Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Blaðsíða 1
Hólar í Hjaltadal: Menningardagar í tengslura við Hólahátíð 1992 hefur ferðaþjónustan Áning í samvinnu við Hólanefnd unnið að sérstakri dagskrá á Hólura í Hjaltadal sera standa mun dag- ana 9.-16. ágúst. Dagskráin hefst nk. sunnudag kl. 14 með messu í Hóladómkirkju en kl. 16 mun Bolii Gústafsson vigslubiskup opna sýningu í Grunnskólanum á Hólura. Á sýningunni eru myndverk úr Sólarljóðura eftír Gísla Sigurðsson listmálara. Einnlg verður opnuð sýning bók- um prentuðum í Hólaprenti hinu foma. Sama dag kl. 17 verða tvö erindi flutt í dómkirkjunni í tengslum við bókasýninguna. Hólahátíðin verður svo sunnu- daginn 16. ágúst og hefst með guðsþjónustu x Hólakirkjunni kl. 14. Nánar verður greint frá fram- haldi hátíðarinnar síðar. Norræna húsið: Fyrirlestrar um eyðni Tveir virör gestafyrirlesarar frá University of Califomia, San Francisco (UCSF), flytja fyrir- lestra í Norræna húsinu í dag kl. 14.30. Það eru þeir dr. Charles S. Craik, sem er prófessor við lyfla- fræðideild UCSF, og dr. Robert J. Fletterick, prófessor við líf- efnafræðideild UCSF. Fyrirlestr- amir íjalla um HIV próteasa og hönnun prótína með nýja eigin- leika. Aö fyrirlestrunum standa efnafræðiskor raunvísindadeild- ar Háskóla íslands, Raunvisinda- stofnun Háskólans og Menning- arstofnun Bandarikjana. Árbæjarsafn: Gömludansarnir Dansað verður við undirspil harmóníku á Árbæjarsafni á sunnudaginn. Það er danshópur eldri borgara undir stjórn Sig- valda Þorgilssonar danskennara sem sýnir gömlu dansana við undirleik Harmóníkufélags Reykjavíkur frá kl. 14.30 við Dill- onshxis. Að venju verður ýmislegt fleira um að vera á safninu þenn- an dag. í Árbænum veröur unnið viö tóvinnu og bakaðar lummur. í húsinu Nýlendu veröur skó- smiöurinn að störfum og í Miö- húsi geta gestir kynnst hinu gamla handverki prentsins. Að- gangseyrir er kr. 300 fyrir full- orðna en ókeypis fyxir höm 16 ára og yngri, eldri borgara og öryrkja. Athygh er vakin á því að miðar gilda í viku. Mosfellsbær: Afmælishátíð íbúar Mosfellsbæjar ætla að halda uppáö ára afmæli bæjarins á sunnudaginn. Hátiðarmessa hefst i Lágafellskirkju kl. 11 en kl. 14 veröur nýbygging dvalar- heimilis aldraðra að Hlaðhöra- rum formlega opnuö. Húsakynn- in verða til sýnis fyrir bæjarbúa kl. 15.30-17.30. Opiö hús verður hjá hstamönnum i Álafosskvos kl. 13-17 þar sem heitt kaffl og vöfllur verða framreiddar af kvenfélaginu í Þruðvangi. Þá verður hestamannafélagið Hörö- ur með opiö hús kl. 13-16 og þar geta bömin farið á hestbak. Kl. 14 verður farin um tveggja tíma söguferð um Mosfellsbæ í rútu með lciðsögumanni. Hilmar Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar, og Róbert B. Agnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, skoða kynningarrit- ið ásamt Hauki Dór listamanni. DV-mynd BG listamenn í Mos- fellsbæ kynntir í tilefni þess að 5 ár eru nú liðin frá stofnun Mosfellsbæjar og hsta- verkasjóðs hefur menningarmála- nefnd Mosfellsbæjar og hstamenn í bænum tekið höndum saman um að vekja athygh á starfsemi listamann- anna þar. Gefið hefur verið út veglegt kynn- ingarrit þar seúi 15 hstamenn eru kynntir. Kynningarritið, sem gefið er út í 7.000 eintökum, er fjármagnað með því að hstamennimir gefa hver um sig eitt hstaverk sem hstaverka- sjóður kaupir og eru þeir peningar síðan notaðir til aö fjármagna útgáf- una. Mosfehshreppur breyttist í bæ þann 9. ágúst 1987. Á fyrsta fundi bæjarstjórnar var stofnaður Lista- verkasjóður Mosfehsbæjar en hann átti að vinna að því að koma upp góðu safni listaverka sem endur- speglaöi Ustsköpun í landinu. Síðan Listaverkasjóður Mosfehs- bæjar tók til starfa hafa fjölmargir listamenn komiö sér upp vinnuað- stöðu í gömlum verksmiðjuhúsum í Álafosskvosinni og reyndar víðar um bæinn. Listamennimir hafa opnað vinnustofur sínar fyrir almenningi a.m.k. einu sinni í viku. Nk. sunnudag ætla Ustamennimir að hafa opið hús í Álafosskvosinni frá kl. 13-17 og eru allir velkomnir. -KMH Höggmyndir úr steini Hjónin Einar Már Guðvarðarson og Susanne Christensen opna á morgun sýningu á höggmyndum úr steini í kaffistofu Hafnarborgar, Strandgötu 34. Verkin á sýningunni eru öh unnin í marmara, íslenskan grástein og móberg. Einar Már og Susanne eru bæði sjálfmenntuð í höggmyndahstinni og telja fimm ára búsetu á frjósamri klettahæð í Mani á syðsta hluta Pe- lopsskaga Grikklands vera sinn skóla í höggmyndagerð. Þar unnu þau í ýmsar steintegundir og fengu m.a. það verkefni að höggva lág- myndir í nýtt hús sem var byggt eft- ir hefðbundnum aðferðum úr til- höggnum steinum. Þau þjónin hafa ferðast mikið um heiminn og komu til landsins í vor úr átta mánaða náms- og ævintýra- ferð, m.a. til Nýja Sjálands, Japans og Nepals. Sýningin í Hafnarborg er fyrsta höggmyndasýning þeirra á ís- landi og eru öh verkin unnin hér- lendis. Allir eru velkomnir að vera við opnunina á morgun en sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga frá kl. 11-18 og um helgar frá kl. 12-18. -KMH Einar Már og Susanne ásamt nokkrum verka sinna. Kráarýni: Ódýrtölí Hólminum -sjábls. 18 Menning: Tónleikar í Skálholti -sjábls. 21 Skemmtanir: Helgar- dansleikir -sjábls. 19 Myndlist: Fjalla- mjólk á Kjarvals- stöðnm -sjábls. 20 Ferðir: Þórs- mörk og Skjald- breið -sjábls. 23 Kvikmyndir: Vegg- fódur og Fal- innfjár- sjóður - sjá bls. 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.