Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1992, Qupperneq 26
44 Ferðir MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1992. Kláfurinp yfir Tungnaá: Fyrir fólk og fénad Fyrir skömmu var á annað hundr- að fjár feijað á kláfi yfir Tungnaá en verið var að fara með æmar á Holta- mannaafrétt. Kláfurinn, sem er við gamla feijustaðinn Hald, var smíðað- ur árið 1964. Á þeim árum var engin brú á ánni og þá þurfti að fara yfir ána á vaði til að komast á Sprengi- sandsleið. Kláfurinn var notaður fyr- ir létta bíla þar til áin var brúuð við Hrauneyjafoss. Nú era það aðeins fimm bændur í Ása- og Djúpárhreppi sem nota kláf- inn til fjárflutninga en voru mun fleiri fyrir nokkram árum. Að þessu sinni var Sveinn Tyrfingsson í Lækj- artúni þama á ferð með um 70 kind- ur og rösklega 100 lömb. Líklega er þetta síðásta sumarið sem Sveinn rekur fé sitt á Holtamannaafrétt. Eins og fyrr segir er Kláfurinn við svonefnt Hald á Tungnaá. Þar var löngum lögferja. Til frekari glöggv- unar fyrir gangandi ferðamenn má geta þess að kláfurinn er u.þ.b. 20 km sunnan við Hrauneyjafossvirkj- un. Vegurinn yfir Sprengisand liggur skammt frá Kláfinum að sunnan en þegar komið er yfir göngubrúna er hægt að komast yfir á gömlu hesta- leiðina inn á' Holtamannaafrétti. Sömuleiðis kemst göngumaðurinn inn í Bása sem eru fallegur staður svo ekki sé meira sagt. Fé á leið í frelsið á Holtamannaafrétti. Ólafur Gislason, fyrrum vinnumaður í Lækjartúni, heldur á Hrólfi, syni sínum, en Tyrfingur Sveinsson er t.v. Svangir islendingari Takió ykkur fri frá matseid f/eitingastaóir víða um land innan Sambands veitinga- og gistihúsa bjóða ísumar sérstakan matseóil, Sumarrétti SVG, þar sem áhersla er lögð ástiúnóúaiiiiiitágóðumðl. Sumarréttamatseðillinn gildirfrá 1. júnítil 15. september. Hádegisv. Kvöldverður Forréttur eða súpa, kjöt- eða fiskréttur, kaffi. 800-1000 kr. 1100-1700 kr. Börn 0 til 5 ára: Ókeypis Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur ■ ^| m ■ m _ s _ Upplýsingabæklingur fæst á ferðaskrifstofum og upplýsinga- miðstöðvum úti um land. Það er sérkennilegt að geta siglt inn í hellana. DV-myndirÓG Hljómburðurinn í Hænu er engu líkur Ómar Garðaisson, Vestmarvnaeyjum; Hægt er að ímynda sér að almættið hafi verið í sérlega góðu skapi þegar það lagði lokahönd á Vestmannaeyj- ar. Náttúrufegurð þeirra er einstök og enn eru þær í mótun. Vindur og haf fara um Eyjarnar óblíðum hönd- um og úr iðrum jarðar hafa skriðið upp hraun og aska og gert mönnum lífið leitt. Andstæðurnar eru miklar, grösugar brekkur og himinhá björg, nýtt hraun og gamalt, gömul eldfjöll og ný. Yngsta eldfjallið er Eldfell sem á tvítugsafmæli á næsta ári. Við þess- ar aðstæður þrífst fjölskrúðugt og svolítið sérstakt mannlíf á Heimaey. Lundinn, þjóðartákn Eyjamanna Á Heimaey eru ótal gönguleiðir þar sem menn geta komist í tæri við fuglabyggð. I því sambandi má nefna lundann, sem er eins konar þjóðar- tákn Eyjamanna. langvíu og hettu- máv, svo nokkrar þeirra 23 fuglateg- unda, sem verpa í Eyjum, séu nefnd- ar. Einnig er hægt að virða fyrir sér nokkrar af helstu náttúruperlunum, eins og t.d. Heijölfsdal, Helgafell og Kaplagjótu. Ef tíminn er naumur og gott í sjó- inn er ekki hægt að hugsa sér betri leið en að taka sér far með bátum sem bjóða uþp á ferðir umhverfis Heima- ey. DV fór með PH Víkingi einn góð- viðrisdag fyrir skömmu og var farið inn í alla stærstu hellana og litið til fuglanna sem í óðaönn sinntu ungum sínum, nýskriðnum úr eggjunum. Við sigldum meðfram Nýjahraun- inu sem rann 1973 og er enn í mótun. Þar era að myndast þverhnípt björg sem með hveiju árinu líkjast æ meir eldri björgum i Vestmannaeyjum. En virðingarsvipinn vantar enn. Sjórgekkí 60 metra hæð! Þegar siglt er framhjá Stórhöfða á lognsléttum sjó má sjá grasi gróna syllu, Lambahillu, í 60 m hæð. Fyrir rösklega tveimur árum gekk ofsa- veður yfir landið og þá tókst Ægi að höggva skarð í sylluna. Þegar fólk sér ummerki eftir slík átök finnur það veralega til smæðar og vanmátt- ar. í Stórhöfða erfarið inn í tvo hella, Gatið og Fjósin, og þar kemst gestur- inn í snertingu við fuglana sem hafa byggt sér hreiður að því er virðist í sléttu, þverhníptu berginu. Litadýrð- in er mikil. í þessari ferð var einnig heilsað upp á súluna í Geldungi og lundakarla í Álfsey og var það skemmtilegur krókur. Hápunktur ferðarinnar er Kafhell- ir í Hænu, sem er ein smáeyja. Þar inni er leikið á trompet og er hljóm- burðurinn engu líkur. Kafliellir gengur í gegnum eyna og er opið að vestan undir sjávarmáli. Þegar lág- sjávað er á kvöldin nær sólin að skína í gegn og litadýrðin mikil þegar sólargeislarnir brjótast í gegnum sjó- inn og endurkastast upp í hellinn. Áfram er haldið og eftir tveggja tíma siglingu er komið til hafnar. Þar með er lokið tveggja tíma ferö meö PH Víkingi. Farmiðinn kostar kr. 1.300 fyrir manninn og hópar geta fengið afslátt. Farmiðinn með öðrum bát, Bravo, kostar kr. 1.200 fyrir manninn og boðið er upp á allt að 20% afslátt fyrir hópa. Ein af mörgum sérkennilegum klettamyndum í Heimaey. Ef grannt er skoð- að líkist kletturinn einna heist fílshaus. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.