Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Síða 4
20
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7, sími 673577
I sýningarsal og vinnustofum eru til sýnis og sölu
olíumálverk, pastelmyndir, grafík og ýmsir leirmunir.
Opið aila daga frá kl. 12-18.
Árbæjarsafn
„Það er svo geggjað" nefnist sýning sem stendur
nú yfir í Árbæjarsafni. Opið alla daga nema mánu-
daga kl. 10-18. Sýningin verður í allt sumar.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74, simi 13644
Safn Ásgríms Jónssonar er opið á laugardögum og
sunnudögum kl. 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Sigtúni, sími 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina Bók-
menntirnar í list Ásmundar Sveinssonar. Jafnframt
hefur verið tekin í notkun ný viðbygging við Ásmund-
arsafn. Safnið er opið kl. 10-16 alla daga.
Ásmundarsalur
v/Freyjugötu
Opið alla virka daga frá kl. 10-16.
FÍM-salurinn
Garöastræti 6
Nú stendur yfir málverkasýning Erlu Norðdahl. Á
sýningunni eru 16 myndir, allar unnar í olíu og á sl.
3-4 árum. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18
og stendur til 16. ágúst.
Gamla Álafosshúsið
Nú stendur yfir sýning á verkum Hauks Dórs. Á sýn-
ingunni eru málverk og teikningar. Sýningin er opin
alla laugardaga frá kl. 12-18 og stendur i allt sumar.
Café Mílanó
Nú stendur yfir sýning á verkum Ríkeyjar Ingimund-
ardóttur. Á sýningunni eru olíumálverk, vatnslita-
myndir og skúlptúr.
Gallerí G-15
Skólavöröustig 15
Á morgun, laugardaginn 8. ágúst, mun Katrín Elvars-
dóttir opna Ijósmyndasýningu. Á sýningunni verða
20 svart-hvítar silfur-gelatín Ijósmyndir sem allar eru
unnará þessu ári. Sýningin stendurtil 1. september.
Gallerí Ingólfsstræti
Bankastræti 7
Nú stendur yfir sýning á myndum, máluðum á silki,
eftir Guðrúnu Arnalds. Einnig eru fjögur myndverk,
unnin úr bývaxi og litadufti á striga eftir Jón Sæ-
mundsson. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18.
Gallerí List
Skipholti. sími 814020
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn. Opið dag-
lega kl. 10.30-18.
Gallerí Port
Kolaportinu
Opið laugard. kl. 11-17.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9, sími 13470
I dag, föstudaginn 7. ágúst, kl. 16 opnar Helgi Val-
geirsson myndlistarsýningu. Á sýningunni verða
málverk og-teikningar. Sýningin verður opin á versl-
unartíma og stendur til 4. september.
Geysishúsið
Aöalstræti 2
Nú stendur yfir sýningin Höndlað í höfuðstað -
þættir úr sögu verslunar í Reykjavík. Að sýningunni
standa Borgarskjalasafn Rvíkur, Ljósmyndasafn
Reykjavíkurborgar og Verslunarmannafélag Rvík. Á
sýningunni er reynt að rekja þróun verslunar í borg-
inni frá upphafi hennar til nútímans með skjölum,
Ijósmyndum og öðrum gögnum. Sýningin mun
standa til 30. ágúst. Hún er opin alla daga kl. 9-20.
Aðgangur ókeypis.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Laugardaginn 25. júlí sl. opnaði hópur myndlistar-
manna, er kalla sig Anima Nordica, sýningu. Á sýn-
ingunni eru sýnd málverk, teikningar, skúlptúrar,
videoverk o.fl. Sýningin stendurtil 10. ágúst. í Sverr-
issal opna færeysku listakonurnar Astrid Andreasen,
Guðrið Poulsen og Tita Winter sýningu á verkum
sínum. Á sýningunni verða textílverk, hefðbundinn
vefnaður, verk unnin með blandaðri tækni og
keramikverk. Sýningin stendur til 24. ágúst. Sýning-
arnar eru opnar alla daga nema þriðjudaga frá kl.
12-18. i kaffistofu verður opnuð 8. ágúst sýning á
höggmyndum úr steini. Verkin eru eftir Einar Már
Guðvarðarson og Susanne Christensen og eru unnin
í marmara, íslenskum grástein og móbergi. Sýningin
er sölusýning og er opin virka daga frá kl. 11-18.
Hún stendur til 31. ágúst.
Hafnarhúsið
Tryggvagötu
14. júní var opnuð sögusýning í Hafnarhúsinu. Á
sýningunni ersýnd þróun og uppbygging Reykjavík-
urhafnar og þar er einnig mikil veggmynd sem Gylfi
Gíslason myndlistarmaður hefur gert af Reykjavíkur-
höfn eins og hún mun hugsanlega líta út árið 2017.
Sýningin verður opin daglega frá kl. 13-18 fram til
hausts.
Hótel Lind
Nú stendur yfir sýning á verkum Reynis Sigurðsson-
ar. Á sýningunni eru 24 olíumálverk og einnig akríl-
myndir. Sýningin er opin á afgreiðslutíma veitinga-
hússins.
Sýning á Hressó
Opnuð hefur verið í veitingahúsinu Hressó sýning á
Ijósmyndum eftir Kristján Logason. Myndirnar eru
ýmist svarthvítar, handmálaðar eða í lit.
Kjarvalsstaðir
8. ágúst kl. 16 opnar Kristrún Gunnarsdóttir myndlist-
arsýningu sem ber yfirskriftina Fjallamjólk. Á sýning-
unni verður ísetning á veggmyndum og skúlptúrum
í sýningarkössum safnsins sem kenndir hafa verið
við Kjarval sjálfan. Sýningin stendur til 23. ágúst og
er opin alla daga frá kl. 10-18.
Norræna húsið
Laugardaginn 11. júli sl. var opnuð sumarsýning í
sýningarsölum Norræna hússins. Þrír listamenn sýna
verk sín, þeir Daði Guðbjörnsson, Helgi Þorgils Frið-
jónsson og Tumi Magnússon. Verk Helga og Tuma
eru máluð á þessu ári en verk Daða eru frá undanförn-
um árum. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14-19
og stendur til 16. ágúst. Aðgangur er ókeypis.
I bókasafni stendur yfir sýning á bókamerkjum og
böndum eftir þýsku listakonuna Marianne Krauss.
Þau eru ofin með spjaldvefnaðartækni sem er alda-
gömul hefð en rekja má sögu spjaldvefnaðarins þús-
undir ára aftur í tímann. Sýningin er opin mánud -
laugard. frá kl. 13-19 og á sunnud. frá kl. 14-17.
Sýningin stendur fram í miðjan ágúst. I anddyri
stendur yfir sýning á Ijósmyndum sem þýski Ijós-
myndarinn Franz-Karl Freiherr von Linden tók á is-
landi á árunum 1972-77. Á sýningunni eru 36 mynd-
ir. Sýningin stendur út ágústmánuð.
Nýlistasafnið
Vatnsstig 3b
Laugardaginn 25. júlí var opnuð sýning á verkum
eftir fjóra hollenska myndlistamenn, Peter Terhorst,
Evelyn van Dvil, Marcel Zalme og Willem Speeken-
Brink. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18. Sýn-
ingin stendur til 9. ágúst.
Katel
Laugavegi 20b. sími 18610
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda listamenn,
málverk, grafík og leirmunir.
Iistmunahúsið:
Geysishúsiö:
Höndlað í
höfuðstað
Listakonan Kristrún Gunnarsdótt-
ir opnar myndlistarsýningu á morg-
un, laugardag, í vestursal Kjarvals-
staða.
Sýningin ber yfirskriftina Fjalla-
mjólk og er hér um að ræða ísetningu
á veggmyndum og skúlptúrum í sýn-
ingarkassa safnsins sem kenndir
hafa verið við Kjarval sjálfan.
Kristrún hefur lagt stund á mynd-
listamám við California Institute of
the Arts síðastliðin fjögur ár. Hún
hefur bæði tekið þátt í staðið fyrir
samsýningum í Los Angeles, auk
þess að standa fyrir samsýningu á
gömlu billjardstofunni við Klappar-
stíg í ágúst 1991.
Sýning Kristrúnar, sem er í vestur-
forsal Kjarvalsstaða, er önnur einka-
sýning listakonunnar á íslandi.
Sýningin opnar kl. 16.
Kristrún Gunnarsdóttir ásamt einu verka sinna. Sýning hennar, sem opnar
á morgun, ber heitið Fjallamjolk.
Myndir Katrinar eru allar svart-hvít-
ar Ijósmyndir.
G-15:
Silfur-
gelatín
ljósmyndir
Katrín Elvarsdóttir opnar ljós-
myndasýningu í gallerí G-15, Skóla-
vöröustíg 15, á morgun. Á sýning-
unni verða 20 svart-hvítar silfur-
gelatín ljósmyndir, allar unnar á
þessu ári. Katrín hefur stundað ljós-
myndanám í Bandaríkjunum und-
anfarin fjögur ár, fyrst í Brevard
Community College, Flórída, og síð-
an í The Art Institute of Boston,
Massachusetts. Hún hefur tekið þátt
í samsýningum í Bandaríkjunum og
hélt lokasýningu í The Art Institute
of Boston sl. vor. Þetta er fyrsta
einkasýning Katrínar hér á landi og
stendur hún til 1. september.
Sjávarlífsmyndir
Gunnlaugs Scheving
Sýning á nokkrum stórum sjávar-
lífsmyndum Gunnlaugs Scheving
verður opnuð á morgun kl. 16 í List-
munahúsinu í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu.
Myndir þessar hafa verið fengnar
að láni frá ýmsum einka- og opinber-
um aðilum og nú hittast þær allar
aftur, afkvæmi þessa kyrrláta mál-
ara, og birtast almenningi í sölum
Listmunahússins við hina gömlu
Reykjavíkurhöfn á sjötugasta og
fimmta afmælisári hafnarinnar.
Hafnarborg:
Færeyskar
listakonur
Færeysku listakonurnar Astrid
Andreasen, Guðrið Poulsen og Tita
Winther opna sýningu í Hafnarborg,
Sverrissal, á morgun kl. 14.
Allar hstakonurnar hafa sýnt verk
sín á fjölda sýninga heima í Færeyj-
um og á listasöfnum og galleríum
annars staðar á Norðurlöndunum.
Aðeins Guðrið Poulsen hefur sýnt
verk sín hér á landi áður.
Á sýningunni í Hafnarborg verða
textíl- og keramikverk. Sýningin
stendur til 24. ágúst og er opin frá
kl. 12-18 alla daga nema þriðjudaga.
Nú stendur yfir sýningin Höndlað
í höfuðstað - þættir úr sögu verslun-
ar í Reykjavík og er sýningin í Geys-
ishúsinu, Aðalstræti 2. Að sýning-
unni standa Borgarskjalasafn
Reykjavíkur og Ljósmyndasafn'
Reykjavíkurborgár og Verslunar-
mannafélag Reykjavikur. Á sýning-
unni er reynt að rekja þróun versl-
unar í borginni frá upphafi hennar
til nútímans meö skjölum, ljósmynd-
um og öðrum gögnum. Sýningin er
opin alla daga frá kl. 9-20. Aðgangur
er ókeypis. Færeysku listakonurnar sem nú eru staddar hér á landi.
Myndlistarsýning:
Fjallamjólk á
Kj arvalsstöðum
Sýningar
Listasafn Einars Jónssonar
Njaröargötu, simi 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-16.
Listmunahúsið
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
sími 621360
Laugardaginn 8. ágúst kl. 16 verður opnuð sýning
á nokkrum stórum sjávarlífsmyndum Gunnlaugs
Scheving. Myndirnár hafa verið fengnar að láni hjá
ýmsum einkaaðilum og opinberum aðilum. I minni
sal á annarri hæð er verið að sýna og selja fjölda
myndverka eftir islenska samtímalistamenn.
Listinn
gallerí - innrömmun
Siöumúla 32, simi 679025
Uppsetningar eftir þekkta íslenska málara. Opið virka
daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga
kl. 14-18.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í
eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur
að safninu er ókeypis.
Lóuhreiðrið
Laugavegi 59
Jón Gunnarsson sýnir i kaffistofunni Lóuhreiðri, 2.
hæð, fyrir ofan Hagkaup. Á sýningunni eru eingöngu
vatnslitamyndir. Opið mánudaga-föstudaga frá kl.
9-18.
Mokkakaffi
Skólavöröustíg
Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum
Haralds Jónssonar. Á sýningunni eru teikningar,
unnar á pappír á undanförnum mánuðum. Sýningin
er opin alla daga kl. 9.30-23.30 nema sunnud. kl.
14-23.30 og stendur fram eftir ágúst.
Myndlistarsýning í
menntamálaráðuneyti
Elín Magnúsdóttir sýnir oliumálverk og vatnslita-
myndir, Tryggvi Hansen sýnir tölvugrafík og Elínborg
Guðmundsdóttir, Margrét Salome Gunnarsdóttir og
Sigrún Gunnarsdóttir sýna leirlistarverk. Sýningin er
opin á virkum dögum á starfstíma ráðuneytisins kl.
8-16.
Sjónminjasafn íslands
Nú stendur yfir sýning Skipaútgerðar rikisins. Opið
alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18.
Stofnun Árna
Magnússonar
Árnagarði, Suðurgötu
Nú stendur yfir handritasýning í Árnagarði. Á sýning-
unni eru m.a. handrit sem minna á ævistarf Árna
Magnússonar. Einnig eru galdrakver og eitt merkasta
rímnahandrit sem varðveist hefur. Sýningin verður
opin alla daga vikunnar, nema sunnudaga, frá kl.
14r16. Sýningin stendur til 1. september.
Sýning í SPRON
í útibúi SPhON að Álfabakka 14 i Mjódd eru til
sýnis verk eftir Björgu Þorsteinsdóttur. Á sýningunni
gefur að líta 10 listaverk, unnin með olíukrít, og eru
þau unnin á árunum 1990-1992. Sýningin stendur
til 14. ágúst og er opin kl. 9.15-16.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, sími 54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18.
Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgotu 59, sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmyndir, málverk
og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðju-
daga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafn íslands
Sýningin Húsvernd á islandi var opnuð í Bogasal
Þjóðminjasafns íslands laugardaginn 27. júní sl. Þar
er saga húsverndar á islandi rakin í stórum dráttum
og kynntar aðgerðir opinberra aðila sem markað
hafa stefnuna á hverjum tíma. Mikill hluti sýningar-
efnisins er Ijósmyndir, teikningar, vatnslitamyndir og
uppdrættir af gömlum húsum og húshlutum.
Minjasafnið á Akureyri
Aöalstræti 58, simi 24162
Opið daglega kl. 11-17.
Myndlistaskólinn
Akureyri
Laugardaginn 18. júlí var í þriðja sinn opnuð sumar-
sýning í Myndlistarskólanum á Akureyri. Þeir sem
sýna verk sín á sýningunni eru Guðmundur Ármann
Sigurjónsson, Helgi Vilberg, Kristinn G. Jóhannsson,
Sigurbjörn Jónsson, Jón Laxdal Halldórsson og
Rósa Kristín Júlíusdóttir. Á sýningunni eru málverk,
máluð vattteppi og klippimyndir. Sýningin verður
opin daglega frá kl. 14-18 fram tii 9. ágúst.
Gallerí Hulduhólar
Mosfellsbæ
27. júní sl. opnuðu listamennirnir Steinunn Marteins-
dóttir, Sveinn Björnsson, Hlíf Ásgrimsdóttirog Sverr-
ir Ölafsdóttir sýningu með verkum sínum. Sýningin
er opin laugard - miðvikud. kl. 14-19 og fimmtud.
og föstud. kl. 17-22.
Vinnustofa Snorra
Alafossvegi 18a, Mosfellsbæ
Þann 16. júlí sl. opnaði Snorri Guðmundsson sýn-
ingu á Listaverki náttúrunnar sem eru höggmyndir
úr hrauni og öðrum náttúrulegum efnum. Hraunið,
sem valið er í hvern grip, er allt út siðasta Heklu-
gosi. Sýningin verður opin frá kl. 14-20.
Eden
Hverageröi
Nú stendur yfir sýning Sigurðar Hauks Lúðvíksson-
ar. Á sýningunni eru 35 olíu- og vatnslitamyndir.
Þetta er sölusýning og stendur til 16. ágúst.
Tjamarbíó, sími 19181
Sýningin Night Lights verður fimmtudaga-sunnu-
daga kl. 21—23 fram til 30. ágúst. Sýningin er gerð
til fræðslu um íslenska menningu, þjóðsögur og vík-
ingatímann. Sýningin fer fram á ensku.
Hótel Búðir
Núna stendur yfir sýning á verkum listamannanna
Arnar Karlssonar, Haíldórs Ásgeirssonar og Magnús-
ar Sigurðssonar. Örn sýnir vatnslita- og klippimyndir
í þvottahúsinu, Halldór Ásgeirsson sýnir verk sín á
bryggjunni og Magnús Sigurðsson sýnir nokkur verk
inni á hótelinu. Allar sýningarnar standa yfir í sumar.
Akranes
15. júlí var opnuð sýning í upplýsingamiðstöðinni
fyrir ferðamenn á oiíumálverkum eftir Hjálmar Þor-
steinsson. Sýningin er opin alla virka daga frá kl.
10.30-17.00. Sýningunni lýkur 15. ágúst.
Gallerí Slunkariki
isafiröi
Laugardaginn 25. júlí var opnuð sýning á verkum
ungverska listamannsins Miklos Tibor Vaczi. Á sýn-
ingunni, sem er 12. einkasýning Miklosar, sýnir hann
13 Ijósmyndaverk og hefur gefið sýningunni heitið
Carnival. Sýningunni lýkur sunnudaginn 16. ágúst.
Samkomuhúsið Staður
Eyrarbakka
1. ágúst opnaði Jón Ingi Sigmundsson málverkasýn-
ingu. Á sýningunni eru 50 olíu-, pastel- og vatnslita-
myndir og stendur hún til 16. ágúst. Sýningin er
opin alla virka daga frá kl. 17-22 og um helgar frá
kl. 14-22.