Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1992, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1992, Side 6
36 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1992. Bflar___ Saganá bakvið sexkyn- slóðir Toyota Corolla Fyrsta kynslóð Corolla leit fyrst dagsins Ijós í nóvember árið 1966 og strax árið eftir komu fyrstu bílarnir af þessri gerð hingað til lands. önnur kynslóðin kom svo á markað í mai 1970 en þá hafði bíllinn breyst mikið frá fyrstu gerð. Nú þegar sjöunda kynslóð af Cor- olla hefúr litíð dagsins Ijós er við hæfi að líta tíi baka um rúman aldar- fiórðung og athuga hvemig saga þessa næst söluhæsta bíls í heimi hefúr þróast en aðeins bjallan frá Volkswagen hefur selst í fleiri ein- tökum og á allra næstu árum líður að því að það met verði í hættu því á síðasta ári voru framleiddir meira en ein miUjón Corolla-bíla af ýmsum gerðum. Á síðasta ári náðu Toyota- verksmiðjumar í Japan því að setja gamla góða T-módelið frá Ford í þriðja sætið en framleiðslu var hætt á því þegar framleidd höfðu verið alls 15.007.033 eintök en Corollan var fyrsti japanski bíllinn til að ná yfir 15 milljón eintaka framleiðslu. Nóvember 1966: Fyrsta kynslóðin Fyrsta Corollan sá dagsins ljós i nóvember 1966 og í fyrstu var aðeins um að ræða tveggja hurða gerð. Þetta var nýr bíD frá grunni og byggðist ekki að neinu leyti á hlutum úr öðr- um gerðum Toyota. Hvað hönnun og útlit áhrærði byggði hönnunin á þeirri reynslu sem 1000-bíllinn frá Toyota hafði fært í bú, auk þess á þeirri staðreynd að japanski bílamarkaðurinn kallaði á þessum tíma á aukið framboð Qöl- skyldubíla. I maí árið eftir, 1967, kom femra hurða fólksbfil og station-gerð tfi við- bótar og í september 1969 kom stærri og aflmeiri 1,2 lítra vél í stað 1,1 lítra vélarinnar sem verið hafði í bflnum frá byijun. Maí 1970: Önnur kynslóðin Fyrsta nýja kynslóðin af Corolla í endurbættri útgáfú kom í maí 1970. Útlitið var gerbreytt, bfilinn var nú lengri og breiðari ásamt því að heild- aryfirbragð bflsins var byggt á lægri línum. Þessi nýja kynslóð bauö strax upp á tvegga og fjögurra hurða fólks- bfla, statíongerð og coupé. Annar merkur áfangi náðist líka á árinu 1970, aðeins þremur árum og átta mánuðum eftir að fyrsta kyn- slóðin leit dagsins ljós, en það var að framleiðslan náði einni milljón eintaka. Apríl 1974: Þriðja kynslóðin Það lágu miklar endurbætur að baki þegar þriðja kynslóðin kom fram í aprfi 1974. Nú var líka hægt að fá allar gerðimar, nema statíon- bfiinn, með þremur mismunandi vél- um, 1,2,1,4 og 1,6 lítra. Það má segja að með þessari gerð hafi Toyota í fyrsta sinn svarað auknum kröfum frá ört vaxandi Evr- ópumarkaði og gert á bfinum breyt-- ingar með þær kröfúr í huga. Meðal breytinganna var breiðara innan- rými, auk þess sem sporvídd var aukin nokkuð. í janúar 1976 var svo bætt við Cor- olla liftback með 1,6 lítra vél og sport- lega hönnuðum afturenda. Coupé- gerðin fékk svipaða endurbót á árinu 1977. 1977: Fjórða kynslóðin Á árinu 1979 náði samanlögð fram- leiðsla frá upphafi sjö milljónum bfla og þá sá jafhframt fiórða kynslóðin dagsina ljós. Þessi kynslóð fékk síðan töluverða „andlitslyftíngu" á árinu 1981 og íyrsta dísfivélin kom í Cor- olia ári síðar á Japansmarkaði. 1983: 25milljónirog ílmmta kynslóð Corolla Á árinu 1983 var ástæða til að fagna þjá Toyota því á þessu ári náðu þeir því marki að framleiða 25 mfiljónasta bflinn samtímis því að 10 milljónasta Corollan rúllaði af færibandinu. Á þessu sama ári var fimmta kyn- slóð Corolla kynnt á Evrópumarkaði á alþjóðlegu bílasýningunni í Frank- furt. Nú kom Corolla í algerlega nýrri gerð, með framhjóladrifi og nýjum vélum með yfirliggjandi knastási sem nú voru í fyrsta sinn með fimm gíra gírkassa sem staðal- búnað. Ári síðar kom fyrsta „fjölventlavél- in“ frá Toyta þegar 1,3 lítra vélin kom á markað með 12 ventlum og nýrri hönnun vélarloks. Á árinu 1985 kom svo 16 ventla, 1,6 lítra vél í GT-gerð- inni. 1987: Sjötta kynslóðin Það var svo á árinu 1987 sem sjötta kynslóðin kom fram á sjónarsviðið. Strax frá upphafi var boðið upp á sedan, hatdiback, liftback ásamt statíongerð og það ásamt vali á 1,3 og 1,6 lítra bensínvélum ásamt 1,8 litra dísilvél gerði það að verkum að val varð á fjölda útgáfa af bflnum. Corolla í 25 ár á íslandi - söluhæsta einstaka gerðin í fjögur ár Það leið ekki á löngu frá því að fyrsta Corollan leit dagsins ljós í Japan þar til hún birtist hér á landi eins og sjá má á úrklippu úr dag- blaðinu Vísi frá 15. apríl 1967 en þá kynntí Japanska bifreiðasalan þennan nýja bfl í HáskólabíóL Söluhæsta einstaka gerðin Corollan náði fljótlega vinsæld- um og nú hin síðustu árin hefur hún verið söluhæsta einstaka gerð- in á bflamarkaði hér á landi því samkvæmt tölum frá Bflgreina- sambandinu um innflutning fólks- bfla var Corolla með 9,2% mark- aðshlutdeild á árinu 1988 en sá sem næstur kom, Mitsubishi Lancer, var með 7,2%. Á árinu 1989 var Corolla með 9,15%, 1990 með 12,3% og á síðasta ári var hlutfallið svip- að. -JR Toyotu sýndur Forríðamenn Japönsku bif- reiðasölunnar boðuðu frétta- menn á fund sinn I gær f Há- skólabföi, tfl að kynna fyrir þelm nýja bifrelð frá Toyota- yerksmiðjunum f Japan. Bifreið Húskólubíói þessi, „Toyota Corolia“ var fyrst kynnt á bifreiðasýningu 1 Tökfö f október s.l. og vakti þá þegar mikla athygii, enda bafði lengi verið búizt við nýrri bifreið frá Toyota. Bif- VtSIR. Laugardagur 15. april reiðin, sém sýnd er f Háskóla- bfói, er sú fyrsta sinnar teg- undar f Evrópu. Orri Vigfússón, framkvæmdastjóri Japönsku bif reiðasölunnar, skýrði frá þvf, að um þessar mundir væra tvö ár Bðin frá þvf að fyrstu Toy- ota bifreiðimar komu tfl lands- ins, en taia þeirra er nú hátt á þriðja hundrað. Fréttin um frumsýningu á Toyota Corolla á íslandi úr Vísl þann 15. apríl 1967. Það var Japanska bif- reiðasalan sem hóf innflutning á Toyota-bilum til landsins fyrir 25 árum og það er Orri Vigfússon sem þá var framkvæmdastjóri fyr- irtækisins sem stendur hjá bilnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.