Alþýðublaðið - 20.07.1921, Side 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Ra fmagnfilelðslui.
Strauomum hefir þegar verið
hleypt á götuæðarnar og menn
ættu ekki að draga lengur að
láta okkur leggja rafleiðslur um
hús sín. Við skoðum húsin og
segjum um kostnað ókeypis. —
Komið ( tíma, meðan hægt er
að afgreiða pantanir yðar. —
H.f. Hlti & Ljós.
Laugaveg 20 B. Sími 830.
tt
á bezta stað við Laugaveginn, er til leigu.
— Upplýsingar í síma 7S8. —
fást í
Kaupfélaginu 1 Gamla bankanum.
V
alskonar nýjungar.
Einfaidar harmonikur.
Hljóðfærahúsiö,
Alþýðumenn verzla að öðru
jöfnu við þá sem auglýsa í blaði
þeirra, þess vegna er bezt að
auglýsa í Alþýðublaðinu.
Alþýdabladid
•
sr ðdýrasta, fjölbreyttasta og
bezta dagblað landsins. Kanp-
ið það og lesið, þ£ getið
þið alðrei án þess reriö.
Alþbl. kostar I kr. á mánuðl.
K aupid
Alþýöublaðið!
Ritstjóri og ábyrgðarmaðnr:
ólafur Fríðriksson.
PrenUmiðjan Gutenberg.
fétci Ltmd<m\ Æfintýri.
Tóhanna leit á hann, varir hennar skulfu, þegar hún
ætlaði að svara. Sheldon helt áfram.
„Og þú mátt ekki gleyma, að hann er sonur höíðingja
og að það er eins víst og tveir og tveir eru tjórir, að
ættmenn hans við Port Adams munu hefna hans með
því að taka höfuð hvíts manns".
„Þetta er svo hræðilega þýðingarlaust", sagði Jóhanna
loksins.
„Og svo-------æfintýralegt", bætti hann kýminn við.
Hún svaraði þessu engu. Hún snéri sér burt frá hon-
um, og Sheldon vissi, að orð hans höfðu hitt.
„Þessi þarna er orðinn veikur", sagði Binu-Charley
og benti á Poonga-Poongamanninn, sem særst hafði af
örinni.
Maðurinn sat kveinandi og spenti greipar á hnjám
sér. Sheldon hafði strax látið þvo sárið úr sóttvarnar-
meðölum, en samt bólgnuðu herðarnar mjög.
„Við verðum að fara með hann þangað sem Tudor
liggur", mælti Jóhanna. Blóðið kemst á meiri hreyfingu
ef hann gengur og vinnur á móti eitrinu. Adamu Adam,
geturðu annast þennan mann. Hristu hann. Ef hann
sofnar deyr hann“.
Ferðin gekk nú betur. Binu-Charley hafði skógarbú-
ann á undan sér og lét hann ryðja burtu gildrunum.
Skörp bugða var á einum stað á veginum og var ó-
mögulegt að komast hjá þvi, að reka sig á laufþyknið.
Skógarbúinn var hér mjög varkár og þegar hann hafði
greitt sundur þyknið, kom spjótsoddur í ljós, sem var
þannig fyrir komið, að óhjákvæmilegt var að rekast á
hann, þegar farið var um stíginn.
Binu-Carley tók spjótið og rannsakaði það nákvæm-
lega, alt i einu lést hann ætla að reka það í skógar-
búann, sera hrökk í ofboði undan. Spjótið var vafalaust
eitrað. Þegar lagt var af stað aftur hélt Carley spjótinu
ógnandi við bak skógarbúans,
Sólin gekk snemma undir háu fjöllin í vestri, en tungls-
ljós lýsti ferðafólkinu. Leiðangurinn hélt stöðugt áfram
um þennan töfraskóg — þar sem allsstaðar voru hættur
og skelfing í leyni, þar sem dauðinn læddist hljóðlaust
að mönnum, þar sem mannlífið var en á fornaldarstigi.
Ekki bærðist hár á höfði, loftið var þrungið rotnun og
óhollum gufum. Svitinn bogaði af þeim og þau fundu
greinilega rotnunarþefinn.
Þau fóru af stígnum. Stundum urðu þau að skríða á
fjórum fótum gegnum þyknið, og stundum urðu þau að
klifia í trjánum fimm álnir tyrir ofan jörðina. Loksins
komu þau að gríðarstóru banantré, sem var ótrúlega
stórt um sig og umvafið vafningviði. Innan úr djúpi
trésins heyrðu þau rödd. eins og maður syngi með
daufri og hæglátri rödd.
Alt í einu hljóðnaði söngurinn, og veika röddin hróp-
aði halló, sem Jóhanna svaraði.
„Eg er ekki orðinn vitlaus", sagði röddin; „eg söng
bara ögn til að halda kjarknum við. Hafið þið nokkuð,
sem hægt er að éta?"
Fimm mínútum slðar var búið að vefja sjúklinginn
ábreiðum. Bál voru kynt, vatn sótt, tjald Jóhönnu reist
og Lalaperu tók utan af matnum og opnaði dósirnar.
Tudor, sem var orðinn hitalaus, var mjög máttfarinn
og glorhungraður. Höfuð hans var svo bólgið af mý-
flugnabiti, að hann var varla þekkjanlegur, og Jóhanna
smurði andlit hans með sínum eigin húðsmyrslum og
vafði það heitum klútum. Sheldon fékk sting í hjartað
í hvert sinn sem hendur hennar snertu andlit eða lík-
ama Tudors. Hann fann að þessar hendur voru ekki
lengur drengshendur. Nú voru það konuhendur — og
Æ fintýriÖ
eftir Jack London, sagan sem hefir verið að
koma hér í blaðinu, kemur út sérprentuð á ágæt-
um pappír með mynd höfundarins. — Hún verður
yfir 200 síður og kostar aðeins 4 kr. send frítt
hvert á land sem er gegn póstkröfu. Upplagið
lítið. — Sendið pantanir sem fyrst til blaðsins.