-
lagsheimili sveitarinnar er ekki
langt frá og er það oft fengið þegar
ættarmótsgestír snæða sameigin-
iega máltíð eöa koma saroan tii að
dansa og njóta skemmtiatriða.
Fólki hefur hkað afar vel að dvefja
þama um helgar og slaka á í friö-
sælu umhverfi. Oft koma flölskyld-
ur og fá gistingu í eina eða tvær
nætur.