Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. 43 Skemmti- sigling um Eyjafjörö Næstu helgar geta Akureyringar og feröafólk farið í skemmtisiglingu um Eyjafjörð með ms. Fagranesi. Einnig er áætlað að bjóða síðar upp á ferðir á fimmtudags- og fostudags- kvöldum ef aðsókn er næg. Laugardaga kl. 20 er farið í kvöld- siglingu um Eyjafjörð með viðkomu á Hjalteyri og Svalbarðseyri. Komið verður tíl Akureyrar á nýjan leik ^l. 23. Farmiðinn kostar kr. 2500. Á sunnudögum er gert ráð fyrir þremur ferðum, kl. 10,15 og 20. Hver ferð tekur tvo tíma og gefst fólki kost- ur á að reyna sjóstanga- og dorg- veiði. Farmiðinn kostar kr. 1500. Hægt er að fá léttar veitingar um borð. Brottför er frá Torfunes- bryggju. Skipið er til útleigu á milli aug- lýstra áætlunarferða. Hér er um að ræða skemmtilegan kost fyrir starfs- mannafélög, fyrirtæki og ferðahópa. Nánari upplýsingar eru í síma 985- 31735. Víðistaðatún er nýtt og glæsi- legt útívistarsvæði í hjarta Hafn- arfjarðar. Þar er að finna víðáttu- rniidl tún, fallega tjörn og gróður- reiti og athygb vekja áberandi listaverk á við og dreif. Tjald- svæðið er afmarkað með hlöðn- um veggjum og öjám í skjóli hrauns. Það er skátafélagið Hraunbúar sem sér um rekstur svæöisins í samvinnu við Hafnar- Oarðarbæ. Að sögn umsjónar- manns hafa gestir látið vel af dvölinni og hafa gjarnan haft á orði að svæðið komi skemmtilega á óvart. Á staðnum er snyrtiaö- staða og innifalinn í verði er frí- miöi í Sundhöll Hafnaríjarðar. Gjaldiö er kr. 300 á mann yfír nótt en ekkert tjaldgjald. Frítt er fyrir börn undir 12 ára. Skátar í Hafnarfirði hafa einnig haslað sér völl á öðrum sviðum ferðaþjónustu. Þeir standa fyrir gönguferðum fyrir aSmenning um Hafnarfjörð síðasta sunnudag hvers mánaðar og þeir leígja út samkomutjöld svo eitthvað sé nefht Nánari upplýsingar um tjaldsvæðið á Víðistaðatúni og feröaþjónustu skáta má fá í síma 985-34205 og 650900. Hallbjöm í Kántrýbæ kominn ákreik ÞórhaDur Asmundíison, DV, Sauöárkróki „Ef framhaldið verður eitthvað í líkingu við fyrsta daginn kvíði ég . engu. Þá veröur kátt í Kántrýbæ," sagði Hallbjörn Hjartarson þegar DV hittí hann fyrr í sumar á Skaga- strönd. Kántrýbær var opnaður í vor eftir aö hafa verið lokaður í sex ár. Hallbjöm stóð kófsveittur við að steikja þjóðarréttinn, hamborgara og franskar, þegar DV tók á honum hús. „Þetta er búið að vera ipjög strembið hjá mér undanfarið. Maður. hefur veriö gersamlega á haus í þessu, ekki sofið nema svona þijá tíma á sólarhring. En mér tókst að opna. Ég trúi því sjálfur að fólk vilji hafa Kántrýbæ á Skagaströnd," sagði Hallbjöm og hélt áfram að skella hamborgurum á helluna. Feröir Grillað í Klettshelli Ferðamiðstöð Vestmannaeyja býður nú upp á bátsferðir í kringum Heima- gestum kostur á að snæða dýrindismáltíö í afar sérstæðu umhverfi. Til að ey. Farkosturinn heitir Bravo. Auk hefðbundinna siglinga býður Ferðamið- skapa rómantíska stemmningu eru logandi kerti sett á sjóinn og varpar stöðin, í samvinnu við Veitingastaðinn Muninn og Hótel Þórshamar, fólki birtan frá þeim leyndardómsfullum blæ á hellisveggina. upp á griliveislu í Klettshelli sem er við innsiglinguna til Eyja. Þar gefst DV-mynd ÓG Svefnpokar: Að mörgu er að hyggja Upphaflega notuðu menn skinn til að sofa við á ferðum sínum. Þegar mannskepnan lærði að búa til þræði og vefa komu mottur og værðarvoöir til sögunnar og enn síðar sængur og svefnpokar. Ekki eru nema þrír tugir ára síðan sumir íslenskir jökla- og öræfafarar létu sérsauma fyrir sig svefnpoka úr gærum. Þá var reyndar venjulega notuð ull sem einangnm í svefnpoka en dúnpokar þó fáanlegir. Svefnpokarþurfa að veravandaðir Þegar þú velur svefnpoka skaltu byija á að gera þér grein fyrir til hvers þú ætiar að nota hann. Fyrir félaga í hjálpar- og björgunarsveitum dugar ekki annað en góður poki. Ef ætlunin er að nota pokann að sumar- lagi þarf hann ekki að vera eins vandaður en samt þarf að gera ráð fyrir því að hitastigið getí farið vel niður fyrir frostmark. Næstum ör- uggt má telj að þeim sem kaupa poka sem ekki eru gerðir fyrir töluvert frost verður kalt í pokanum, jafnvel um hásumar. Káupið því aðeins vandaðan poka. Verðmunurinn er ekki svo mikill þegar að er gáð. Miklu skiptir hvemig svefnpokinn er í laginu og að hann sé af heppi- legri stærð. Næstum allir pokar eru viðastir efst og mjókka niður. Pokinn þarf að vera a.m.k. 35 til 40 sm lengri en notandinn. Þannig þarf maður sem er 180 sm á hæð svefnpoka sem er a.m.k. 215 til 220 sm á lengd. Al- gengasta breidd svefnpoka að ofan er um 85 sm og að neðan 35 sm. Upplýsingar fram- leiðanda aðeins leiðbeinandi Framleiðendur gefa upp tölur sem eiga að segja okkur við hvaða hita- skilyrði sé heppilegt að nota viðkom- andi poka eöa á hvaða árstíma. Þess- ar upplýsingar eru þó aðeins leið- beinandi og alls ekki má taka þær of bókstaflega, enda styðjast allir framleiðendur við sams konar próf- anir. Þá eru upplýsingamar miðaðar við að pokinn sé nýr og að hann sé notaður viö bestu aöstæður. Ein- angrunareiginleikar allra svefnpoka minnka með aldrinum og það verður að taka meö í reikninginn strax frá byijun. Rannsóknir sýna aö varmaþörf einstakhnga er afar misjöfn. Nakinn maður, sem hefur hægt um sig, þarf um 28 gráða hita við húðina svo að honum verði ekki kalt. Þetta er þó breytilegt, t.d. eftir aldri, kyni, þyngd, líkamlegu og andlegu ástandi og brennsluhraða líkamans. Þá skiptír mjög miklu máli hvort maður er þreyttur eða ekki, þurr eða blaut- ur, svangur eða mettur, svo aö nokk- uð sé nefnt. Einangrun svefnpoka Þegar svefnpoki er valinn stendur valiö um tvær gerðir einangrunar, efni. En dúnninn hefur líka ókostí. Hann er dýr og þolir illa raka og hann tapar einangrunargildi sínu að mestu eða öllu ef hann blotnar. Mik- ilvægt er að viðra dúnpoka eftir hveija nótt en varast ber að viðra hann í sterku sólskini. Fíberinn er gerviefni sem framleitt er í siliconhúöuðum þráðum sem ofnir eru í mottur. Motturnar eru misþykkar og misþéttar en fíberlögin geta verið frá 20 upp í 70 talsins. Fí- berinn er afar mismunandi að gæð- um. Nú er nánast eingöngu notaður holfíber, þ.e. þræðirnir eru holir að innan. Hægt er að fá fíber með mörg- um mismunandi holrúmum. Hollofil er með einu holrúmi, Quallofil 4 er með fjórum örfínum loftholum og Quallofil 7 er með sjö loftholum. Eft- ppka er trúlega svipuð en gera má ráð fyrir að góður dúnpoki sé allt að helmingi dýrari en samsvarandi fíb- erpoki. Hólfaskipting Það sem mestu máh skiptir, að ein- angruninni frátalinni, er hvernig pokanum er skipt niður í hólf. Hægt er að fá þrenns konar frágang: * Gegnumstungna, einfalda poka. Mikið varmatap verður í gegnum saumana og kuldi streymir inn. Þess- ir pokar eru alls ekki ætlaöir nema til notkunar innanhúss og við bestu aðstæður. * Pokar úr tveimur eða fleiri lög- um, sem er raöað þannig að hvergi myndast kuldarás. Þessi frágangur Valið stendur á milli dún- og fiberpoka. dún eða fíber. Báðar gerðir hafa kostí og galla og verður nú reynt að greina frá þeim. Dúnn hefur verið lengi notaður í svefnpoka. Hann er mis- góður eftir því af hvaða fugh hann er. Æðardúnn er bestur en hann er líka rokdýr. Dúnn af öðrum andar- tegundum er einnig mjög góður. Þá skiptir grófleiki dúnsins miklu máU en hann er betri eftír því sem hann er fínni. Yfirleitt er notuð blanda af dún og fiðri og er hlutfalhð í góöum pokum t.d. 20% fiður á móti 80% af dún. í ódýrari poka er blandaö til helminga eða fiður haft í meirihluta. Dúnninn er léttur, endist lengi og hefur mikið einangnmargildi miðað við þyngd og ummál. Dúnninn pakk- ast vel saman en er jafnframt fljótur að taka í sig loft aö nýju og fyUa vel út í öU hólf. Þá má nefna að hann er mýkri að sofa viö en nokkurt annað ir því sem loftholumar eru fleiri er fiberinn talinn betri. Hann er mýkri, heldur meira lofti í sér og er þar með léttari. Kostir fibersins eru að hann er mun ódýrari en dúnninn, hefur gott einangrunargildi, endist vel, þoUr vel raka og missir Utíð af eiginleikum sínum þótt hann vökni. Okostimir era að hann er þyngri og fyrirferöar- meiri en dúnn nema um sé að ræða QuaUofil 7. Þegar þú velur svefnpoka verður þú aö velja á milU dúns og fibers. Reyndir fiaUamenn mæla yfirleitt með góðum fíberpoka en hér er lögð rík áhersla á að kaupandinn geri sjálfstæða könnun á báðum mögu- leikum og taki ákvörðun að því loknu. Þá er sjálfsagt aö spyrjast fyr- ir hjá reyndum notendum og góðum söluaðílum. Ending dún- og fíber- er venjulega ágætur. Á mUU laganna er stundum höfð þunn filma sem á að endurkasta varma (og reyndar kulda). Sé þessi frágangur eins og hann á að vera gefur hann góðan árangur. * í dúnpokum er dúnninn hólfaður af með „veggjum“. Pokinn er því ekki gegnumstunginn. Þessi frágang- ur er í lagi séu hólfin ekki of stór en þá dreifist dúnninn Ula. Lesandinn er hvattur tíl að vanda vel val á svefnpokanum. Mikið úrval er á markaði og góðir pokar eru tölu- vert dýrari en sæmUegir eða lélegir. Þeir sem nota mikið svefnpoka og viö erfið skUyrði eiga hiklaust að kaupa mjög góöa poka. Gætið þess aö ábyrgð sé tekin á vörunni. Vand- aöur búnaður endist oft betur en óvandaöur og reynist þá oft ekki dýrari þegar til lengri tíma er Utið. ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.