Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1992, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992.
Fréttir
Rannsókn kókaínmálsins:
Óvíst h ver setti
kókaínið í bflinn
- Steinn Ármann „kókaínmaður“ segist ekki hafa gert það
Rannsókn kókaínmálsins skipt-
ist niður í nokkur atriði. Eitt þeirra
snýr að því hver setti kókaínið í
bílaleigubílinn sem Steinn Ármann
Stefánsson ók þegar hann flúði lög-
reglu. Heimildir DV herma aö þetta
atriði sé það sem er viðkvæmast í
rannsókninni. Sömu heimildir
herma að Steinn Ármann hafi stað-
fastlega neitaö að hafa sett kókaín-
ið í bílinn og hann hefur neitað að
hafa vitað um að kókaínið hafi ver-
ið í bílnum. Nú er unnið að því aö
upplýsa hvort hann hefur á réttu
að standa eða ekki.
Þórir Oddsson vararannsóknar-
lögreglustjóri sagðist í gærkvöldi
ekkert vúja segja um einstaka
þætti rannsóknarinnar. Hann
sagðist þó eiga von á að rannsókn-
inni yrði lokið áður en gæsluvarð-
haldsúrskurðurinn yfir Steini Ár-
manni rennur út, það er um miðjan
september. Ekki náðist í Bjöm
Halldórsson, yfirmann fíkniefna-
deOdar í gærkvöldi, til að bera þetta.
undir hann. Böðvar Bragason lög-
reglustjóri sagöist kjósa að tjá sig
ekkert um þetta mál aö sinni.
Heimildir DV herma að „tálbeit-
an“ og Steinn Ármann hafi verið
búnir að vera saman í bílaleigu-
bílnum nokkra stund áður en elt-
ingaleikurinn hófst. „Tálbeitan"
fór úr bílnum til að komast í síma.
Þeir vom þá staddir í Laugarnes-
hverfí í Reykjavík. Eftir að „tálbeit-
an“ yfirgaf bílinn komu lögreglu-
menn á tveimur bílum aðvífandi
að biíaleigubilnum og hugðust
handtaka Stein Armann. Hann
lagði hins vegar á flótta með kunn-
um afleiðingum.
Steinn Ármann og „tálbeitan",
sem er 35 ára gamall karlmaður,
kynntust þegar þeir sátu samtímis
í fangelsi fyrir fáum árum. Heim-
ildir DV segja að „tálbeitan“ eigi
aðild að ódæmdu fíkniefnamáli.
Eftir því sem næst verður komist
liggur ljóst fyrir að kókaínið var í
eigu eða umsjón Steins Ármanns
Stefánssonar.
Þórir Oddsson segir að rannsókn-
arlögreglan muni nota öll þau
rannsóknargögn sem fíkniefnalög-
reglan var búin að vinna.
-sme/-bjb
Afstaðan til EES
41,4%
26,9%
Fyrsta
skóflustungan
Fyrsta skóflustunga að hinni nýju
Digraneskirkju í Kópavogi var tekin
í gær. Töluverðar deilur hafa verið
um staðarvalið. Víghólasamtökin
hafa mótmælt kirkjubyggingunni og
krafist afsagnar sóknarnefndar.
Fyrirhugað er að halda aðalsafnað-
arfund í næsta mánuöi. Aðspurður
sagði sr. Þorbergur Kristjánsson að
ekki hefði verið ástæða til að fresta
framkvæmdum fram yfir aðalsafn-
aðarfundinn. Sr. Þorbergur sagði að
það hefði verið þarflaust þar sem
nýja kirkjubyggingin hefði verið
samþykkt „á fleiri safnaðarfundum
en ég kann frá að greina". ask
Vöniskiptajöfiiuður:
Óhagstæðuríjúlí
Vöruskiptajöfnuðurinn við útlönd
var óhagstæður um 1,6 milljarða í
júní en á sama tíma í fyrra var hann
óhagstæður um 200 milljónir. Út
voru fluttar vörur fyrir 6^5 milljarða
en inn fyrir 8,1 milljarð. A fýrstu sex
mánuðum ársins var vöruskiptajöfn-
uðurinn hins vegar hagstæður um
1,3 milljarða.
Á fyrstu sex mánuðum ársins dróst-
útflutningur saman um 6,7 prósent
miðaðviðsamatímaífyrra. -kaa
Biskup íslands, hr. Ólafur Skúlason, tekur fyrstu skóflustunguna að umdeildri kirkju
inn, sr. Þorbergur Kristjánsson, fylgist með.
í Kópavogi en sóknarprestur-
DV-mynd GVA
Skoðanakönnun um EES:
Fleiri eru á
móti en með
26,9 prósent aðspurðra sögðust
vera samþykk þátttöku íslands í Evr-
ópska efnahagssvæðinu en 31,7 pró-
sent sögðust vera á móti. Þetta kem-
ur fram í skoðanakönnun sem ís-
lenskar markaðsrannsóknir gerðu
fyrir utanríkis-, félagsmála og iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneytið. Könnun-
in náði til 1.200 manns á aldrinum
15 til 69 ára á landinu öllu. Liðlega
70 prósent svöruðu.
41,4 prósent svarenda treystu sér
ekki til að taka afstöðu. Karlar vildu
frekar en konur taka þátt í EES og
yngri karlar frekar en eldri.
Einungis 1,2 prósent hafa kynnt sér
málið mjög vel en 79,2 prósent höfðu
kynnt sér það frekar illa, mjög illa
eðaekkert. -sme
Flatey:
Tværtrillur.
losnuðufrá
Tvær trillur losnuðu frá festum viö
Flatey á Breiðafirði í gærkvöld. Trill-
urnar voru bundnar við legufæri við
eyna þegar þær þoldu ekki veður-
hanúnn sem gekk yfir. -Tveir menn
úr Flatey fóru á eftir trillunum og
náðu að bjarga þeim í var.
„Það munaði litlu að Ula færi. Ef
viö hefðum komið mínútu síðar
hefðu trillumar brotnaö í spón,“
sagði Tryggvi Gunnarsson í samtali
viö DV en hann stökk yfir í trillumar
og náði að afstýra frekara tjóni.
Trillumar, sem heita Gustur SH
og Særós RE, voru bundnar saman
og losnuðu frá í einu. Tryggvi varð
vitni að atvikinu og kallaði í félaga
sinn, Magnús Jónsson. Saman fóm
þeir á báti Magnúsar eftir trillunum.
Tryggi stökk yfir í trillumar rétt
áðurenþærlentuístórgrýti. -bjb
Skarphéöinn Þórisson:
Lengri leigu á Bfldudal
Skiptastjórinn í þrotabúi Fisk-
vinnslunnar á Bíldudal, Skarphéð-
inn Þórisson hæstaréttarlögmaður,
sagði í samtali við DV í gær að verið
væri að semja um áframhaldandi
leigu milii þrotabúsins og útgerðar-
félagsins sem hefur verið með Fisk-
vinnsluna á leigu. Skarphéðinn sagði
að eftir væri að semja um til hversu
langs tíma leigusamningurinn yröi.
Búist er við að gengið verði frá nýj-
um leigusamningi ekki síðar en á
mánudag.
„Þetta er hrein bráðabirgðaráðstöf-
un. Þrotabúið þarf að losa sig við
þessar eignir,“ sagði Skarphéðinn
Þórisson.
Hann sagði að hafnar væm óform-
lega viöræður við heimamenn um
kaup á fyrirtækinu.
Kröfulýsingafrestur í þrotabú
Fiskvinnslunnar er til 5. október óg
fyrsti skiptafundur verður 29. októb-
er í haust.
-sme
Askriftargetraun D V:
Opel Astra til Eyja
Þegar dregið var í áskriftargetraim
DV úr hópi skuldlausra áskrifenda á
miðvikudag kom upp nafh Aðalheið-
ar Þorleifsdóttur, ungrar einstæðrar
móður sem búsett er á Skólavegi 32
í Vestmannaeyjum.
Áslaug, sem rekur nuddstofu fyrir
vinnuglaða Eyjamenn, kom í rokinu
í gær til Reykjavíkur með Karenu
dóttur sinni, sem er liðlega þriggja
ára, og veitti bílnum móttöku í
Kringlunni.
Nú em fjórir bílar eftir í pottinum
og næst verður dregið um Mazda 121
frá Ræsi hf. þann 23. september.
Nánar verður sagt frá afhending-
unni í DV Bílum á morgun.
-JR
Ríkissaksóknari um að færa kókainmálið frá „fíknó“:
Vantreysti ekki
fíkniefnalögreglu
Hallvarður Einvarðsson ríkis-
saksóknari segir að ákvörðun sín
um að færa rannsókn stóra kókaín-
málsins frá Ðkniefnalögreglu til
RLR lýsi ekki vantrausti hans á
störfum fíkniefnalögreglunnar.
HaUvarður segir ákvörðunina ekki
til komna vegna gruns um að fíkni-
efnalögreglan hafi brotið af sér við
rannsókn kókaínmálsins. „Það er
eingöngu verið að færa rannsókn
málsins á eina hendi. Að sjálfsögðu
munu RLR og lögreglan í Reykja-
vík eiga með sér nána samvinnu í
málinu," sagði HaUvarður í samtaU
viðDV.
„Ég get ekki fuUyrt um aö þessi
ákvörðun sé einsdæmi. MáUð hefur
vakið meiri athygU en önnur af
svipuðu tagi. Ég er ekkert að breyta
því að fíkniefnalögreglan rannsaki
ekki brot á fikniefnalöggjöfinni.
Ákveðið var að þetta sérstaka mál
fari í þann rannsóknarfarveg sem
það er komið í. Ég vænti þess að
fíkniefnalögreglan aðstoði RLR við
málsmeðferðina, eftir því sem leit-
að verður eftir,“ sagði HaUvarður.
HaUvarður sagði að ekkert lægi
fyrir á þessu stigi málsins sem
benti til þess að fíkniefnalögreglan
hefði fariö yfir strikið við rannsókn
kókaínmálsins. „Ég met mikUs
dugnaö og eljusemi þeirra rann-
sóknarlögreglumanna sem hafa
um árabU unnið að rannsókn fikni-
efnamála hjá lögreglunni í ReyKja-
vík.“
Aðspurður sagöi HaUvarður að
ákvörðun sín væri ekki fordæmi
fyrir komandi mál. „Ég vU minna
á eitt, þó það hafi ekki ráðið úrsht-
um í þessu máU, að þegar lög um
RLR voru sett árið 1976 var gert ráð
fyrir því í greinargerð að frum-
varpi, að rannsókn fíkniefnamála
yrði í höndum RLR og að því stefnt.
Af þeirri skipan mála varð hins
vegar ekki. Ég vU benda á að brot
á almennri hegningarlöggjöf og
fíkniefnalöggjöf tengjast mjög oft.
En þetta hafði ekki úrsUtaáhrif á
ákvörðun mína um rannsókn
kókaínmálsins," sagði HaUvarður
að endingu.
-bjb